Tíminn - 13.12.1957, Qupperneq 7

Tíminn - 13.12.1957, Qupperneq 7
T ÍM I Sff N, föstudaginn 13. desember 1957. 7 4 Landhelgismálið er efst í huga fólksins við ströndina Fiskijjinginu lauk á mánu- dag. Ovenju mörg mál voru tekin til meðferðar að jaessu sinni og margar afhyglis- verðar tiliögur samþykktar. Fréttamaður blaðsins átti tal við fióra þingfulltrúa á mánu daginn, innti þá frétta af þinginu og heiman úr hér- aði. Níels Ingvarsson ræ'ðir um landhelgismálið og sjónarmið Austíir'Singa Einn þingfulltrúa er Níels Ing- varsson frá Norðfirði, en hann er einnig yfirfiskmatsmaður á Austur- landi. Níels telur landhelg:smál 'v hið merkasta. sem rætt var á þing- inu, enda var það fyrsta mál á dagskrá á öllum fjórðungsþingum. Fórust Níelsi svo orð um land- helgismáiið: „Þegar að losna tók um þau bönd, sem bundu okkur við þriggja mílna landhelgi, þá skapaðist í hugum fólksins, sem býr við strönd ina og hefir hagsmuna að gæta við útfærslu landhelginnar, það hug- tak, að friða bæri firði og flóa með grunnlínu, sem hugsaðist dregin „fyrir firði og flóa um yztu annes og sker“. Þetta mun vera sú grundvallarregla, sem Norð- menn byggðu sína útfærslu á. Ef litið er á kortið við strendur ís- lands frá Horni suður um Snæfells- nes og Reyfcjanes og austur með landi að Ingólfshöfðaj þá má heita, að þessari grundvallarreglu hafi verið íylgt, þegar grunnlínan var dregin. Sé hins vegar litið á svæð- ið frá Horni, austur með Norður- landi um Rifstanga og Langanes, suður uin Austfirði og' að Ingólfs- höfða, þá er þessari reglu ekki fylgt, ef undan er skilið svæðið frá Rilfstanga að Langanesi eða með öðrurn orðum Þistilfjörðurinn. Ef skilgreina á hugtakið „fyrir firði og flóa um vztu annes ’og sker“, eins og fólkið á Austurlandi yfir- leitt skilur það nú í dag, þá hygg ég að örnofnin Langanes — Glelt- inganes, Hvalbakur og Slokksnes marki þetta hugtak allvel. Þá vildi ég fara nokkrum orðum um Haag-dóminn. Þessi dómur, sem mörgum er kunnur, er merki- legt plagg, en þó mun hann ekki vera til í íslenzkri útgáfu. Hann túlkar viturlega og á vingjarnleg- an hátt sjónarmið þess fólks, sem á ströndinni býr. Ilaag-dómurinn sagði nú raunar ekkert annað en það, að Norðmenn hefðu ekki brot- ið alþjóðalög, er þeir drógu grunn- línuna um yztu annes og sker og færðu landhelgi sína út í fjórar mílur frá þeirri línu. Miklar iíkur eru til, að Haag-dómurinn hefði efnislega orðið eins, þó að Norð- menn hefðu fært friðunarlínuna út um tíu mílur. Þeirri skoðun vex nú nijög ört fylgi á Austurlandi, að draga beri grunnlínu landhelginnar um Langanes — Glettinganes, Hvalbak — Stokksnes eða Ingólfshöfða. En til að styrkja enn betur þetta sjón- armið er nauðsvnlegt. að sem fyrst verði reistur viti á Hvalbak. Hval- bakur er svo sent kunnugt er eyði- sker 17—18 sjómílur undan landi. Hann mun vera 8—9 metra hár, ÞaS var fyrst á dagskrá fjfrðungsþmganna Gg nerkasta dagskrármál Fiskiþings Fjónr fullírúar úr prcmur land íjórðungum ræ$a störf þingsins og tm framityæmdir á hsimasló’Sani Níels Ingvarsson þar sem hann er hæstur, á að gizka 60 metra breiður og 100 til 120 metra langur. Vitað er, að selur kæpir þar og hafa fundizt hnéháar dyngiur af selhári á sker- inu. Þar munu liafa fundizt járn úr sk-ipi, svo ætla má, að þar hafi farizt skip, bó að enginn sé þar til frásagnar. Af þessu er Ijóst, að bygging vita á Hvalbak er ekki einasta æskileg, heldur nauðsyn- leg. Telia verður nokkurn veginn öruggt, að það sé tæknilega fram- kvæmanlegt að bvgg.ia þar vita, bó að enn hafi áætlun ekki verið gerð um byggingu hans. GóSur afíi á heima- miSum Um útgerðarmál heima í héraði mætti rnargt segja. Við tengjum no'kkrar vonir við síldveiðina og viljum í bví sambandi hlúa að söit- un og annarri síldarvinnslu. Síld- anerksmiðjan á Raufarhöfn hefir gefið góða raun og þó að önnur jafnstór hefði starfað sunrian Langaness, hei'ðu báðar haft nóg verkefni vfir síldartímann. Heima á Norðfirði eru tólf stórir og fjór- ir meðalstórir bátar, auk margra smærri. Við tengjum miklar vonir við bátaflotann og í haust hefir honum gefizt niikið og gott verk- efni, því að góður afli hefir verið á heimamiðum. Á Norðfirði er tölu vei\2ur fiskiðnaður. Tvö frystihús, vel starfhæf, tvö þurkhús, auk að- stöðu til herzlu á fiski. Þar er st'arf rækt drátitarbraut, sem tekur 100 tcnna skip og annast einnig ný- smíði á bátum. Atvinna við sjó- sókn og fiskverkún hefir yfirleitt j verið góð á þessu ári“. Byggja fíarf 20 fiús. mála Wær á SayðisfirÖi, segir 1 Árai ‘/ilhjálmsson I Aimar þingfulltrúi Austfirðinga- fjórðungs er Árni Vilhjálmsson frá SeySisfirði og var hann jafri-framt fonraður allsherjarnefndar Fiski- þingsins. Ræddi Árni um störf alls herjarnefndar og ýmsar samþykkt- ir, er gerðar voru á þinginu og varða Austurland. „Á’ -F'sk'þ'.nginu er tekið t'.llit til samþykkta frá öllum fjórðungs- þ'ngum og eru niðurstöður þing-3-.j in-s samandregnar ályktanir allra fjórðungrþinga. Allsherjarnefnd fjailaði meðal annars um Græn- landsmálið og hafði Ingvar Vil- hjálmsson framsögu, Samþykkti þingið, að unnið væri að atvinnu- róttindum við G-rænland íslending- um til handa og lítur svo á, að r. d r.sKipingi vegna aflatregðu á heimamiðum, scm rnest stafar af ofveiði, verði ekki biá því komizt að beina sjó- só'kn til fiskveiða að nokkru á fjar- lægari mið. í sambandi við fisk- veiðar við Grænland er athafna- réttur á landi nauðsynlegur. En að íslendingar hafa ekki fengið at- hafnarétt á Grænlandi á borö við Árni Vilhjálmsson. Norðmenn, P'æreyinga og Dani stafar af því, að íslendingar gáíu ekki lagt fé til þeirra framkvæmda, sem þjóðir þessar hafa hrundið af stað í Færevingahöín. Þingið fagn- aði íelagsstofnun Grænlandsáhuga- manna og sendi áheyrnarfulltrúa á stofnfundinn. Samþykkt var álitsgerð allsherj- arnefndar um síldarverkun á Aust- urlandi og mælt með því, að Síldar- bræðslunni h.f. á Seyðisfirði verði ysitt fyll-ta aðstoð og fyrirgreiðsla til að liúka þeirri stækkun, sem gerð var á síðastliðnu sumri, svo að unnt verði að byggja minnst 20 þ '• und mála þrær, viðeigandi lýs- isgeymi og mjölhús fyrir- næstu síldarvertíð. Og að unnið verði að því að bæta aðstöðu til síldar- vinnslu annars st-aðar, einkum þar sem fiskimjölsverksmiðjur hafa vsrið reistar með það fyrir augum að vinna annan feitfisk, svo sem knvfa eg steinbít. Tæknilegir mögu Isikar til geymslu á bræðslusíld fara nú vaxandi. Þrærnar gætu af þsim sökum orðið miklu stærri en ver'ð hefir til þessa. Skattalöggjcfin kom til umræðu, en í skattamálum sjómanna er nú ura háskaiega öfugþróun að ræða. Menn hafa sem sé ástæðu til að draga við sig sjósókn. Kveður svo rammt að þessu, að jafnvel togara- skipstjórar sjá sig tilneydda að ganga í land eftir að tekjurnar eru komnar að vissu marki. Eru þá tekin af þeim 90% af öllum tekj- um framyfir þetta hámark. Þessar aðfarir eru ekki líklegar til að auka framleiðslu og gjaldeyristekj- urþjóðarinnar. 1 samþykkt um vitamál komu fram óskir um tólf nýja vita á ýms um stöðum kringum landið. Ég tel vita á Hvalbak þýðingarmestan. Vitabygging á þessum stað er þó nokkrum örðugleikum bundin, en mun vera tæknilega framkvæman- leg. Nokkur athugun hefir verið gerð í málinu, en niðurstöður liggja ekki fvrir hjá vitamálastjórn ennþá. Hvalbakur er þýðingarmik- ill í landhelgismálinu. íslendingar þurfa að eignast þar mannvirki. Þá voru bornar fram óskir um aukið ljósmagn í ellefu vitum. En sam- kvæmt upplýsingum vilamálastjóra er nokkuð af þeim tækjum, sem þarf til Ijósaukningar, á leiðinni til landsins, en þó munu gjald- eyrisleyfi ófengin. Mun auðveldara er að auka ljós- magnið, þar sem hægt er að leiða rafmagn að vitunum'. Þar sem ekki er rafmagn, verður að notast við gashylki, sem tæmast því fyrr sem ljósmagn er meira. Á eyjum og erfiðum annesjum er oft erfitt að koma gashylkjum í vitana og geta þeir orðið óvirkir á köflum af þeim sökum. Ljósaukningin mun fyrst koma til friamkvæmda, þar sem næst til rafmagns. Einnig var lagt til að byggður verði radíóviti við Raufarhöfn og að settur verði sterk ari radíóviti á Sauðanes við Siglu- fjörð. Reistur verði radíóviti milli Dalatanga og Stokksness og bend- ir Fiskiþingið á Kambanes í því sambandi. Handfæraveiðar færast í vöxt Útgerð hefir veri'ð með svipuð- um hætti á Austurlandi og áður; dálítill afli á fjörðunum í þorska- net síðari hluta vetrar. Handfæra- veiðar hafa færzt mjög í vöxt með tilkomu nælonfæranna. Lítið eru um línuveiðar fyrrihluta árs, en eftir að líða fer á ágúst er iínuveiðin yfirgnæfandi. Afla- brögð hafa verið með ágætum í haust, enda tíðarfarið hagstætt. Fjórir togarar eru gerðir út frá Austfjörðum, en þeim hefir gengið illa undanfarið eins og alls staðar annars staðar. Á síðustu síldarver- tíð bárust alls 17.602 tunnur af salt síld og 73.165 mál til bræðslu á land eystra og 4.804 tunnur til frystingar. Seyðisfjarðarbræðslan tók þar af við 50.361 máli og hefðu verið komnar 20 þús. mála þrær á Seyðisfirði, mundu 70 þús. mál hafa borizt þar að landi“. Hólmsteinn Helgason ræÖir um aÖkallandi þörf úrbóta í vitamálum j Þriðji þingfulltrúinn er Hólm- steinn Helgason frá Raufarhöfn. Sagðist honum á þessa leið: 1 „Á Fiskiþingi eru saman komnir menn með staðháttaþekkingu úr öllum landshlutum. Fyrirkomulag er svipað og á Búnaðarþingi, kröf- ur og óskir eru bornar fram og samþykktar. Af samþykktum í vita málum er varða Norð-austur og Norðuriand er það að segja, að óskað var eftir radíóvita á Raufar höfn. Málið hefir verið á döfinni í 3—4 ár. Við ójkuðum fyrst eítir, að vitinn yrði reistur á Langanesi, en vitamálastjórnin taldi staðsetn- ir.gu ófæra sökum vatnsskorts, en hér er nm gæzluvita að ræða. Einnig var farið fram á stækkun radíóvitans á Sauðanesi við Siglu- fjörð og óskað eftir vitabyggingu á Spákonufelhhöfða á Skagaslrönd. Nýlega var byggður Íítill ljósviti í Lundey á Skiálfanda. Sjómönnum þykir hann nokkuð daufur, en hér er um sjálfgæzluvita að ræða og mun ekki unnt að auka ijósmagn hans á næstunni. Vitamálastjóri skýrði svo frá, að ákveðið væri að ráða rafmagnsverkfræðing til þessara starfa eftir áramót. Fen'g- um einnig að vita, að ákveðið er að endurbyggja vitahúsið á Rauða- núp austan Oxarfjarðar. Samþykkt var að mæla með fyrirgreiðslu um byggingu nýrrar dráttarbrautar á Akureyri. Hafnarsjóður Akureyrar mun byggja þetla mannvirki og mun brautin taka ailstór skip, allt að 1000 tonna. Einmuna gæftir í nóvember Einmuna gæftir voru í nóvember og var róið hvern dag frá Ráufár- höfn og Húsavfk. Tveir bátar eru gerðir út frá Raufarhöfn, arinar níu tonn og hinn átján. Á Húsavík eru sex bátar. Trillur hafa einnig verið að skrapa. f sumar voru starfræktar átta söltunarstöðvar á Raufarhöfn, en þær geta tekið á móti allt að 2000 tunnum á dag, þær stærstu. Nam síldarsöllun alls rúmlega 60 þús. tunnum. Síld- arverksmiðjan á Raufarhöfn fékk rúmlega 130 þús. mál *til bræðslu. Nú er í ráði a'ð byggja níundu sölh unarstöðina á Raufarhöfn og verð- ur byrjað á framkvæmdum í vor. Byggjandi er Valtýr Þorsteinsson, útgerðarmaður á Akureyri. Litlar líkur eru til að stöðin verði starf- hæf að sumri, því að dýpka þarf höfnina. þar sem söltunarbryggjan á að standa. Nokkuð hefir verið grafið þarna í höfninni, en nú hefir hafnarsjóður ekki aðstöðu til að hefja það verk að nýju, sem væri þó nauðsynlegt. Ein af óskum Fiskiþingsins var sú, að stækkaður verði flugvöllur- Hólmsteinn Helgason inn á Raufarhöfn, svo að unnt verði að staðsetja þar síldarleitár- fiug\’él. Flugvöllurinn þar er nokk uð lítill en auðvelt að stækka hann. Síldarleitarflugvélar hafa undan- farin ár haft bækistöð á Akureyri, en það er of langt frá norð-austur- svæðinu. Söltunarfólk, sem vinnur á Raufarhöfn, er flutt loftleiðis til Kópaskers, en þaðan eru 55 (Framhald á 8. síðu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.