Tíminn - 14.12.1957, Blaðsíða 12
VeBriB:
Hægviðri og léttákýjað í nótt en
vaxandi sunnan átt og þíðviðri á
tnorgun.
Hitastig M. 18.
Reykjavik -2, Aikureyri -8, Kaup
mannahöfn -2, London 3.
Laugardagur 14. des. 1957.
Jólablað Tímans komið út
-fjölbreytt og vandað að efni
AthyglisvertS grein eftir Sigurí Olason, lög-
fræðing, um erfðaskrá Arna Magnússonar. —
Blaðið verður sent til kaupenda næstu daga
Jólablað Tímans er komið út, mjög vandað og fjölbreytt að
efni eins og áður. Blaðið er 68 síður að stærð og flytur mikið
af þjóðlegum fróðleik, þýddum sögum og greinum, sem fjöl-
rnargar myrdir prýða. Forsíðumynd er af Hallgrímskirkju í
Saurbæ, tekin af Guðna Þórðarsyni.
Næstu daga verður jólablaðið
isenl til áskrifenda víðs vegar um
land eftir því, sem ferðir fafla, og
ætti það að komast til allra áskrif
enda fyrir jól. í Reykjavík verður
blaðið borið til áskrifenda í næstu
viku, en auk þess verður það tit
sölu á götum bæjarins, í bókabúð
um og veitingastofum. Hvert ein
tak kostar tíu krónur.
Efni blaðsins.
Blaðið hefst á jólahugleiðingu
eftir séra Sigurjón Guðjónsson, j
prófast í Saurbæ. Sigurður Ólason
lögtfræðingur, skriifar mjög athygl
isverða grein, sem hann nefnir úr
isögu handritamálsins: Erfðaskrá I
Árna Magnússonar. Helztu niður
stöður Sigurðar eru þessar. Hin
isvokallaða erfðaskrá Árna Magn
ússonar, sem Danir byggja á allan
rétt sinn til handritanna, er og hef
ir verið ógild frá upphafi. Engin
sönnun er fyrir því, að efni erfða
ekrárinnar, eins og frá henni var
gengið, hafi raunverulega verið að
vilja eða óskum Árna Magnússon
ar. ÁM samdi ekki erfðaskrána
sjálfur. ÁM „skrifaði undir“ eftir
að hann var orðinn dauðvona og
jafnvel rænulaus og m. a. óvíst,
að hann hafi yfirleitt skrifað undir
plaggið heldur annar maður, —
Þessi grein Sigurðar Ólasonar mun
eflaust vekja mikla og verðskuid
aða athygli.
Þá er fróðleg grein eftir dr.
Kristjén Eldjárn, þjóðminjavörð,
Smekkleg blómabúð
Blómaverzlunin Blóm og Ávextir
hefir nýiega opnað blómadeild í
tiinu nýja verzlunarhúsi að Lauga
veg 89 hór í bæ.
Befir deildin á boðstólum öll
■venjuleg bióm og pottablóm svo og
miikið og fjclbreytt úrval ní blóma
ekr'Oylingum.
Er blómadeildin með nýtízku
sniði og öll hin smekklegasta.
Hallgrímskirkja í Saurbæ, forsíðu-
mynd jólablaðsins. Ljósmyndina íók
Guðni Þórðarson blaðamaður.
sem hann nefnir Gömul hús í
Skagafirði og fylgja henni margar
myndir. Andrés Kristjánss., frétta
stjóri, skrifar skemmtilega grein,
sem néfnist Tvö hundruð pesetar í
stað vegabrófsáritunar til Span
afríku. Þórunn Elfa Magnúsdóttir
ritar ágæta grein um Ástríði, Belg
íudrottningu og Ingólfur Daviðs
son, magister, skrifar skemmtilega
grein, sem hann nefnir Gróðurinn
breytist og mannlífið með. Þá er
frásögn eftir Jónas Guðmundsson,
Stýrimann, um Vitann
á Straumnesi — þennan þýðingar
mikla vita fyrir siglingar við aust
anvert ísafjarðardjúp. Jónas
Sveinsson, l«lknir, skrifar mjög at
hyglisverða grein og merkilega er
nefnist Sagan um fyrstu hjartaað
gerðina, og fylgja þeirri grein
margar myndir.
Af þýddum sögum má nefna Jól j
á fjölfuim eftir Ivar Ringdal og!
Heiður bekkjarins eftir M. Buch
have. Báðar þessar sögur eru
prýddar skemmtilegum teikning-
um. Þá er krossgáta, verðlaunaget
raun og ýmislegt fleira efni, sem
of langt yrði upp að telja.
Lcforð Bláu-Skáldu 1954
~ o g efndir íhaldsins
! Loforið:
i
í Skáldu sagði m. a.: „Gerð verði áætlun um lögn
f hitaveitu í öll íbúðarhús í Reykjavík og hafinn undir-
| búningur að öflun fjármagns til framkvæmdanna. Áætl-
| un þessi verði síðan framkvæmd í áföngum, eftir því
| sem nægilegt vatnsmagn og fé vei’ður fyrir hendi“.
|!
í Efndir:
I
Engin áætlun hefir verið birt af hálfu hitaveitunnar.
| Borgarstjóri leyfir ekki bæjarstjórn að spyrja hitaveitu-
í nefnd hvað líði störfum hennar. Lánsfjármagns hefir
| ekki verið aflað, en tekjuafgangi hitaveitunnar, 34,4
| miH.Í kr. varið til óskyldra verkefna. „Framkvæmd í
l áföngum“ kemur gleggst fram í útkulnaðri Hlíðaveit-
! unni 0g betliframkvæmdum Höfðaveitunnar.
m
i
1
1
I
wmmt
Danir ætla að „sigla í kjölfar Eiríks
rauða“ frá Nýhöfn til Ameríku!!
Kaupmannahöfn í gær. — Danir eru nú að hefja Bndir-
búning að mikilli norrænni víkingaferð til Ameríku og er ráð-
gert að hún verði farin 1960. Á víkingaferð þessi að nefnast
Ollenhauer
Þjóðverjar yiSja ekki
kjarnorkuvopn,
segir Ollenhauer
London 13. desember. Ollenhauer,
leiðtogi þýzkra jafnaðarmanna,
sagði í dag, að það myndi aðeins
auka hættuna á nýrri styrjöld, ef
komið væri fyrir kjarnorkuvopn
um víða í Evrópu. Víst væri, að
Þjóðverjar vildu engin kjarnorku
vopn í landi smu.
Erlendar fréttir
í fáum orðum
HARRY OPPENHEIMER hefir gefið
fé til stofnunar sjóðs, sem ætlað-
ur er til að styrkja fátækt náms-
fólk í Suður-Afríku án tillits til
litarháttar. Upphæðin er ein mill-
jón punda.
FINNSKA VERKALÝOSsambandið
sendi í dag erindi til Pieandt for
sætisráðherra og segir þar, að
aldrei hafi verið verra efnabags
ástand í landinu. síðan heims-
styrjöldinni síðari lauk.
H. C. HANSEN sagði í dag, að Danir
vildu hvorki kjarnorkusprengjur
og flugskeyti í land sitt nó að
þar yrði erlendur her. '
„I kjölfar Eiríks rauða“.
Ráðgert er að víkingarnir sigii
á víkingaskipi frá Kaupmannahöfn
með viðkamu í Noregi og íslandi
til Grænlands og þaðan til Aemer
íku.
Þessi hugmynd er dönsk, en
ráðgert er að fá „víkinga" tii farar
frá öðrum Norðurlöndum, kannske
I einnig frá Grænlandi. Sá, sem
fram hefir komið með þessa hug
mynd og mest berst fyrir henni,
er Haakon Mielshe, hinn kunni
ferðalangur og ferðabólkahöfund-
ur. I-Iann hefir áður tekið þátt í
ferð til Ameriku, nefndist hún ,,í
kjclfar Kólumbusar". Ráðgert er
að hann og fleiri blaðamenn taki
myndir og skrifi síðan um ferðina,
og einnig mun leiðangurinn verða
Biðskák hjá
Friðrik og Larsen
í 12. uniferð á skákmótmu í
Dallas var tefld í fyrrakvöld og
fóru leikar þannig:
Friðrik—Larsen, biðskák
Evans—Szabo, jafntefli
Gligoric—Naidorf jafntefli
Reshevsky—Yanovsky biðsk.
Eftir tólf umferðir er staðan
þannig:
Reshevsky 7 vinn. og biðsk.
Gligoric 7 vinn.
Szabo 6 v2 vinn.
Friðrik 6 vinn. og biðskák
Larsen 5'4 vinn. og biffisk.
Yanovsky 5 vinn. og biðsk.
Naidorf 5 vinn.
Evans 4 vinn.
Biðskákir voru tefldar í gær
kveldi en fregnir höfðu ekki bor
izt af þeim. 13. umferð verður
tefld í dag og 14. umferð á morg
un. Það er síðasta umferð og mót
inu lýkur á mánudaginn.
kvikmyndaður, segir Efcstrabladet
í dag. —Aðils.
Parísarfundurinn
París 13. des. — Ilalvard Lange
utanríkisráðherra Norðmanna,
setti í dag sem fundarforseti haust
fundinn í ráðherranefnd Evrópu
ráðsins, og hófust þar meö hinar
stórpólitísku umræður, sem beðið
er með mikilli eftirvæntingu um
allan heim. En þó að umræðurnar
í ráðherranefndinni varði mikil
væg mál, svo sem skipulagsmél
Atlantshafsbandalagsms, fríverzl
unarsvæði, og efnahagssamvinnu,
beinist í París mun meiri athygii
að undirbúningnum undir forsæt
isráðherrafundinn, sem feefst á
mánudaginn. Eisenhower kemur
til Parísar á morgun, einnig er
þá búizt við flestum öðrum ráð
herrum, sem til fundarins koma.
Dulles ulanríkisráðherra bom þeg
ar í gær og hóf strax viðræður við
Selwin Lloyd utanríkisráðherra
Breta.
Miklir jarðskjálftar
í íran
NTB—-Teheran og Aþena, 13. des.
Mikill jarðskjálfti varð i dag í
íran og Grikiklandi. Samkvæmt ó-
staðfestum fregnum hafa mn 300
manns látið lífið og um 500 meiðzt
í Vestur-íran. Jarðskjálftar þessir
eru settir í samband við skjálfta
sem nýlega urðu í Mongóiíu, og bú
izt er við fleiri jarðskjálíftakipp
um næstu daga. í íirnm þorpum
í Vestur-íran liggur fjöldi fólks
enn grafinn undir rústimum. Vetr
arhörkur geisa nú á þessuim svæö
um, og er hjálparstarf þ\i erfitt.
fslenzk myndlist frá fyrri öldum
- stórfalleg og gagnleg myndabók
í gær kom út á vegum Almenna bókafélagsins mjög merki-
legt rit. sem áreiðanlega á eftir að vekja mikla athygli bæði
hér heima og erlendis. Bókin heitir íslenzk myndlist frá fyrri
öldum og hefir að geyma 70 úrvalsmyndir af íslenzkum list-
gripum og listaverkum frá elztu tímum og allt fram á 19. öld.
Þessi mynd er úr bókinni — María
sitjandi á stól og ber kórónu, mun
vera frá 12. öld. Ekki vitað úr hvaðn
kirkju myndin er, en hón er nú
geymd í Þjóðminjasafninu.
Bóikin er í stóru broti og mynd
irnar li'lestar heiilsíðuimyndir.
Þeirra á meðal eru 14 litmyndir.
Fegurri prentun hefir vart sézt
áður á Lslenzikri myndabóik og getur
þarna að líta sýnishorn af flestuim
greinum íslenzkrar iiistar, tré-
dkurði, málverfki, handritalýsing-
um, útsaumi, vefnaði og (nnálim
smíði. Plestar eru myndirnar tekn
ar af hlutuim í Þ.ióðminjasafni ís-
lands, en nökkrar eru af ísienzk
um listmunum, sem geymdir eru
í enlenduim söfnum.
BÓkin er prentuð hjá Dr. Wolf
og Sohn í Munchen, en Kristján
Eld'járn þjóðminjavörður hefir að
öðru leyti séð um útgáfu bókarinn
ar. Hefir hann skrifað skýringar
með myndunum auk ýtarlegs for
tnála um íslenzka alþýðulist, kjör
hennar og viðfangsefni.
Með útgáfu þessarar bókar er
að því stefnt að veita mönnum sem
víðtækust kynni af listviðieitni ís
lendinga fyrr á tímum og mun
mörgum koima á óvart sú snilld og
fegurð, sem blasir við á flestum
blaðsíðum bókarinnar.
Bókin er prentuð bæði með ís
lenzkum og enskum texta.
Kristján Eldjárn
Dregið í happdrætti SUF 21. des. - gerið skil
sem fyrst