Tíminn - 09.11.1958, Blaðsíða 12
Sunnan stinningskaldi, lítils-
liáttar rigning.
Iteykjavik 0 stig, Hvallátur
stig, Síðumiili 8 stiga frost.
Sunnudagur 9. nóvember 1958.
Séð yfir hluta af salnum á einum fræðslufundanna
Fræðslu- og kynningarstarfsemi á
vegum Kaupfélags Arnesinga
Nýbreytni, sem or'ðiS hefir mjög vinsæl
metSal félagsmanna
Kaupfélag Árnesinga hefir! Konurnar
hafið merkilega fræðslu- og| í fvrstu var gert ráð fyrir, að
kynningarstarísemi á félags-1kcnurnai' kæmu með og verzluðu
syæðinu, sem líkleg er til að
vérða vinsæl viðar en þar
Eglll kaupfélagsstjóri
eystra. í sambandi við hina
árlegu deildarfundi, þar sem
deildarstjói nir eru kjörnar,
auk fulltrúa á aðalfund kaup-
félagsins, hafa verið haldnir
fundir, sem ætlaðir eru bæði
íil fróðleiks og skemmtunar.
Þar til í fvrra hefir verið venja
- fyrir austan eins og alls staðar
annars staðar á svæðum kaupfé-
laganna að halda deildarfundina
-á hverju deildarsvæði fyrir sig,
en þá kemur kaupfélagsstjórinn
á þá fundi og framkvæmir það,
sem hans er.
Á Selfossi
Þá var það i fvrra, að K.Á. tók
uþp nýbreytni i sambandi við
fbndi þessa. Eru þe:r nú haldnir
á Selfos'si og kemur fóik af hverju
deildarsvæðii.u fyrir sig og íara
fundirnir fram á þeim stað. Um
li.ið var tekið upp að halda
skemmtifundina, sem urðu þegar
mjög vinsælir og fjölsóttir.
á meðan bændur þeirra sætu
sjálfa flbildarfundina. Nú hafa
konurnar komið með bændum
sínum, en þær hafa gert betur.
Þær hafa setið deildarfundina og
tekið þátt í þeim og er þetta út
af fyrir sig mjög heppilegt og' á-
nægjulegt.
RæSur
Eftir þess-a lögboðnu deildar-
fundi hefjast kynningar- og
fræðslufundirnir. Eru þeir haldn-
ir í samkomusal kaupfólagsins.
Kaupfélagsstjórinn heldur tölu
um samvinnumál héraðsins. Sýnd-
ar eru kvikmyndir, ræður fluttar
um samvinnumál og auk þess' les
einhver upp, helzt rithöfundur eða
skáld. Veitingar eru bornar fram
og ræðir fólkið saman um hugð-
arefni sín yfir kaffibolla.
Sveitungar
Það hefir verið reynt að fá fjar
largar deildir til að halda sam-
eiginlega þessa fundi. Er það
gert til þess að fólk kynnist, því
ai, dæmi eru þess, að sveitungar
hafa aldrei sézt, hvað þá ræðzt
(Framhald á 2. síðu)
Konurnarsettu
upp furöusvip
Klukkan sjö að kvöldi 1. nóv-
enibers var maður í „station“
Skodabifreið á leið suður Reykja-
nesbraut. Þegar hann var staddur
sunnan í Kópavogshálsi, ók hann
fram á vörubifreið, sem stóð á
vinstri vegbrún. Hemlaði hann
snögglega, þegar hann kom að
vörubifreiðinni, en sveigði síðan
framhjá og hélt ferðinni áfram.
Þegar hann kom á leiðarenda, sá
hann að ekið hafði verið aftan
á bifreið hans og afturhurð dæld-
uð inn.
Þegar hann hcmlaði aflan við
vörubifreiðina fór verkfærakisla,
sem var aftur í bifreið hans af
stað og small fram ,í sætisbnkið.
Þá tók hann eftir að bifreiðin var
þung í hemlun. Þegar hann ók
áfram, sá hann að tvær konur,
1 sem stóðu við veginn, horfðu til
hans með furðusvip. Bendir þelta
allt til þess, að ekið hafi verið
aftan á hann, þegar hann heml-
aði við vörubifreiðina, þótt hann
tæki ekki eftir því, og héldi að
í hávaðinn stafað frá verkfærakist-
I unni. Nú eru það vinsamleg til-
| mæli ranns'óknarlögreglunnar, að
| konurnar tvær, sem urðu vitni að
atburðinum hafi samband við
hana, og einnig bifreiðarstjórinn,
sem ók aftan á Skodabifreiðina.
Örlygur Hálfdánarson
Fundur F.U.F. í
Reykjavík.
Fundur verður haldinn
þriðjudaqinn 11. nóvember
kl. 8,30. Fundarefni: Um-
ræður »m efnahagsmál.
Frummælandi verður Jó-
hannes Elíasson, banka-
stjóri.
KjÖrsókn mjög góð
í Færeyjum
Kjörsókn var mjög góð í Fær-
eyjum í gær, þrátt fyrir slæmt
veffur, snjókomu og storm. Var
talið í gærkvöldi, að kjörsókn
yrði mun meiri að þessu sinni
en í kosningunum til iögþings-
ins 1954. Kosningabaráttan hefir
verið mjög hörð og landhelgis-
málið komið niest við sögu. Sam
bandsflokkurinn hefir nú 7 þing
menn, Þjóðveldisflokkurinn og
Fólkaflokkurinn 6 livor, Jafnað
armannaflokkurinn 5, Sjálfstýris
flokkurinn 2 og einn er óháður.
Vandað pípuorgel - gjöf þjóðarinnar
til Hólakirkju - vígt fyrir skömmu
Við messugjörð í Hóladómkirkju sunnudaginn 26. okt.
var vígt þar nýtt og vandað pípuorgel, sem ríkisstjórnin
hefir hlutazt til um að kirkjan eignaðist. Þetta er 12 radda
orgel, smíðað af orgelsmiðunum I. Starup & Sön í Kaup-
mannahöfn, sem er gamalt og vel metið fyrirtæki.
Forstjóri þess, herra Aksel
Starup, setti orgelið upp í kirkj-
unni á síðast liðnu sumri. Stendur
])að við vesturvegg kitrkjunnar
norðan megin dvra og prýðir mjög
hina veglegu dómkirkju.
Gjöf þjóSarinnar
Fyrir nokkrum árum mun Hóla-
nefnd hafa fyrst vakið máls á því,
að viðeigandi væri að pípuorgel
væri sett í kirkjuna. Siðan beittu
alþingismenn héraðsins sér fyrir
því, að Alþingi veitti nokkurt fé
til orgelkaupanna, þeir Steingrím-
ur Steinþórsson, þáverandi kirkju-
málaráð'herra og Jón Sigurðsson á
Iieynistað, en á Hólahátíðinni 1956
lýsti forsætis- og kirkjumálaráð-
i Framnald a 2. siöu i
Skólaheimsókn á
Akureyri
í gær fóru nemendur og kenn-
arar Laugaskóla í heimsókn í
Gagnfræðaskóla Akureyrar. Nem-
endur skólanna kepptu í sundi og
knattspyrnu.
Olíver Steinn en ekki Almenna bóka-
fél. hefir útgáfurétt að Sívagó iækni
Almenna bókafélagið hefir
undanfarið látið blöð hafa
eftir sér í fréttum, að það j
þefði útgáfurétt að ný'justu
bók Pasternaks, Sivagó lækni, j
óg væri farið að láta þýða;
bókina, sem væntanleg mundi
á næstunni.
Nú liefir komið í ljós, að þetta
er ekki rctt. Útgáfuréttinn hér
á landi hefir ÓLiver Steinn, bóka
útgcfandi í Hafnarfirði. Blaðið
átti í ga:r tal við Óliver og kvað
hann þetta rétt. Kvaðst liann
hafa fengið útgáfuréttinn fyrir
milligöngu umboðsmanns í Sví-
þjóð.
Oliver kvaðst ákveðinn að gefa
bókina lit eins fljótt og kostur;
væri, en að líkindum gæti það'
ekki orðið fyrir áramót. Ilann
sagði og, að Almcnna bókafélag-
ið hefði leitað eftir samningum
við sig um útgáfuna, cða að fá
nokkuð af upplaginu keypt sem
mánaðarbók lianda félögum sín-
um. Allt væri þó óráðið um það,
og meðan samningar stæðu héldi
þýðandinn, sem AB var búið að
fá td verksins, Skúli Bjarkan, á-
fram verki sínu.
Óliver sagði, að enska útgáfa
þessarar bókar, sem hann liefði
í höndum, væri nær 600 blað-
siðúr áð stærð, eða um 37 arkir,
Mynd þsssi er af bygqingu Blindrafélagsins, sem er á horni Hamrahliöar
og Stakkahlíðar. Þarna veröur biindraheimili og samastaður fyrir blint
. fólk i framtíðinni. Á fyrstu hæð verða skrifstofur og vinnustofur, en á
svo að her er ekki um smarit . . . . ... . : ...
, i . annarri oq þrið u hæð verða ibuðir fyrir þa blindu. I dag er merkiasolu-
að ræða. Hann sagði, að bokin
hefði komið út hjá Gyldendal dagur Blindrafélagsins og verður ollum agóða varið +il byggingarinnar,
í Danmöl'ku fyrir skömmu en sem hu'<a a fyrir áramót og er það undir merkjasölunni komið hvort svo
selzt upp á nokkrum dögum. I verður.
Var bifreiðin logskorin í sundur og varpað í Kleifarvatn?
Líklegt er, að þcssa dagana megi
sjá menn vera að slæða í Kleifar-
vatni eflir bifreiðahlutum, sem
blaðið hefur frétt að í því eigi að
vera. Stendur þetta í sambandi við
þjófnaðarmálið á Keflavíkurvelli,
sem alltaf er að verða umfangs-
méira með hverjum deginum sem
líður. Þegar er vitað um tVær bif-
reiðar, sem seldar hafa vcrið ólög-
lega út ai' Kéflavíkurvelli og líkur
íii afj þriðja bifreiðin verði fiskuð
upp úr Kleifarvatni. i fyrradag
fór fram skoðun bifreiða á Kefla-
víkurvelli, og þá talning um leið.
Slík yfirferð á sér stað öðru
liverju, en ekki cr ólíklegt að
yfirvöldum syðra þyki nokkur á-
stæða til talinngar að þessu sinni.
Blaðið hefur enga staðfestingu
fengið varðandi bifreiðina, sem á
að vera í Kleifarvatni. Þó hefur
heyrzt að það, sem ekki var nýti-
legt af henni, hafi verið logskorið
í parta áðiir en vatninu var trúað
j fyrir yfirhylmingunni.