Tíminn - 03.06.1958, Side 2
TIMIN N, þriðjudagina 3. júni 135«.
Leikfíokkur Folketeatreí á ReykjavíkurflugvelSi
Mcðal farþega með Gullfaxa til ReyK|avíkur s.l. sunnudagskvöld, var leikflokkur frá Folketeatret í Kaupmanna-
. höfn, en flokkur þessi hefir að undanförnu verið á ferðalagi um önnur Norðurlönd. Meðal þeirra, sem tóku
á móti listafólkinu á flugvellinum, voru þjóðleikhússtjóri og útvarpsstjóri. Myndin er tekin vlð komuna til
Reykjavíkur. (Ljósm.: Sv. SæmJ
Jafnaðarmenn hafa unnið á í auka-
kosningunum til sænska þjpgsins
Mföfiokkurinn vann mörg þingseéti af ÞjótS-
flokknum
NTB—Stokkhólmi, 2. iúní. — Talning eftir sænsku kosn-
ingárnar virðist sýna nokkurn veginn ljóslega styrkleika-
hlutföll fJokkanna í sænska þinginu næstu tvö árin.
Samkvænít fyrstu talningu eftir
kosningarnar á sunnudáginn hafa
mú jafnaðarmenn og kommúnistar
waman 117 þingsæti. En borgara-
fLokkarnir þrír hafa fengið 114.
Forsefi deiidarinnar hefir ekki at-
kvæðisrétt, svo áð við atkvæða-
greiðslu ætti hlutfallið að verða
116:114. í Stokkhólmi er sarnt sem
' láður talið, á'ð utankjörstaðaat-
kvæ'öi muni bæta fyrir hægri fiokk
. unum, þannig, að niðiuvfáðan
verði 115:115, Þetta þýðir, að við
'einstökú kringumstæður kann að
reynast. uau8syn! að láta hlut-
feesti ráða. Jafnaðarmenn unnu í
koshingunum 6 þingsæti. Hafa
þeir nú 112 þingsæti, höfðu /iður
106. Er það talin helzta breyling-
$n, s«m orðið hefir yið þessar auka
fcosningar, sem stofnað var til
vegna ósigurs jafnaðarmanna í clli
' laúnámáiinu í véturV
Elliláunamálið,
Tage Erlander forsætisráðherra
Eegir,. að kosningarnar séu votlur
fiess vilja þjóðarinnar, að clii-
launamálið verði leyst samkvæmt'
killögu ríkisstjórnarinnar. Stjórnin
onuni .loggja fram tillögur um lög-
bundinn eililífeyri svo fljótt sem
unnt sé. Talið er, að komið geti
til greina, að jafnaðarjnenn íroisti
samninga við ÞjóBflokkinn um
eftiriaunamáiið.
Þjóðflokkurinn tapaði.
Athylisvert er, að Þjóðfiokkur-
inn stórtapaði í kosningunum og
missti floklturinn 20 af 58 þing-
sætum sinuih. Það var fyrst og
fremst Miðiílakkurinn, sem hla'ut
liið tapaða fylgi Þjóðflokksins.
Vann hann 13 ný þingsæti. Hægri
menn umvu tvö þingsæti og komm-
únistar töpuðu einu. Talið er. að
með talningu. utanlcjörstaðaat-
kvæða verði fylgisaukning hægri
manna 3 þingsæti.
S tyrlcjeikahlutföllin milli fiokk-
anna eins og nú er ástatt talning-
unni eru þessi: Jafnaðarmenn 112
þingmenn, 46,8 prósent greiddra
at’kvæða; Hægri menn 44 þing-
menn — 16,5 prósent. Miðflokkur-
inn 32 þingmenn — 9,6 prósént;
Þjóðflokkurinn 38 þingmenn —18
prósent; kommúnistar 5 þingmenn
— 3,4 prósent greiddra atkvæða.
Ekki verður að ftiil-u skorið úr
um úrslit kosninganna fyrr en
cftir vikutíma.
Ekki tímahært að íjölga hésmæðra-
skóhim ríkisins eins og sakir standa
Einn ekk; starfræktur í tnörg ár vegna lélegr-
ar aísóknar og legiíi vií bor<$ a$ lokaÖ yríi
tveimur til viðbótar
í gær var til umræðu í efrj deild frumvarp um skóla-1
kostuað, sem fjallar urn það að þjóðkirkjan stofni til starf-
rækslu á lcvennaskóla að Löngumýri í Skagafirði. Hefir nú-
verandi eigandi skólans, sem þar er rekinn, boðið kirkjunni
eignina að gjöf, með það fyrir augum að þjóðkirkjan reki
þar. kvennaskóla-
De Gaulle
(Framhaid af 1. síðu).
að kosningalögin séu hluti af
stjórnarski-ánni, en hana leggur
hann væntanlega síðar fyrir þjóð-
ina. _
f kvöld fjaliar þingið um til-
lögu de flaulle iun hvernig
stjórnin skuli liafa aðstöðu til
breytinga á stjórnarskráuni. Sam
kvæmt henni skal hami geta
lagt breytingartillögur sínar á
stjórnarskránni undir þjóðarat-
kvæði.
Vestur-þýzka stjórnin hefir gefið
út tilkynpingu, þar sem hún seg-
ist muni gera allt til að hslda á-
fram sömu samvinnu við Frakk-
land og verið hafi.
Vonbrigði franskra landnema
í Alsír.
í Alsír biða menn komu de
Gaulié með eftirvænltingu, og á
yíirborðinu ríkir þar eindrægni,
en frét.tamenn segja, að franskir
landnemar þar séú síður en svo
ánægðir, enda þótt þeir reyni að
dylja vonbrigði sín. Þeir óskuðu
eftir endalokum stjórnarkcrfis
flokkanna í Fralcklandi, og er þeir
vissu, að de Gaulle hafði valið sér
meðráðherra úr hinum ýinsu
stjórnmálaflokkum, þess að taka
í stjórnina neinn af þeim, er stóðu
fyrir uppreisninni í ALsir urðu þeir
fyrir vönbrigSumi ■
Ráðherrarnir.
í gær veitti fulltrúadeildin .de
Gauile traust sitt sem. forsætisráð-
herraefni með 329 atkvæðum gegn.
224. Jafnaðarmenn klofnuðu nokk-
urn veginn að jöfnu með og móti.
Fyrfta verk de Gauile eftir það
var að leggia ráðherralista sinn
fyj-ir Cqit.v förseta. RáBherrar hans
eru 15. Þeirra á meðál eru Pílim-
iin úr Þjóðlega lýðveldisflokknum
og Guy Mollet, jafnaðarm’aður.
Ilefir þetta valdið nokkrum von-
brigðum meðal æstu.-tu fylgis
manna hana.
Þing S. U. F. haldið
í Reykjavík
Þing S. U. F. verður liáð í
þjóðleikhúskjaliaranum í Reykja-
vík 13,—16. þ. m.
Stjórnir félaganna eru hvattar
iil að láta skrifstofu sambands-
ins, Lindargötu 9a., sími 19285,
yita urn kosningu fulltrúa og
fjölda nú þegar.
Eldur laus í íbúðar-
húsinu á Karisá
Frá íréttaritara blaðsins á Dalvík.
Laust fyrir klukkan 11 á sunnu
dag varð elds vart í rishæð íbúöar
hússins á Karlsá á Ufsaströid.
Slökkviliðið á Dalvík kom á vett-
vang -eftir nokkra stund og tóket
að slökkva eldinn. Skemmdir urðu
þó taisverðar af eidi og vatni.
Kviknað mun hafa út írá raf-
magnsofni. Á Karlsá búa hjónin
Sigurbjörg Hjörle’fsdóttir og
Guðmundur Guðmundsson.
Vínveitingar
FramhaH af 1- eí3u)
Gylfi Þ. Gíslason, Hermenn Jónas-
son, Asgeir Sigurðsson, Jón Kjart-
ansson, Jón Pálmason, Jón Sig-
urð&yon, Karl Kristjánsson, Kjart-
an J, Jóhannsson, Ólafur Björns-
son, Ólafur Thors, Sveinn Guð-
muiidsson, Sigurður Ágústsison,
Sigurður Bjarnason, Sigurður 0.
Ólafsson, Steingrímur Steinþórs-
son.
Á móti dagskrártillögunni
greiddu atkvæði: Alfreð Gísiason,
Björn Jónsson, Eggert Þorsteins-
son, Einar Olgeirsson, Gísli Guð-
miundsson, Gunnar Jóhannsson,
Hannibal Valdimarsson, Karl Guð-
jómsson, Magrjús Jónsson, Pál/1
Þor..vteiiisson, Pétur Ottesen, Sig-
urvin Einarsson, Skúli Guðmunds-
son. Þrír við-taddii- þingmenr.
greiddu ekki atkvæði um tillöguna.
Þeir voru: Halldór Ásgrímsson,
Jóhann Jósefs’son og Páll Zóphór,-
íasson.
Fjölbreytt hátíðahöld
á Sjómannadaginn
á Dalvík
Frá fréltaritara Tíinans á Dalvík.
Hátíðahöld fru fram hér á
Dalvik í tilefni Sjómannadagsins
og hófust þau við höfnina með
ávarpi, sem Kristinn Jónsson
flut'ti. Síðan voru sýndir loftfim-
leikar, línudráttur bæði með hand-
afli og vélafli. Einnig var sýnd
björgun úr sjó og lifgun. Á íþrótta
vellinum íór fram fimlcikasýning
drengja, naglaboðhlaup inilli
piltna og'stúlkna og knattspyrnu
keppni milli sjómanna og laitd-
manna. Um kvöldið var samkoma
í samkomuhúsinu með ræðuhöld-
um, söng og loks dansi. P. j.
Aðalfundur Fram-
sóknarfélags
Akureyrar
Aðalfundur Fra'msóknarfélags
Akureyrar var haldinn síðastl.
þriðjudag. Fráfarandi formaður
og erindreki flokksins fluttu
skýrslu um störfin á liðnu ári.
Síðan fóru fram kosningari Ing-
var Gislasson var kosinn formaður
Guðmundur Blöndal gjaldkeri og
Richard Þórólfsson, ritari. Með-
stjórnendur Hallur Sigurbjörns-
son og Arnór Þorsteinsson. —
Endurskoðendur reikninga þeir
Ólafur Tr. Ólafsson og Stefán
Reykjalín.
Haraldur Þorvaldsson og Karl
Arngrímsson voru gerðir að heið-
ursfélögum. AlLmargir félagar
bælíust í hópinn. Þessir voru
kosnir í fulltrúaráð:
Brynjólfur Sveins-pn, Guðm.
Guðla.ugsson, Jakob Frímanns-
son, Jóhann Frimann, Erlingur
Davíðsson, Stefán Reykjalín,
Þorsteinn Davíðsson, Bernharð
Stefánsson, Haraldur Þorvaldsson
og Ingimundur Árnasson.
miiiimiimmiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinmfl
§
Aðalfundur
Kaupfélags Kópavogs
verður haldinn mánudaginn 9. júní kl. 8,30 e.h.
í húsi félagsins, Álfhólsvegi 32.
FUNDAREFNI:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Hermann Jónassou forsætisráö-
hen-a tók fyrstur til máls og lagði
til að málinu yrði vísað til rikis-
Btjórnarinnar, þar sem nú stæði
fyrir dyruna héilde.rendttrskoðun
á skclamálum landsmanna og væri
þá einnig þörf á að endur3koða
framtíðar 'iipan kvennaskólanna í
landinu.
Endurskoðim stendur nú
fyrir dyrum.
Benti ráðherra á að nokkttrra
erfi'ðieika hefði gætt varðandi rekst
ur sumra þessara-skóla.jsem ríkið
rekur og væri því óstæða til að
staldra við áður en farið væri að
stofna til ríkisreksírar á or.n ein-
um slíkum skóla, án þess að lieild
arendurskoðun þessara mála hefði
farið fram.
Forsætisráðherra benti á það
í þessu sambandi að óeðlilegt
væri að stofna lil aukinna út-
gjalda hins opinbera vegna stofn
unar nýs kvennaskóla, meðan
þeir kveiuiaskólar, sem ríkið á
og rekur væru ekki betur uotaðir
en sumir þeirra eru nú. Þannig
hefði einn af kveijnaskóltiimm
verið lokaður árum sanian, vegna
þess, að námsmeýjar vantaði og
legið hefir við bórð að íoka þyrfti
öðrum tvelmur, vegna þess að'
þeir hafa ýmist ekki, eða tæpast
haft tilskiliiin láginarksfjölda
námsmeyja, sem áskiliim er til
þess að ríkið megi reka þá.
Eftir nokkrar umræður var til-
laga forsætisráðlierra um að vísa
málinu til ríkisstjórnarinnar sam-
þykkt með lö atkvæðiun gegn
sex.
Sjómannadagurinn
Framhald al 12. síðui.
víkurhöfn og .var hún þin skemmti ■
legasta, enda tóku þótt í henni
íjórar erlendar róðrarsveitir, en
fjó-ar íslenzkar. Voru þær isl. all
ar með betri tíma en hinar er-
lendu. Tvær svéitir voru frá
hrezku herskipi, sem hér er, ein
frá frönsku herskipi og ein af
amerísku olíufiutningaskipi.
Beztan tíma htaut róðrarsveit af
togaranum Marz og vann lórviðar
sveig Sjómannadagsins og einnig
styttu af Fiskimanni, se n Morgun
biaðið eitt sinn gaf. Sveit af bátn
um Vetti varg nr. 2, en sveít al'
af l’ogaranum Erni Árnarsyni
varín Junemunktel-bikarinn.
Feiknamikill mannfjöldi var við
höf-nina ög fýlgdist með keppn
inni. •
Um kvöldið. voru skemmtanir í
samkomuhúsum bæjarins.
^sanfiiMmminoinimfliinmniiiiitiiiiniiiiininiiiiiiiiimininiiiniiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinffiu
I Tilkynning ]
Ni'. 5. 1958. |
Sj , V —
| Innflutningsskrifstofan hefir í dag ákveðið eftir- 1
farandi hámarksverð á selda vinnu hjá rafvirkj- i
1 um. ' i
S5 - =
I. Verkstæðisvinna og viðgerðir:
Dagvinna ............... Kr. 43.00
Eftirvinna ............. — 60.20 i
Næturvinna ...... — 77.40
II. Vinna við raflaqnir: §
| Dagvinna .......... Kr. 41.00
Eftirvinna ............. — 57.40
Næturvinna ........... — 73,40 |
Söluskattur og útílutningssjóðsgjald er innifalið í-1
verðinu og skal vinna, sem undanþegin er gjöld- |
1 um þessum vera ódýrari sem þeim nemur.
Reykjavík, 1. júní 1958.
== • \' OO.tJv • i ■
^MiiiiinnnflffiiBHimmmiaMffiMiniiiiiiiHiiuuiiiiiimmmimiiiiuiinimjmiimiiimnni
Verðlagsstjórinn =
I