Tíminn - 02.07.1958, Page 6

Tíminn - 02.07.1958, Page 6
6 T I M I N N, miðvikudaginn 2. jjúlí 1958. Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötn Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (ritstjórn og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12323 Prentsmiðjan Edda hf. Eiga 30 menn að geta stöðvaS atvinnuvegina? Á FUNDI Sjómannafélags Reykjavíkur, er fjallaði um miðlunartillöguna í kaup- deilu háseta við skipafélög- in, munu hafa verið mættir um 65 menn. Af þeim munu rúmlegur helmingur hafa greitt atkvæði gegn sátta- tillögunni. Ef atvinnurek- endur hefðu samþykkt sátta tillöguna, hefði niðurstað- an orðið sú, að rúmlega þrjá- tíu menn hefðu stöðvað allan kaupskipaflotann og valdið með því meiri og minni truflunum á öðrum atvinnurekstri, sem hafa meðal annars í för með sér verulegt atvinnu- tjón fyrir verkamenn, sem margir hverjir eru ver settir en verkfallsmenn. ÞETTA litla dæmi, sem hér er nefnt, er ljós sönnun þess, hve núv. vinnulöggjöf er orðin úrelt og hættuleg. Hún er sett við allt aðrar aðstæður en þær sem nú eru. Þá voru verkalýðsfélögin vanmegna og nær aldrei háfið verkfall, nema af ítr- ustu þörf, eins og Vilhjálm- ur S. Vilhjálmsson lýsti rétti lega í Alþýðublaðinu fyrir skömmu. Vinnulöggjöfin var -að vissu marki sett til að treysta þennan neyðarrétt verkalýðsins. Nú er þetta orð ið gjörbreytt. í skjóli úr- eltra ákvæða vinnulöggjaf- ar vaða nú uppi smáfélög vel launaðra starfshópa og nota verkfallsvopnið til að ógna öllu þjóðfélaginu, ef ekki er iátið undan kröfum þeirra. Það dæmi, að 30 sjómenn geti stöðvaö allan kaupskipa flotann, er engan veginn verzta dæmið. Enn verri eru þau dæmi, þegar mun betur launaðir smáhópar geta leik ið nákvæmlega sama leikinn HÉR í blaðinu hefur oft verið vikið að því, hve hættu leg þess smáskæruverkföll . eru fyrir þjóðfélagið og þó • alveg sérstaklega fyrir hinar vinnandi stéttir þess, er mest - þurfa á stöðugri atvinnu að halda. Þettá fyrirkomulag er vissulega þegar búið að valda miklu tjóni, en þó á það vafalaust eftir að valda meira tjóni, jafnvel hruni þjóðfélagsins, ef ekki verður fljótt úr þvi bætt. Bezta og ákjósanlegasta lausn þessa máls er tvímæla laust sú, að heildar samtök verkalýðs og atvinnurekenda komi á sín á milli föstu samstarfi, sem m.a. miði að því að gera heildarsamninga til lengri tíma, en vinnu- löggöfin sé svo leiðrétt með tiliti til þess, að smáhópar geti ekki eyðilagt slík heild- ar samkomul. með skæruverk fölium. Við hlið hinnar föstu samstarfsnefndar verkalýðs og atvinnurekenda, starfi svo hlutlaus ríkisstofnun, er hafi á reiðum höndum á hverjum tíma réttar upplýs- ingar um þróun atvinnu- og verðlagsmála og á grundvelli þeirra vinni svo með fulltrú- um stéttanna að því að jafna í tæka tíð þau ágreinings- efni, sem kunna að rísa upp. í NÁGRANNALÖNDUM okkar, t.d. Danmörku, Noregi og Sviþjóð, hefur sú skipan komizt á, að heildarsamtök verkalýðs og atvinnurek- enda geri kaup- og kjara- samninga til lengri tíma. — Hér í blaðinu var t.d. fyrir nokkru birt frásögn Vinn- unnar, málgagns Alþýðu- sambands íslands, af slíku samkomulagi, er nýlega var gert í Noregi. Þeim mönnum fjölgar stöð ugt, sem gera sér ljósa hættu þá, sem fylgir orðið hinum tiðu smáskæruverkföllum hér á landi. Sumir láta sér jafnvel koma til hugar aö reyna áð binda endi á þau með hreinum örþrifaráðum. Til þess kemur þó vonandi ekki, en samt er ekki gott að spá því, hvernig fer, ef öng- þveiti skæruverkfallanna heldur áfram að aukast. Samtök verkamanna og at vinnurekenda mega því ekki draga það lengur að reyna að koma heilbrigðari og far- sælli skipan á þessi mál. Sjálfstæðismemi og verkföllin MORGUNBLAÐIÐ reyn- ir nú af miklum móði að þvo Sjálfstæðisflokkinn af allri sekt í sambandi við verk- föllin. Ástæðan er sú, að meðal óháðari kjósenda og margra gætnari fylgismanna flokks ins, vekur framkoma for- sprakkanna í sambandi við verkfallsmálin hina megn- ustu andúð. Kattarþvottur Mbl. mun þó ekki nægja til að þvo þá hreina. Verkamannablaðið er heim ild, sem ekki verður þurrk- uð burtu með skrifum Mbl. Ræður fulltrúa Sjálfstæðis flokksins á Dagsbrúnarfund- inum eru ekki gleymdar. Á flestum vinnustöðvum bæjarins eru fjölmörg vitni um verkfallsáróður erind- reka Sjálfstæðisflokksins. Það dylst því engum, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið að því öllum árum að koma verkfallsöldunni af stað, þótt hann þykist nú hvergi hafa komið nærri og hvetji nú atvinnurekendur til sem minnstrar undan- látssémi, eins'og sézt á því, að varaformaður flokksins átti mestan þátt í því að stjórn Eimskipafélagsins felldi sáttatillögu, er for- maðúr félagsins hafði upp- haflega boriö fram. Fyrir Sjálfstæðisfl. vakir nefnilega fyrst og fremst að Danir eru fylgjandi 12 mílna fisk- veiðilandhelgi Islands og Færeyja Hér fer á eftir orðsending dönsku stjórnarinnar um fisk veiðitakmörk við Færeyjar, afhent í brezka utanríkisráðu neytinu af danska sendiherr- anum í Lundúnum þann 19. júní s. I., en þar sem efni hennar snertir Islendinga beint og óbeint þykir rétt að birta hana hér í heild: Orðsendinga dönsku stjórnar- innar í fyrra. í orðsendingu, dags. 25. júní 1957, sem afhent var í brezka utan ríkisráðuneytinu 27. s.m. tilkynnti danska sijórnin, að hún óskaði eftir ag teknar yrðu upp að nýju samningaviöræður milli brezku og dönsku rikissljórnanna um fisk- veiðilandhelgi Færeyja. í orðsend- ingu þessari var tekið fram, að danska stjórnin væri komin á þá skoðun, að núverandi fiskveiðitak mörk við Færeyjar myndu, eins og aðstæður væru orðnar, ekki geta haldizt óbreytf til lengdar. Ennfremur var tekig fram, að við- urkenna yrði að yfirvöld í Fær- eyjum gerðu sér með réttu vonir um útfærslu fiskveiðitakmark- anna. í orðsendingu frá brezka utan- ríkisráðuneytinu 19. sepí. 1957, þar sem þessari orðsendingu dönsku stjórnarinnar er svarað, er m.a. bent á, að brezku stjórninni þyki það ekki líklegf til árangurs að hefja á þeim llma viðræður um breyíingar á brezk-danska samn- ingmjm frá 22. aprll 1955 og treysti því að danska stjórnin muni einnig komast að þeirri nið- urstöðu, aff öllum samningaviðræð um um breyt'ingar á samningum beri að fresta, þar til niðurstöður af sjóréttarráðstefnunni í Genf lægju fyrir. Danska stjórnin og landsstjórn Færeyja lögðu til að svo yrði gert. Afstaða Dana á Genfar- ráðstefnunni. Enda 'þótt áðurnefndri ráðstefnu lyktaði án þess að samþykki næð- isf með tilskyldum % hlutum atkvæða um landhelgi eða hugsan leg sérákvæði um stærð fiskveiði- landhelgi, kom, þó skýrt í Ijós á ráðstefnunni. að sú þróun, sem greinilega hefir orðið vart á síðari árurn og miðar að stækkun land- heigi, á stöðugt vaxandi fylgi að fagna. Margar þeirra tillagna, sem fram voru bornar á ráðstefnunni, myndu, ef þær hefðu verig sam- þykktar, bafa ifalið í sér rétt til mjög verulegrar stækunar á fisk- veiðilandhelgi Færeyja. Danska seiúlinefndin gerði það lýðum ljóst á ráðstefnunni, a'ð enda þótt af danskri hálfu væri ekki fyrir hendi vilji til að styðja almenna stækkun landhelgi fram úr sex sjómilum, yrði þó að lialda sig við það, að í sérstök- uin tilfellum, þar sem einstök ríki eða landsvæði eru landfræði lega einangruð og íbúar þeirra um afkomu sérstaklega háðir sjónum, beri að veita þeim leyfi til að hafa í gildi sérstök ákvæði um fiskveiðilandhelgi allt að 12 sjómílur frá þeim grunnlínum, sem landhelgi annars er venju- lega ákveðin frá. í þessu sam- bandi voru Færeyingar sérstak- lega hafðir í huga. eyðileggja vinnufriðinn og því segir hann við verka- menn: Gerið verkföll; en við atvinnurekendur: Látið ekki undan. Engin kattarþvottur í Mbl. fær ieynt þessum vinnubrögðum né afstýrt þeim verðskuldaða dómi, er þau munu hljóta hjá þjóð- inni. Tilmæíi dönsku síjórnarinnar til brezku stjórnarinnar um breytingar á brezk- danska samningnum um fiskveiðiland- helgi Færeyja Höfuðmál Færeyinga. FiskveiðiLakmörkin eru í dag, efnahagslega og stjórnmálalega, það mál, sem mestu skiptir íyrir Færeyinga. Lögþingið hefir verið kallag saman sérstaklega til að fjalla um þetta mál og yfirgnæf- H. C. HANSEN, forsætis- og utanríkisráðherra Dana. andi meirihluti þess var sammála um nauðsyn þess að færa út fisk- veiðitakmörkin. Umræðunum í þinginu lauk með ályktun, sem samþykkt var af 23 þingmönnum af þeim 27, sem þar eiga sæti. Ályktunin er á þessa leið: „Ákvörðun íslendinga um að færa út fiskveiðiíakmörk sín í 12 sjómílur frá 1. sept. 1958 að telja, hefir í svo ríkum mæli breytt aðstæðum, að Færeyingar verða að teljast óbundnir samn- ingi þeirn við Stóra-Bretland, sem gerður vgr 24. júní 1901, og gerðar voru á nokkrar breytingar 22. apríl 1955. Á þeim forsendum, að Færeyingar eigi réit á landgrunn inu umhverfis eyjarnar, ákveður Lögþingið að færa fiskveiðitak- mörkin í 12 sjómílur frá 1. sept. n.k. ag telja og verði mörkin dreg- in frá yztu skerjum og ainnesjum og samsvarandi grunnlinum. Oll veiði togara innan nefndra tak- marka er bönhuð.“ Danir styðja kröfu Færinga. Lögmaður Færeyja hefir lagt þessa ályktun fyrir dönsku stjórn ina með tilliti til þess að henni verði hrundið í framkivæimd. — Við aíhendingu ályktunarinnar lagði Lögmaðurinn íhina mestu á- herzlu á það við forsætisráðherr- ann, að fiskveiðilandhelgi Fær- eyja yrði hin sama og við fsland. Danska stjórnin, sem liefir full an skilning á hinni alvarlegu að- stöðu Færeyja, er enn sem fyrr þeirrar skoðunar, að uúverandi fiskveiðimörk við Færeyjar geti ekki haldizt óbreytt. Afstaða stjórnarinnar er stöðugt hin sama eg á Genfarráðstefnunni. Af þessu leiðir, að stjórnin er sammála því viðliorfi, sem ríkj- andi er í Færeyjíum, að fiskveiði Iandhelgi eyjanna — í samræmi við áðurnefnda undantekningar- reglu — eigi að vera 12 sjómílur. Lífsafkoma Færeyinga er í ó- venju ríkum mæli háð sjósókn og útfærsla fiskveiðilandhelgi. ann- arra landa veldur iþeim sérslak- lega miklu tjóni bæði vegna þess, að þeirra eigin fiskimenn neyðast til að hverfa frá fiskimiðum, sem þeir hafa fram til þessa táma sótt' og einnig vegna þess, -að fiski- menn annarra þjóða, munu vænt- anlega sækja fjölmennari en áður á landgrurmsmiðin umlrverfis eyj- arnar. Slík þróun mála mun valda Færeyjum stórtjóni, þar eð ílbúar eyjanna yrðu sviptir helzta mögu- leika sínum til lífsbjargar. Óskað breytinga á samn- ingnum frá 1955. Eins og brezku stjórninni er kunugt, hefir danska stjórnin und anfarið unnið að því að tillaga um svæðisráðslefnu þeirra ríkja, seni eiga lönd að norðanverðu Atlants hafi, kæmist í framkvæmd og að þar næðist sameiginleg lausn á fiskveiðilandhelgi ríkjanna. — Það hefir þó reynzt ógerningur að ná almemiu samkomulagi um stuðning við þessa hugmynd og þær aðstæður hafa því skapazt, að danska stjórnin hlýtur að fara þess á leit að nauðsynlegar breyt- ingar veröi gerðar á dansk-brezka samningniun frá 22. apríl 1955, um fiskveiðiiandhelgi Færeyja. Kaupmannahöfn, 18. júní 1958. Lítill drengur rölti einn saman næt- urlangt inni á Þórsmörk um helgina Flugbjörgunarsveitin fengin tif leifar, en drengurinn fannst um sama leyti og bún kom Nú itm helgina bar það til tíðainda inní á Þórsmörk a'ð lítill drengur týndist. Hópur Vesmanneyinga hefur dvalið þar inn frá nokkura daga, en heldur heim um miðja vikuna. Á laugardagskvöldið fór hópurinn í gönguferð upp á Vaðlahnjúk og var drengurinn þar með. Þegar halda átti af stað heim á leið, urðu men varir við það, að drengurinn var horfinn. Byrjuðu Vestmannaeyingarnir þegar að leita að drengnum og leituðu alla inóttina, fram undir hádegi sunnu- dagsins. Ekki báðu þeir aðra ferða- menn þar inn frá um aðstoð við ieitina. Talið er, að um 300 manns hafi verið inni á Þórsmörk um nóttina, og það á meðal þrír til fjórir kunnugir menn þar um slóðir. Á sunnudagsmorgun var símað til Reykjavikur og Flugbjörgunar- sveitin beðin að koma mfeð leitar- hund sinn til að auðvelda leitina. Brá hún skjótt og vel við og sendi fjóra þaulvana fjaliameim með hundinn. Þeir lögðu af stað á átt- unda tímanum um morguninn í (Framhald & 8 «iðuj

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.