Tíminn - 23.02.1958, Blaðsíða 7

Tíminn - 23.02.1958, Blaðsíða 7
TÍMINN, sunnmtaginn 23. febrúar 1958, 7 — SKR8FAÐ OG 5KRAFAÐ - Búnaðar^ing komið saman til fundar ~ Vaxandi framSeiSsk lancljóeaSarYara og útfhitningnr þeirra “ Of dýrar framkvæmdir- UmræSiir um fríverzlnnarsvæðið fyrirliogaða - Genfarráð- stefnan og SandhelgismáliS - Áðsetur rikisstofnana og emhættismanna - StarfsskilyrSi fyrir aldraS fólk - Bandarísku lánin til Póllands og rógur MorgunblaSsins Búnaðarþing, sem er hið fer- tugasta í röðinni, kom saman til fundar á fimmtudaginn var. Það mun sitja að störfum í 3—4 vikur að vanda og ræða ýms helztu mál- efni bændastéttarinnar. Meðal jþeirra má nefna frumvarp um n>d- ingu jarðhitans, búfjártryggingar, innflutning toúfjár, svo sem holda- nauta, ný sandgræðslulög, stofnun landbúnaðarháskóla og öflun nýrra maa'kaða erlendis fyrir framleiðslu vörur landbúnaðarins og sölu þeirra. Við setningu þingsins fhvtti for- maður Bfinaðarfélags íslands, Þor- steinn Sigurðsson, mjög athyglis- verða ræðu. Hann sagði, að stærsta vandamálið, sem Búnaðar- þing myndi ræða að þessu sinni, væri offe-amleiðsla la'ndbimaðar- vara og útflutningur þeirra. Hann vðk einnig aö því, að í sveitum gætti nú orðið ýniiss óhófs og of- <notkimar og væri ástæða til þess að gefa því rnáli auikinn gaum. Minnist harm á ýms dæmi í því sambandi, t.d. byggingu fjárhúsa, sem kostuðu um 1200 kr. fyrir hverja kind. f þessu sambandi gat hann þess, að ástæða væri til að hyggja að, hvort ekki væri heppi- Ilegt að sameina meira gamalt og nýtt í þessum efnuni,. en nú væri að verða tízka. Að Iokinni ræðu formanns, flutti Hermann Jónasson landbúnaðar- ráðherra stutt ávarp. Hann sagði, að vandamál landbúnaðarins væru anörg, en hann kvaðst þó aðeins rnyndi ræða eitt sérstaklega að þessu sinni. Með vaxandi fram- leiðslu landbúnaöan-ara, væri það orðið ettt erfiðasta viðfangsefnið að seija það, sem ekki væri mark- aður fyrir .heima. Vegna dýrtíðar- innar hér á landi, væri érlent verð ekki fullnægjandi, og til þess að forðast skakkaföll hefði ríkið látið landbúnaðarvörur njóta sömu útflutnittgsuppbóta og sjávarút- vegurinn hefði notið. En það dygði ekki tii. Þó væri ljóst, að hagstæð- ara væri að selja dilkakjöt úr Iandi en mjólkurvörur. Það væri því mikilsvert að haga landbúnað- arframleiðslu svo, að þær vörur, sem ekki væri markaður fyrir hér á Iandi, væru þeirrar tegundar, sem ihagstæðast væri að selja er- lendis. Hvatti ráðherrann Búnaðar- þing tii að íhuga þetta mál vand- lega. Tvö vandamál í þessum ræðum þeirra for- inanns Biinaðarfélags íslands og landbúnaðarráðherra er vissulega gripið á tveimur stærstu vanda- málum landbúnaðarins um þessar mundir, offramleiðslunni annars vegar og hinum dýru framkvæmd- um hins vegar. Vegna hinna dýru framkvæmda eru skuldir margra foænda nú að verða meiri en góðu hófi giegnir. Hér er að sækja í sama horfið og x kaupstöðun- um, að ráðizt er í dýrari framkvæandir en getan leyfir. Af þessari hraut þarf að snúa og leita nýrra ráða til að gera fram- kvæmdirnar ódýrari, þótt þær full!nægi'<eigi að síður tilgangi sín- um. Það er vel, að formaður Bún- aðarfélags íslands skuli hafa lireyft þessu máli. Það sýnir, að nú sem fyrr er hin heilhrigða við- námsstefna líklegust til að koma frá bændastéttinni. Bændastéttin sannaði enn á ný hið þjóðholla hlufcverk sttt, ef hún gengi hér á undan með gott fordæmi. Þvi mun áreiðanlega veitt mikil athygli, hvernig búnaðarþing snýst við þessum tveimur málum, enda geta ákvarðanir þess varð- andi þau orðið hinar þýðingar- rnestu. SéS yfir fundarsal búnaðarþings sl. fimmtudag. Fremst og til hiiða sitja búnaðarþingsfulltrúar, en gestir aftar. Myndirnar sýna sína hiið fundarsalsins hvor. (Ljósm.: Þórarinn Sigurðsson). FríverzlunarmáliÖ ! í vikuni, sem leið, hafa orðið miklar umræður á Alþingi úm. hið fyrirhugaða fríverzltmarsvæði i Evrópu. Umræður þessar hófust rneð því, að Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra flutti mjög ít- arlegt yfirlitserindi urn gan'g máls ins til þessa og afstöðu íslands til þess. Mál þetta er enn svo stutt á veg komið, að fyrir íslendinga er erf- itt að taka endanlega afstöðu til þess, þar sern enn er ekki fullséð hvaða fcostir myndu fyi'gja þátttöku í því og ekki heldur hvaða erfiðleikar. Það er þ\ú jafnrangt á þessu stigl að telja þátttöku okk- ar í því alveg sjálfsagða og mála ávinning hennar með gylltum lit- um og að telja þátttökvma alveg útilokaða, því að henni myndi fylgja atvinnuleysi og lífskjara- rýrnun. Allar fuUýrðingar um þetta eru enn sem komið er, meira og minna lit í loftið. Það sjálfsagða á þessu stigi, er að fylgjast vel með gangi máls- ins og taka svo afstöðu til þess, þegar eitthvað áþreifanlegt ligg- ur fyrir. Þetta hefir menntamála- ráðherra gert með aðstoð sérfræð- inga, er hann hefir haft sér til ráðuneytis. Skýrsla ráðherrans sýndi, að hann hefir lagt mikla og góða vinnu í þetta undirbún- ingsstarf. Fundurinn í Genf Á morgun hefst í Genf á veg- um Sameinuðu þjóðanna alpjóð- leg ráðstefna um löggæzlu á sjón- um, m.a. um landhelgisniálið. Af hálfu fslands sækja þennan fund tveir ráðherrar og þrh' sérfræð- jingar að auki. I Hér er um ráðstefnu að ræða, sem er mjög mikilvæg fyrir fs- lendinga. Þótt svo fari, að hún taki ekki endanlegar ákvarðanir um stærð landhelginnar er mjög líklegt, að hún þoki niálinu áleiðis í samræmi við sjónarmið íslendinga. í sambandi við þetta mál hafa undanfarið átt sér stað þarflausar deilur. Af hálfu vissra aðila hefir verið rekið eftir því, að ákvarð- anir yrðu teknar um útiærslu land helginnar fyrir þennan fund, enda , þótt sérfræðingar okkar hafi mælt eindregið gegn því. í raun og veru eru þessir eftirrekstrar líka láta- læti, sem höfð eru í frammi til þess að þykjast öðrum skelegg- ari í málinu, eins og sést líka á því, að viðkomandi aðilar hafa ckki borið fram neinar endanleg- ar tillögur um þetta. Af sama toga eru og spunnin þau síendurteknu ummaeli Mbl., að útfærslan 1952 hafi verið gerð undir forustu Sjálf stæðismanna. Sannleikurinn er sá, að allir fiokkar stóðu að þessari útfærslu, en uþphaf málsins var tillaga frá Hermanni Jónassyni o. fl um uppsögn brezka landhelgis- 6amningsins. Nú hefh' oi’ðið samkomulag milli allra þingflokkanna um nefnd til að vinna að sameiginlegri stefnu varðandi útfærslu landhelginnar. Vonandi tekst þessari nefnd að tryggja fi'ið um málið og komast að sameiginlegri niðurstöðu. í þessu niáli þarf þjóðin öll að standa sarnan, ef mögulegt er. Allt annað verður til þess að veikja aðstöðuna út á við. Aísetur ríkisstoínana og embættismanna Mikla athygli vekur tjllaga Gísla Guðmundssonar um aðsetur ríkis- stofnana og embættismanna, en tillagan fjallar um að ný alhugun sé látin fara frarn á því máli. í greinargerð tillögunnar rekur höf- undur helztu rökin fyrir henni, og segir m.a.: „Á Alþingi og viðar hafa á und- anförnum árum verið uppi tillög- ur um að breyta til um aðseturs- stað ýmissa rikisstofnana og em- bættismanna. Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á samgöngum í landinu. Húsakostur hefir aukizt og batnað, í'aforka verið leidd víða um land, sér- menntun orðin aimennari en fyrr o. s. frv. Af þessu leiðir t.d., að staðir, sem fyrrum þóttu óhæfir aðsetui'sstaðir embættismanna eða opinberrar starfrækslu, eru nú engu síður til þess hæfir en aðrir staðir voru, þegar cmbættismönn- um og stofnunum var ákveðið að- setur þai\ Nokkrir bæir eru nú eins fjölmennir .eða fjölmennari en Reykjavík var á síðustu ára- tugum 19. aldar. Reykjavík jer höfuðstaður ís- lands, og auðvitað vili þjóðin sýna höfuðstaðnum sóma. Það hefh' hún gent iá margan hátt og mun gei-a. En af því þarf ekki að leiða, að all- ir embætíismenn og ríkisstofnanir, sem stanfa fynir landið í heild, þurfi að hafa aðsetur í Reykjavík. Fyrir byggðir landsins utan Reykja víkur getur það verið mikils virði, menningarlega eða fjárhagslega,1 að slík emhæitti eða stofnanir starfi þar, þótt það skipti minna máli fyrir hina fjölmennu höfuð- borg. Af tiilögum, sem uppi hafa ver ið á Alþingi um þetta efni, má nefna t. d. tillögu. um, að biskup landsins skuli hafa aðsetur í Skál holti og húsmæðrakennaraskólinn á Akureyri, enn fremur um flutn ing kennaraskólans. Eflaust kem- ur fleira til athugunar í þessu sam bandi. Að sjáifsögðu er ekki um’ það eitt að ræða að flytja embætti eða stofnanir, sem nú hafa aðset- ur í Reykjavík. Aðrar hreytingar lcóma einnig til greina. Hér er um ' að ræða athugunarefni, sem er þess vert, að það sé tekið þeim tök um, sem tillgan gerir ráð fyrir, og því fyrr, því betra. SiarfsskiIyrtSi fyrir aldra'S fólk Önnur merk þingsályktunartil- laga, sem nýlega hefir verið löigð fram, er tillaga þeirra Halldói-s E. Sigurðssonar og Ágústs Þor- valdssonar, þess lefnis, að ríkis- stjórnin láti gera athugun á starfs skilyrðum fyrir eldra fóik og leggi síðan ákveðnar tillcgur fyrir Al- þingi- TilIög'U isína rökstyðja flutn ingsmenn á þennan hátt: „Á síðustu áruan hefh' meðalald ur þjóðarinnar hækkað nokkuð. Mun sú þróun standa í sambandi við aukna þekkingu læknavisind anna og almenna velmegun í land inu. Það mun nokkuð algengt, þeg- ar fólk er kornið yfir sjötugt og jafnvel fyrr, hverfi það friá sínum fyrri störfum og láti af hendi for- stöðu á atvinnurckstri, þó að það hafi haft hann á hendi þangað til. Þessi þróitn er eðlileg, vegna þess að slilc 'störf krefjast fullrar starfs orku og þátttaka næstu kynslóð ar í athafnalífinu er nauðsynleg. Hitt er þó augljóst mál, að mikill mieiiri hluti þessa fólks, er tætur af störfum hefir yifir starfsorku að ráða, sem skapað gæti mikil verðmæti, ef það hefði aðgang að verkefnum við sifct hæfi og byggi við skilyrði til að framkvæma þau. Auk þess er iðjuleysi fóliki á þess um aklri mjög fjarlægt og gerir því_ eilina lítt bærilega. Á isíðari áriim hiefir verið unnlð nokkuð að því að koma upp heim i'lum fyrir aldrað fól'k. Eiga hraut ryðjendur í þeim .málum þafekir skyldar fyrir framtak sitt. Þessi heimili búa hins vegar við þau skil yrði, að erfitt er þar að fá verk éfni við hæfi, svo að þvi tákimarki sem hér er sfcefnt að, að aldrað fólk verði þátttalkendur í 'sköpun. verðmæta, að því leyti 'sem; starfs orka þess leyfir, verður ekki núð þar. Það er skoðun . flutnihgismahna þessarar tillögiu, að eftir því sem öldruðu fólki fjölgar og þétthýli eykst í lahdinu, knýi lausn þessa m'áls meira á og að þjóðfélagið háfi ekki efni á að láta starfsorku þessa fólfcs ónotaða, auk þess sem ævikvöld þiess verði þá gert að sku@ga starfsamrar ævi. TiMaga þessi er flutt í þeim til- gangi að leita eftir leiðiuim, sem markað gæti ákveðna stefnu í þessu míáili út frlá því 'sjónarmiði, er að fraunan greinir.“ Lánin til Póllands og Morgunblaftið Þau tíðindi gerðust í Washing- ton um seinustu helgi, að undir- ritaðir voru samihingar milli stjórn ar Bandaríkjanna og Póllands þess efni’s, að Bandarfkin veita Pólverj- um lán sem svarar 97 millj. doll- ara. Pölverjar fá í Bandaríkjun- um landbúnaðarvörur fyrir 73 millj. d'ollara, er þeir mega greiða með pólskum peningum, og 25 millj. dollara lán, sem þeir íhega nota til frj álsra vörukaupa í Bandaríkjunum. Áður voru Pól- verjar búnir að fá 95 mililj. dollara lán í Bandaríkjunum, svo að- all's hafa þeir fengið þar 193 mi’Mj, dol'lara lán á tæplega einu ári. Ef mai'ka ætti skrif Morgun- blaðsins að undanförnu, ættu eftir þessu að dæma að vera rniklar handarískar herstöðvar í Póllandi, því að Bandaríkin eiga nú ekfci! að veita öðrum þjóðum lán: nema sem mútufé í staðinn fyrir her- stöðvar. Því fer hins vegar fjarrii að nokkraí amei'ískar herstöðvar séu í Póllandi eða séu ffldlegar til að verða það. Það sannast hér vel, að það er ekkert ahuað en til- efnislaus rógur um Bandarikin, að þau veiti efcki öðrum þjóðum láu eða efnahagslega aðstoð, ’ nema þau fái herstöðvar eða annað slíkt endurgjald í staðinn. Snotur bæklingur Iíominn er út á íslerizku snotur bæklingur um umönn.un barna, sem gefin er ut á végutn Johnson & Johnson fyrirtækisins enska, en það er heimsþekikt fyrirtæki, sem framleiðir margvíisílegar hreinlætis og (hjúlkrunarvörur. Er þessi bækl- ingur leiðarvísir fyrir mæðurna og efni hans skipt. í sex kafla, sem heita: Baðtimi barnsins, Hvernig skipta á um bleyju án óþarfa táuga áreynslu. Hvernig búa skal um bleyjur, — þrjár mismunandi að- ferðir. Hvernig hugsa á um húð barnsins, listi yfir ýmsa húðsjúk- dóma, Hárþvottur barns'ns auð- veldaður og lofcs hvers vegna og hvenær nota þarf Johnsons barna- vörur. ■ Bæk'lingurinn er prýddur nokkr- um jnyndum og teikningum og fæst í lyfjahúðum og öðrum stöð- um, þar sem Johnsonsvörur eru seldar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.