Tíminn - 18.05.1958, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.05.1958, Blaðsíða 1
^Vmar TÍMANS ero . Rltstiórn 08 skrifstofur 1 83 00 SlaBamenn eftlr kl. 19: 18341 — 18302 — 18303 — 18304 455. árgangur. Efni inni í blaðinu: Minningargreinar um Hauk Snorra- son, ritstjóra, á bls. 6, 7 og 8. Reykjavík, sunnudaginn 18. maí 1958. 109. blað. HAUKUR SNORRASON, ritstjóri ^J'Cveijci. f'rd jormanni ocj ritcira JJramóóbnarfiobláiná í sóknarsveit Framsóknarmanna er nú skarð fvrir skildi. Haukur Snorrason ritstjóri er látinn, aðeins rúmlega fertugur að aldri. Sú harmafregn úr fjarlægu iandi kom sem reið- arslag, ekki aðeins yfir ástvini hans, sem um sárast eiga að binda, heldur einnig yfir okkur alla sam- starfsmenn hans og vini, sem höfðum góða aðstöðu til þess að meta störf hans og vissum hvers af honum mátti vænta. Blaðstjórn er eitt hið mesta trúnaðarstarf með þjóðinni. Haukur Snorrason var sannkallaður for- ustumaður í þeim efnum. Hann gerði Dag á Akureyri að iangmyndarleg- asta blaði utan höfuðstaðarins. Hann gerði slíkt átak við blaðstjórn Tímans þann stutta tíma, sem honum auðnaðist að starfa þar, að þess mun blaðið njóta um alla framtíð. Haukur Snorrason var óvenjulegum hæfileikum búinn, sem nutu sín frábærlega vel við stjórn á dagblaði og' hafði auk þess aflað sér óvenjulegrar menntunar, sem að haldi mátti koma í því starfi. Hjá honum fór saman skarpar gáfur, brennandi áhugi, sjaldgæft vinnufjör og' stjórnsemi, en jafn- framt lipurð, svo unun varð að vinna með honum og fyrir hann. Hann var heill og snjall baráttumaður í þjónustu þeirra hugsjóna, sem hann ungur hafði bundið tryggð við. Við samstarfsmenn Hauks í Framsóknarflokkn- um munum minnast hans í dag og jafnan með virðingu og þökk. Hann verður okkur öllum ógleymanlegur, sem kynntumst honum í samstai’fi og sameiginlegri baráttu. Sennilega verður okkur minnisstæðust birtan, fjörið, bjartsýnin og fórn- fýsin, sem honum fylgdi jafnan, hvar sem hann fór. Við söknum góðs vinar, sem horfinn er svo óvænt fyrir aldur fram. Við þökkum honum samstarfið og baráttuna fyrir sameiginlegum hugsjónum og áhugamálum. Við hörmum það að mega ekki lengur njóta starfskrafta hans í þág'u sameiginlegrar baráttu. Með þessum orðum kveðjum við Hauk Snorrason jafnframt því sem við vottum eiginkonu hans og börnum, föður, systkinum og öðrum vapdamönn- um dýpstu samúð okkar. Hermann Jónasson. Eysteinn Jónsson. Sigluf jarðarbær minnist 40 ára af- mælis á þriðjudag með veglegri hátíð Tíminn kemur ekki ut á þriðjudaginn Vegna útfarar Hauks Snorra- sonar, ritstjóra Tímans, seni fram fer frá Dómkirkjunni kl. 2 á morgun, verða ritstjórnar- skrifstofur og aðrar skrifstofur blaðsins lokaðar allan dag'inn á morgun. Ekki verður heldur unn- ið' í prentsmiðju Tímans. Sendiherra Japans á íslandi kominn Sendiherra Japans á íslandi með búsetu í Stokkhólmi, herra Shige- nobu Shima, kemur til Reykjavik- ur á morgun og mun afhenda for- seta íslands embættissikilríki sín á þriðjudag í næstu viku. Skrúííganga frá kirkju að barnaskóla, þar sem útisamkoma verÓur haldin 40 ára afmælishátíð Siglufjarðarkaupstaðar verður haldin þriðjudaginn 20. þessa mánaðar. Hátíðahöldin hefjast kl. 2 með guðsþjónustu í kirkjunni, séra Ragnar Fjalar Lárusson prédikar. kirkjukór Siglufjarðar syngur. — Páll Erlendsson stjórnar. Því næst hefst víkivakasýning og stjórnar Regína Guðlaugsdóttir dansendum. Karlakórinn Vísir syngur undir stjórn Páls Erlends- sonar og að síðustu leikur lúðra- sevitin. Siglfirðingar í Reykjavík og ná- grenni efna til samkomu í tilefni dagsins, í Sjálfstæðishúsinu næsta stjórnar, flytur hátíðaræðu, en þ\d þriðjudagskvöld. — Jón Kjartans- næst syngur Söngfélag Siglufjarð son fyrrv. bæjarstjóri, fl>d.ur þar Síðan verður haldið í skrúð- göngu frá kirkju að barnaskóla skóla og þar setur Andrés Hafliða son hátíðina með ræðu. Lúðra- sveit Siglufjarðar leikur. Barna- kór syngur undir stjórn Páls Er- Tíminn kemur því ekki út á lendssonar og blokkflautusveit þriðjudagsmorguninn. — Næsta leikur undir stjórn Sigursveins bla'ð kemur á miðvikudagsniorg D. Kristinssonar. un. Baldur Eiríksson, forseti bæjar ar undir stjórn Sig'ursveins D. son, sparisjóðsforstjóri heldur Kristinssonar. Sigurður Kristjáns- ræðu: Minningar frá 1918, og hátíðaræðu; Þorsteinn Hannesson operusöngvari syngur og Áki Jak- obsson alþingismaður flytur á- varp. Jacques Soustelle fyrrverandi lands- stjéri strauk frá París til Álsír Var gífurlega fagnatL De Gaulle heldur bla^a- mannafund á mánudag. Rólegt viríist í Frakkl. París og Alsír, 17. maí. — í gær samþykkti franska þingið nær einróma að veita stjórn Pflimlins mjög' víðtækt vald í þrjá mámiði. Stjórnin heldur tvo fundi í París í dag. Frétta- ritarar segja, að ró virðist nú að mestu í landinu, ef frá séu skildar fáeinar handtökur, sjáist þess fá merki að stjórnin beiti hinu nýfengna alræðisvaldi. Alsir; Lengi lifi Frakkland; : lifi de Gaulle. Lengi ■ Jacques Soustelle, fyrrverandi landsstjóri í Alsír og öflugur stuðn ingsmaður de Gaulles er kominn til Alsír. Koma hans var tilkynnt í útvarpi borgarinnar. Vakti frétt- in gífurlega athygli og æsingu, og ihnan s'tundar höfðu margar þús- undir manna safnast saman til að beyra org hans framan við aðal- stjórnarsetrið í borginni. f stuttri ræðu vottaði hann hernum hylli sína, kallaði hann stórkostlegan, og hann skoraði á fólkið að halda áfrafti samstöðu sinni. Hann kvað varðhöld hafa verig höí'ð á sér, en nú væri hann aftur kominn mitt á meðal fólksins og hersins. Ilann kvaðst kominn til að þjóna hinu franska Alsír og' þjóðlegri einingu báðum megin Miðjarðarhafsins. — Orð hans vöktu hinn mesta fögn- uð meðal múgsins. Hann endaði ræðu sína á þessa leið: Lengi lifi Strauk frá París. Evrópumenn í Alsír höfðu vænzt komu Soustelle, og það vakti grun serndir í franska þinginu í gær, er hann lét sig vanta í raöir þing- manna. Franskar hersveitir höfðu staðið vörð um hehnili hans, vegna þess, ag ekki þótti öruggt um líf hans fyrir alsírskum þjóðernissinn um. Fyrr 1 dag var tilkynnt í Paris, að hann hefði strokið á brott og væri á leiðinni til Alsír. De Gaulle hcldur blaða- inannafund. Tilkynnt hefir verið í Paris, að de Gaulle hershöi'ðingi muni halda blaðamannafund á mánudaginn. Þetta er þaö fyrsta, sem hann lætur til sín heyra opinberlega, (Framhald á blaðs. 2). Bandaríkjamenn senda aukið magn hergagna tii Libanon Þar á meíal skriíJdreka. Undirró^ursstarfsemi Arabiska sambandslýíveldisins Beirut, 17. maí. — Bandaríkin munu nú senda meiri her- gögn tii Libanon, þar á meðal skriðdreka. Talsmaður utan- ríkisráðuneytisins í Washington lét svo um mælt, að þetta væri gert samkvæmt samningi um hernaðaraðstoð Banda- ríkjanna við Libanon, gerðum fyrir um það bil ári síðan. Fréttaritarar seg'ia, að kyrrð sé nú aftur að komast á í land- inu og' aðstaða stjórnarinnar sé að batna. Meðal þeirra hergagna, Líbanonstjórn hefir óskað sem rifflar hefðu verið teknir af óeirða eftir mönnum í róstunum í Tripoli um skriðdrekar, og eru þeir nú næst- um reiðubúnir til sendingar. Stjórn Libanons hefir enn á ný ásakað stjórn arabisika sambands- lýðveldisins um að reyna að grafa undan sjálfstæði landsins og koll- sleypa stjórninni með hermdar- verkastarfsemi. Ásakanir. Skýrsla var lesin um þetta í út- varpið i Beirut, og var þar rakin löng upptalning atburða síðustu tvö árin, sem taldar voru sýrlenzk um stjórnmálamönnum að kenna. í skýrslunni sagði, að sýrlenzkir daginn, og nokkrir róstuseggirnir, sem borið hafi egypsk vopn, hafi komið til Libanon með skipum frá Gaza-landræmunni, sem Egyptar ráð yfir. Stjórnin skoraði á þjóð- ina að stuðla að útrýmingu þess- ara eyðingarafla í landinu. Sífelldur útvarpsáróður. 'Fullvíst þykir, að undanfarið hafi fjöldi sýrlenzkra óeirðamanna farið í flokkum yfir landamærin til hermdarverka, og til þess að æsa til óeirða gegn stjórninni. Um hitt er þó ekki minna vert, að út- (Framhald af 1. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.