Tíminn - 08.07.1958, Side 12

Tíminn - 08.07.1958, Side 12
VeðriS: Suðvestan kaldi og skúrir. * i Hitinn: Rej,,kjavík 14 st., Akureyri 13 st., Vestmannaeyjar 10 st„ ísafjörðut 10 st., Sauðárkrókur 14 st. Þriðjudagur 8. júlí 1958. Eyjólfur gengur upp fjöruna á Akranesi og er vel fagnað a'ð loknu einstæðu sundafreki. Lengsta sund íslendings: Erlendar fréttir í fáum orðum UPPREISNARMENN í Libanon hóta því að hefja nú harðari sókn gegn stjórninni en nokfkru sinni fyrr. Segja þeir, að það, sem á undan só gengið, só aðeins forleikurinn. Uppreisnarmenn eru ákveðnir í að koma ekki á þing landsins er það kemui' saman 24. þ. m. til þess að kjósa nýjan forseta í stað C’ham- ouns. GRIKKIR á Kýpur efndu í gær til sólarhrings aiisherjarverkfalls til minningar um 2 Grlkki, sem voru drepnir og 13, er særðust á laugar- daginn, er brezkir hermenn hófu skothríð á múg manna, er hafði kastað að þeim grjóti. EISENHOWER undirritaði í gær lög, er veita Alaska ríkisréttindi innan Bandaríkjanna. Lögin voru sam- þykkt á þinginu í síðustu viku. Formleg upptaka verður ekki fyrr en Alaskabúar sjálfir hafa sam- þykkt ráðstöfunina. Verður það sennilega í haust, FRANSKÍ herinn í Alsír varð 550 uppreisnarmönnum að bana í sið ustu viku. 141 var tekinn til fanga. . RÁÐHERRAR Norðurlandanna fjög- urra, er vinna að eflingu efnahags- samvinnu landanna, komu til fund ar í Ósló í gær, á’samt efnaliags- samvinnunefndinni. Rætt er um efnahagssamvinuu og fríverzlunar svæðið. Kartöflur af nýrri, hollenzkri upp- skeru koma til landsins á morgun Ovenjuleg kartöfluþurrtf á markaÖi i nágranna- löndum sí^ustu mánutfina, en gjaldeyrisskortur hindra'ði a<Í hægt væri aíf kaupa nægar birgft- ir i tíma Kartöflulítið hefir verið í landinu undanfarið og kaitöflur elcki fengizt í matvöruverzlunum á aðra viku. Nú munu kart- öflur væntanlegar til landsins á morgun, og er þar um nýja uppskeru að ræða frá Hollandi. Blaðið átti tal við Jóhann Jónasson. forstjóra Grænmetisverzlunarinnar 1 gær um kart- öflumálin. Eyjólfur Jónsson synti frá Reykjavík tii Akraness á rúmum 13 klukkutímum Hyggst þreyta sund yfir Ermarsund í næsta mánuði, ef fjárhagsástæður leyfa Síðastliðinn sunnudag vann hinn kunni sundgarpur Eyjólf- ur Jónsson úr Reykjavík mesta sundafrek, sem íslendingur ‘hefir unnið. Hann synti þá frá Selsvör í Reykjavík íil Akra- ness á 1? kiukkutimum og 15 mínútum, en vegalengdin milli þessara staða er 22 km. í beinni loftlínu. Vegna strauma mun óhætt að fullyrða, að Eyjólfur hafi synt að minnsta kosti 26 'km., og ei það lengsta vegalengd, sem íslendingur hefir synt, svo vitað sé. Eyjólfur synti bringusund alla leiðina, og var hinn hressasti, er hann kom til Akraness. iBlaðið náði í gær tali af Eyjólfi og þjálfara hans, Ernst Backmann, og skýrðu þeir frá sundinu. Er Eyjólfur lagði upp úr Selsvör um iíádegi á sunnudag var sjávarhiti 12Vz gráða, sólarlaust og strekk- ingskaldi annað slagið, og dálítil alda, einkum þegar hann synti fyrir mynni Hvalfjarðar. Síðustu . klukkutíma sundsins var sjávar- hiti 11 gráður. Áður en Eyjólfur lagði af stað, smurðu þeir Ernst og Eyjólfur Snæhjörnsson 10 kg. af ullarfeiti á líkama Eyjólfs. — Hann var aðeins klæddur nælon- isltýlu og ullarskýlu, sem Kristján L. Gestsson hafði gefið honum. Tveir bátar fylgdu Eyjólfi á leið inni, en á þeim voru níu menn. Sundmaðurinn var hress allan tím ann. Fimm sinnum hVíldi hann -sig á leiðinni með þvi að leggjast á bakið. Kom hann þá ekki nærri bátunum. Næringu fékk hann Tveir fundir Fram sóknarmanna / r • f* i fcyjahröi Framsóknarmenn í Eyjafirði efndu til tveggja stjórnmála- funda um síðustu lielgi. Var fyrri fundurinn í Árskógsskóla á laug- ardagskvöldið en hinn síðari í Freyvangi í Öngulstaðahreppi á sunnudaginn. Alþingismennirnir Skúli Guðmundsson og Bernharð Stefánsson fluttu framsöguerindi ' á furidunum og ræddu um stjórn- niálaviðhorfið og störf ríkisstjórn arinnar. Á eftir urðu almennar umræður. Kom fram eindreginn . vilji fundarmanna um nauðsyn þess að núverandi stjórnarsam- starfi yrði haldið áfrain. gegnum vírnetsháf 11105 löngu skafti, heita kraftsúpu, kaffi og flóaða mjólk. Móttökur á Akranesi. Móttökur fyrir þá félaga á Akranesi annaðist Halldór Baek- mann, bróðir þjálfarans, og var allur undirhúningur af hans hálfu mjög góður. Hér á eftir fer frá- sögn fréttaritara Timans á Akra- nesi, er Eyjólfur lcom þangað: Akranesi í gær. — Það kvisað- ist hér á Akranesi í gærdag að Eyjólfur Jónsson sundkappi liefði lagzt til sunds frá Reykja- vík um hádeigisbilið, og væri för- inni heitið til Akraness. Væri hann væntanlegur um eða eftir miðnættið inn á Akraneshöfn. Um klukkan ellefu fór fólk að flykkjast niður að liöfn, en ekk- ert sást þá til sundmannsins. Páll Gislason, læknir fór á báti til móts við Eyjólf, en hann var vel hress og kvað ekkert að sér ama. Honum fylgdu tveir bátar, Framhald á 2. síðu. Sandgræðsluflugvélin dreifði áburði og fræi á SandskeiSi í fyrradag Á sunnudagskvöldið gafst mönnum að sjá það á Sandskeið- inu, hvernig farið er að því að græða landið með flugvélum. Sandgræðsluflugvélin dreifði þar hálfri þriðju lest af áburði og fræi yfir allstórt svæði og auka á gróðursvæðið, sem þar er komið. — Hve lengi entist íslenzka upp skeran á þessu ári? — Fram undir mánaðamótin marz og april. Var það heldur skemur en búizt var við. í janúar iþóttist ég sjá, að kartöfluskortur mundi verða í apríl eða maí og vfldi gera ráðstafanir til þess að tryggja nægilegt karlöfíumagn t'il landsins. f Danmörku og Hollandi og jafnvel í Svíþjóð var þá litið um kartöflur á markaði og nauð- synlegt að festa kaup á öllu því magni, sem hér þurfti áður en ný 'Uppsíkera kæani á markað. Gjald- eyrisörðiugleikar að því er snerti þessi lönd komu þó í veg fyrir, að hsegt væri að greiða svo mikið rnagn þá, endá hefði þess ekki átt að þurfa, ef állt hefði verið með venjulegum hætti. En í þessum löndum var vorið seint á ferð og búizt við uppskeru hálfum mánuði til þrem vikum síðar en venjulega og því urðu ekki eins miMar birgð ir af fyrra árs framleiðáiu til sölu. Að undanförnu hafa kartöflur verið gersamlega ófáanl'egar í ná- grannailöndum. — Hvað varð þá til bjargar? — Okkur tókst að fá írúsund lestir af kartöflum í Póllandi, og komu þær til landsins í mai og júní. Gert var ráð fyrir a® þær birgðir entust fram í júlibyrjun. en það varð ekki bæði vegna þess að menn birgðu sig nokkuð upp, og eins tólc síldarflotinn sés kirgð ir til norðurferðar um þetta lejrti. Því hefir verið kartöflullaust síð- ustu daga, en við höfum þó getað séð sjúkrahúsum og barnaheimil- Framhala á 2. slðu. Brezka stjórnin treg til samninga um fiskveiðilandhelgi Færeyja fyrr en samkomulag næst við Islendinga - Eins og áður hefir verið skýrt frá hefir brezka stjórnin svarað orðsendingu dönsku stjórnarinnar, þar sem farið er fram á endurskoðun brezk-danska samningsins um fiskveiði- landhelgi. Svarið hefir nú verið birt og neitar brezka stjórnin þar, að viðurkenna ákvörðun Lögþingsins í Fæi eyjum um stækkun fiskveiðilandhelginnar í 12 sjómílur. Páll Gunnarsson, sandgræðslu- stjórn og Agnar Kofoed-Hansen voru viðstaddir þarna efra ásamt allmörgum öðrum. Lýsti Páll með nokkrum orðum áliti sínu á þeirri tilraun, sem hér væri hafin. Hann sagði, að nokkrar tilraunir hefðu þegar verið gerðar austur í Gunn- arsholti og í Þorlákshöfn og tekizt ^ vel. Hann benti á, að hústofn lands1 manna væri nú orðinn allt oí mik ill fyrir hin óræktuðu beitilönd, og því væri eitt mikilvægasta verk efni í framtíðinni að rækta beiti- 'löndin. Flugvélin væri kjörið tæki til þeirra hluta og með henni mundu áreiðanlega verða unnin stórvirki í framtíðinni. Agnar Kofoed-Hansen flugmála- stjóri kvaðst lengi hafa haft á því trú, að flugvélar mundu gegna mik ilvægu hlutverki við græðslu lands ins í framtíðinni, og Flúgskólinn Þylur ætti mik'lar þakkir skyldar fyrir það framtak að kaupa flug- vél þess og hefja þetta starf. Einn- ig lýsti hann hinum geysimiklu landgræðsluframkvæmdum Ný-Sjá lendinga með flugvélum, I Síðan var áburðurinn settur í flugvélina og hóf hún starfið. Voru það verkleg vinnubrögð. Páll sand (Framiiald á 2. síðu). í lok svarsins er tekið fram, að j Iþótt brezka stjórnin að sjálfsögðu ^ ihafi etíkcrt á móti samningavið-' íiæðum við Dami um málið, þá! verði þó slí'kir samningar að byggj ast á því markmiði að varanfeg lausn fáist varðandi fiskveiðiland- hel'gi Færeyja. ísland fyrst. 'Brezka stjórnin áílíti ekki, að ákvörðun íslendinga um stækkun fiskveiðilandhelgi sinnar í 12 sjó- imllur hafi leyst Færeyinga frá iskuldbindingunum í brezk-danska samningnum frá 1901 og 1955. Með an ekki hafi fundizt lausn á deil- unni um fiskveiðilandhelgi íslands eg meðan Lögþingið haldi fast við samþykkt sína, sé brezka stjórndin á þeirri skoðun, að formlcgir sman ingar á þessu stigi málsins myndu vera ófcímahærir og naumast leiða til þess að varanleg og viðunandi lausn fyrir Danmörk og Brelland fengist á málinu. Biður brezka stjórnin usm ígrund að svar dönsku stjórnarinnar varð andi þebta alriði, sem og önnur í erindi sínu. Síld veiðist út af Sléttu Síldar varð vart ú't' af Sléttu í fyrrinótt. Undanfarna daga liafði Ægir lóðað þar síld all- djúpt, en í fyrrinótt fékk norskt skip þar allgóða veiði. Konni þá brátt íslenzk skip á vettvang og femgu nokkur síld og komu með liana inn til Raufarhafnar í gær og liófst þá söltun. Skipin, sem komu til Raufarliafnar voru: Sæljón með 200 tn. Þorsteinn 70, Trausti 250, Glófaxi 100, Súlan 50. Síldin veiddist grannt út af Framhald á 2. síðu. Þannig flýgur flugvélin yfir sandinn og áburðurinn er sem mökkur affur undan vélinni. (Ljósm.: Gunnar Rifnar)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.