Tíminn - 30.11.1958, Blaðsíða 4
T í MIN N, sunnudaginn 30. nóveinber 1958.
rgf *- .1 - - —
Þáttur kirkjunnar
Hann kemur
Adventa — koma, heitir þessi
fyrsti sunnudagur kirkjuársins,
nýarsdagur kirkjunnar.
Hinn mikli konungur lífs og
ljóss ‘kemur til þín og mín.
Hvaða viðbúnað höfum við haft?
Enginn tekur á móti konungi
án viðhafnar og veizluhalda,
sízt hinum mikla konungi himn-
| anna.
| Eátt, sem ég hef lesið, gerir
| niér þessa konungskomu og mót-
j tökur þær, sem bezt hæfa, minn-
3 isslæðari og áhrifarikara en
1 eftirfarandi helgisögn ind-
| verskra skáldspekingsins Ta-
| gore:
,.Ég hafði gengið' hús úr húsi
3 og safnað ölmusum.
Þá leit ég 'í fjarska vagn þinn,
þú hinn mikli konungur kon-
unganna.
Hvílík gleði fyllti hjarta mitt.
Nú var örbirgð minni lokið, og
fjársjóðir úr hönd þinni mundu
falía mér í skaut.
Og hvílíkt undur, þegár vagn-
inn þinn nemur staðar, þar sem
ég stend.
Þú horfir á mig og brosir við
mér. En þegar ég vænti fjár-
sjóðanna, sem ég hugði, að þú
mundir gefa mér, réttir þú mér
hönd þína tóma og segir:
„Hvað hefur þú að gefa mér?“
Ó, hvílík undur, að konungur
konunganna skuli biðja betlara
um gjafir. Forviða og hikandi
horfi ég á þig.
Svo tek ég skjálfandi minnst'a
sáðkornið úr betlipoka mínum
af þeim ölmusum, sem mér hafa
verið gefnar og legg' það í lófa
þinn.
jf
| En mikil verður undrun mín,
| þegar ég hvolfi úr pokanum í
3 náttstað að kvöldi á gólfið, og
innan um allt draslið glitrar
skínandi gullkorn.
Slík hafði gjöf mín orðið, þeg-
ar hún var lögð í þína hönd.
En æ hvílíkur heimskingi
var ég að gefa þér ekki allt, sem
ég átti. Hve auðugur — já vell-
ríkur hefði ég þá verið.
Nú kemur hann hinn mikli
konungur. Enn einu sinni hefst
ganga hans um kring til að
lækna mein og þetta tár.
Andi hans brosir til þin og
neniur staðar við braut þína í
starfi og hvíld, og þú veizt hve
óendanlegan auð hann hefur að
veita öllum, sem vilja þiggja
gjafir hans.
En hvað átt þú til að gefa
honum? Getur þú ef til vill helzt
ekki séð -af nokkurri mínútu
hins komandi kirkjuárs til að
nema og íhuga kenningar hans
og orð, til að sækja kirkju hans
og bera fram bæn þína við fót-
skör hans?
Veiztu ekki, að hver stund,
sem honum er gefin, hvert
augnablik eru gullkorn og perl- i
ur í sjóði eilífðar, og skínandi 1
gersemar í skrúða hamingju J
þinnar. . |
Manstu: Hann er heimsins |
Ijós. Hann er vegurinn, sann-i
leikurinn og lífið.
Hann gerir hinn örbirga auð-j
ugan og gefur orðum þínum i
og athöfnum gildi með snert- i
ingu sinni og augnatilliti.
„Lifðu Jesú — ekkert annað j
er og verður lífsins hrós, j
gefðu honum, engum öðrum, j
allra dýrstu hjartans rós.
Lifðu Jesú — heiga honum
hug og vilja tregðulaust,
vinn með fylgi vor og sumar, 1
vinn þú eins, þóti kólnt
haust.“ 11
Arelíus Níelsson.
iiiiiSiÍSliliilHSÍIlKS®
4*
.V.V.V.V1 ,SV.
■.v.v.w.v.
s
Útiæfingaföt
Badmintonspaðar
Badmintonknettir
Spaðatöskur
Spaðaklemmur
Borðtennis-sett
Borðtennisspaðar
Borðtenniskúlur
Aflraunagormar
Atlaskerfi
Atlaskerfi
Sundbolir
Sundskýlur
Sundhettur
Leikfimibuxur
Leikfimibolir
Handknettir
Körfuknettu-
Blak-knettir
Gúmmíknettir
Fótknettir
Knattspyrnuskór
Knattspyrnusokkar
Rásbyssur
Ferðaprímusar
Svefnpokar
Skíði
Skautar
Allt til íþróttaiðkana.
HELLAS
Skólavörðustíg 17. Sími 1-51-96
av.w.v.v.'.v.v.v.v.v.vj
Fylgizt með tímanum:
Notið CARDA-glugga
í «
i 2)
í 3)
:: 4)
5)
6)
Síðasti tíagur
:: 7)
:; 8)
expo
Dick Laan:
Ljósmynda- og blómasýn-
ingin í sýningarsal Ás-
mundar Sveinssonar við
Sigtún er í dag Opin frá
kl. 10—23.
Stuttar kvikmvndir sýnd
ar á eltirfarandi tímum:
Kl. 16 Heklumynd Osvalds
Knudsen. Kl. 17,30 Hrogn-
kelsaveiðar e. M. Jóhanns-
son. Kl. 19 Hálendi íslands
e. M. Jóhannsson. Kl. 21
Laxaklak e M. Jóhannsson
og kl. 23 hin merka mynd
Fjölskylda þjóðanna. ís-
lenzkur texti.
Síðasta tækifærið til að
sjá þessa sérstæðu sýningu.
Ferðir með Sundlauga-
vagninum á 15 mín. fresti.
Heiztu kostir CARDA-glugga eru:
Eru þéttir bæði gegn vatni og vindi. Fylgja þeim
sérstakir ofnir þéttilistar, sem setjast í er gluggi
hefir verið málaður.
Hægt er að snúa grindunum alveg við og hreinsa
allan luggann innan frá. Er þetta mikið atriði í
íbúðum á efri hæðum húsa.
Hægt er að hafa gluggann opinn í hvaða stöðu
sem er upp í 30°.
Einangrun ágæt, þar sem tvöfaldar grindur eru í
gluggunum og nægir því að hafa 2 einfaldar rúður.
Engin móða eða frostrósir safnast innan á rúðurnar.
Loftræsting mun fullkomnari en við venjulega
glugga. Verkar hér líkt og loftræsting um reykháf.
Útsýni nýtur sín vel, þar sem engir sprossar eða
póstar skyggja á.
Hægt er að koma rimlagluggatjöldum fyrir milli
rúðanna.
Hægt er að fara frá gluggunum opnum án þess að
hætta sé á, að það rigni inn um þá.
Gluggarnir eru seldir með öllum lömum og
læsingum áfestum.
Gluggana skal ekki steypa í, heldur setja í á eftir.
Notið tímann, og pantið í tíma.
Timburverzlunin VÖLUNDUR h.f.
Klapparstíg 1. — Sími 18430.
I
w.v.
v.v.w.
'.V
V.V.V.V.V.V.V.W.V.W.V.V.W.VV.V.V.V.V.V.V.V.VJ
?. I
Innilegustu þakkir til allra, sem veittu mér fjár- í
I; hagslega hjálp í veikindum mínum og erfiðleikum s.l. S
!• vor. Sérstaklega þakka ég sveitungum mínum höfð- ■*
inglegar gjafir. í
Guð íauni ykkur öllum.
Vigdís Einbjarnardóttir,
Rauðamel, ytri
!■_■_■ ■ ■ ■ ■ I
Æviniýri Trltils
í sumar komu hingað hollenzk læknishjón til
stuttrar dvalar. Nafn mannsins var Dick Laan. —
Hann ferðaðist um landið, hitti ýmsa og talaði við
mrga, en fæstir vissu, að hér var á ferðinni mest
lesni höfundur Hollands, faðir Trítils, sem öll
börn dá. Þessi faðir Trítils' á ekkert annað barn
en Trítil, en hann hefir veitt börnum í Hollandi,
Svisslandi, Frakklandi, Belgíu, Danmörku, Noregi
og Svíþjóð meiri ánægju en þótt Dick Laan og'
frú hefðu eignazt 100 börn.
Ekki þarf að efast um, að bók þessi verði ís-
lenzkum börnum hinn mesti aufúsugestur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför föður okknr
Bjarna Kjartanssonar,
fyrrum forsfjóra.
v
Börnin.
Hjartanlega þakka ég auösýnda vinsemd og hlýhug við andlát
og jarðarför mannsins míns
Elísar Ó. Guðmundssonar.
Fyrir mína hönd, barna minna og
annarra aðstandenda.
Helga Jóhannsdóttir.