Tíminn - 02.07.1958, Page 12
VEÐRIÐ:
Austan gola í nótt, en breytileg
átt á morgun. Skýjað.
HITI:
í Reykjavík var 14 stiga hiti kl.
21 í gærkveldi. Á orður- og Aust-
url.andi var 7—10 stiga hiti, en
12—1G stig sunnan lanðs.
Miðvikudagur 2. júlí 1958.
Aíaska verður 49. fylkið í
Bandaríkjum Norður-Ameríku
Ný fylki hafa ekki bæízt við síðan 1912.
Landið keypt af Rússum 1867.
Washington, 1. júlí. — Alaska hefir af Bandaríkjaþing'i
fengið inngöngu í Bandaríki Norður-Ameríku og verður 49.
fylkið í sa'nbandinu. Nýtt fylki hefir ekki gengið í sambandið
síðan 1912 að Nýja Mexíco og Arizona fengu inngöngu.
Öldungadeildi.n samþykkti frum-
v.arp þessa efnis s.l. nótt með 62
atikvæðum gegn 20. Áður hafi full-
trúaderldin samþykkt frumvarpið.
Nú mun Eisenhower forseti undir-
ri'ta frumvarpið, sem þá Verður að
Iögum og loks fer fram um það
atkvæðagreiðsla í Alaska, en eng-
inn éfi er talinn á því, að yfirgnæf
andi Hluti íbúanna. sem eru nú um
200 þús. muni viilja ganga í ríkja-
saínbandið.
Stærsta fylkið.
Þegar Alaska verður formlega
gengið í sambandið verður það lang
stærsta fylkið, næstum tvisvar
sinnum stærra en Texas, sem nú
er stærst. Flalarmál Alaska er
álíka og Spánar, Frakklands og
V-Þýzkalands samanlagt. Það verð
ur lika fámennasta fylkið, þótt
íbúum hafi fjölgað örf á seinustu
árum. Af um 200 þús. íbúum eru
33 þús. Eskimóar, Indíánar og svo
nefndir Aleutar.
Breytingin.
Aöal breytingin fyrir Alaska
verður sú, að fylkig sendir nú tvo
fulltrúa til öldungadeildarinnar og
einn til fulllTúadeildarinnar. —
Hingað til hefir landsstjórinn ver
ið útnefndur af Bandaríkjaforseta.
en fylgisstjórinn verður nú kjör-
(Framhald á 2. síðu).
Þessar myndir eru frá síldarsöitun á Dalvik, en þar heflr verið saltað mikiö
í sumar, og mun síldarsöltun þar vera orðin um 6 þús. tunnur. Tvær sölt-
unarstöðvar eru á staðnum. (Ljósm,: Loftur Baldvinsson.)
Annir við sildarsöltun á Dalvík
Islandsmeistarar í bridge
íslandsmótinu í bridge lauk um miðjan sl. mánuð með sigri sveitar Halls
Símonarsonar, Reykjavík. Hlaut sveitin 15 stig af 18 mögulegum og þremur
stigum meira en næstu sveitir. Hér sést mynd af sigurvegurunum. Fremri
röð frá vinstri: Viihjálmur Sigurðsson, Hallur Símonarson og Símon Sím-
onarson. Aftari röð: Stefán J. Guðjohnsen, Jóhann Jóhannsson og Þorgeir
Sigurðsson. Þetta er í annað skipti, sem Vilhjáimur, Stetán og Jóhann
hljóta íslandsmeistaratitil í sveitakeppni, en hins vegar í fyrsta skipti, sem
Símon og Þorgeir taka þátt í íslandsmótinu. Þeir eru yngstu menn, sem
oröið hafa íslandsmeistarar í bridge.
Hægrimenn í Alsír
andsnúnir de Gaulle
NTB—Teleroma, Austur-Alsír,
1. júlí. De Gaulle koni í dag
flugleiðis til borgarinnar -Tele
roma í Austur-Alsír. í fylgd með
houum eru meðal annarra Guy
Mollet og Malraux upplýsinga-
málaráðherra. Á flugvellinum
tók Raoul Salan hershöfðingi og
æðsti yfirmaður allra máiefna
í Alsír á móti de Gaulle. Búizl
er við, að móttökur de Gaulle
verði ólíkt daufari að þessu
sinni, en er liann var ú ferð í
Alsír fyrir mánuði síðau. Öfga-
fullir- hægrimenn, sem óttast
frjálslynda stefnu de Gaulie, eru
taldir vinna gegn honum eftir
mætti. Þykir þeim einna verst,
að hershöfðingjnn muni senni-
lega halda uppteknum hætti og
virð.a velferðarnefndina að litlu
sem engu og jafnfrantt fara mjög
óljósum orðum um þá stefnu,
sem liann liyggst fylgja fram í
Alsír.
Barizt um efnahags-
aostoo vio onnur
ríki
Tveir fundir Framsóknarmanna í
Eyjafirði haldnir um næstu helgi
Framsóknarmenn í Eyjafirði efna til tveggja almennra
sjórnmálafunda um næstu helgi. Verður annar fundur-
inn haldinn að Árskógsskóla laugardagskvöldið 5. júlí
og hefsi kl. 9 síðd. — Hinn fundurinn verður að Frey-
vangi á sunnudaginn 6. iúlí og hefst kl. 2 síðd,
Framsögumenn á fundum þessum verða alþingismenn
irnir Bernharð Stefánsson og Skúli Guðmundsson.
Nýr flugvöllur tekinn í notkun
við Stykkishólmi í gær
Frá fréttaritara Tímans í Stykkishólmi.
í gær var tekin í notkun nýr flugvöllur skammt frá Stykkis-
hólmi. Er völlurinn ein braut, 470 metra löng og 25 metra
breið. og liggur á að gizka 3km. frá kauptúninu.
Völlurinn var vígður meg þeim
hætli að tvær litlar flugvélar sett-
usf á ;hann. Var flugmálastjóri,
Agnar Kofoed Hansen, og fúll-
trúi lians, Hau'kur Classen, í ann-
arri, en Björn Pálsson flugmaður
í hinni. Tók hreppsnefnd Stykkis-
hólms, sýslumaður og ihéraðslækn-
ir á móti gestunum á flugvellin-
um. Flugmennirnir létu svo um
mælt að brautin væri vel unnin
og á góðum stað.
Eftir að völlurinn og umhverfi
lians liafði verifj skoðað, bauð
hreppsnefnd gestum til hádegis-
verðar að hótel iSigurðar Skúla-
sonar. Þar tóku íil máls Ólafur
Guðmundsson sveitarstjóri, Agnar
Kofoed Hansen flugmálastjóri,
H.tnrik Jónsson, sýslumaður og
Ólafur P. Jónsson, héraðslæknir.
Þessi flugvöllur er fyrst og
fremst ætlaður til sjúkraflugs, en
Björn flugmaður Pálsson lét þess
getið að 'hann hefði einnig hug
á því að taka upp fast'ar ferðir
til Stykikshólms. Verður ákvörð-
un 'í því máli væntanlega tckin
innan skamms.
Enn bréfaskipti um
fund æðstu manna
NTB—Wáshing.ton, 1. júlí. í dag
voru afhent í Moskvu svarbréf
vesturveldanna við seinasta bréfi
Nikita Krustjoffs, varðandi fund
æðslu manna. Bréf þessi eru næst-
rnn samhljóða. Seinasta bréf
Krustjoffs var óvægilega orðað og
krafizt var skýrra svara, hvort
vesturveldin kærðu sig yfirleitt
nökkuð um fund æðstu manna.
Kyrrahafsríkin
vænta fleiri
ferðamanna
WaShington, 1. júlí. Sextán ríkj-
um eða lendum í Kyrrahafi, verð-
ur veitt tæknileg og fjárhagsleg
aðstoð frá Bandaríkjunum til þess
að geta tekið á móti ferðamönnum.
Á þetta að verða góður stuðningur
við þjóðarfbúskap þessai-a ríkja.
Meðal þessara ríkja eru: Japan,
Indónesía og Ástralía.
NTB—Washing'ton, 1. júlí.
Bandaríkjastjórn býr sig undir
harðvítugan bardaga til þess að
koma í veg fyrir, að Banclarikja-
þing samþykki endanlega að lækka
fjárhagsaðstoð við erlend ríki um
872 milljónir dollara frá því, sem
stjórnin fór fram á. í gær samþ.
fjárhagsnefn fulltrúadeildarinnar
að mæla með slíkri lækkun. Dull-
es iýsti yfir í dag, að með þessu
væri öryggi Bandaríkjanna stefnt
í beinan voða. Eisenhower forseti
hefir hvað eftir annað pereónulega
brýnt fyrir þingleiðtogum, að fjár-
hagsaðstoð þessi sé einn helzli
hyrningarsteinninn undir öryg-gi
Bandaríkjanna og utanríkisstefnu
þeirra yfirleitt. Á morgun mun
hann hefja fund sinn með hlaða-
mönnum með því að ræða þetta
mál sérstafelega.
V ör uskipta jöf nuður
óhagstæður um 27
millj. í maí
Samkvæmt yfirliti Hagstofu ís-
lands vai'ö vöruskiptajöfnuðurinn í
maí óhagstæöur um 27,5 millj. kr.
Inn voru fluttar vörur fyrir 126,7
millj. en út fyrir 99,2 mill. í sama
mánuði í fyrra var vöruskiptajöfn-
uðurinn óhagstæöur um 59,4 millj.
'kr. Til maíloka þ.á. hefir vöruskiptn
jöfnuöurinn oröið óhagstæðhr um
216,7 millj. kr. Inn voru fluttar vörur
á þessu tímabili fyrir 580 millj. en út
fyrir 363,3 millj. í maílok í fyrra var
vöruskiptajöfnuð'urinn óhagstæð'ur
um 65,9 millj.
Netlumar blómgast, eítir Harry Mart
inson komin út hjá Alm. bókafélaginu
í dag kemur út á vegum Almenna bókafélagsins Netlurnar
blómgast eftir sænska skáldið og rithöfundinn Harry Martin-
son. Er það „júlí-bók“ félagsins.
Tíetlurnar hlómgast er ein af
'kunnustu bókum þessa sænska rit
snillings. Ilún kom fyrst út í Svi-
þjóð árið 1935 og var þegar þýdd
á mörg tungumál. Má segja, að
■með þessari þók liafi Martinson
getið sér þann orðstír og viiisældir,
sem hann heíur notið æ síðan að
verðleikum. Sviar líta á liann sem
einn af mestu núlifandi rithöf-
undum silnum, og á hann nú sæti
í sænsku akademíunni.
Netlurnar blóingast fjallar um
fyrstu tólí árin í lífi munaðarleys
ingjans Marteins Ólafssonar, sem
er enginn annar en Harry Martin-
son sjálfur. Þegar hann er sex ára
deyr faðir hans, og skönui síðar
'hverfur móðir hans til Ameríku
frá fimm börnum, sem hún lætur
hreppinn um að annast. Þar hrekj-
ast þatt milli lægstbjóðanda. Áður
en Martinson lit'li er tólf ára,
hefur 'hann verið á fimm heimil-
um. Hann fær í sig, en fer alger-
lega á mis við allan skilning, sem
hvert harn hungrar og þyrstir
eftir.
Netiujrnar þlómgast er viður-
kennd svo ft'ábær sálarlífslýsing
barns í nauðum, að hiin eigi að
'því leytý fáa sína Mka.
Karl ísfeld rithöfundur hefur
þýtt verkið á íslenzku.