Tíminn - 30.11.1958, Side 1
umræður á
A! þýðusambandsþingi
á bls. 3
42. árgangur.
Reykjavík, sunnudaginn 30. nóveniber 1958.
Þáttur kirkjunnar, bls. 4
Mál og menning, bls. 5.
Lifið í kring unl okkur, bls 6.
Skrifað og skrafað, bls. 7.
273. bla«.
íhaldið hafði sitt fram - Tilmælum forsætisráð-
herra um að stöðva dýrtíðarsknífuna var hafnað
Fullveldi Íslands40ára
íhaldið, kommúnistar
og hægri kratar réðu þessu
Fyrir nokkru siðan lögðu ráðherrar Framsóknarflokksins
fram í ríkisstjórninni tillögur um efnahagsmálin.
A morgun, 1. desember, eru liðin tjörutiu ár frá því Islendingar fögnuðu fullveldi landsins. Fullveldið
fékkst eftir langa baráttu vorra mætustu manna, og var eins og öllum er kunnugt, þannig búið um hnút*
ana, að íslendingar áttu sjálfir valið um lýðveldisstofnun 1944. Myndin er af þeim atburði, þegar fullveldi
landsins var lýst af tröppum Stjórn3rráðshússins 1. desember 1918.
Launamál kvenna athuguft
Fjármálaráðherra lætur leiðrétta
iaunaflokkun kvenna hjá ríkinu
SkemmtuníFram- Flá þessu var sk>'r 1 á þingi B' S‘R B-1 gær
sóknarhúsinu
í kvöld
I kvöld verður almenn
skemmtun fyrir almenning í
Framsóknarhúsinu við Tjörn
ina. Skemmtiatriði verða'
fjölbreytt og verður húsið
opið til kl. eitt. Aðgöngu-|
miða- og borðpantanir verða
teknar í síma 22643 eftir kl.
tvö í dag.
Fyrsta Fram-
sóknarvistin
Fyrsta framsóknarvistin í
vetur verður í Framsóknar-
húsinu n. k. miðvikudags-
kvöld. Nánar auglýst í
þriðjudagsblaðinu.
Það kom fram á þingi B.S R.B. í gær, að undanfarið hefir
starfað nefnd á vegum fjármálaráðherra og B.S.R.B. til þess
að athuga launaflokkun kvenna, sem starfa hjá ríkinu.
B.S.R.B. heíir saínað ítarlegum
sl’ýrslum um þessi mál og tekið
við kvörtunum frá konum, sem
hafa lalið sig misrétti beittar i
iaunaflokkun. Voru kvartanir þess
íVí athugaðar rækilega í nefndinni,
ov er niðurstaðan sú, að lagfærð
hafa verið launakjör 35 kvenna.
Fullvís't er, að nfikið skortir á,
að jafnrétti hafi enn náðst milli
Kvenna og karla í launamálum. Að
þessu sinni varð hins vegar að
n iða athugunina við gildandi
launalög.
Jafnlaunanefnd
Launajafnrétti allra starfandi
kvenna og' karla hér á landi er
til atliugunar í sérstakri nefnd
— jafnlaunanefnd, sem skipuð
var á yfirstandandi ári, og er
þess að vænta, að þegar niður-
stöður þeirrar athugunar liggi
fyrir, fái allar konur á íslandi
launajafnrétti við karlmenn.
Valborg Bentsdóttir var fram-
sögumaður milliþinganefndar
B.S.R.B. í launamálum kvenna_
líefir blaðið fengið leyfi hennar
ti, að birta framsöguerindi henn-
ar síðar.
Togararnir út
meðan herskipið
tók olíu
Fundur í Framsóknarfélagi Reykja-
víkur á þriðjudaginn kemur
Fundur verður haldinn í Framsóknarfélagi Reykja-|
víkur þriðjudaginn 2. desember næst komandi i Fram-
sóknarhúsinu kl. 8,30 síðdegis. Fundarefni: Stjórnmála-
viðhorfið. Frummælendur verða Hermann Jónasson,
forsætisráðherra og Eysteinn Jónsson, fjármálaráðherra.
í dag voru 8 brezkir togarar að
ólöglegum veiðum hér við land.
3 úti fyrir Vesturlandi og 5 fyrir
Austurlandi.
Togararnir, sem voru fyrir aust
an voru allir á hinu nýja verndar
svæði fyrir fiskveiðibrot, sem her
skipin hafa opnað út af Austfjörð
um. Voru togararnir þana að veið
um. Voru togararnir þarna að veið
morgun tilkynnti freigátan Russ
ell, sem þarna var togurunum til
verndar, að svæðinu yrði lokað
meðan freigátan tæki olíu úr
birgðaskipi, sem þarna var. Hífðu
togararnir þá inn vörpuna og fóru
útfyrir fiskveiðitakmörkin.
Síðdegis í dag var ekki kunnugt
um það, hvort búið væi að opna I
verndarsvæðið, en venjulega tek
ur það nokkrar klukkustundir fyr
ir herskipin að taka eldsneyti á
hafi úti.
í tillögunum var megln-
áherzla lögð á það, að halda
uppi framvegis, eins og áður
í tíð núverandi stjórnar, sem
mestri framleiðslu og at-
vinnu fyrir allt vinnandi fólk
í landinu. Til þess að þetta
mætti takast, skyldi leita sam
vinnu við stéttasamtökin um
nauðsynlegar aðgerðir, til að
koma í veg fyrir stórfelldan
vöxt dýrtíðar á ný. Tillögurn
ar voru m .a. við það miðað-
ar, að kaupmáttur tímakaups
gæti haldist óbreyttur frá því
sem hann var í október s. 1.,
eða eins og hann var í febrú
ar þ. á., ef það hentaði betur
til samkomulags. Var það
byggt á hagfræðilegum út-
reikningum, að þetta mætti
takast.
Þegar gengið var frá efna-
hagsráðstöfunum á Alþingi s.
1. vor, var um það talað og á
því byggt að vísitölufyrir-
komulagið yrði tekið til sér
stakrar athugunar á þingi
Alþýðusambandsins í haust.
Var þá jafnframt út frá þvi
gengið, að þing Alþýðusam-
bandsins kæmi saman
snemma í nóvember svo að
tími væri til að ná samkomu
lagi um þetta og önnur atriði
efnahagsmálanna fyrir 1.
desember, þegar ný kaup-
greiðsluvísitala tekur gildi.
Hins vegar fór það svo, að
stjóm Alþýðusambandsins
kallaði ekki þing þess sam-
an fyrr en 25. nóvember. —
Var þá augljóst að ekki
myndi takast að ganga frá
áðurnefndu samkomulagi fyr
ir lok mánaðarins. Af þess-
um sökum gerði forsætisráð-
herra tillögu í frumvarps-
formi um að frestað yrði fram
kvæmd vísitöluhækkunarinn-
ar, er nemur 17 stigum, frá
desemberbyrj un til áramóta,
og skyldi sá tími notaöur til
að leitast við að ná sam-
komulagi um óhjákvæmileg
ar ráðstafanir i efnahágsmál
unum.
Samkvæmt frumvarpinu
skyldi vísitöluhækkunin fyr
ir desember greiðast eftir lok
mánaðarins, nema samkomu
lag yrði um annað.
Ráðherrar verkalýðsflokk-
anna lýstu sig samþykka
frumvarpinu. með þeim fyrir
vara að Alþýðusambandsþing
ið féllist á það.
Forsætisráðherra sendi frum
varpið um frestunina til Al-
þýöusambandsþingsins með
tilmælum um að það i'yrir
sitt leyti féllist á að mæla
með því, að frumvarpið yrði
samþykkt, og þar með að
veita ráðrúm til athugunar og
samkomulagsumleitana um
efnahagsmálin, án þess að
vísitöluspólan yrði seít í
gang á meðan.
í fyrrinótt gerðist það á
Alþýðusambandsþinginu að
það neitaði að verða við þess
um tilmælum forsætisráð-
herra.
Sagt er að þeir, sem stóöu
fyrir synjuninni, hafi talið
sig vanta umboð til að fallast
á frestinn, sepi var þó aðeins
miðaður við einn mánuð, og
þannig, að hækkunin yrði þá
greidd ef ekki næðist sam-
komulag um annað. Má þá
nærri geta, að þeir munu enn
síður telja sig hafa umboö til
víðtækari samninga um efna
hagsmálin. Vitanlega var
þetta aðeins fyrirsláttur, af
því að þeir gátu ekki fært
nein gild rök til stuðnings
synjuninni.
Það þarf engum heilskyggn
um manni að dyljast, aö þeg-
ar þannig hefur verið slegið á
framrétta hönd til samstarfs,
og neitað er um svo litið sem
frest einn mánuð til þess að
tækifæri fáist til að tala sam
an og leita samkomulags um
þessi þýðingarmiklu og vanda
sömu mál, þá er þ-að vegna
þess að enginn samstarfsvilji
er fyrir hendi hjá þeim, sem
ráða.
Afleiðingar þessa geta ekki
orðið nema á einn veg að því
er snertir ramstarfið í ríkis-
stjórninni.
Með þessu hefur íhaldið
fengið sitt fram á Alþyöusam
bandsþinginu, að ný hækkun
aralda flæðir yfir. Það hefur
lengi og ötullega til þeirrnr
uppskeru sáð. Kommúnistar
og hægri kratar hafa veiti í-
haldinu sina þjónustu til ]3ess
að það næði takmarkinu.
Kanadískir náms-
styrkir
Menningarstofnuin Canada Con-
cil í Ottavva býður fram námstyrki
til dvalar þar í landi skólaárið
1959—60.
Styrkirnir eru um 2000 dollarar,
auk ferðakostnaðar.
Styrkirnir eu veitli til náms eða
rannsókna í húmaniskum fræðum.
listúm og þjóðfélagsfræðum, og
eru eingöngu veittir kandidötum
eða kennurum.
Umsóknir um styrkina skal
senda skrifstofu háskólans fyrir
1. janúar n. k. Þangað má og vitja
umsóknareyðublaða og nánari upp
lýsinga varðandi þetta mál, inn
ig hjá skrifstofu Aðalræðismauns
Kanada, Tryggvagötu 2.
(Frá skrifstofu háskólans.