Tíminn - 30.11.1958, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.11.1958, Blaðsíða 3
TÍM.INN, sunnudaginn 30. nóvember 1958. 3 Frá íamræfrum á Alþýðusambandsþingi í fyrrinótt: „Það er erfiðara að vera leið- togi sannleikans en falsins“ sag($i Árni Ágústsson, 1. ritari þingsins vií um- rætfurnar um tillögu tólfmenninganna Éins og komið hefir fram í fréttum, urðu töluverðar um- ræður á Alþýðusambandsþingi í fyrrinótt, þar sem tilmæli forsætisráðherra, Hermanns Jónassonar varðandi kaupgjalds- vísitöluna voru til umræðu, og tillögur þær tvær, sem komu frá tólfmenningunum annars vegar og Kristni B. Gíslasyni hins vegar. Fréttaritari Tímans á þinginu heíir gert úrdrátt úr ræðum manna og fer hann hér á eftir. Eðvarð Sigurðsson hafði fram- sögu fyrir atvinnu- og efnahags- málanefnd á fundi ASÍ í fyrra- dag. Gat hann þess, að till. þessi er fram hefði komið vegna bréfs forsætisráðherra, hefði verið vísað til nefndarinnar. Hefði nefndin, að einum manni undanskildum, orðið sammála um að mæla með till. scm Jón Sigurðsson o. fl. fluttu. Framsögumaður gat um fyrri viðtöl við forsætisráðherra m. a. þá um morguninn. Kjarninn í til- mælum hans væri að greiðslu vísi tölunnar væri frestað yfir des. en kaup greitt áfram eftir vísitölu 185. Við nefndarmenn teljum hins vegar sjálfsagt að greiðsla fari fram strax en álítum rétt, að halda vísitölunni i 185. En leiðir til slöðvunar hafa enn ekki verið ræddar. Víst er, að launþegar tapa á áframhaldandi verðbólgu. En við höfum lagt á það áherzlu, að ef málið 'kæmi fyrir þetta þing á þennan hátt, væri spillt þeim friði, sem um það þyrfti að vera. Till. nefndarinnar lýsir yfir þeim vilja, að vísitalan verði stöðvuð í 185 og öllum leiðum er haldið opnum að þvi marki. Ilins vegar er þvá slegið föstu, að vísi tala 202 komi ®trax til fram- kvæmda, hvað svo sem eftir á kann að gerazt i samningum. Hvað er farið fram á i till. for- sætisráðherra? Það, að við stuðl um að þvi, að löghoðin og samn- ingsboðin vísitala á kaup komi ekki til framkvæmda. En til þess höfum við ekkert umboð. Og hver getur um það sagt, að sú ríkis stjórn, sem kann að vera við völd í janúarbyrjun muni greiða þetta? En hér er stuttur tími til um- ráða og ef málið verður ekki leyst 1 des. skapast vandræði. Sé ekki liversvegna atvinnurekendur geta ekki greitt þetta strax ef þeir á Tilkynning frá VATNSVEITU REYKJAVÍKUR Símanúmer verkstjóra Vatns- veitunnar verður eftirleiðis 3 512 2. Beiðnum um viðgerðir á vatns- krönum og W.C. kössum verð- ur fyrst um sinn veitt móttaka í sima 11316. annað borð eiga að greiða það. Manaðarkaupsmenn fá s.(na greiðslu ekki fyrr en efir mánuð. Vikukaupsmenn hins vegar viku- lega. Yrði henni frestað um mán- uð gæti hennar orðið víða að leita, því sami verkamaðurinn getur unn ið hjá mörgum yfir mánuðinn ,og er þá hætt við að eitthvað af greiðslunni gæti farið forgörðum. Mikilsvert, að við getum orðið ein huga á þinginu. Stefnuna verðum við að marka hér og helzt að ræða hana í okkar félögum. Engar á- kveðnar till. liggja því frá ríkis- stjórinni enda ibeðið eftir þessu þingi. Þetta þing var ekki hægt að halda fyrr, því kosningum til þess lauk ekki fyrr en 12. okt. og svo veiktist forseti þess. En þetta skiptir ekki máli þvi vísitalan hefði hvort eð er orðið að verka ; strax nú nema ráðstafanir hefðu verið gerðar til þess 1. nóv. að ' verkanir nóvember hækkananna ■ kæmu ekki fram. I Guðm. Björnsson, framsögumað- | ur minnihluta. Þótt í fljótu bragði ' sýnist e. t. v. ekki mikill efnis munur á þeim till., sem hér liggja fyrir, þá er það þó svo, að í ann arri felst, að kaup í des. skuli reiknað út eftir vísitölu 202 en í hinni 185. Hér er þó ekki verið að tala um að greiða ekki eftir vísilölunni, heldur að fá frest á greiðslunni, meðan stjórnarvöldin og alþýðusamtökin koma sér nið- ur á einhver úrræði. Ef þingið fellst ekki á að veita þennan frest sem það missir éinskis við, þá jafngildir það raunar því, að neita allri samvinnu við ríkisvald ið. Og ég spyr, er það skynsamleg afstaða frá Ihagsmunasjónarmiði alþýðusamtakanna sjálfra. Margir hér á þinginu undrast, að ríkisstjórni,, skuli ekki leggja hér fram ákveðnar till. um hvað hún telji að gera beri, því meiri kunnugleika hefir hún á þessum málum en við. Eðlilegast væri, að línan kæmi frá ríkisstjórninni og við segðum svo til um það, hvað við teldum okkur fært að ganga langt til samkomulags. Mér er kunnugt um, að Framsóknarfl. hef ir lagt sínar till. fram í ríkisstjórn inni, en hinir stjórnarflokkarnir hafa ekki viljað leggja neitt til mála. Og því stöndum við hér uppi án tillagna frá ríkisstjórninni. Jón Sigurðsson: Þingið hefir ekki umboð til neinnar eftirgjafar. Tillaga 12-menninganna tvíþætt. Flutningsmenn hennar telja nauð synlegt að spornað sé gegn dýrtíð inni. Hækkandi dýrtíð kemur harð ast niður á verkamönnum. Og við vitum að í kjölfar kauphækkanna koma verðhækkanir. Ef vísitalan verður greidd niður um 17 stig, þá verða alþýðusamtökin að hafa hönd í bagga með þvi, hvernig til þess er aflað fjár. Viljum ekki að það sé tekið með tollum og sköttum, ekki hækkandi yfirfærslu gjaldi. Það verður að takast þann ig, að sem minnst komi við verka- fólk. Hörmulegt, að ekkert liggur fyrir frá ríkisstjórninni. Framsókn arfl. hefir lagt fram sínar till. en verkalýðsflokkanir andvígir þeim. Krafa okkar til ríkisstjórn- arinpar að haft verði samráð við verkalýðssamtökin. Eggert Þorsteinsson: Umboðs- leysi okkar kemur í veg fyrir að við gelum sinnt tilmælum for- sætisráðherra. Engar till. liggja enn fyrir um þessi mál, hvorki frá ríkisstj. né Alþýðusamb.þingi. Óeining í ríkisstjórninni. En ýms ar leiðir til lausnar. Niðurgreiðsl ur gæíu komið til mála. Má afla fjár til þeirra á ýmsan hátt. En við viljum ekki álag á neyzluvör- ur. Elías Sigfússon: Lýsti fylgi við till. J. Sig. vegna umboðsleysis til annars. Ef við sleppum rétti okkar nú til kaupgreiðslu samkv. vísi- tölu fáum við hann aldrei. Ástand ið nú afleiðing ráðstafanna í vor. Ríkisstjórnin leggur ekkert fram, Hannibal ekki heldur. Hermann Guðmundsson: Þingið má gjalda varhug við kenningun um um bölvun vísitölufyrirkomu lagsins. Það var tekið upp fyrir baráttu verkalýðsins og er vörn hans gegn hækkunum. Fyrir henn ar tilstilli hafa liækkanir orðið minni því hún hefir örvað stjórn arvöldin til þess að halda þeim •niðri. Eg lít á tiil. J. Sig. sem neitun við tilmælum forsætisráð- herra og því greiði ég henni atkv. Hannibal Valdimarsson: Ríkis- stjórnin telur sig bundna af lof orði um samráð við verkalýðsfé- lögin og því faslmótaði hún ekki sínar till. fyrir þingið. Þegar efna hagsmálatill. ríkisstjórnarinnar voru lagðar fram í vor þá skömm uQust menn yfir þvlí, að þær hefðu verið fullmótaðar áður en þær voru bornar undir fulltrúa verkamanna. En nú er skammast yfir því, að stjórnin skuli ekki leggja ákveðnar till. fyrir þetta þing. Stjórnin hefir látið sína sér fræðing athuga þessi mál. Þau hafa verið rædd í flokkunum. Við þurfum ekki að harma að þingið ■stendur hér ekki frammi fyrir gefnum hlut. Fundið að því að ég skuli ekki hafa lagt fram ákveðn ar till. hér á þinginu en hvaða um boð hafði ég til þess? Nefnd á þessu þingi mun leggja fram drög að till. sem þingið svo vinnur úr. Jón Sigurðsson sagði ég vil ekki þetta og ég vil ekki hitt. Það er ekki vandi. Vandinn er að segja hvað við viljum. í till. 12-menning anna felst þýðingarmikil viljayfir- lýsing um að dýrtíðin verði stöðv uð. En í henni felst einnig að greiðslur samkv. vísitölu 202 verði ekki frestað. Ég veit að forsætis- ráðherra lítur mjög alvarlegum augum á synjun við tilmælum sínum og að velt verði yfir 17 visitölustigum rétt áður en sezt er að samningaborði og ég virði þessa afstöðu hans. En við höfum ekki umlboð til þess að falla frá kröfunum. Það kosíar 6—6.3 millj. að borga niður hvert visitölustig. Mætti ná því eitthvað með því að spara í framkvæmdum, álögum á tóbak og áfengi og taka ca. 15 millj. af gróða bankanna í stað þess að leggja hann fyrir Árni Ágústsson: Allir sammála um að stöðva dýrtiðina, en hvern ig? Tel hættulegt að neita að falla frá nokkurri kauphækkun til þess að stöðva dýrtíðina, því það getur kallað yfir okkur aðra rlkisstjórn og óvinveitta verkalýðnum. Þessi stjórn vill samvinnu við verka- menn en ef við viljum ekkert slá af er ekki hægt að sernja. Vísitölu hækkunin étzt strax upp. En menn vilja halda út af lífinu í þessar fölsku krónur. Við viljum ekkerf á okkur leggja til þess að stöðva dýrtíðina. Við vitum að það er rétt af okkur að afsala okkur þessum falska miðli til þess að stöðva óhamingjuna, en flutnings menn till. treysta sér ekki til bess að ihafa í fullu tré við íhaldsáróð urinn. Till, 12-menininganna er hreint vantraust á þá sjálfa. Það er erfíðara að vera leiðtogi sann leikans en falsins. En ef við vit um hvað er satt og rétt, þá eigum við að fylgja því og verkalýðs- leiðtogar eiga að leiða fólkið en ékki láta leiðast af því. Mér kemur ekki á óvart, þótt till. sú, sem ber kápuna á báðum öxlunum, verði samþ. En við megum ekki fella ríkisstjórnina. Sú fórn væri stærst fyrir okkur. Hin eina sök, sem ég finn hjá stjórninni er að láta undan hálaunamannaverkföll unum. Þeir menn vissu hvað þeir voru að gera. Tilgangur þeirra var að sprengja og eyðileggja sam starf vinnustéttanna. Hagur verkamanna er nú allur annar og betri en áður. Tekju- skipting í þjóðfél. öll önnur. Verka lýðssamtökin eiga að taka foryst- una hjá þessari þjóð. En þá verða þau líka að sýna ábyrgðartilfinn ingu og hafa þor til þess að hafna fölskum ,,kjarabótum“ í stað þess að velta yfir sig atvinnuleysi og hruni. Ég gef litið fyrir þá menn, sem aldrei þora að fylgja óvinsæl um málstað þó að þeir viti að hann sé réttur. Björn Guðmundsson, Hvamms- tanga: Tillaga 12-menninganna get ur leitt til falls ríkisstjórnarinnar og því er ég á móti henni. Hún er eius og afgreidd eftir pöntun frá íhaldinu. Skil ekki þessa 12-menn inga. Sennilega gengur þeim til kjósendahræðsla, en hún er bölvald ur í okkar stjórnmálalífi. Eg hefi ekki 'umboð til þess að slá af rétti umbjóðenda minna, en þ\i síður hefi ég umboð til þess að sam- þykkja tillögu sem gæti steypt ríkis stjórninni. Pétur Pétursson, ísafirði: 12- manna nefndin átti að fallast á til- lögu forsætisráðherra, þótt við telj um okkur ekki hafa skjalfest um- boð frá umbjóðendum: okkar til þess að gera þetta eða hitt, þá höf- um við þó allt'af leyfi til þess að gera það, sem við teljum rétt. Tel engan voða á ferðinni þótt vísital- an sé ekki greidd i topp í einum mánuði. Ef við viljum stöðva vísi- töluna í 185 þvi þá ekki að gera það strax. Þetta er fyrsta ríkis- stjórn á íslandi, sem hefir verið verkalýðnum verulega vinveitt. Við verðum að bera það traust til henn ar að hún geri það sem okkur er fyrir beztu. Vísitölueftirgjöf mun- ar okkur engu. Áframhald verð- bólgunnar hættulegt. Vil ekki koma heim með þann vitnisburð að hafa unnið að falli rikisstjórnarinnar. Vil heldur hafa það á bakinu að hafa hafnað vísitölunni. Kristinn B. Gíslason, Stykkis- hólmi: Síðustu vikur höfum við heyrt að Alþingi biði eftir ákvöið- unum þessa þings. Og öll þjóðin bíður eftir því hvað við gerum hér í nótt. Hví ekki að taka tilmælum forsætisráðherra? Hvi ekki að doka við og athuga málið úr því að engu þarf til þess að fórna. Menn tala um að farið sé frarn á eftirgjöf, þó að um enga eftirgjöf sé að ræða, nema samtök verkalýðsins vilji. Að eins beðið um olnbogarúm til samn inga. Talað um að okkur skorti um- boð til þess að festa vísitöluna í 185 eins og allir þykjast vilja. Og' ef tillaga okkar Björns Guðmunds sonar verður samþykkt þá gefzt ráðrúm til þess að fara heim og ræða við okkar félaga. Einkenn- andi fyrir þetta þing er lofið, sem borið er á ríkisstjórnina. Eigum við þá að vinna að því og höfum við umboð til þess að fella okkar eig- in rikisstjórn? Kristján Guðniundsson, Eyrar- bakka: Fólk út'i á landi hefir ekki mikið orðið vart við kjarabætur af kauphækkuninni í sumar. Þótt verkalýðsforingjarnir tali um um boðsleysi þá vita þeir vel, að úr þessu eru kauphækkanirnar ekki til bóta. Fólkið vill að staðar verði numið. En hjá ýmsum á þessu þingi virðist holdið vera veikt þótt and- inn sé reiðubúinn, að þeirra eigin sögn. Það er ekki betra að semja eftir að ný skriða hefir faltið. Og hver græðir á því að ofbjóða at- vinnuvegunum? Haraldur Þorvaldsson, Akureyri: Reykvíkingar virðast hræddir við að festa vísitöluna í einn mánuð, en tala jafnframt um að þeir vilji binda hana við 185 stig. Sé ekki samræmið í þessu. Alþýðuflokkur- inn og Alþýðublaðið græða ekki á því að elta íhaldið á dýrtíðarupp- boðinu. Stjórnin vinnur fyrir verka lýðinn. Trúi hver sem vill og get- ur, að íhaldið verði honum hlið- hollara. Lagerlöf las upp í Þjóðíeikhúskjalíara - af segulbandi íslenzk-sænska félagið minntist aldarafmælis sænsku skáldkonunn ar Selmu Lagerlöf þann 20. nóv. með kvöldvöku í Þjóðleikhúss- kjallaranum. Meðal gesta voru ambassador Svía og frú hans. For- maður félagsins, Guðlaugur Rósin- kranz, þjóðleikhússtjóri, bauð gesti velkomna og drap á þá miklu þýðingu sem skáldsögur Selmu Lagerlöf hefðu fyrir kynni fslands af Svíþjóð. Frú Þórunn Elfa Magn úrdóttir, flutti prýðilegt erindi uin skáldkonuna og síðan las frú Inga Þórarinsson upp ljóð það, er skáld ið Harry Martinson hafði ort og flutt á hátíðahöldum þeim, sem haldin voru í Vermalandi síðasthð ið suifiar í tilefni aldarafmælisins. Að lokum gafst kostur á að heyra rödd Selmu Lagerlöf sjálfr- ar af segulbandi er hún las kafla úr sögu Gösta Berlings. Þátttakan í bessari kvöldvöku sýndi ,að enn á Selma Lagerlöf hér marga unn- endur. NY BOK EFTIR JON MYRDAL Skúldsaga þessi hefir aldrei verið prentuð áður, en eftir sama höfund hafa komið út sögurnar Mannamunur og Kvennamunm', sem báðar hafa orðið mjög vinsælar. Sagan Niðursetningurinn hefir til að bera hin sömu einkenni og þær, fjölbreytni í atburðum og persónulýsingum, léttan stíl á náttúrlegu alþýðumáli og næmleik á hinar broslegu hliðar á mönnum og m.álefnum. Er saga þessi með hinum lengri sveitalífssögum, sem til eru frá síðast liðinni öld, og fyllir flokk hinna fáu en góð- kunnu skáldsagna frá fyrsta skeiði íslenzkrar ská.idsagnaritunar. BðUDTfiAFAN FJÖLNIR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.