Tíminn - 22.05.1958, Qupperneq 12
Vettrið:
Norðan stinningskaldi, léttskýj-
að með köflum.
Hitinn kl. 18:
Reykjavík 6 st., Akureyri 2 st.,
New York 21 st., London 12 st.
París (15 st., Kaupm.h. 12 st.,
Stokkh. 12 st. I’órsli. í Faekiey 5
Fimmtudagur 22. maí 1958.
Þrastahreiður í Pósthúsglugganum1
Heildarvörusala Kaupfélags Borg-
firðinga varð 65,7 millj. kr. s. 1. ár
Mikið er að snúast þessa dagana að baki Pósthússins. Smiðir hafa unnið
að því að brjóta þar niður veggi og endurbyggja bakhluta hússins. í vetur
skildu þeir eftir litla spækju efst í gluggahorni bakdyramegin. Hvílir annar
endi spækjunnar á járngrindinni, sem er fyrir glugganum að utanverðu,
en hinn á þverpósti hornrúðunnar. í vor komu þrastarhjón og byggðu
hreiður á spækjunni, og unnu þau hin rólegustu að hreiðurgerðinni, t>rátt
fyrir barsmíðar og umgong. Nú eru ungarnir skriðnir úr eggjum og hjónin
eru á fleygiferð allan daginn með maðka handa þeim í nefinu.
(Ljásm.: Tíminn.)
Skozkí smiðurínn hefir
játað á sig átta morð
En ekki víst, a<S játningin sé fullgilt réttargagn.
Þetta er eitthvert mesta mortimál, sem uppi hefir
veri? í Stóra-Bretíandi
Skozki trésmiðurinn Peter Manuel, sem er 91 árs að aldri
og liggur undir ákæru um átta morð játaði afbrot sín í ná-
vist foreldra sinna og nokkurra lögreglumanna þegar eftir
að hann var handtekinn. Kom þetta fram við réttarhöldin
í Glasgow í dag. _______________
f yfirlýsingu, sem Peter Manuel
ihefir sjálfur skrifað undir, játar
hann morð þriggja ungra stúlkna,
þriggja kvenna, eins pilts og eins
manns á fullorðins aldri.
Síðar hefir Manuel fullyrt, að
ihann væri saklaus, og verjandi
hans sagði því að ekki væri full-
sannað, að hún hefði verið gefin
Lýsti morðunum af nákvæmni.
í játningunni hefir Manuel lýst
því allnákvæmlega, hvernig hann,
ihinn 1. janúar árið 1956, fylgdi
Anne Knieland, 17 ára gamalli
lieim frá dansleik. Á leiðinni hratt
hann henni út í skurð, en henni
tókst að forða sér. Manuel elti
hana, og þegar hún fór að kalla,
barði hann hana í höfuðið með
barefli, þar til hún andaðist. í játn
ingunni hefir hann einnig gert all-
Ijósa grein fyrir hinum morðun-
um sjö, sem hann hefir á sam-
vizkunni.
Skipverji á Agli
SkalSagrímssyni
slasast
AKUREYRI. — Það slys vildi til
á mánudagsnóttina, að skipverji
á Agli Skallagrímssyni, Eiður
Valdimars'son, skarst afar illa á
hendi. Skipið var statt á Hjalteyri.
Eiður var fluttur til Akureyrar
í sjúkrabíl, en síðan var fengin
flugvél með hinn slasaða mann til
Reykjavíkur til frekari læknisað-
gerða.
Jarðarför Guðmund-
ar Ólafssonar í dag
í gær fór fram á Akranesi
kveðjuathöfn um Guðmund Ólafs-
son, kennara frá Laugarvatni. í
dag kl. 4,30 fer jarðanför hans
svo fram frá Fossvogskirkju.
Brjóstlíkan af Guð-
mundi Karli Péturs-
syni
AKUREYRI. — Stjórn fjórðungs-
sjúkraihússins á Akureyri hefir
látig gera brjóstlíkan af Guðmundi
Karli Péturssyni yfirlækni. Var
líkanið afhjúpað á miðvikudaginn
var í sjúkrahúsinu. Jónas Jakobs-
son gerði myndina úr gibsi. Síðar
verður hún stevpt í eir.
Slys á Sjálandi
KAUPMANNAHÖFN, 21. maí. —
Stórslys varð í nótt á Mið-Sjálandi,
er herflutningabifreið á mikilli
ferð ók á tré við veginn. 17 her-
menn meiddust og voru lagðir inn
á sjúkrahús — Aðils
Erlendar fréttir
í fáum orSum
□ Forsætisráðherrar Varsjárbanda
lagsins koma saman til fundar í
Moskvu á laugardag.
□ Ek'ki þvkir vænlegar horfa en
áður um lausn verkfalls strætis-
vagnastjóra, og annarra verk-
fallsmanna í Bretlandi.
□ Bretar hafa smíðað farartæki,
sem er eins konar millistig milli
flugvélar og loftskips. Á það
að fara með um 80 mílna hraða
á klukkuslund og geta farið
alveg niður að sjávarfleti. Meg-
inatriðum um gerð þessa tækis
er enn haldið leyndum.
□ í tvo daga hafa staðið yfir. ó-
eirðir í indverskum stálsmiðju-
bæ, og hafa lögreglumenn skot-
ið á verkfallsmenn, er efndu til
óeirða.
□ Brezkur her á Kýpur gerir nú
gangskör að því að leita hermd-
arverkamanna, sem talið er að
hafizt við á óbyggðum hluta
eyjarinnar. Mikill liðsafli er að
þessum starfa.
□ Marokkóbúar hafa skorað á
Frakka að flytja allan franskan
her úr landinu. Samkvæmt samn
ingi, sem gerðtir var fyrir tveim
árum, er Marokkó fékk sjálf-
stæði, hafa Frakkar rétt til að
hafa þar herstöðvar. Her þeirra
þar er nú 35 þús. manns.
Mikiar framkvæmdir á vegum félagsins
Aðalfundur Kaupfélags BorgfirSinga var haldinn í Borg'-
arnesi dagana 7. og 8. maí 1958. Á fundinum voru maettir
64 fulltrúar frá öllum 16 deildum félagsins, auk þess stjórn
framkvæmdastióri og endurskoðendur félagsins. Fundar-
stjóri var Sigurður Snorrason, Gilsbakka.
í upphafi fundarins minntist.
varafcrmaður félagsins, Jón Stein j
grímsson, sýsli’.maður, tveggja;
srmvinnumauna, er látizt hcfðu
síðan á síðasta aðalfundi, þsirra
Guðmundar Jónssonar á Hvítár-
bakka, forman.ts kaupfólagsins og
Sigurðar Jakcbs'sonar bónda á
Varmalæk. Heiðruðu fundarmenn
minningu beggja þessara manna
með því að rísa úr sætum.
Miklar framkvæmdir
Úr reikningum félagsins. fyrir
árið 1657 og skýrslu Þórðar Pálma-
sonar, kaupfélags'stjóra:
Framkvæmdir: Stór viðbót var
byggð við eldra frystihús félagsins,
fest var í þeirri framkvæmd um
3,8 millj. króna. í frystihúsinu er
nú hægt ag geyrna 35—40 þúsund
dilkaskrokka og auk þess 160 lest
ir af annarri vöru. Þá var lckið
við sláturhúsbyggingu að Görðum
í Kolbeinsstaðahreppi og lítilshátt
ar unnið við húsgrunn hins vænt-
anlega verzlunarhúss kaupfélags-
ins í Borgarnesi. Til bygginga var
varið alls um 4,1 millj. króna.
Vörusala: Vörusala félagsins á
árinu var s'em hér segir:
Mi'llj. kr.
Aðkeyptar vörur fyrir 24,9
Sala í kjötb. og brauðb. 3,4
Mjólk og mjólkurv. 23,2
Aðrar búsafurðir 14,2
Kærir Libanonstjórn til öryggisráðs-
ins vegna íhlutonar Araba?
Ástandi'ð í landinu aí batna. Líklegt, aft Che-
hab hershöfftingja veríi næst falin stjórnar-
myndun
NTB—Beirut, 21. maí. —Líbanonstjórn sakaði í dag enn
einu sinni Arabíska sambandslýðveldið um umfangsmikla í-
hlutun um innanríkismálefni ríkisins. Chamoun forseti sagði,
að Egypt.ar og Sýrlendingar væru að reyna að koma í kring
róttækum breytingum á stefnu þjóðarinnar til samræmis við
sína eigin. Engin uppreisn gæti átt sér stað í Líbanon án
manna og vopna frá Sýrlandi.
að réttlæta mætti bandaríska í-
Chamoun sagði, að Libanon- hlutun samkvæmt Eisenhower-
menn væru ákveðnir í að lialda kenningunni svonefndu. Hann
sjálfstæði sínu, og myndi verða réðist ha, ðlega að Dulles utanríkis
ákveðið innan sólarhrings, hvorl ráðherra, sem á þriðjudag sagði
íhlutunin yrði kærð til Oryggis-
ráðsins.
fullar sannanir fyrir þvi, að Ara-
bíska sambandslýðveldið hefði
hlutast til um óeirðirna.’ í I.iban-
on. Ivvað hann slík ummæli til-
Arabar veitast að Dulles.
Forstjóri upplýsingaskrifstofu bæfulaus með öllu.
Arabiska sambands'lýðveldisins í
Kaíró, sakaði í dag Bandaríkin um
saimsæri með Libanon í því skyni
að skapa slíkt ástand í landinu,
Astandið að batna.
Ástandið í Libanon hefir batnað
Framhald á 2. síðu.
Alls. 65,7
Slátrað var í sláturhúsum félags
ins 35013 kindum eða 6327 íleiri
enn árið áður. Meðal kroppþungi
dilka haustið 1957 var 15,65 kg.
Mjólkursamlagið tók á inóti
5.657.331 lítrum af mjólk ó árinu
og er það 962.799 litrum meira
en árið áður. Meðalfitmnagn mjólk
ur var 3.632%.
Á bifreiðastöð K.B. voru starf-
ræktar 16 vöruflutningabifreiðir
og seldi stöðin flutninga á vörum
og fólki ásamt benzínsölu fyrir
3,3 millj. króna á árinu.
Innstæður í Innlánsdeild K.B.
voru í árslok 1957 kr. 9,5 millj.
eða 2,1 millj. krónum hærrl en í
ársbyrjun.
Innstæður félagsmanna í stofn-
sjóði námu í árslok 1957 kr. 4,4
millj. kr.
Fastiláðnir menn hjá félaginu
eru um 70, en allar launagreiðslur
hjá félaginu voru 7,1 millj. króna
á árinu.
Félagsmenn í árslok voru 1180.
Kaupfélagsstjóri ræddi í }ok
Skýrslu ginnar um ástand og' horf-
ur í viðskiptair.'álum og um fyrir-
hugaðar framkvæmdir félagsins,
meðal annars um væntanlega verzl
unarhúsSbyggingu í Borgarnesi, en
grunnur undir hana hefir þegar
verið byggður.
Sigurður Guðbrandsson mjólkur-
bústjóri ræddi um rekstur Mjólkur
samlagsins og verðlag á mjólkur-
vörum.
Framhald á 2. síðu.
Málmur fluttur frá
Meistaravík í ágúst
KAUPMANNAHÖFN, 21. maí. —
Þrátt fyrir fallandi verðlag í blýi
og sinki á heimsmarkaðinum, hef-
ir Nordisk Mineselskap ákveðið
að láta skipa út framleiðslu nám-
unnar í Meistaravík á Austur-
Grænlandi í ágúst eða sept-ember,
þegar er færar verða siglingar
gegnum ísinn. Þá munu 22000 smá
lestir liggja reiðubúnar til send-
ingar. Af því magni hefir helm-
ingurinn verið Sendur til Banda-
ríkjanna, með hinn helmlnginn
verður siglt til Evrópu til bræðslu,
og ef til vill verður sumt af því
lagt upp sem birgðir.
■— Aðils.
í gærmorgun mátti sjá, aS bifreiSar höfðu verið óstöðugar á Hafnarfjarðarveginum. Skammt sunnan við Foss-
vogslækinn hafði vörubifreiðin, sem myndin sýnir, stungizf út af veginum. Timbur var á paili, og hafði það
stungizt fram um framrúðuna. Bifreiðin hafði komið sunnan veginn og farið austur af honum. — Og rétf
sunnan við Fífuhvamm í Kópavogi hafði fólksbifreið farið út af, og sést hér á myndinni. Var það skammt frá ^tlaði að liota þetta emþætti sem
brúnni yfir Kópavogsósinn. - Ljósm.: Sv. Eiðsson. | stökkpall til póljtískra metorða.
Stassen beið ósigur
NTB—FÍLADELFÍU, 21. mai. —
Hinum kunna bandaríska stjórn-
málamanni, Harold Stassen, tókst
ekki að ná útneí'ningu republik-
anaflokks'ins sem frambjóðandi
hans við fylkisstjórakjör í rSkinu
Pennsylvaníu. Kjör um þetta fór
fram í gær, og sýna niðurstöður
þess, að Stassen fékk nær 280.000
atkv. en keppinautur hansj Ai’thur
MeGonicle, fékk yfir fimm hundr.
þús. atkvæði.
I Kjörsókn var lítil. Talið er að
Stassen hafi beðið ósigur við at-
bvæðagreiðsluna vegna þess, að
þann er ekki íbúi ne ættaður úr
þessu fylki, og talig var að hann