Tíminn - 04.01.1959, Side 3

Tíminn - 04.01.1959, Side 3
r í MIN N, sajiaudaginn 4. .ianúar 1959. 3 Enn einu sinni er leik- konan Ingrid Bergman gengin í hjónaband. í þetta sinn er sá „hamingjusami11 leikhússtjórinn Lars Schmidt. Brúðkaupið, ;;em mjög hefir verið umrætt að undanförnu, fór íram í London og voru aðeins fimm manneskjur viðstadd ar. Sjáif hjónavigslan íór fram í ráðhúsi Lundúna- borgar, en þega)' eftir hina borgaralegu vígslu var haldið í sænsku kirkjuna við Bakers Street, en þar blessaði sænskur sjómanna prestur brúðhjónin. Það var ek'ki fyrr en frú Schmidt var farin frá Englandi — með næstum. 1Ú2 meters langa pappírsræmu hangandi á sér — og komir. til Frakklands ásamt eiginmar.ni nr. 3 að frétt in um brúðkaupið barst út. Hvenær giftist þið? Eftir vígsluna í London var haldið til flugvallarins og þar hittu þau Ingrid og Lars fj'rir aragrúa af blaðamönnum og fjósmyndurum — en enginn hafði hugmynd um að þau Væru gengin í heilagt hjóna- band! Sú spurning, sem lengst af hefir plágað þau Ingrid og Lars siðan í sumar, dundi óspart á þeim þetta kvöld: „Ilvenær giftist þið“? Senni- lega verður Ingrid aldrei spurð þessarar spurningar aftur — og þó . Svörin til blaðamannanna á Lundúnaflugvelli vo.ru á ým.sa vegu. Þegar íngrid var innt eftir því hvfcrt erincii hún hefði átt til London, svaraði hún: ,,Ég skrapp hingað tii þess að kaupa-. jólagjafir“! Lars til- kynnti, að þau færu stað úr stað til þess að koma í veg fyr- ir að fólk plágaði þau of mikið. H jónavígslan Þau Ingrid og Lars hófu brúðkaupsdaginn snemma. Fyrri hluta dags óku þau sitt í hvoru lagi ásamt nokkrum góðum vinum til Caxton Hall, sem er aðeins 200 metra frá Westminster Abbey, þar sem aðrar fráskíídar persónur, eins1 og t. d. Anthony Eden, hafa látið pússa sig saman. Þau gengu inn í Caxton Hall með nokkurra mínútna millibili en þar fór vigslan fram. Athöfnin ★ Sngrid Bergman ( giftist í | þriðja sinn jgi j 1 fór leynd | II li >a::\ „Hvenær giftist þið?“ ★ Lars kallaði lögregluna Athöfnin fram með tók ekki nema 15 mínútur. Við staddir voru auk brúðhjónanna lögfræðingur þeirra hjóna, barón Göran von Essen og Samuel Bernstein kvikmynda- framleiðandi, en hann er vinur þeirra hjóna. Schmidt-hjónin dveljast nú á sveitasetri skammt fyrir ut- an París' og njóta þar hveiti- brauðsdaganna. Þegar fregnin um brullaupið barst út, þyrpt- ist þar að slíkur fjöldi blaða- manna og Ijósmyndara, að ný- gifti-Lars varð að kalla á lög- regluna til þess að rýma stað- inn. Og nú spyrja menn hvern annan: Hversu lengi varir þetta hjónaband? ást í meinum Sonur og erfingi Lords Moyni hans, hinn 23 ára gamli Ant- hony gekk á dögunum að eiga malajafegurðardrós eina, Sherin Berrin að nafni, en hún er ættuð frá Kuala Lumpur (veit nokkur hvar það er?) Ný kvikmynd Walt Disney’s Walt Disney hefur fyrir skömmu síðan lokið við að gera enn eina kvik- mynd. N; Fn framieiðandans ætti raonar að vera trygging fyrir gæðum myndarinnar, en hún fjallar um vandamál innflytjendafiölskyidu, sem setzt hefor að í Texasfylki á meðan erjur villta vestursins stóðu sem hæst. Hér sjást þrír aðalleikaranna í hlutverkum sínum, þau Tommy Kirk, Dor- otliy McGuire og Beverly Washburn. Myndin er tekin í eðliiegum litum, og hefur hún hlotl'ð ágæta 'dórna sem og aðrar myndir Disneys. Anthony þes'si var áður kvænt- ur leikkonunni Ann Herbert, en þau skildu fyrir mánuði síð- an. Ástæðan f.vrir skilnaðinum og sömuleiðis nýafstaðinni gift ingu mun hafa verið sú, að Sherin þessi á von á barni eft- ir nokkrar vikur. Það skiptir nefnilega nokkru máli, að öll lörmsatriði séu í lagi lagalega séð, er barnið fæðist, því að annars öðlast það ekki rétt til titils föðurins og eigna eftir lát hans. Anthony og Sherin drag'a enga dul á að íöreldrar hans hafi verið mjög frábitin sam- bandi þeirra, enda fór hjóna- vígslan fram með stökustu levnd. Tilhugsunin um að verða amma hefir nú samt nyldað tilfinningar lávarðafrú- arinnar í garð tengdadóttur sinnar en hins vegar þvkir það í frásögur færandi, að Lordinn liggur nú á spítala eftir áfallið og hefir aldrei svo mikið sem litið Sherin tengdadóttur sína, enda jafnan neitað þeim heiðri. Öfugþróun Við höfum dæmi þess að leik konur verði furstafrúr ellegar prinsessur, en hins vegar eru þess færri dæmi, að þróunai'- sagan í þessum málum snúist við. Engu að síður hafa fursta- hjónin af Liehtenstein tekið til við leiklistina, og leika í mynd, sem tekin er í furstadæmina sjálfu, sem sagt er vera fagurt mjög þó fábýlt sé. Furstinn, Franz Jósep II. og eiginkona hans, Gina furstafrú, fara með allstór hlutverk í þessari kvik mynd, sem að sjálfsögðu fjall- ar um sumar og ástir eins og lög gera ráð fyrir. Fleiri fjöl- skyldumeðlimir furstafjölskyld- unnar leika einnig í þess'ari mynd. Handrit myndarinnar er gert af bandaríska rithöfund- inum og blaðamanninum Paul Gallico, en það var hann, sem gerði handritið að kvikmynd- inni Lili, sem Leslie Caron og Mel Ferrer léku í á sínum tíma og mjög var rómuð. FaSsksr se^lar Eru hinir meistaralegu föls- uðu pundsseðlar Hitlers komn- ir í umferð í London? er spurn ing, sem Scotland Yard glímir við núna eftir að lögreglunni hafa borizt allt að 100 falskir seðlar í hendur — og svar sér- fræðinga í þessum málum er já. — Við þekkjum handbragð- ið, segja sérfræðingarnir, — á sama hátt og listfræðingur get- ui' borið kennsl á málverk eft- ir Rembrandt. Ilandbragðið á þessum seðlum er frábært — jafnvel betra en á þeim dög- um, er Hitler re.vndi að eyði- leggja efnahagskerfi Englands með því að láta fölsuðum 5 punda seðlum rigna yfir land- ið. Seðlar þessir eru nýir af nálinni og er álit sérfræðing'- anna, að sá maður eða menn, sem gerðu seðlana á sínum tíma, leiki nú lausum hala og falsi fyrir sjálfa sig, en að sjálfsögðu verður ..listainaður- inn“ að hafa um sig sæg að- stoðarmanna og góða prent- smiðju. Lögreglan virðist nú einkum hafa áhuga fyrir „hverfi einu í S-London“! Vandi a$ gefa Það er áreiðanlega ekkert spaug að vera milljónamæring- ur á jólunum.. Ilvað eiga mill- jónamæringar að gefa hver öðrum? Sem sagt, þegar mill- jónamæringur gefur jólagjafir, verður hann að finna upp á einhverju sérstöku! Um þessi jól fókk bandaríski leikarinn og milljónamæring- urinn William Powell gríðar- s'tóran kassa að gjöf. en kass- inn innihélt mið af sprengju- flugvél. Gefandinn var sonur hans sem kominn er á legg, og þegar leikarinn spurði — eftir að hafa margþakkað gjöfina — hvað hann ætti að gera með sprengjumiðið, svaraði sonur- inn: „Þetta var það eina, sem ég gat verið viss um að maður á borð við þig ætti ekki.“ Það er einnig í frásögur fær andi, að franskur milljónamær- Þau nýglftu! Hér siást þau hjónin Ingrid Bergman og Lars Schimdt. II Myndin er tekin skömmu eft- ir vígsluna, og er ekki annaS I| aö sjá en bæði séu ánægS meS lífiS og tilveruna. ingur hugðist gefa konu sinni pels' í jólagjöf. Hann sá út- stillt glæsilegum pels í verzl- un einni í París og þóttist himin hafa höndum tekið. Hann fór inn í verzlunina og lét sýningarstúlku, sem þar var ganga í pelsinum fram og aft- ur en var samt ekki ánægður. „Mér fannst hann líta betur út, þegar ég sá hann í glugganum", sagði hann. „Það er vegna þess að þar sáuð þér hann innan um skreytingar og annan fatnað í glugganum“, svaraði sýningar- stúlkan. Þar með var lausn á málinu fundin. Umræddur milljóna- mæringur lét gera nákvæma eftirlíkingu af glugganum, stillti henni upp heima hjá sér og afhjúpaði síðan dýrðina fyr ir konu sinni á jólunum! Það er ekki alltaf gaman að vera milljónamæringur! Til tunglsins? Mynd þessi er af franskrl stúlku, sem skrifað hefur Eis- enhower forseta bréf og fariS þess á leit að hún verði fyrsta manneskjan, sem send verður í eldflaug tii tunglsins) Hún gat þess i bréfinu að hún hefði rétlindi til þess að fljúga einkaflugvél!

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.