Tíminn - 04.01.1959, Page 7

Tíminn - 04.01.1959, Page 7
'rÍMINX, sunnuciaginn 4. janúar 1959. SKRIFAÐ OG SKRAFAÐ r Áramótagrein Hermanns Jónassonar. - Lúðvík gugnar fyrir Einari. - Einar rekur smiðs- höggið á verkið. - Ný „hreinsunaralda“ berst til Islands. - Endalok Álþýðubandalagsins. - Stjórnarmyndun Emils Jónssonar. - „Leikni“ Álþýðuflokksins. - Blaðran, sem sérfræð- ingar Sjálfstæðisflokksins sprengdu. - Tillaga um þjóðstjóm. - Samstarf vinnustéttanna. Aramótagrein Hermanns Jónas- sonar, formanns Framsóknar- fiokksins, er birtist i Tímanum á gamlaársdag, hefur vakið mikla athygli og hlotið góða dóma. í greinínni voru rakin á hóflegan og sglöggan hátt helztu meginatriðin í sögu vinstri stjórnarinnar, er lét aí' vöidum í síðastl. mánuði. Eink- um v.ar dreginn Ijóslega fram sá ágreiningur, sem olli því, að stjónnin f-éll. Rótt þykir að rifja upp að nýju nokkur meginatriði þeirrar sögu, þar sem enn er mikiö um þessi mál rætt. Ríkisstjórnin átti frá upphafi að mæta tveimur andstöðuöflum inn- an stjámarflokkanna sjálfra, þar isem voru hægri öflin í Alþýðu- flokknum og Moskvumennirnir i Sós'íaiistaflokknum. Þessir aðilar beittu sér báðir gegn stjórninni strax í upphafi, en urðu þá undir í viðkomandi flokkum. Þeir færð- ust síðan smátt og smátt í aukana. Hægri öfl Alþýðuflokksins hófu skipulcgt samstarf við Sjálfstæðis- menn innan verklaýðshreyfingar- innar, er að verulegu leyti heind- ist gegn. ríkisstjórninni. Þetta átti sinn þátt í því, að ekki var hægt að slöðva kauphækkunarskriðuna. Moskvumennirnir í Sósíalista- flokknum höfðu í fyrstu hægar nm 'sig, og hófu ekki að ráði mót- sókn gegn ríkisstjórninni fjrrr en á síðastl. ári. Þá var það bersýni- ]ejfa tilgangur þeirra að nota efna- hagslöggjöfina til að fella stjórn- ina, og barðist Einar Olgeirsson þvi hatramLega gegn henni, en. stóð að lokurn einn uppi í þing-1 flokki Alþýðubandalagsins. Einar1 notaði þá yfirráð sín yfir Þjóðvilj- anum til að spilla fyrir ríkisstjóvn- inni og efnahagslöggjöfinni, og lét jafnframt liðsmenn sína í verká- lýðshreyfingunni skipa sér við hlið Sjálfstæðismanna og hægri manna Alþýðuftokksins í þeirri viðleitni að hækka kaupgjaldið meira en • ■ei'nahagslöggjöfin gerði ráð fyrir. J Þessi samfylking kom því til veg-i ar, að grunnkaup hækkaði yfir- leitt 6—9% umfram það, er efna- ’ hgaslögin mæltu fyrir um. Stærsti atburður ársins 1958 hér á landi var útfærsla fiskveiðilandhelginnar í 12 mílur. Þótt Bretar reyni með ofbeldi að neyða Islendinga til undanláts, mun þjóðin standa einhuga, unz fullur sigur er fenginn. LuSvík gugnar fyrir Einari Þegarkom fram á síðastl. haust', var J>að bersýnilegt, að Einar 01-1 geirsson var ákveðinn í því, að i láta mú til skarar skriða og steypa1 stjórninni úr sessi. Einar hafði nú mjög stjTkt aðstöðu sína frá síð- asll. Vosri. Hann hafði full yfirráð yfir Þjóðviljanum, réði slefnunni í verkalýöshreyfingunni og haiði fengið Brynjólf Bjarnason endur- kjörinn sem formann Sósialista- félags'Reykjavíkur. Lúðvík Jósefs- son og Hannibal Valdimarsson trevstu sér ekki til að taka upp að nýju hli'ðstæða viðureign við Einar og á síðastl. vori. Lúðvik fór •ékki dult með það, að hann myndi e3cki leggja áftur til baráttu við Einar. Einar var því orðinn, ásamt Brynjólfi, einráður um vinnubrögð Sósíalistaflokksins og hjáleigu hans, Alþýðubandalags- jns. I Dráttur á drátt ofan Þegar ríkisstjórnin hóf að ræða efnahagsmálin síðastl. haust, ikomu þessi áhrif Einars fljótt í ljós. AHir ráðherrarnir voru sam- mála um, að nýrra ráðstafana væri þörf vegna þeirra kauphækkana, er'átt höfðu sér stað umfram það, sem efnahagslögin höfðu ráðgert. Ráðherrar Alþýðúbandalagsins voru því ekki síður fylgjandi en hinir ráðherrarnir, að koma yrði i veg fyrir þá hækkun vísitölunn- ar, er átti að verða 1. des. Þ.eg- ar ráðherrar Framsóknarflokksins báru fram ákveðnar tillögur um að koma í veg fyrir þessa hækkun, voru ráðherrar Aiþýðubanda- lagsins ekki viðbúnir að taka afstöðu til þeirra né að bera fram gagntillögur. Þeir töldu sig m. a. þurfa að bíða eftir þingi Alþýðu- sambandsins. Þess var óskað, að Alþýðusambandsþing yrði kvatt sem fyrst saman, svo að' ráðrúm yrði til að ræða málin að þinginu loknu og áður cn vísitöluhækkun gengi í gildi. Það fékks ekki. Þá var óskað eftir samkomulagi um frestun á vísitöluhækkuninni um einn mánuð. Þessu var vel tekið af ráðherrum Alþýðubandalagsins, en þó því aðeins að Alþýðusambands- þing samþykkti það. Þetta var bor- ið undir þingið, en fellt þar eins og kunnugt er. Þar réru fylgis- menn Einars mesf undir. Smiíshöggií rekiS á verkift Eftir að Alþýðusambandsþingið hafði synjað um frestunina, var gildistaka vísitöluhækkunarinhar 1. des. ekki umflúin. Þetta hefði þó ekki þurft að koma í veg fyrir, að ríkisstjórnin gæti leyst málið, þótt mikið óhapp væri þegar skeð, ef strax á eftir hefði verið hægt að hefjast handa um raunhæfar aðgerðir. Slíku var hins vegar sið- ur en svo að fagna. Segja ma, að smiðshöggið hafi verið rekið á verkið, þegar Alþýðusambandsþing var látið samþykkja algerlega ó- raunhæfar tillögur um efnáhags- málin og Alþýðubandalagið gerðu þær síðan að t'illögum síntun í ríkisstjórninni. Eftir það var ljóst, að ekki gat orðið neitt samkomu- tag um þessi mál í ríkisstjórninni og lausnarbeiðni hennar var þ-ví óh.iákvæmileg. Maðurinn, sem stóð á bák við ráðherra Alþýðubandatagsins og stjórnaði þessum vinnubrögðum, var Einar Otgeirsson. Alveg sér- staklega var það hann, er réði því, að Alþýoubandalagið. setti fram hinar óraunhæfu tillögtir eftir 1. desember, en það voru þær, sern endanlega riðu stjórnarsan’istarf- inu að fullu. Af Aiþýðuftokknum er það að segja, í þessum átökum, að hann lagði lengi vel ekkert jákvætt til mála og á Alþýðttsambandsþingi stóðu flestir fulltrúar hans við hlið kommúnista. Eftir Alþýðu- sambandsþingið, settu forráða- ! menn hans hins vegar rögg í sig og lögðu fram tillögur, er hefðu getað varið stjórnina falli, ef ráð- herrar Alþýðubandalagsins hefðu þá ekki haldið fast við tillögur Einars. Baráttan gegn frá- viksstefnunni Meginástæðan til þess, að Einar Olgeirsson vann markvissf að þvi að steypa ríkisstjórninni, á sér útlendan uppruna. Það er kunn- ara en frá þurfi að segja, að und- anfarið hefur farið fram í komm- únislaflokkunum „hreinsanir" er hafa beinzt gegn hinum svoköll- uðu fráviksmönnum þ. e. þeim, sem taldir eru líklegir til að geta vikið um of frá „línunni“. Þessi hreinsun hófst í Sovétríkjunum (brottvikning Malenkoífs, Bulgan- ins o. f 1.) og Kína, færðist þaðan til leppríkjanna og síðan til komm- únistaiiokkanna vestan járntjalds- ins. Tilgangurinn með þessum „hreinsunum“ er að koma í veg fyrir, að þeir menn fái tök á kommúnistaflokkunum, er gætu átt til nteð að snúa baki við Moskvu. Einna broslegust hafa þessi átök orðið í Danmörku, þar sem aðalíoringja kommúnista- flokksins, Aksel Larsen, var vikið úr honttm fyrir að nota ekki alveg rétt orðalag um Titó! Hcr á landi skapaðist talsverð hætta fyrir kommúnista «f fráviksstefnunni, er Alþýðubandalagið var stofnað til að afstýra því fylgishruni Só- síalistaflolíksins, er þá var yfirvof- andi. Einar Olgeirsson er nú æðsti prestur Moskvu hér á landi og honum er það sérstaklega upp á lagt að gæta þess, að fráviksmenn fái ekki ofsterk tök innan Alþýðu- bandalagsins og Sósíalistaflokks- ins. Af þessum ástæðum, þarf Einar að geta sýnt húsbóndavald ■sitt í flokknum. Frá sjónarhæð hans, skapar langvarandi samstarf við umbótailokka jarðveg fyrir fráviksstefnuna og þvi er slíkt samstarf ekki æskilegt. Frá þessu sjónarmiði er stjórn- arsamstarf við íhaldsflokka áj ýmsan hátt æskilegra, enda ferj Einar ekki duft með það, að hann. viU gjarnan komast í stjórn með Ólafi Thors. Ólafur hefur líka óspart gefið Einari undir fótinnj og ýtti það ekki minnst undir þá: viðleitni Einars að steypa fyrrv. ríkisstjórn. Ólafur brást hins veg- ar Einari þegar til kom — eða kannske frestar hann því bara fram yfir kosningar eins og geng- islækkúriinni! Endalok Alþý<5u- bandalagsins Þau áhrif, sem Einar hefir nú tryggt sér, bæði innan Sósíalista- flokksins og Alþýðubandalagsins, munu m. a. hafa það í för með sér, að Alþýðubandalagið er úr sög- unni, eins og það var hugsað. Það átti að vera bandalag kommúnista og vinstri sinnaðra jafnaðarmanna. Vegna þess, hve kommúnistar stóðu höllum fæti fyrir kosning- arnar 1956, náðtt hinir vinstri sinn uðit jafnaðarmenn allmiklum ítök- um innan Alþýðttbandalagsins í f.yrstu og áhrifum þeirra var það að þakka að myndun viristri stjórn arinnar tókst. Það hefir hins vegar háð þessum möri’riuiri, að þeir hafa hvorki haft málgagn né sérstök félagssamtök. í sambandi við þetta hvort tveggja hafa þeir verið alveg komnir upp á komtn- únista. Um skeið munu þeir hafa treyst á að geta náð yfirráðum í Sósíalistaflokknum með tilstyrk Lúðvíks Jósefssonar, en þær vonir hafa alveg brugðizt síðan Lúðvík gafst' upp fyrir Einari, eins og áður er sagt frá. Þannig er því komið nú, að þessir menn eru orðnir áhrifalitlir eins og m. a. sést á því, að engin áramótagrein birtist nú eftir formann Alþýðti- bandalagsins, Hannibal Valdimars- son, eins og venja hefur verið. í raun og veru eiga hinir vinstri sinnuðu jafnaðarmenn, sem verið hafa í Alþýðubandalaginu, nú ekki nenia um tvennt að velja: segja skilið við kommúnistana eða ganga þeim enn meira á hönd. Stjórnarmyndun Emils Jónssonar kosninga. Þetta hefur samt orðið og þarf ekki að ræða það hér hvor flokkurinn er valdur að þessu, því að svo liggur það í auguni upp!. Ef litið er á mátið frá hlutlausti sjónarmiði, er erfitt að fi.nna röic fyrir þeirri afsökun Alþýðuflokk - ins, að hann hafi þurft að gera þelta vegna kjördæmamálsins. Ef: meirihluti er fyrir lausn þess máls á þessu þingi, þá er hann ekki síð- ur fyrir hendi á næsta þingi, að óbreyttri skipan Aiþingis. MeS slíkttm fresti vannst liins vegar það, að málið hefði fengið betri athugun og ef til vilt getað náðst fullt samkomulag um lausn þess. Það er því ekki kjördæmarnálið, sem hefur ráðið þessari afstöðu Alþýðuflokksins, heldttr aðrar ann arlegri ástæður. „Leikni“ Alþýftu- flokksins Hægri menn Alþýðuflokksina dreymir nú áreiðanlega um var- anlegt samstarf við Sjálfstæðis- flokkinn og þeir telja sig. fagna sigri að sinni. Sjátfstæðismenni telja hins vegar bezt að fagna hói- lega. Þeir vita enn ekki hver st'yrkur er að hinum nýju banda- mönnum.Og margir þeirra minn- ast þess líka, að þeir stóðú nýlega við hlið hægri mahna Alþýðu- flokksins í harðri kosningabaráttu í verkalýðsfélögunum, er lauk á þann veg, að bandamennirnir rufu samstarfið óvænt og upp úr þurru og sömdu við kommúnista, sem þeir höfðu áður talið fráleitt með öllu. Alþýðuflokkurinn átti einu sinni foringja, er varð frægur fyrir að tala um „leikni hinns æfðu stjórnmálamanna11. Leikni Alþýðuílokksins í að stofna banda- lög og rjúfa þau, er nú orðin svc mikil, að jafnvel Stefán Jóhani. hlýtur að vera undrandi. Það var því ekki illa til fallið, að Ríkis- útvarpið skyldi láta leika á undan áramótaræðu forsætisráðherra lag- ið: Guð mun ráða hvar við dörisum næstu jól. Blaíran, sem sprakk Oft hafa áramótagreiriar Ólaf: Thors einkennst af miklurn,.belg- ingi og stóryrðum. Áramótagreitj hans' að þesstt sinni, sló þó öl) fyrri met hans í þessum efnum. Aðaluppstaða hénnar var sú, að engin stjórn hafi skilið eins ills við í efnahagsmálunum og stjórn Hermanns Jónassonar. Eftir að Ólafur er búinn að fara mörgum og stórum orðurn um þetta, skýrir hann i örfáum setningum frá þeirri niðurstöðu sérfræðinga Sjálfstæðisflokksins, að méð 6% eftirgjöf á grunnkaupi, megi’ auð- veldlega tryggj.a áfram rekstúr at vinnuveganna, án nokkurra nýrra skattaálaga. Þetta þýðir m. ö. o„ að heí'ði ekki grunnkaupshækkun sú, sem Ólafur og samherjar ,han: börðust mest fyrir á síðast'l- sumri. komið til sögunnar, væri nú allt í stakasla lagi og engar nýjar ráð- stafanir hefði þurft að gera.' Þaö rná því með sanni segja, að blaðr- an, sem Ólafur var búinn að blása út um slæman viðskilnað ríkis- stjórnarinnar, hafi sprungið . i höndum hans og orðið honum sjálfum íil minnstrar ánægju. Frá- farandi ríkisst'jórn getur hins vég- ar unað hið bezta við umræddan vitnisburð sérfræðinga Sjálfstæðis flokksins. Stjórnannyndun Emils Jónsson- ar mun hafa komið mörgum á óvart, þvi að álit flestra var hið sama og Bragi Sigurjónsson lét uppi í Alþýðumanninum fyrir skömnvu, að veg.na bandalags þess- . . r . ara l'iokka í seinustu þingkosning- Tlllaga lim bjOOStjoni um væri erfitt fyrir hvorn þeirra sem væri að rjúfa samstarfið þannig, að annar yrði stjórnar- flokkur, en hinn stjórnarandstöðu- flokkur, án undangenginna nýrra Sú tillaga Framsóknarmanna, að reynd yrði tilraun til myndun- ar þjóðstjórnar, hel'ur vakið mikla (Framh á 8. síðu.J

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.