Tíminn - 18.05.1958, Blaðsíða 4

Tíminn - 18.05.1958, Blaðsíða 4
4 T í M I N N, sunnudagiim I8. maí 19S& GULL og dýrir steinar í SKÓLABORGINNI REYKJAVÍK er þessa dagan'a í mörgum fjö’lskyMum beðið úrslita fuHnaðarprófsins og þess fagnaðar, er hið unga skólafólk leggur námsárin að baki. FJÖLMARGAR FJÖLSKYLDUR minnast þess- ara tím'amóta með fögrum minjagrip árnaðar- óskum sínum til staðfestingar að sigraðri próf- þrautinni. LISTSMÍÐI í GULLI, silfri og dýrum steinum hefir á öllúm öl’dum þótt til þess kjörið. að bera góðar óskir og áhrínsorð vina og ætt- ingj,a milli og varðveita um ókomin ár minn- ingu um sigra og gleðistundir. VÉR BJÓÐUM YÐUR að skoða safn vort af íslenzku tistsmíði — og bendum einkum á gullhringa setta dýrum steinum. — Þér mun- uð gela fundið þar grip við hæfi hins merka tiMnis. „Fagur gripur er æ til yndis“ Skarlpripaverziun Dánarminning Koibeinn Guðmundsson, bóndi í Stóra-Ási Á morgun verður jarðsettur að Stóra-Ási í Hálsasveit Kolbeinn Guðmundsson, bóndi, en hann lézt á helmili sínu 9. maí s. 1. Kolbeinn í Ási eins og vinir hans og kunningjar voru vanir að kalla hann, var fæddur að Kolsstöðum í Hvítársíðu 21. sept. 1882, og var hann því liðlega 75 ára, er hann lézt. Foreldrar Kolbeins voru Guð- mundur Sigurðsson bóndi að Kois- stöðum og kona hans Helga Hjáto- arsdóttir, en bæði voru þau borg- firzk að ætt og uppruna. Hjá foreldrum sínum ólst Kol- beinn upp við þau skilyrði, sem hinn íslenzki sveitabóndi átti við að búa á seinnihluta 19. aldar, en þá mun oft ha’fa verið æði þröngt í búi. Um tvítugt fór Kolbeinn úr for- eldrahúsum. Þá reri hann nokkrar vertíðir í Grindavík, en árið 1906 þá 24 ára garnall hóf hann járn- smíðanám hjá Þorsteini Jónssyni, járnsmið í Reykjavík og lauk því námi. Þrátt fyi’ir smíðaáhuga sinn, kaus Kolbeinn þó fremur frelsi sveitanna og tryggð hans við liinar undurfögru æskustöðvar varð til þess að liann sneri aftur heim og hóf búskap að Þorváldsstöðum í fæðingarsveit sinni 1914. Árið 1918 kvæntist Kolbeinn Gerizt áskrifendur að Tímanum Áskriftasími 1-23-23 eftirliíandi konu sinni Helgu Jóns- dóttur Magnússonar hreppstjóra að Stóra-Ási, og bjuggu þau að Þor- valdsstöðum til ársins 1924, er þau fiuttust að Stóra-Ási og tóku við búi af tengdamóður Kolbeins, Þorgerði Hannesdóttur, 6em þá var orðin ekkja. Þeim Helgu og Kolbeini varð 5 barna auðið, sem öll eru uppkom- in og eru nú ’tveir synir þeirra hjónia teknir vjð búskap í Stóra- Ási fyrir nokkrum árum. í búskap sínum gerðist Kolbeinn brátt umsvifamikiil og stórhuga bóndi, enda var hann mjög áhuga- samur og duglegur til hvaða verks sem var, og með afbrigðum sam- vizkuisamur, hagur og vandvirkur miaður. Með sleitulausri ástundun og iðjusemi vann hann hvert þrek- virkið af öðru á búj’örð sinni. Jarða bætur og húsbyggingar urðu mikl- ar í Stóra-Ási í tíð Kol’beins. Fylgd- ist hann mjög vel með í málefnum landbúnaðarius og var ætíð tilbú- inn að hagnýta sér þær nýjungar, sem frarn kotmu á því sviði. A fyrstu búskaparárum Kolbeins var afkoman ekki ætíð sem skyldi, en eins og Kolbeinn sagði sjálfur, var það bjartsýnin og trúin á fram* tíðina, sem revndist honum þá oft gott haldreipi. Talandi dæmi um bjartsýni og ótrúlega mikia fram* sýni hans er það þrekviriki haniS, er hann 1928 byggði í Stóra-Ási fyrstu vatnsaflsrafstöð, sem komið var upp i Borgarfjarðarliér* aði, enda þót'ti það í stórt ráðizt á þeim tímum. F” bað eru ekki fyrst og fremst framkvæmdirnar, dugnaöuri.nn og iðjusemin, sem komu mér til þesa að rita þessar fáu línur nú. þegai’ vinur minn Kolbeinn í Ási er kvaddur í hinzta sinn, heldur eril bað mannkostir hans eða hans innri maður. Ég álti því láni að fagna að dveljast á heimili þeirra Helgu og Kolbeins á uppvaxtarárum mínum rnörg sumur og njóta umönnunár þeirra og liandleiðslu. Ég kynnt- ist því Kólbeini eins vel og verða mátti og dvöl mín að Stóra-Ási hjá þeim hjónum verður mér ógleym- anJeg. Hjálpsemi, hógværð og góð- mennska voru einkenni Kolbeins, enda var til har.s leitaS af ölluni jafnt ungum sem öMnum, ef eitt- hvað út af har os var hann þá aatfð reiðubúinn að levsa hvers manns vanda. Mai’gur ferðamaðurinn hef- ir komið að Stóra-Ási soltinn og illa til reika og notið beirrar lilýju og innileiks, sem einkennt hefir líf og starf þeirra Stóra-Ás-hjóna. Þágar nú vinur minn Kolbeinn í Ásl er genginn, minnist ég liðins tíma og þakka honum þá tryggð og vináltu. sem hann sýndi már og minni fjöllskvldu. Eg sendi Helgu í Ási og börnum hennar kveðjur, en ég veit að þungur harmur er að þeim kveð- inn, þegar þau þurfa nú að sjá á bak élskulegum heimilisföður, sem, allt víldi fyrir þau gera. Guð blessi minningu Kolbeins 1 Stóra-Ási. M Á. M. SUMARÁÆTLUN fyrir sérleyfisbíla Kaupféiags Skaftfelliiiga, Vík Frá 11. maí til 30. sept. þrjár ferðir í viku, hagað þannig: Frá Rvík: Þriðjudaga kl. 10, ekið — — Þriðjudaga kl. 10, ekið — — Fimmtudaga kl. 10, ekið — — Laugardaga kl. 13, ekið Frá Kálfaf. Frá Kbkl. Frá Vík Miðvikudaga kl. 8, ekið Miðvikudaga kl. 8. ekið Föstudaga kl. 9,30, ekið Sunnudaga kl. 13,30, ekið um Meðalland að Kirkjubæjarklaustri um Eldhraun að Kálfafelli um Eldhraun að Kirkjubæjarklaustri um Eldhraun að Kirkjubæjarklaustri um Eldhraun til Reykjavíkur um Meðalland til Reykjavíkur um Eldhraun til Reykjavíkur um Eldhraun til Reykjavíkur Sunnudaga kl. 17, ekið til Reykjavíkur Miðvikudaga kl. 13, ekið til Reykjavíkur Föstudaga kl. 13, ekið til Reykjavíkur KAUPFÉLAG SKAFTFELLINGA Á flugvellinum Berlin Tempelhof hefir verlð settur upp sjálfsatl, þar sem flugfarþegar geta keypt sér ferðatryggingu. Er gert ráð fyrlr að slíkum sjálfssölum verði komið fyrir á fleiri flugvöllum á næstunni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.