Tíminn - 05.01.1958, Side 1

Tíminn - 05.01.1958, Side 1
Slmar TÍMANS eru: Ritstjórn og skrifstofur 1 83 00 BlaSamenn eftir ki. 19: 1S301 — 18302 — 18303 — 18304 42. ápgsngur Reykjavík, sunnudaginn 5. janiiar 195S. Efni: Walter Lippmann sikrifar um ailþjóðamál, bls. 6. Lagning Mrklubrautar, bls. 5. Skrifað og skrafað, bls. 7. 3. í>lað. Er þetta í Bláu bókinni? | Úr skýrslu bæjarverkfrædings fyrir árið 1956: ,,Óhjákvæmilegt að gera stoðmúr á löngum kafla“ með Langholtsvegi Er þessar myndarlegu byggingar getið í Bláu bókinni, eða mun bæjarbúum gefast kostur á að sjá líkan hennar á sýningu þeirri, sem íhaldið hefir í undirbúningi í Þjóðminjasafninu? Þetta er eins og sjá má biðskýli fyrir strætisvagnafarþega og stendur á mótum Sundlaugavegar og Laugarássvegar. Fundur Framsóknar- manna um bæjarmálin Framsóknarfélögin í Reykjavik efna fil fundar um bæjarmól Reykjavíkur í Tjarnarkaffi, miðvikudaginn 9. jan. næstkomandi og hefst hann kl. 20,30. Á fundinum verða fluttar nokkrar stuttar ræður og verða ræðumenn þessir: Egill Sigurgeirsson, hæstarétfarlögmaður Hörður Helgason, blikksmiður Kristján Thorlacíus, deildarstjóri Valborg Bentsdóttir, skrifstofustjóri Þórður Björnsson, lögfræðingur Örlygur Hálfdánarson, fulltrúi í fundarlok mun Hermann Jónasson, forsætisráð- herra, formaður Framsóknarflokksins flytja ávarp. — Nú líður að bæjarstjórnarkosningum. Framsóknarmenn og aðrir stuðningsmenn B-listans, fjölmennið á fund- inn og kynnið ykkur bæjarmálin. Mætið stundvíslega og takið með ykkur gesti. Til síuðmngsmanna B4isians Kcsningaskriístóían Kosningaskrifstofa B-listans í Edduhúsinu verður opin daglega frá kl. 10—10. í dag (sunnudag) frá kl. 2—5 s.d. Símar 22038 — 15564. Utankjörstaftakosning Utankjörstaðakosning í Reykjavík hefst á morgun. Þið, sem ekki verðið í bænum á kjördag 26. jan. n. k., munið að greiða atkvæði áður en þið farið úr bænum. Skemmtisamkoma Framsóknarmanna að Hótel Borg Framsóknarfélögin og aðr- ir Framsóknarmenn í Reykja vík efna til skemmtisamkomu að Hótel Borg 15. þ.m. Mun 1 samkoman hef jast með Fram sóknarvist kl. 8,30 að kvöld- inu. Að spilunum loknum verða ýms skemmtiatriði, sem síðar verður sagt hér frá í blaðinu. Þetta verður aðai skemmtisamkoma Fram sóknarmanna í Reykjavík þennan vetur. Fuchs ókominn til heimskautsins I.ondon, 4. jan. Sir Edmund Hill ary dvelst nú ásamt fjórum fé- lög'um í góSu yfirlæti í bækistöð Bandaríkjamanna á Suðurheim- skautinu. Fregnir af brezka leið- angrinum undir stjórn dr. Fuchs eru ósamhljóða. Lundúnaútvarp ið hermir, að radíóamatör einn liafi heyrt útsendingu frá Hill ary á heimskautastöðinni til Scott-base, sem er aðalbækistöð hans. Segir þar, að dr. Fuchs sé rétt í þann veginn að komast til lieimskautsins, eigi aðeins um 50 mílur ófarnar. Hins vegar segir Keauter-fréttastofan, að dr. Fuchs liafi lent í miklum erfið leikum og eigi nú eftir 360 míl- ur ófarnar. Reuter hermir einn- ig, að Hillary muni ekki bíða eft ir leiðangri dr. Fuchs og verða honum samferða eins og áður var ráðg'ert, heldur fara með flug vél frá heimskautinu á mánudag inn. í gær var sagt í fréttum, að dr. Fuchs væri 200 milur frá heimskautinu. Afli Vestf jarðabáta í desembermánuði Vestifjarðabátar stunduðu al'lvel sjó í desembermánuði og öifiluðu bærilega. Afli ísafjarðarbáta var sem hér segir: Guðbjöa’g 111 lest- ir í 19 sjóferðm.i; Gunnhildur 92 lestir í 18 sjóferðum; Gunnvör 85 lestir í 16 sjóferðum; Ásúlfur 63 lestir í 16 sjóferðum; M'ár 53 lest- ir í 16 sjóferðum; Ásbjörn 48 lestir í 12 sjóferðum. Bdlungarvíkurbátar öfluðu sem hér segir: Þorlákur 90 lestir í 18 sjóferðum, Einar Hálfdáns 86 lest i ir í 18 sjóferðum; Huginn 82 lest- 1 ir í 19 sjóferðuim. I Suðureyrarbátar: Freyja 70 lest ir í 13 sjóferðum, Friðhert Guð- mundsson 60 lestir í 13 sjóferð- U'in og Freyr 47 lestir í 9 sjóferð- I um. G.S. „Hæíarlega húsanna hefir annaÖ tveggja veriS ákvetUin eftir ófullkomnum og úreltum götu- prófílum efta eingöngu eftir upphaflegu lands- lagi“ Hæðarlega húsa og gatna í Hlíðar- hverfi ekki í neinu samræmi Gatnagerðin í Reykjavík hefir löngum verið með endem- um. Skipulagsleysið virðist þar eina boðorðið, sem hlýtt er. Mörg eru dæmi um þetta fálm, og er það orðið bænum dýrt og verður þó enn dýrara í framtíðinni. — Nýlega er komin út, ársskýrsla bæjarverkfræðings í Reykjavík fyrir árið 1956, og er þar sitthvað fróðlegt. Kemur þar ljóslega fram, hvílíkt fálm ræður i gatnagerðinni. Skal hér aðeins minnzt á tvö dæmi, en af miklu er að taka. í skýrslunni er lýst þeim verk- efnum, sem starfsmenn bæjarverk fræðings hafa haft með höndum árið 1956. Þar er m.a. getið uin mælingar í Hlíðahverfinu og við Langholtsvegmn. „Eftir upphaflegu landslagi" Um Langholtsveginn segir svo. í skýrsilunni á bls. 19: „Gatan öll liæðarmæld. Eldri uppdrættir endurskoðaðir og, gengið að mestu frá hæðarlegu j götunnar undir nialbikun. Þess j iná geta, að nijög erfitt er að j ákveða liæðarlegu götu sem þess i árar, þar sem þegar er næstuin fullbyggt við. Hæðarlega hús- anna hefir annað tveggja verið ákveðin eftir ófullkomnuni og úreltum „götuprófílum“ eða ein- göngu eftir upphaflegu lands- lagi, án þess að tekið hafi verið tillit til götunnar. Enda er ó- lijákvæmilegt að gera stoðmúr á lönguin kafla á mörkum lóða og götu". Þannig er þessi vitnisburður. Skrifstofa bæjarverkfræðings veit ekki einu sinni eftir hvaða regi- um hæð húsa, sem byggð hafa verið síðustu tvo áratugina, hefir i verið ákveðin, og telur líklegast, | að farið hafi verið eftir „upphaf- , iegu landslagi" eða einhverjum úneltum „götuprófílum". Og nú er talið nauðsynlegt að byggja „«toðmúr“ með fram upphækk- aðri götu, svo að hún hrynji ekki að húsunum eða inn á lóðimar. Ringulreið Hlíðahverfisins Vitnisburður bæjarverkfræðings um ringulreiðina í byggingamál- um Hlíðahveríisins er ekki síður athyglisverð. Meðal starfa 1956 hefir verið að mæla þar götur. og er vitnisburðurinn um það á þessa leið: „Þegar Hliðahverfið var und- irbúið til byggmgar á árununi 1943 til 1945 var eigi unnt að gera fullnægjandi vimuiupp- drætti af götum hverfisins. Síð- ar hafa svo einstök atriði verið ákveðin, þegar staðsetja þurfti varanleg mannvirki í götustæð- umini. Þannig v^r hæðiarlega Miklubrautar endurskoðuð og á- kveðin, þegar gera átti stokk fyrir háspennus'íreugi rafvcit- unnar, sem liggur í miðri götu. Árið 1955 voru gerðir nýir upp- drættir af Lönguhlí'ð í sambandi við lögn hitaveitu í hverfinu og' á árinu 1956 hafa allar götur Hlíðahverfis, sunnan Miklubraut ar og vestan Stakkahlíðar verið endurskoðaðar og nýir uppdrætt ir gerðir af þeim. Vísast til ein- stakra g'atna urn það í þessum kafla. Þess skal getið, að verk þetta var tafsanit, vegna þess live hæðarlega margra húsa í liverfinu hefir verið ákveðin á ófullnæg'jandi hátt, þegar þau voru teiknuð og byggð“. Þarna er rætt uan eitt nýjasta bæ.iarhverfið, sem risið hefir á síð asta áratug. Bæjarverikfræðingur lýsir yfir, að það hafi verið byggt í fullkomnu skipulagsleysi. Eng- in ákveðin gatnateikntng til, hæð 'gatna óákveðin, húsin byggð í mismunandi hæð og án tiflifts til hæðar götu. Er von að vd fari í skipuilagsmálum bæjar, þegar þannig er að unnið, eins og vrtn- isburður bæjarverkfræðings sjálfs um Langholtsveg og Hlíðahverfi sýnir? Hér er um að ræða eitt dæmi af mörgum um bæjarstjóm, sein ekki er vanda sínum vaxin. Listi samvinnumanna og verka- manna, Borgarnesi, iagður fra m Lagður hefir verið fram listi samvinnu- og verkamanna í Borgarnesi við hreppsnefndarkosningar. Listinn er borinn fram af Framsóknarmönnum, Alþýðuflokknum og Alþýðu- bandalagmu og' skipaður eftirtöldum mönnum: Ofsaveður á ísafirði ísafirði í gær. — í dag gerði hér ofsaveður á suðau tri með siyddu og rigningu. Ekki urðiu teljandi skemmdir, en þai'.f1 ötur fuku af húsum. Þá skem ndust jólaskreyt ingar og greinar b:: inuðu af jóla trénu á sjúkraúl...tú..inu, ! 1. Þórður Pálmason, kaupfél.stj. 2. Pétur Geirsson, nijólkurfr. 3. Sigurþór Halldórsson, skólastj 4. Sigurður Gíslason, trésm. 5. Grétar Ingimundarson, bifr.st. 6. Sig. B. Guðbrandsson, bílstj. 7. Gestur Kristjánsson, verzl.m. 8. Gissur Breiðdal, verkam. 9. Jón Pétunsson, verkain. 10. Helgi Rimólfsson, bifr.stj. 11. Einar Sigmundsson, venkstj. 12. Björn Guðmundsson, trésm. 13. Geir Jónsson, verkam. 14. Eggert Guðniundsson, venkam í sýslunefnd: Sigurður Guð- brandsson, mjólkurbússtj. Varam.: í sýstunefnd: Jónas Kristjánsson. kaupmaður.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.