Tíminn - 13.05.1958, Qupperneq 12
Veðrið:
JNorðan og norðaustan kaldi, létt
i.kýjað, frost 2—4 stig í nótt.
Hitinn:
f Reykjavík var 4 stiga hiti kl, 21,
víðast 2—4 stig sunnan l'ands en
um frostmark nvrðra.
Þriðjudugur 13. maí 1953.
Nehru að barnaleikjum
Blóðugir bardagar háðir í Lib-
anon og olíuleiðslur stórskemmdar
Kjötskortur í Lund-
únum innan fárra
daga
NTB—London, 12. maí. Strætis
vagnabílstjórar í London hafa
nú verið eina viku í verkfalli og
engar horfur á sáttum. Kjöt-
skortur vofir yfir liöfuðborginni,
þar eð 20 þús. kjötiðnaðarmenn
við kjötvinnsiustöðina í Smitli-
field hafa Jagt niður vinnu, en
atvinnuveitendur sögðu þeim öll
úm upp samstundis og reyna að
ráða nýja. Macmillan forsœtis
ráðlierra kvaddi stjórnina til
aukafundar í kvöld -til að reyna
að forða verkfalli járnbrautar-
starfsmanna, en það vofir yfir.
Strætisvagnabílstjórar reyna nú
að fá starfsmenn neðanjarðar-
járnbrautanna í Lundúnum til
þess að gera samúSarverkfali, en
óvíst er enn livort það tekst.
Nehru forsætisráðherra indlands hefir yndi af a8 leika sér við barnabörn
sín. Þarna sjást tveir drengir i höfrungaleik viö afa sinn.
Þingkosningarnar í Grikklandi:
Vinstrismnaður flokkur studdur af
kommúnistum jók mjög fySgi sitt-
NTB-Aþenu, 12. maí. — Flokkur Karamanlis, Radikaliflokk-
urinn, hefir unnið hreinan meiri hluta þingsæta í þingkosning-
unum í Grikklandi. Talningu er ekki enn lokið að fullu, en
Radikaliflokkurinn, sem fór áður með stjórn landsins, hefir
fengið um 41,7% af greiddum atkvæðum og' 174 þingmenn af
300, sem kjörnir eru. Hefir flokkurinn bætt við sig 10 þing- j
sætum. |
fengið 24,4% af greiddum atkvæð
um.
Frjálslyndir töpuðu.
Frjálslyndiflokkurinn, sem áður
var nærst stærsti flokkur þingsins
hefir tapað verulega fylgi og hefir
nú 20,7% af greiddum atkvæðum.
(Framhald á 2. síðu).
Mesta athygli í sambandi við
fcosningarnar hefir þó' vakið, að
nýr fiokkur, E.D.A., sem studdur
er af kommúnistum, en flokkur
þeirra var bannaður fyrir mörg-
um árum, hefir unnið mikinn sig-
ur og er nú næst stærsti flokkur
þingsins. Hefir hann hingað til
Dulles gerir fremur lítið úr tilslök-
un Krustjoffs um sérfræðingafund
Krnstjoff féllst á aí sérfræíingar ræíJi bann
viS vetnissprengjutilraunum
NTB-Washington, 12. maí. — John Foster Dulles sagði við
fréttamenn í dag, að Krustjoff hefði stigið „smáskref“ í átt-
ina til þess að viðurkenna viðhorf vesturveldanna í afvopnun-
armálinu. í bréfi sínu til Eisenhowers féllst Krustjoff á, að
.sérfræðingar kæmu saman til þess að fjalla um tæknilegan
undirbúning að stöðvun tilrauna með kjarnorku- og vetnis-
vopn.
Krustjoff sagði í bréfi sínu, að
ihann gerði þetta nauðugur, en þar
leð hann sæi, að Eisenhower legði
é þetta mikla áherzlu, vildi hann
ekki halda máiinu til streitu og
Foma þannig ef til vill í veg fyrir
að banni við tilraununum yrði kom
ið á að sinni. Hann hélt því fram,
íið mál þetta ætti að ræða á fundi
seðstu manna og eftir að þeir
hefðu komið sér saman, yrði það
fengið í hendur sérfræðingum,
enda léki á þvi enginn vafi, að
fullkomlega væri unnt að fylgjast
irneð því á tæknilegan hátt, að bann
inu væri franífylgt ai öllum aðil-
trm.
Hófleg bjartsýni.
Dulles kvað það gleðilegt, að
Krustjoff skyldi fallast á sjónar-
mið Eisenhowers um þetta atriði,
en bertti á að hér .væri aðeins urn
bannið við kjarnorkutilraununum
að ræða. Vesturveldin teldu hins
vegar, að slík rannsókn sérfræð-
inga á hinum ýmsu þátfcunr afvopn-
unarmálsins ætti að fara fram senr
fyrsta skrefið í samningaviðræðunr.
Talsmenn ríkisstjórna vesturveld
anna í Evrópu eru varkórir í dóm-
um um bróf Krustjoffs. en láta þó
í ljós ánægju sína og telja. að e£
til vill muni fleiri góð tíðindi á
eftir fýlgja.
-j}
—
Æptu ókvæðisorð
um Coty forseta
NTB—París, 12. nraí. Uppgjafa
hermenn frá Alsír fóru í dag
kröfugöngu unr götur Parísar. Mót
mæltu þeir hvers konar undan
slætti við uppreisnarmenn og kröfð
ust miskunnarlausrar baráttu
gegn þeirn. Fréttaritarar segja að
nokkur ókyrrð sé á hugum rnanna
i höfuðborginni. Ofstækismenn til
hægri og vinstri fóru um helgina
um götur borgarinnar og æptu
ókvæðisorð um Coty Frakklands
forseta. íhaldsmenn óttast nú, að
Pflimlin hyggist láta undan og
hætta Alsírstyrjöldinni við fyrsta
tækifæri.
Titó býr sig undir
baráttuna við Kreml
NTB—-Belgrad, 12. maí. Einsætt
þykir nú, að Sovétleiðtogarnir
hyggist taka upp harðvítuga bar
áttu gegn Tító. Sennilega verði
fyrsta skrefig að svipla Júgóslafa
þeirri efnahagsaðstoð, sem til stóð
að þeir fengju frá Rússum. Tító
hefir undanfarið dvalið á Brioni-
ey, en hvarf til Belgrad í dag. Mun
hann fyrsl kveðja saman 15 manna
ráðuneyti silt, en síðan verður
sennilega fulltrúasamkundan
kvödd saman. Er almennt álitið,
að sambúð ríkjanna sé mi álíka
fjandsamleg og hún var. er verst
blés í valdatíð Stalíns upp úr
1948.
Sameining íraks og
Jórdaníu hlýtur
Tugir manna drepnir, herlið og brynvagnar
reyna að kæfa óeirðirnar
NTB-Beirut, 12. maí. — Miklar óeirðir, verkföll og æsingar
hafa gripið um sig í Libanon, þar sem annars ríkir meiri ró
en í öðrum Arabaríkjum. Orsökin er andstaða gegn því, að
núverandi forseti Camille Chamoun, verði endurkjörinn for-
seti landsins í þriðja sinn, en til þess þarf stjórnarskrárbreyt-
ingu.
staðfestingu
Bagdad. 12. maí. Þingið í írak
hefir nú ehdanlega samþykkt frum
varpið um sameiningu íraks og
Jórdaníu. Fer frumvarpið nú til
Feisals konungs til undirskriftar.
Næstu daga er Husein Jórdaníu
konungur væntanlegur í heimsókn
til Bagdad. Er þá búizt við. að rík
isstjórnir beggja rikjanna biðjist
lausnar og síðan verði mvndiið
ný sameiginleg ríkisitjórn fvrir
bæði rlkin. Jórdanía heldur þó á-
fram að hafa sjálfstjórn um mörg
sérmál sín og Hussein heldur kon
ungstitli.
Upptök óeirðanna eru þau, að
siðast liðinn fimmtudag var rit-
stjóri eins dagblaðsins, sem studdi
andstæðinga stjórnarinnar, myrt-
ur. Ilófut þá strax óeirðir bæði í
Beirut og hafnarborginni Tripoli.
Olíulei'ðsla stórskemmd.
I dag var mikil olíuleiðsla, sem
liggur til Tripoli stórskemmd og
mun viðgerð taka langan tíma. Var
skemnídarverkið unnið á leiðsl-
unni skamml frá landamærum Sýr
lands. í Beirut byggðu óeirðasegg
ir götuvígi í dag og létu ófriðlega.
í borgunum hefir verið lýst yfir
allsherjarverkfalli og segir nú að
því verði ekki aflétt nema forset
inn segi af sér, en áður var krafan
aðeins um að hann byði sig ekki
fram að nýju.
&tjórnin hefir boðið út her-
liði og heldur þa'ð uppi gæzhi
á götum í stærri borgutn lands-
ins, stutt af brynvörðum bif-
reiðum. Þá hefir verið sett út-
göngubann í sumuni borgunum
frá sólarupprás til sólariags.
Bandaríski sendilterrann í
Beirut liefir lagt fyrir banda-
ríska borgara að fara ekki út
fyrir dyr. í gær var kveikt í
húsi því, þar sent bókasafn
bandarísku " upplýtsingaþjónust-
unnar er og' brann það ’til ösku.
16 drepnir í Tripoli.
Einna verstar liafa óeirðirnar
verið í Tripoli, olíuhafnarborg við
Miðjarðarliafið. Þar voru 16
manns drepnir í óeirðum um helg
ina, 100 liggja særðir á sjúkrahús
um.
í Beirut varð mikil sprening í
gærkvöldi í miðhluta borgarinnar
skammt frá lögreglustöðinni og
þinghúsinu. Enginn mun hafa far
izt, en skemmdir urðu nokkrar á
húsum.
Nasser rær iindir.
Ýmislegt þykir benda til, að
óeirðir þessar séu öðrum þræði
runnar undan rifjum áróðurs-j
rnanna frá Nasser og fylgismönn
um hans, sem vilja sameiningtt
Libanons við Arabiska lýðveldið. j
í kvöld var maður nokkut', sem
áður var aðalræðismaður Belga í
Sýrlandi, og kunnur er að stuðn
ingi vig hugmyndina um stórríki
Araba, handtekinn við landantæri
Libanons og Sýrlands. Var hann
með allmiklar birgðir vopna. skot
færa og sprengna í bíl sínum.
Landamæraverðir settu hann í
varðhald.
íslandsmeistararnir
sigruðu
í gærkvöldi kepptu dönsku hand
knattleiksliðin frá Helsingör við
íslandsmeistarana úr Ármanni í
kvennaflokki, og sigruðu Ármanns
stúlkurnar með 24:17. í kat'la-
flokknum kepptu Danmerkur-
meistararnir við F. H. og sigruðu
með 33:24.
Fyrstu leikir Dananna voru á
laugardagskvöldið og kepptu þeir
þá við gestgjafanna. Úrslit urðu
þatt að dönsku stúlkurnar unnu
KR-stúlkurnar 16:14, en jafntefli
varð í karlaflokknum, 24:24.
Annað kvöld keppa dönsktt gest
irnir viö ÍR í karlaflokki en við
blandað lið úr Fram og Þrótti í
kvennaflokki.
.vAúK
Kjarnorka og kven-
hylli sýnt á Akranesi
Leikfélag Akraness hefir undan-
farið sýnt gamanleikinn Kj-arnorka
og kvenhylli eftir Agnar Þórðar-
son í Bíóhöllinni á Akranesi við
mjög góðar undirtektir 1-eiidnis-
gesta. Leikstjóri er Þorl'eifur
Bjarnason.
Tjón af eldi
í Blesugróf
í gær var slökkviliðið kvalt að
E-götu 6 i Blesugróf. Þar st'óð eld-
ur út um glugga á timburhúsi, en
þó tókst fljótt að slökkva. Miklar
skemmdir urðu samt á húsi óg inn-
búi. Eigandi hússins er Óskar Guð-
mundsson. Kviknað mun hafa út
frá kynditæki.
Þá fór slökkviliðið einnig til að
slökkva sinuelda í görðum.
Ágætir fundir Framsóknarmanna
á Akranesi og í Hafnarfirði
Framsóknarfélag Hafnarfjarð
ar liél't almennan flokksfund s. 1.
sunnudag. Skúli Guðmundsson,
alþingismaður flutti fróðlegt og
ýtarlegt framsöguerindi unt
stjórnmálaviðhorfiö og fyrirhug
aðar ráðstafanir ríkiss'tjórnarinn-
ar í efnahagsmálum. Var ræðu
hans ág'ætlega tekið. Umræður
tirðit fjöriigar og tóku til máls
auk iframsögumanzis Magnús
Finnbog'ason, Vilhjálmttr Sveins
son, Jón Björnsson, Eiríkur Páls
son og Guðmundut' Þorláksson,
sem einnig var fundarstjóri.
Fundurinn stóð lengi.
Framsóknarmenn á Akranesi
efndu 'til' fundar s. I. siinnudag.
Frantsögu á fundinum ltafði Páll
Þorsteinsson, alþm. ræddi hann
þróun cfnaliagsmálanna síðustu
árin og það sem framundan væri
í þeim málum. Var ræða hans
mjög fróðleg og ítarleg.
Auk framsögumanns tóku þess
ir til ináls: Þórhallur Sæmunds-
son bæjarfógeti, Daníel Ágústín
usson, bæjars'tjóri, Guðmundur
Björnsson, kenttari, Bjavni Th.
Guðmundsson, skattstjóri, Krist
ján S. Jónsson, verkamaður,
Ki'istján Jónsson, skatts’tjóri og
Ellert Jónsson bóndi, Akrakoti.
Var fundur þessi ágætlega
lieppnaður.