Tíminn - 08.11.1958, Page 8
8
T í M I N N, laugardaginn 8. nóvember 1958.
Skýrsla atvinnutækja-
nefndar
(Framirald af 7. síBu).
Iðnaður.-
3 véla- og bifreiðaverkstæði, 4
trésmiðjur, 1 tunnuverksmiðja, 1
skipasmiðastöð, 4 aðrar verksmiðj-
ur.
Rafmagn.
Skeiðfossvirkjun 3200 kw
Vatnsorkust'. Siglufj. 40 —
Díselstöð 240 —
Athugasemdir.
íbúatalan. Árin 1930—40 fjölg-
aði um 862, 1940—50 um 176, en
1950—56 fækkaði um 300 manns.
Bærinn vex örast á síldveiðiárun-
:um 1930—45. Eftir að síldin fór
að bregðast, dregur úr fólksfjölg-
un í bænum, og siðan 1950 hefir
fækkun átt sér stað. íbúatalan
1955 og 1956 gefur þó til kynna, að
fólksflóttinn hafi stöðvazt í bili,
og er þá farin að verka sú upp-
bygging atvinnulífsins, sem kom-
ið hefir í stað síldariðnaðarins.
Tölur þeirra, sem fara í atvinnu til
annarra staða hluta úr ái-i, er á-
ætluð 10. Á árinu 1957 hfa 10 fjöl-
skyldur flutzt til bæjarins samkv.
;upplýsingum bæjarstjórans.
líöfnin. Siglingarleið er opin inn
in á höfnina, en þó getur komið
fyrir, að hún lokist í verstu norð-
anveðrum, meðfram vegna ónógra
iinnsiglingarljósa. Aðalhafnar-
bryggjur eru tvær, og er önnur
jafnframt sjóvarnargarður. Auk
;þess eru á staðnum 4 síldarverk-
smiðjur og 20—30 síldarsöltunar-
ibbyggjur úr timbri, margar léleg-
ar. Sjaldan eru veðurskilyrði svo
slæm, að ekki sé hægt að afgreiða
skip við hafnarbryggjuna, en all-
oft tefst afgreiðsla við hafnargarð-
inn að vetrarlagi. Hafnargarðurinn
er úr steinsteypu og járnþil á hon-
um innanverðum. Hafnarbryggjan
er uppfyllt' stálþilsbryggja með
steyptri plötu. Við athugun á henni
hefir komið í Ijós, að stálþilið er
bilað og var sumarið 1957 unnið
að endurbótum og stækkun. 1 innri
höfninni var fyrir 15 árum byrjað
á hafnarmannvirkjum. Var rekið
iniður 280 m. langt stálþil fyrir
bátadýpi og 120 m langt stálþil fyr
ir 5 m dýpi. Átti að gera þarna upp
fyllingar- og síldarplön. En mann-
■ virki þessu er ólokið. Vitamálaskrif
stofan hefir gert áætlun um við-
garö og stækkun bæjarbryggjunn-
: w.
Fiskiskip. Togaramir eru 9 og
10 ára, báðir gufuskip. Af stærri
þilfarsbátunum er einn byggður
1955, tveir 1944—46 og tveir fyrir
aldamótin. Einn báturinn gengur
aðeins á síld og annar leggur upp
méstán afla sinn á togvertíð í Ól-
afsfirði.
Fiskvinnslustöðvar, afli og fram
leiðsla. Á Siglufirði eru ð síldar-.
smiðja ríkisins, samtals 22 þús.
mála og ein eign Siglufjarðarbæj-
ar, 10. þús. mála. Ein ríkisverk-
smiðjan (SRP) hefir í seinni tíð
verið starfrækt sem fiskimjölsverk-
smiðja og getur framleitt 16,8 tn
af mjöli á sólarhring. Hraðfrysti-
hús SR var fyrir fáum árum inn-
réttað í húsakynnum Síldarverk-
smiðju ríkisins, og var þá samið
um það, að togarar bæjarins seldu
því fisk í 10 ár. Húsið getur unnið
úr ca. 60 tonnum hráefnis á dag
(10 klst. flökun) og hraðfrystihús
ísafoldar úr ca. 20 tonnum. Við
vinnslu og löndun togarafisks
vinna um 200 manns. Árið 1957
var unnið að stækkun á fisk-
geymslum hjá S. R. Fiskþurrkun-
arhúsið er talið fremur lélegt. Skil
yrði til herzlu eru góð. Hraðfrysti
húsið Hrímnir hf. hefir ekki fryst
fisk I seinni tíð og hefur staðið til
að endurbæta það, cn ekki orðið úr
ír-amkvæmdum. Auk afla Siglu-
fjarðarskipa hafa frystihúsin feng-
ið nokkurn afia af togbátum frá
öðrum stöðvum.
Landbúnaður, iðnaður o. fl. Bæj-
arfélagið rekur kúabú á Hóli og á
mest allt land í Siglufirði. Mjólk-
urframleiðslan fulLnægir ekki þörf
um bæjarins. Lítið um byggingar-
framkvæmdir mörg undanfarin ár,
en smíði nokkurra íbúða er í und-
irbúningi. Tunnuverksmiðja ríkis-
ins hefir undanfarið veitt 30—40
manns vinnu í 5—6 mánuði. For-
ráðamenn bæjarins telja, að í verk
smiðjunni, eins og hún er, ættu
80 manns að geta unnið í 8 mán-
uði á ári. Nægilegt rafmagn er enn
þá til iðnaðar frá rafstöð bæjarins
við Skeiðfoss. Bólstrun, netjagerð
og raftækjavinnustofa eru á staðn
um. Tvö fyrirtæki hafa með liönd
um í smáum stíl niðurlagningu og
reykingu síldar. Er unnið úr ca
1000 tunnum á ári.
Happdrætti'S
(Framhald af 5. slðu)
50666 »0736 50948 51156 51215
51233 51242 51590 51907 51949
52232 52237 52341 52357 52400
52464 52534 52845 53065 53191
53256 53310 53389 53623 53716
53765 53834 53922 54002 54036
54046 54082 54266 54284 54455
54519 54573 54749 55154 55296
55321 55370 55536 55672 55718
55824 56129 56275 56312 56354
56639 56779 56848 56922 57046
57119 57253 57362 57614 57768
58037 58159 58519 58776 69054
59128 59239 59331 59433 59697
59709 59746 59751 59780 59913
59914 59979 60335 60410 60442
60451 60679 60781 60812 60905
61111 61174 61180 61313 61388
61408 61482 61497 61581 61608
61639 61768 61775 61831 61925
62015 62093 62210 62359 62440
63014 63042 63059 63258 63257
63400 63447 63456 63497 63589
63599 63656 63675 63783 63786
63797 64046 64082 64401 64418
64427 64533 64626 64629 64660
verksmiðjur, 4 eign Síldarverk-
(Birt án ábyrgðar).
Aldurshámark
(Framhald af 6. slðu).
ur að ákvæði gildandi laga taki til
þcirra.
Þótt núverandi biskup sé mikil-
hæfur maður og talinn fær til að
gegna embætti sínu enn um sinn,
nægir það ekki sem rök í þessu
rnáli, bví að ákvæði frv., ef að lög-
um yrði. taka ekki til hans eins,
þau taka til allra, sem biskups-
embætti gegna, meðan lögin eru
í gildi. Og ekki mundi Alþingi
þykja fýsilegt að brevta lögum til
þess að taka embætti af aldur-
hnignum biskupi, sem kynni að
vera heilsutæpur og miður fær til
embættisstarfs á efri árum en sá,
scm nú gegnir þessu virðulega
embætti.
Með engu móti verður fallizt á
þau rök, sem heyrzt hafa í þessu
máli og raunar fyrr, að biskups-
embættið sé vandalítið og létt,
samanborið við önnur embætti.
Slíkt er fjarstæða, a. m. k. í aug-
um allra, sem áhuga hafa á kirkju
og kristindómi.
Að dómi minni hl. er það óvið-
felldið að leiða nú í lög undir-
skriftasöfnun meðal presta, þegar
lengja skal embættistíma biskups,
og slíkar undirskriftir geta ekki
jafngilt leynilegri kosningu. Segja
má, að þær jafngildi kosningu í
heyranda hljóði. Sú kosningarað-
ftrð tíðkaðist fyrrum við kosning-
ar til Alþingis og sveitarstjórna,
en fáum mun nú koma til hugar
að leiða hana í lög á ný. Eins og
áffur, var sagt, hefir undirskrifta-
aðferðin eitthvað verið notuð, er
lcngja skyldi embætistíma sóknar-
presta. Þá aðferð, sem , vafasamt
er að samrýmist lögum, ætti senni
lengja skyldi embættistíma sóknar
hana til eftirbreytni. Og sennilega
verða þeir sóknarprestar nokkuð
margir, sem að athuguðu máli
kæra sig ekki um að geta átt und-
irskriftalista í vændum í hvert
sinn, sem biskup verður sjötugur,
og að sá vandi sé á þá lagður að
meta starfsgetu hans opinberlega.
Það hefir verið fært fram þessu
máli til stuðnings', að mikill hluti
sóknarpresta hafi með undirskrift
sinni mælt með því, að núverandi
biskup sitji áfram í embætti („enn
um sinn“). Þetta er rétt. En
'biskup hefir í umsögn sinni um
frv. skýrt frá því, að sá skilningur
hafi ríkt meðal presta, að þetta
væri heimilt s'amkv. gildandi lög-
um. Nú er hins vegar komið í Ijós,
að svo er ekki. Og það er allt ann-
aff að fallast á að nota heimild í
gildandi lögum eða óska eftir, að
landslögum sé breytt. Prestum
eru vafalaust, eins og fleirum, ljós
ar þær afleiðingar, sem lagabreyt
ir.g getur haft í för með sér, eins
og rakið hefir verið hér að fram-
an. |
Allsherjarnefnd hefir sent frum'
varpið til umsagnar biskupi ís-
lands, kirkjuþingi, kirkjuráði,
Prestafélagi íslands og Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja. Biskup
íslands telur frumvarpið „til
bóta“, ef lögfest vrði, af þvj að j
það gerði lagaákvæði skýrari en
þau nú eru. Kirkjuþing mælir með
frv. ,;að efni til“, og er ekki full-
ljóst, hvað þetta orðalag (,,að efni
tii“) þýðir. Kirkjuráð kveðst vera
samþykkt umsögn kirkjuþings,
enda er það kosið af kirkjuþingi
og starfar í umboði þess. Stjórn
Prestafélags íslands skýrir frá
því, sem upplýst er um fram komn
ar óskir presta um lengingu emb-
ættistlma biskups, en segir sér
ókunnugt um afstöðu presta ttl
þessa frumvarps. Frá Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja hefir
enn engin umsögn borizt.
Með tilvísun til þess, sem sagt
hefir verið hér að framan, leggur
minni hl. nefndarinnar til, að frv.
verði afgreitt með svo hljóðanai
rökstuddri dagskrá:
Þar sem í gildi eru almen-i
ákvæði um aldurshámark starfs-
manna ríkisins. í 13. gr. laga nr.
33 14. apríl 1954, telur deildin var-
hugavert að breyta með sérstökum
lögum aklurshámarki eins starfsT
manns og tektir fyrir næsta mál á
dagskrá.
Alþingi, 5. nóv. 1958.
Gísli Guðmundsson,
fundarskr.
Leikhúsmái
tFramh. af 5. síðu.)
mikla athygli, þegar það var frum
sýnt í New York í fyrra og það
hefur þegar verið frumsýnt víða
1 Evrópu. „The dark of the top at
the stairs" er einnig nýtt amerískt
leikrit eftir William Inge, sem
sýnt verður og loks er nýtí leikrit
eftir Finn Havrevold, en hann
vakti athygli með „Oretten“ sem
Nationalfheatret sýndi ekki alls
•fyrir löngu. Nýja lcikritið heitir
„Juvet“.
Stokkhólmur.
Vegna viðgerðar og breytinga,
sem verið er að ger.a á Dramaten,
verða leiksýningar þess með
minnsta móti í vetur. Að undan-
förnu hefur það sýnt tvo einþátt-
unga eftir Eugen O Neill. „Jónas
keisari“ leikrit sem Dramaten
keypti réttinn á fyrir rúnium 30
árum, en hefur ekki verið sýnt
fyrr, og „Hugie“ einþáttungur,
sem höfundurinn lét eftir sig og
sýnt er nú í fyrsta skipti. Þriðja
leikritið sem þas sýnir er einnig
amerískt, eftir núlifandi höfund
„Two for the beesew“ en á sænsku
heitir það „Tvá pá gungbradet“,
sem mætti þýðast „Tveir vega
salt“. Leikritið var frumsýnt í jan
úar síðastliðnum í New York og er
leikið enn við mikla aðsókn. Vasa-
Ieikhúsit5 sýnir enskan gamanleik
„Silfurbrúðkaúpjð“ og leikur kunn
fjölskylda helztu hlutverkin. Það
er Inga Tidblad og HSkon Wester
gren ásamt börnum þeirra tveim-
ur. í Intima-leikhúsinu leikur Max
Hanson aðalhlutverkíð í gömlum
þýzkum gamanleik „Bei Kerzen-
leic>ht,“ sem á sænsku nefnist
„Levande ljus“.
Gautaborg.
Borgarleikhúsið í Gautaborg
hefur löngum haft fjölbreytilégt
leikritaval. Fyrri hluta þessa leik-
árs mun það sýnái „Grímudans-
leikinn“ eftir Holberg méð norska
leikaranum Per Aabel í hlutverki
Henriks. „Look homeward angle“,
sem á sænsku nefnist „Se hemat,
angel“. Nýtt leikrit eftir Ray-
mound Cas’tan. Aðalpersónan er í
ætt við Snoddas. „Master 01af“
eftir Strindberg. „Major Barbara“
eftir G. B. Shaw og „Þrettánda-
kvöld“ eftir Shakespeare.
Sbj.
William Gibson, og neínist það
*iiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiniiiiiiiimiiiiinimiiimiiiiMiiiiiiiiiiiiiiimniiiimaí
I Snjókeðjur
fyrirliggjandi í eflirtöldum stærðum:
Einfaldar: Tvöfaidar:
560x13 820x15 650x20 650x20
590x13 550x16 700x20 700x20
640x13 600x16 750x20 750x20
750x14 650x16 825x20 825x20
590x15 700x16 900x20 900x20
670x15 900x16 1000x20 1000x20
700x15 700x17 1100x20 1100x20
760x15 750x17
Bílabúð S. Í.S.
Hringbraut 119, sími 19600
HiiimiiimiiiiiiiimmiiiitiiimimniiiiiiiimiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiH
- Timbur ■ Vikurvörur
vertia frá deginum í dag seldar í verzlun vorri HRINGBRAUT 121, — ÖLL FÁANLEG HÖRPU og
SPRED MÁLNING 0G LÖKK ásamt ANNARRI MÁLNÍNGARVÖRU FYRIRLIGGJANDI. Ennfremur: PLAST-
PLÖTULÍM, PLASTFLÍSALÍM, HL.JÓÐEINANRUNARPÖTUULÍM, ASFALTLlM, GÓLFDÚKALIM, TRÉ-
LLM, ÞAKPAPPI, NAGLAR, BIRKIKROSSVIÐUR 3—12 mm, SMÍÐAFURA og fleira. Væntanlegt: EIK-
ARPARKET, þýzkt, HÖSGAGNAPLÖTUR, BEYKIKROSSVIÐUR, FURUKROSSVIÐUR o. fl. Einnig seljum
vií okkar viðurkenndu VIKURPLÖTUR 5, 7 og 10 cm þykkar og VíKURHOLSTEINA ásamt VIKUR-
SANDI til límingar og í múrhútSun, VIKURMÖL til einangrunar í gólf og Ioft og PÚSSNINGASAND.
SENDUM HEIM — NG@ BILASTÆÐI Kaypið málsiingusia þar sem þér geiiS lagt hílnum.
Jón Loftsson h.f. Vikurfélagið h.f.
HRINGBRAUT 121 — SÍMI 10600 (5 línur)
I