Tíminn - 13.12.1957, Page 12

Tíminn - 13.12.1957, Page 12
VeSriö: Aiil'hvasst suð-austan, slydda og rigning. pg Turnstoðir Iðubrúar á Hvítá í Ár- nessýslu þær hæstu hér á iandi Umferí hafin um brúna, þótt framkvæmdum viS hana Ijúki ekki aíi fullu fyrr en aí vori Brúin á Hvítá hjá Iðu í Árnessýslu er nú opin til um- ferðar. Framkvæmdum er ekki að fullu lokið enn, þar sem eftir er að ganga frá vegfyllingum við brúna og steypa plötur á þær við brúarsporðana. Einnig er eftir að mála brúna að nokkru leyti. Verða þau verk unnin á vori kom- anda og verður þá að loka brúnni fyrir umferð nokkurn tíma. Brúin er 109 m. löng hengibrú smeð steyptu gólfi og er breiddin 4,1 m. innan bríka. Brúin er reikn uð fyrir 18 tonna vagn dreginn af 9 tonna vagni og einnig 350 kg. jþunga á hvern ferm. brúargólfs. í ♦ivorri brúarhlið eru 6 strengir er bera brúna. Hver þeirra vegur um 5 tonn cg er röskir 6 cm. í þver máll. Turnstoðirnar eru 16,8 m. háar og eru hæstu turnstoðh' hér ‘é landi. Strengir og stál í yfirbyggingu brúarinnar var smíðað hjá Dorman Dong og Co. í Englandi. ir af steypustyrkarjárni. í mót og verkpalla voru notuð 5200 ten. fet. af timbri og 198 smálestir fóru í strengi og stál í yfirbyggingu. Tafir. Byrjað var á byggingu brúarinn ar haustið 1951 og þá sprengt fyrir turnstoðum og akkerum. Sumarið 1952 var ekkert unnið við brúar gerðina, en 1953 voru byggðir turnar og akkeri að sunnan verðu. Árið 1954 lágu framkvæmdir við brúna niðri vegna verkfræðinga deilunnar, en 1955 voru turnar og akkeri byggð norðan árinnar. SCkum langs afgreiðslutíma á stáli í yfir'oyggingu brúarinnar var ekkert unnið við brúna 1956. Opin til uinferðar. Framkvæmdir við upp;etningu brúarinnar hófust í ágústbyrjun í ár. Fyrsti bíllinn ók yfir brúna 21. nóv., en vegna vinnu við veg fyllingar við brúna hefir ekki vsr ið hægt að opna hana fyrir al- mennri umferð fyrr en nú. Teikningar og verkstjórn. Árni Pálsson yfirverkfræðingur teiknaði brúna ásamt Ilelga H. Árnasyni verkfræðingi. Hafði sá fyrrnefndi yfirumsjón með fram kvæmd verksins en daglegt eftir lit á vinnustað höfðu verkfræðing arnir Helgi H. Árnason, Snæbjörn Jónsson og Karl Ómar Jónsson. Aðalverkstjórar við byggingu turnstoða og akkera voru Sigurður Björnsson frá 1951—‘55 og síðar Kristján Guðmundsson. Við Upp- 'setningu brúarinnar i ár var Jónas Gíslason aðalverkstjóri. Laxness ,,skoðar kommúnismann” í Kína Spjalla^i vitS blö<$ í Hong Kong áftur en hann hvarf inn fyrir bambustjaldiS Halldór Kiljan Laxness skáld á Gljúfrasteini kom til Hong Kong á hafskipinu „President Hoover“ 4. desember s.l. Hafði hann tekið sér far með skipinu í San Francisco ásamt frú Auði konu sinni og frk. Höllu Bergs, ritara sínum. Mannvirkið. Eftirfarandi upplýsingar um efn ismaign það er notað var við brúar igerðina gefa nokkrar hugmynd um Btærð mannvirkisins: . Fyrir turnstoðum og akkerum voiu .sprengdir 950 ten.metrar, fiteyplir voru alls 1760 ten. metr ■ar, í steypuna fóru af sementi 570 smálestir, notaðar voru 70 smálest Enn reyndi íhaldið | að misnota útvarp | Um hádegið í gær reyndi í-i lialdið enn að misnota útvarp-| ið með því að lauma áróðurs-1 auglýsingu um fundarliöld sím inn í auglýsingatíma útvarps- ins. Var fruinvarp það um end' urbætur á kosningaiögunum,! sem fyrir Alþingi liggur, upp nefnt í auglýsingunni, og kennt við „hömlur“. Er slíkt algert brot á reglum útvarpsins um birtingu auglýsinga. Þetta bragð íhaldsins tókst í fyrrakvöld, en í gær lét útvarpsráð málið til sín taka og lét formaður út- varpsráðs stöðva áróðurstil- kynningu þessa og var hún ekki birt. Er íhaldinu nú meira! ; en lítið niðri fyrir, er það þyk ist sjá fram á að almenningur verði friðaður fyrir ásókn kosn ingasmalanna og ekki verði hér eftir hægt að berja upp að næt urþcli né uppilialda lieilan skara af Heimdellingiim, útbí- aða í borðuni og ráiifuglsinerkj um á sjálfum kjörstaðnum. Hinn 5. desember birtu blöðin í Hong Kong frásögn af komu Nó- belsskáldsins og viðtöl við það. Blöðin skýra frá því, að Haildór fari 6. desember til Kanton og síð- an muni hann fara víða um Kína í boði stjórnarinnar þar. Þar næst muni hann ha'lda tii Indlands í boði indversku stjcrnarinnar. Áhrif frá amerískum skáldskap. í viðtali við „Hong Kong Tigcr Standard“ segir Halldór að ástæð an itil þess að hann fer til Kína sé sú, að hann sé boðinn þangað og hafi á'huga á að „skoða kommún- ismann“ þar í landi. Hann kvað svo að orði, að amerlsk skáld, þau er fjallað hafi um þjóðfélagsvanda mál sl. 30 ár, hefði haft mest á- hrif á sig og verk sín. Laxness nefnir Hemingway sem fyrirmann í hinum hraðvirka ameríska rit- hö'funda.skóla, og telur að erfitt ®é að skrifa góðar skáldsögur í dag, sem jafna megi til beztu verka hans. Hemingway hafi hafi- ið merkið svo hátt. í „South Ohina Morning Post“, segir m. a. frá því, að þegar Lax- ness hafi verið í heimsókn hjá am erískri fjölskyldu í Hong Kong, hafi einn gestanna dregið eintak af „Sjálfstæðu fólki“ — ensku þýðingunni — upp úr pússi sínu og beðið um eiginhandaráritun skáldsins. Var það auðsótt, og skáldið ánægt að sjá bókina á þess um fjarlæga stað. Framsóknarvist á Akranesi Framsóknarfélag Akraness lieldur skemmtisamkoinu í félags heimili templara n. k. sunnudag og hefst liiin klukkan 8,30 e. h. Spiluð verður Franisóknarvist og dansað. Ásgeir og Hörður spila fyrir dansi. Aðg'öngumiðar seldir á saina stað milli kl. 4 og 5 á sunnudag. Öllum er heúnill aðgangur. Þetta er síðasta vist- ■in fyrir jól. Líkur taldar á að kommúnistar nái bráðlega cQum völdum í Indónesiu Setja Hollendingar haínbann á eyjarnar? NTB—Djakarta, 12. des. — Forsætisráðherra Indónesíu tilkynnti í útvarpsræðu í dag, að Sukarno forseti væri veik- ur og myndi verða að taka sér langt frí frá störfum. Lausa- fregnir hafa borizt um, að forsetinn hefði verið. settur af, en þær hafa hins vegar verði bornar til baka af opinberri hálfu. 1 öðrum fregnum er því haldið fram, að kommún- istar muni innan skamms ná öllum völdum í landinu í sin ar hendur. Margt bendir til þess, að ríkis- stjórnin hyggi á að taka hollenzku NýjuGuineu með valdi. Hefir her- inn mikinn viðbúnað og öll leyfi hermanna hafa verið afturkölluð. Sett íorseta úrslitakosti. I-Iaft er eftir öruggum heimild- um í London, að landssamband verkamanna í Indónesíu, sem er undir stjórn kommúnista, hafi sent forsetanum úrslitakosti. Sé þess krafizt, að sambandinu verði fengið í hendur eignarréttur og stjórn allra þeirra hollenzku fyrir- tækja, sem herinn og verkamenn hafa lagt eignarhald á síðustu dagana. í Lundúnum er sú skoðun ríkjandi, að ekki muni líða á löngu, unz kommúnistar hafa náð öllum völdum í landinu í sínar hendur. Fer íil fndlands. Síðar í dag var borið til haka að forsetinn væri veikur. Hann þjáðist aðeins af ofþrevtu. Hann muni fara í orlof til Indlands Og h\-ila sig þar. Mun forseti þings- ins taka við embætti hans á með- an. Rólegt er á yfirborðinu í höfuð- borg eyríkisins, en stöðugt gætir meira þeirra fjárhagsörðugleika, sem landið býr hú við. Ekki hefir orðið neitt af brottflutningi hol- lenzkra borgara ennþá, þar eð stjórnarvöldin lögðu í dag óvænt bann við lendingu og brottför allra erlendra flugvéla. Fari svo, sem talið er að vel. geti komið til mála, að Hollend-! ingar sendi herskip til Indónesíu og setji hafnbann á eyjarnar, myndi sfcapast hættulegt ástand í Indónesíu og jafnframt í ailri S- austur-Asíu. Er ekki ósennilegt, að vænta megi mikilla tíðinda næstu vikurnar þaðan að austan. Síðari fregnir. Seinna bárust þær írcgnir frá Haag, að sendiherra Indónesíu í Ilaag, hefði tjáð ríkisstjórn Hol- lands, að Indónesíustjórn harm- aði atburði seinustu daga. Upp- taka liollenzkra eigna og fyrir- tækja hefði verið gerð þvert of- an í vilja ríkisstjórnar landsins, og brottvísun hollenzkra þegna úr landinu. Myndi reynt að bæta úr þessum mistökum og nú væru þessar eignir undir beinu eftir- liti hersins og væri það gert til að - forða þeim frá að falla I hendur klíkuhópa, sem hefðu annarleg sjóuarmið. Erlendar fréttir í fáum orðum FINNSKI dómsmálaráðherrann hefir að eigin frumkvæði bannað finnsku útgáfuna á bók Agnars Mykle, Lasso rundt frú Luna. Segir hann, að bófein brjóti í bága við almennt velsæml. ALÞJÓÐA Rauðikrossinn hefir sent áskorun til allra cieilda samtak- anna um skjóta hjálp til handa 100 þús. flóttamönnum frá Alsír sem leitað hafa hælis í Marokko og Tunis. Eru þetta flest konur og börn. Muni þetta fólk naum- ast lifa af veturinn hjátparlaust. MACMtLLAN forsætisráðh. ræddi í dag við Sir Winston Ohurchill. áður en hann lagði af stað til Parísar á NATO-fundinn. LANDVARNARÁÐHERRA Breta sagði í dag, að samkomulegsliorf ur væru góðar varðandi Bmiði flugskeytastöða í Bretlandi, en Bandaríkin sækja það mál -fast. ÞAÐ VEKUR athygli, að Búlgauin hefir ekki sent forsætisráðherr um Noregs og Danmerkur eintak af aðvörunarbréfi því, sem flest um ríkisstjórnum Atlaatshafs- bandalagsríkja hefir borizt. Sami Siátier og áStir hafður á úthluhm á atvinnuaukningafé Fjármálaráíherra svaraiSi á Alþingi í gær furðulegum málflutningi Sjálfstæftismanna Það er ríkisstjórnin sjálf, sem úthlutar atvinnuaukninga- fé, nú eins og verið hefir. Upplýsti Eysteinn Jónsson fjár- málaráðherra á þingfundi í gær, að engin breyting hefir orðið á þessu fyrirkomulagi frá tíð fyrrverandi stjórnar, þó að Sjálfstæðismenn láti liggja að öðru. í sambandi við umræður á fundi neðri deildar í gær um tollskrá og fleira bar á góma atvinnuaukninga fé ríkisins og úthlutun þess. Jó hann Hafstein varpaði fram fyrir spurn, sem Eysteinn Jónsson fjár málaráðherra svaraði um hæl og bætti við upplýsingum, sem Sjálf stæðismenn höfðu ekki óskað eft ir. Spunnusl út af þessu umræður, sem á kö'flum urðu all sérstæðar ékki sízt er Bjarni Benediktsson færði fram sem sönnun fyrir sínu máli að sjávarútvegsmálaiáðherra hefði kinikað kolli, nieðan hann, Bjarni, var að tala. Síðar kom í Ijós að mikið vafaimál var hvort ráðherrann hefði kinkað kolli!! En alvarlegri þáltur þessara um ræðna fyrir Sjálfstæðismenn varð sá, að Eysteinn Jónsson fjármála- ráðherra upplýsti, samkvæmt fyr irspurn Jóhanns Hafstein, að sjald an hefði verið farið að gefa minni 'loforð um atvinnuaiikningafé á næsta ári, en eins og Sjáifstæðis menn vissu frá tímum fym\"erandi stjórnar, heíði oft orðið að- grípa til þess að úthluta nokkru, eða gef'a loforð fyrir áramót um útihlut un af fé næsta árs. Lofaði öllu fé hafnar- bótasjóðs fyrirfram í %'k ár. Sjálfstæðisnienn þekktu ailra manna bezt til slíki-a vianu- bragða og gengið lengst í þeim, eins og þegar Ólafur Tliors í ráð Iierratíð sinni hafði lofað fyrir (Framhald á 2. síðu). Dregið í happdrætti SUF 21. des. - gerið skil sem fyrst

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.