Tíminn - 23.12.1958, Qupperneq 6

Tíminn - 23.12.1958, Qupperneq 6
6 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn, Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12323 Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13948 Gruimkaupshækkun Sjálfstæðisílokksins EINS og áður hefur verið vikið aö hér í blaðinu, er yfir lýsingin, sem Sjálfstæðisfl. hefur birt um hina misheppn uðu stjórnarmyndunartil- raun Ólafs Thors, hið sögu- legasta plagg. Yfirlýsingin mun lengi vera talin ein hin ágætasta heimild um stjórn- arandstöðu Sjálfstæðisfl. á árunum 1956—■’58. Meginniðurstaða yfirlýsing arinnar er sú, að hægt sé að tryggja rekstur framleiðsl- unnar, án nokkurra nýrra skattaálaga, ef launþegar fallist á 6% grunnkaups- lækkun og bændur veiti til- svarandi eftirgjöf. Þetta þýð ir m.ö.o., að hefði 6—9% grunnkaupshækkunin, sem Sjálfstæðisflokkurinn beitti sér mest fyrir á síðastl. sumri ekki komið til sögunnar, væri nú ekki þörf neinna nýrra ráðstafana. Það hefur því fyllilega staðtót, er ríkis stjórnin og sérfræðingar hennar sögðu á síðastl. vori, að efnahagslögin myndu ná tilætluðum árangri og nýrrar tekjuöflunar ekki verið þörf, ef ekki yrði meiri hækkun á grunnkaupi en lögin gerðu ráð fyrir. ORSÖK þess, að nú er þörf nýrra ráðstafana í efna- hagsmálum, er því fyrst og fremst fólgin í kauphækkun arbaráttu Sjálfstæðisflokks- ins á síðastl. sumri. Strax ef t ir að efnahagslögin voru sett, hófu forustumenn Sjálf stæðisflokksins mikinn áróð ur fyrir því innan verkalýðs- félaganna, að krafizt væri nýrra kauphækkanna. Stjórn arandstæðingar í Alþýðufl. og Alþýöubandalaginu létu fljótt undan þessum áróðri, sumpart vegna þess, að þeim var ósárt um, þótt efnahags- lögin bæru ekki árangur og sumpart vegna þess, að þeir voru hræddir við áróður Sjálfstæöisflokksins vegna nálægra kosninga-til Alþýðu sambandsþings og töldu það styrkja aðstöðu sína í þeim, að taka þátt í þessu kapp- hlaupi. Afleiðingin varð sú, að nokkur félög knúðu fram kauphækkun strax í sumar og eftir það varð ekki staðið gegn almennri kauphækkun. í haust var því svo komið, að grunnkaupið hafði yfir- leitt hækkað 6—9% meira en efnahagslögin gerðu ráð fyr- ir. Eftir það varð ekki hjá því komizt að gera nýjar ráðstafanir, ef ekki átti að láta framleiðsluna stöðvast. ÞAÐ, sem hér er rakið, sýnir það ómótmælanllega, að Sjálfstæðisflokkurinn ber meginábyrgð á þeim vanda, sem nú er glímt við. Sú niður staða sérfræðinga hans, að þörf sé 6% grunnkaupslækk unar, er skýrust sönnun þess, að það er einmitt grunn- kaupshækkunin, sem flokk- urinn knúði fram, er nú veld ur vandanum. í þessari niðurstöðu sér- fræðinga Sjálfstæðisflokks- ins, felst vissulega hin þyngsti áfellisdómur um stjórnarandstöðu flokksins. Allt síðan að flokkurinn lenti í stjórnarandstöðu, hef ir hann unnið kappsamlega að því að ýta undir kaupkröf ur og kauphækkanir. Því mið ur hefur honum orðið alltof vel ágengt í þessum efnum. Afleiðingin af þessari iðju hans hefur þó aldrei komið jafn ljóslega fram og nú, staðfest af sérfræðingum hans í opinberri yfirlýsingu frá sjálfum flokknum. Þessi verknaður forkólfa Sjálfstæðisfl. verðskuldar enn þyngri áfellisdóm en ella vegna þess, að þeir fremja hann vel vitandi um það, að þeir eru hér ekki að vinna fyrir launþega, heldur ein- göngu í því augnamiði að valda erfiðleikum og gera rík isstjórninni erfitt fyrir. — Sannarlega verðskulda slík vinnubrögð þyngsta dóm. ÞRÁTT fyrir það, þótt Sjálfstæðisfl. hafi þannig tekizt að koma i veg fyrir, að efnahagslögin næðu til- ætluðum árangri og nýrri ráð stafana sé nú þörf, stendur það eigi að síður óhaggað, að ekki hefur um langt skeið verið eins auðvelt við stjórn- arskipti að finna lausn á vanda efnahagsmálanna og nú. Þótt grunnkaupið væri nú lækkað um 6%, myndi af koma launþega vera áfram mjög sæmileg og kaupmátt- ur launanna vera sízt minni en hann var í október eða | febrúar síðastl., þegar hin svokallaða stöðvunarstefna var enn í gildi. í þessari niðurstöðu felst vissulega mikil viðurkenning um starf núverandi rikis- stjórnar. Þrátt fyrir hina á- byrgðarlausu og óþjóðhollu stjórnarandstöðu, er reynt hefur að valda hinum mestu truflunum í efnahagslífinu meö kaupkröfum og verkfalls brölti, hefir hinni fráfarandi ríkisstjórn tekizt að halda hér uppi blómlegu atvinnu- lífi, efla og auka atvinnu- reksturinn út um land og skilja þannig við, að aðgerð- ir í efnahagsmálum eru öllu auðveidari nú en þær hafa lengi verið. Óhætt má því segja, að hlutur ríkisstjórnarinnar sé eins góður og hlutur stjórnar andstöðunnar er slæmur og hörmulegur. Fyrir því liggur nú ekki sízt örugg heimild, þar sem er álit sérfræðinga Sjálfstæðisflokksins um þá grunnkaupshækkun, sem flokkurinn knúði fram á síð- astliðnu sumri og nú orsakar þann vanda, sem glímt er við. TALDRAÐ Á BÍI Vegír og vegleysur - „GuSI- gröftur” á Bíldudal - öragnéfa Eokunin - Nýr fogari um ára- mót - Gallað kennsiupláss - IColapélitík - Lóiaska í fjörðinn Ekki veit undirritaður, hve margra roðskóa heiðin milli Tálknafjarðar og Bíldu dals er, en hún er gengin á röskum þram tímum. Hæsti tindur á þessari leið, Hálfdanarfell, nær 614 metra yfir sjávarmál, og vegurinn lokast bifreiðum í fyrstu snjóum. Kristján Ásgeirsson, afgreiðslu- maður hjá Kaupfélagi Arnfirð- :inga, lofaði því í símanum, að undiritaður skyldi ekki verða drepinn þótt hann kæmi til Bíldu- dals. Hann stóð utan dyra hjá kaupfélagshúsinu, þegar undir- ritaðan bar að úr heiðargöngunni, og hann bauð þegar uppá máltíð, gisting og buxnaskipti meðan ferðabrókin var að þorna. Hann stóð þvi við orð sín og meira til. Ógreiðfær vegur Það barsl í tal okkar Kristjáns, að vegurinn milli Tálknafjarðar og Bíldudals væri síður en svo í góðu ásigkomulagi. — Þessi vegur var lagður á niu dögum, sagði Kristján. — Upp haflega ruddur til að koma vinnu vélum til Bíldudals, og þess vegna má segja, að hann hafi upphaflega ekki verið lagður á heppilegustu stöðum, heldur þar sem auðveld- ast var. í fleiri ár var lítið fyrir veginn gert, þar til nú uppá síð- kastið, að nýir kaflar hafa verið Iagðir hérna megin og skipt um vegarstæði. Þetta hefir verið til mikilla bóta. Annars teppist Hálf- dán (efsti hluti heiðarinnar) mjög fljótt. Það gerir að vegur- inn er niðurgrafinn, og að öllu jöfnu má segja, að hann sé mjög ógreiðfær. Saima má segja um veginn héðan út í Selárdal. Hann ér allt- aí ófær á vetrum; mjög eríitl að ýta af honum vegna svella. Það vanta i hann ræsi á mörkum stöðum. Oft hlaupa á hann skrið- ur og snjóflóð að vetrinum. Framfíðarleiðin Við höldum áfram um vega- málin. Kristján er þeim vel kunn ugur. Hann hefir margra ára bif- reiðarstjórasiarf að baki. —• Hvað um veginn í Trastans- íjörð? — Hann má teljast sæmilegur allt í Reykjarfjörð að öðru leyti Guðbjartur Ólascin — selja bátana eða fleygja þeim. en því, að það eru tvær óbrú- aðar ár á leiðinni. Þær verða oft ófærar í rigningum og önnur um ílæði. Hún, Otradalsá, verður líka ófær vegna uppbólstra að vetrin- um. Það er sérstaklega erfitt að eiga við hana vegna mjólkurflutn- inga frá Fossi í Dufansdal. Frá Reykjar.firði í Tro.tansfjörð liggur vegur, en hann er varla fær fólksbílum og alls ekki í rigr,- ingum. Sá . kafli hefir ekkert verið lagfærður síðan hann var lagðúr, fvrr en í sumar. Þá var dálítill spotti lagfærður með jarð ýtu. Um þennan veg liggur fram- tiðarleiðin suður og norður, því hann á að tengjast Vesturlands- veginum ofanvið Trostansfjörð. Arnfirðingum leikur hugur á, að þessi vegatcnging verði íram- kvæmd, því þá styttast leiðir bæði s'uður og norður. Um leið og vegirnir mætast mun ísafjarðar- sýslunni opnast leið suður. Leiðin tipp frá Trostansfirði er talin mjög vel fallin til ruðnings með jarðýtu. Sýsluvegur er frá Trostansfirði i Langabotn. Var únnið í honum með jarðýtu inn að svokallaðri Ófæru. Þar þarf að sprengja og stöðvuðust framkvæmdir í haust. Einn Hl samanburðar — Þær vegabætur, sem hér eru gerðar fara oft fram á haustin. Ofaníburðurinn oft þveginn úr að vorinu og kemur að lillum notum. Vegagcrðin hér hefir eina ámokst- ursvél og athafnasvæðið nær yfir Rauðasand, Patreksfjörð all- an, Tálknafjörð og Arnarfjörð vestanverðan. Svo það leiðir af sjálfu sér, að eitthvað verður að sitja á hakanum. Að öllu saman- lögðu eru þetta einhverjir verstu vegir á landinu. Okkur hefir verið sagt, þegar við höfum verið að kvarta yfir vegunum, að við ættum að fara um Skógarströndina. En það er náttúrlega hart, ef ekki er nema einn vegarspotti á öllu landinu, sem kemst til samanburðar í ó- færðinni. MeS lúðrasveit og pragt Rækjuverksmiðjan er mikilvæg- ur þáttur í atvinnulííi Bílddæl- inga. Hún tók til starfa 1938. Var vígð með pompi og pragt og lúðra sveit, sem kom til Bíldudals að sunnan með Gullfossi. Verksmiðj- an er nú rekin af kaupfélaginu. Konur á Bíldudal pilla rækjuna í ákvæðisvinnu. Þær eru handa- greiðar og sumar þeirra hafa á íjórða hundrað króna daglaun meðan bændur þeirra verða að láta sár nægja tímakaup. Rækjan kemur að hafi íil að hrygna. Bezt er hún að haustinu og á veturna. .4 Bíldudal fæst hún rétt utan v:ð voginn. Þar eru tal- in beztu rækjumið landsins. Valdimar Ottósson, verksmiðju- stjóri, segir að veiðarnar hafi gengið ágætlega í haust. — Engin hætta á a'ð rækjan gangi til þurrðar, Valdimar? — Það er áreiðanlega hægt að tcrtíma henni nxeð ofveiði. Veiði- sxæðið er lítið. — Margir sem slurida þessar veiðar? — Bátarnir eru tveir og þeir mega koma með ákveðinn skammt, sem miðast við fjölda verkafólks í verksmiðjunni. Þeir fá yfir 24% af pillaðri rækju mið að við afla; það eru um 200 kíló af pil’Iaðri rækju á hvorn. Þetta er eins og að grafa gull. Hvor bátur hefir um 3200 kr. á dag og tveir menn á hvorum. 37 kon- ur og tveir til þrír karlar vinna að pillun. Sú hæsta hefir .komizt upp undir f.iögur kíló á klukku- stund, og þær fá 14 kónur og 22 aura á kílóið. Lengst er unnið að pillun frá kl. átta á morgnana til tvö eöa þrjú eftir hádegið. Og svo geturðu reiknað þeim kaupið. — Og þetta skapar — Mikið kvennaríki? Sumir tala um það. En þessi vinna hefur hjargað mörgum heimilum. Fjölbreytni En fleira er gerl í verksmiðj- unni en að pilla og sjóða niður rækju. .Þar hafa verið soðnar nið- ur alls' konar grænmetistegundir, kjöt og svið. Nýlega var byrjað að sjóða niður steikt kjöt og hefir það gefizt mjög vel. Kindahaus- Valdimar Ottósson við rækjuhreinsunarvélina.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.