Tíminn - 07.01.1959, Síða 7

Tíminn - 07.01.1959, Síða 7
T í M I X N, miðvikudaginn 7. janúar 1959. 7 Kom hingað til að hitta unnustann og sjá landið sem hann hefir lofsungið — Já, mikið af! er ástin. Fyrir tæpum tveimur árum átti spaensk stúlka unnusta sinn á íslandi og eins og elskendum er títt, vildi hún styrkja þau bönd er þau bundu yfir lönd og höf, svo hún greip í það sér til af- þreyingar að þýða kennslu- bók Snæbjarnar Jónssonar í íslenzku af ensku á spænsku og lauk þvi á fimmtán dög- um_ En ekki hefir þetta ein- göngu verið dægradvöl, því nú er þessi unga stúlka kom- in í skyndiheimsókn til unn- ustans, sem öðru sinni dvel- ur á íslandi við nám, og eftir vikudvöl hér, er hún farin að skilja drjúgt í ts- lenzku og ber vel fram þær setningar sem hún fer með. En Mariasun Goicoechean hefir þá liJca fjTr litið í málfræðibók. Hún er fyrsta stúlka, sem lokið ihefir með ágætum licensiatsprófi í germönskum og enskum málvís- indum við Madrídháskóla og öðl- azl þar aðstoðarkennarastarf. Sem stendur er hún við framhaldsnám i Miinchen í Þýzkalandi, þar sem hún býr sig undir doktorspróf, og hefir hlotið ríkisstyrk til þess náms. Mariasun er hávaxin stúlka eft ir því sem gerist um spánskar stúlkur, svarthærð og dökkeygð, andlitið ávalt og brúnir sveigð- ar, svipurinn hýr og þó einbeitt- ur. Unnusti hennar er Ignacio de 3a Calle, sem nemur íslenzku og ísienzkar bókmenntir hér við há- skólann og hefir skrifað ljóðræn- ar blaðagreinar og ort kvæði um ísiand. Málvísindanám Mariasun hefir stundað málvís- indanám sitt bæði við háskóla á Spáni, í írlandi og Þýzkalandi, því hún segir að við spænska há- skóla hafi nútirriía þýzka og enska ékki aærið kenndar til magisters- prófs; fyrr en hin síðustu ár. En að loknu doktorsprófi væntir hún mikils starfssviðs í heima- Jandi sínu, m.a. þess vegna, að þar séu enn mikil gögn órannsök- uð, einkum í germönskum fræð- iim. Ekki hefir hún þó látið sér nægja að læra þessi tungumál, en hefir þar að auki lært rúss- nesku og frönsku og arabísku las hún einnig við háskólann í Madr- íd, en hann er nú talinn einn bezti háskóli í þeirri grein. Fyrir mér er hvert nýtt. tungu- mál eins og spennandi þraut, sem hrein skemmtun er að leysa, sagði Mariasun, og mér þótti það af- leitt fyrstu dagana, sem ég var hér, að geta ekki gert mig skilj- anlega, en nú er það strax farið að lagast og ég get greint orð og orð þegar hægt er talað. Hef ég fullan hug á að kynna mér islcnzku þegar fram í sækir, en sém stendur verð ég að éinbeita mér að þýzkunni. Vonast ég eftir að þeim þætti náms míns verði Jokið í októbermánuði í haust. Þekkt ætt Föðurnafn Mariasun — Goicoe- chean — er þekkt um allan Spán og víðar, því að faðir hennar, sem er járnbrautarverkfræðingur, hefir íundið upp nýja gerð hrað- lesta, sem teknar hjafa vörið í notkun víða í Bandarikjunum, Portúgal og á langleiðum á Spáni, og eru þær léstir svo frábrugðn- ar eldri gerðum, að talið er til bvltingar á því sviði. Það er kannske vegna þess hve pabba hefir orðið mikið ágengt í sinni starfsgrein, að mjár hljóp kapp í kinn við námið, sagði hún. Hann hrósaði mér aldrei fyrir það, sem ég gerði vel, en setti Frú Sigrííur Thorlacíus ræíir vií spánska málvísindakonu, Mariasun Goicoechean, en unnusti hennar stundar nám vií háskólann í íslenzkum fræíum Mariasun Goicoechean og ignacio de la Calle. nnskunnarlaust út á allt, sem ekki var fullkomið. Ég held að! það hafi vakið hjá mér löngun | til að sýná honum, að ég gæti líka komizt nokkuð áleiðis með það. sem ég tæki mér fyrir hendur. Geta þeir, sem komast að há- skólum á Spáni sem aðstoðarkenn arar verið nokkurn veginn vissir um, að fá fullgild kennaraembætti þegar fram líða stundir? Nei, til þess aö verða fullgild- ur háskólakennari verður að ganga undir samkeppnispróf og þegar fleiri keppa um sama kenn arastól, veit maður aldrei fyrir fram hve mófumsækjendurnir eru vel að sér. Þessi samkeppnis- próf eru raunverulega þyngsta prófraun, sem til er. — Er það ekki rétt, að faðir yðar sé Baski að uppruna? — Jú, og þótt ég sé að mestu alin upp i Madrid, þá tel ég mig líka Baska. Ekki kann ég þó lengur tungu Blaskanna, — að- eins nokkur kvæði, — en sem barn talaði ég það mál. Faðir minn aftur á móti talar það reip- rennandi. Mál baska — Er nokkuð vitað ura uppruna þeirrar tungu? — Allar staðhæfingar um það eru byggðar á ágizktinum, menn segja, að rekja megi málið til íberanna, sem voru frumbyggjar á norðurströn'd Spánar, en ekkert er vitað um það með vissu og þótt mörg indógermönsk orð séu í málinu, veit enginn hvort þau eru tökuorð eða af hinum upp- runalega stofni. — Það er einkennilegt að þessi tunga skuli hafa haldið velli þarna á Norður-Spáni. Hvaða rök ætli að liggi til þess. | — Baskahéruðin hafa alltaf, að ! vissu leyti, verið einangruð og nú 'er vakin alda tíl verndunar mál- inu. Um tíma vildi unga fólkið í Baskahéruðunum ekki tala ann- að en spönsku, — vildu ekki ! skera sig úr — og það af því, ; sem fluttist til borganna hætti að tala annað. En nú er þetta sama fólk farið að eignast börn og þá vill það endilega verða sér úti um barnfóstrur, sem kennt gela börnunum baskamálið. Háskólanám kvenna — Er það ekki enn heldur fá- títt að konur stundi háskólanám . ú Spáni? — Þeim fjölgar óðum, en ennþá er sá hugsunarháttur algengur, að fjölskyldurnar eru ekkert hrifn- ar af því að ungu stúlkurnar leiti mikið út fyrir heimilin. í gam- alli vísu segir, að sú kona skuli lofuð, sem brjóti fætur sína inn- an veggja heimilisins og sá hugs- unarháttur er enn ekki úr sög- unni. Foreldrar kunna ilia þeirri nýbreytni, að stúlkur fái mcnnt- un, sem vekur þær til þess að skapa sér sjálfstæðar skoðanir, sem, kunna að vera í andstöðu við skoðanir foreldranna. Algengas't er enn, að stúlkur á Spáni, sem sækja háskóla, stundi heimspeki- nám og bókmenntir og þá ekki fyrst og fremst með það fyrir augum að skapa sér möguleika til sjálfstæðra starfa að námi loknu. En fleiri og fleiri eru teknar að stunda læknisfra;ði, lyfjafræði og t efnafræði og núna veit óg t.d. af einni stúlku frá Barcelóna, sem fengið hcfir ríkisstyrk til að stunda framhaldsnám í Sviss og fæst hún þar við hormónarann- sóknir. Já, þeim stúlkum fjölgar óðum, seín. ekki hugsa eingöngu ujn, hvernig þær eigi að klæða sig og snvrta þegar þsér eru komnar í háskóla, heldúr leggja alúð við námsgreinárnar, sem þær velja sér. Sem stendur er ein kona háskólakennari í Madrid og mér finnst að í hópi kennaranna, sé þar raunverulega minni and- staða gegn því. að konur komizt í slíkar stöður, heldur cn meðal háskólakénnafa í Þýzkalandi. Ekki sézt í ár — Ferðin til íslands. hefir vís't ekki fyrst og fremst. verið ráðin af málfræðiáhuga — var það? — Nei, við Ignacio höfðum ekki sézt í meira en ár, svo mér fannst ágætt að nota jólaleyfið til þess að gera hvort tveggja í einu, hitta hann og sjá þetta land, sem hann hefir iofsungið svo ákaft síðan hann var hér við nám vet- urinn 1956—57. ■— Hverjar eru framtíðaráætl- anir ykkar? — Að giftas't þegár við höfum bæði lokið námi. Siðan vona ég að geta fengizt í senn við vísinda störf og þýðingar. Ennþá hafa fá ar spænskar konur lagt fyrir sig þýðendastörf að nokkru ráði. Að. vísu er ég dálítið kvíðin að rit- leikni mín hrökkvi ekki til, en vonándi get ég þá lært af Ignacio. Hann getur ekki hugsað sér aðra vinnu en ritstörf og ljóðagerð — hann hefir skáldgáfuna. Hún rennir dökkum augunum til unnustans, sem s'itur hjá henni og mér er ekki grunlaust að hon- um fari þá eins og piltinum í kvæðinu eftir Jiménez: Me dijo seria: Tú quiéres que te quiera? Y la manana de luz me traspasó. (Hún sagði alvarlega: Viltu ég elski þig? Og morgunljómann Iagði gegnum mig.) Sigríður Thorlacíus. Hverju atti brosið að leyna? Þegar Morguublaðið skýrði frá ] tillögum þeim í málefnum þjóðar- innar, er Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að beita sér fyrir, ef honum hefði tekizt að mynda ríkisstjórn þá birti blaðið mynd af aðalfor- ingjum Sjálfstæðisfl., cr tekin var á fundi, er foringjarnir skýrðu til- lögur sínar fyrir flokksráðinu. Þeir Ólafur og Bjarni eru þar í meira legi broslegir, svo ætla mætti, að þeir hafi verið ánægðir með það hlutverk sitt að skýra það 'sem þeir höfðu fram að færa til úrlausnar í málefnum þjóðarinnar, og þarf nokkrum að undra það? Var það ekki ánægjulegt fyrir foringja Sjálfstæðisfl., mennina, sem börðust á móti efnahagslög- gjöf ríkisstjórnar Hermanns Jónas- sonar :s.l. vor, og töldu þá, að hún stefndi málefnum þjóðarinnar í voða, að skýra nú frá því, að á þessari löggjöf mætti nú byggja heilbrigt efnahagslíf, og frekari að gerða væri ekki þörf. ef fært væri til baka það, sem oftekið var, og miðað á ný við það, sem ríkisstjórn in og stuðningslið hennar sögðu þjóðinni, að atvinnuvegirnir þyldu að greiða? Eða höfðu þeir Sjálf- stæðisforingjarnir ekki ástæðu til að vera broslegir þegar þeir skýrðu liðsmönnum sinum frá því, að kaup hækkiinum þeim, sem þeir hefðu beint. og óbeint unnið að, að knýja fram í sumar, yrði þjóðin nú að skila aftur, vegna þess að hún hefir um efni fram, ef hún notar þetta fjármagn ,og á það beinlínis á hættu að í staðinn fyrir örugga at vinnu og velmegun komi atvinnu- leysi og örbyrgð? Hefur það ekki verið ánægjulegt að geta bætt því við, að þetta hafi þeim verið ljóst, þrátt fyrir það, sem gert var. — Þá var það ekki lítið gleðiefni fyrir foringjana að skýra frá því, sem sinni stefnu, að leggja beri á það ríka áherzlu, að hafa samráð og samstarf á milli rikisvalds og sam- taka launþega og atvinnuveilenda til lausnar vandamála þjóðarinnar. Og þetta voru mennirnir, sem fordæmt hafa þau vinnubrögð hjá ríkisistjórn Hermanns Jónassonar] og töldu þau stefna valdi og virð- ■ ingu Alþingis í beinan voða. Ekki er að undra þótt ljómi af ásjónu foringjanna þegar þeir skýrðu þennan kafla í sinni stefnu. Hvað þá þegar mennirnir, sem bönnuðu Pétri Ottesen og Sigurði Bjarna- j syni þátttöku í Rússlandsferðinni j s.l. sumar, vegna þess að það var ekki samboðið virðingu þeirra að koma nálægt slíku fólki, skýrðu nú frá því að þeir hefðu myndað ríkisstjórn með Rússlandsvinum kommúnista, ef þeh-ra sameigin- legu skemmdarverk hefðu ekki staðið þar í vegi. j Var það ekki líka ánægjulegt, fyrir foringjann, sem lagði til fyrir nokkru, að hér á landi yrðu ein- göngu einmenningskjördæmi, að skýra nú frá því sem sínu máli, að upp yrðu tekin fá, stór kjör- dæmi með hhttfallskosningum, og að málinu átti að hraða svo, að gengið yrði frá því við stjórnar- samning, svo að það fólk, er fól þingmönnum Sjálfstæðisfíokksins umboð sitt við síðustu Alþingis- kosningar komi engttm vörnum við þó verið væri að gerbreyla grund- vallaratriðum í stjórnskipan lands- ins með því að leggja niður öll kjördæmi utan Reykjavíkur og þar með að fella niður áhrifavald lands byggðarinnar. Nei, foringjum Sjálfstæðisflokks ins var ekki gleði í hug. Þeir gerðu játningu sina á flokksráðsfundun- um, enda var hún ekki gleðigjafi. En hvers vegna brostu þeir þá? Vegna þess, að brosið átti að leyna þeirri beisku játningu, sem þeir voru að gera. Mennirnir, sem jafnan hafa vilj- að telja sig alveg sérstaklega þjóð holla, standa nú samkvæmt sinni fFramh á 8. síðu » Á víðavangi SjálfstæSisflokkurinn og fjárlögin Eins og kunmigt er, liafa ÍSjálf stæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn nú tekið hönduin sain an um afgreiðslu fjárlaiga fyrir næsta ár. Á undanförnum jþing- urn liafa Sjálfstæðismenn hald- ið uppi hörðum árásum á fjár- málaraðherra fyrir oflág fram- lög til verklegra framkvæmda víða um land. Jafnframt hafa þeir keppzt við að flytja marg- víslegar hækkunartillögur. Þaffi verður því ekki ófróðlegt að sjá hvernig Sjálfstæðismenn halda á þessum máluin, þegar þeir bera orðið sjálfir ábyrgðina. Það æt'.i a. m. k. ekki að þurfa að óttasi. það að framlög til vérklegra fr-amkvæmda berði lækkuð. Þá liafa Sjálfstæðisménn talaffi borginmannlega um, að auðvelt sé að draga úr ýmsri eyðslu rík- isins. Þeir hafa þó aldrei flutt tillögur í samræmi við þessár fullyrðingar. Vonandi koma þær nú í dagsljósið. Sjálfsfæðisflokkurinn og erlendu lánin Blöð Sjálfstæðisflokksins hafa mjög deilt á fyrrv. ríkisstjórn fyr ir ofmiklar lántökur erlendis. Þ6 hafa þau aldrei bent á, hvaða framkvæmdum ætti að sleppa, er lánsféð hefur runnið til. En þrátt fyrir það, liafa þau þó talið lán- in hina mestu óhæfu og gilti einu, hvort þau væru ickin vest- an járntjalds eða austan. ;Ef láu in væru tekin austan tjahls, væri verið að binda þjóðina á klafa Rússa. Ef lánin væru tekin vest- an tjalds, væri þjóðin að þiggja ósæmilegt mútufé vegna herset- unnar á Keflavíkurflugvélli. Menn ættu því ekki að þurfa að óttast það, að erlendu skuld- irnar verði auknar í tíð hinnar nýju samstjórnar Sjálfstæðis- fiokksins og Alþýðuflokksins. Áróður og athafnir Það verður áreiðanlegá í sam- bandi við fleira en vérklegar framkvæmdir og erlendu lánin, sem mönnunr leikur hugur á aí sjá hvernig Sjálfstæðisflokkur- inn hagar vinnubrögðum sínuin eftir að hann er komjnn í stjórn araðstöðu. Nú mun gefast tæki- færi til að sjá á mörgum svið- um, hvert samræmi "ér milii á- róðurs Sjálfstæðisfjokksins og verka. Hin nýja ríkisstjórn er affi því leyti gagnleg, að hún gefur landsfólkinu kost á að sjá, hve mikil alvara hefur falizt í áróðri Sjálfstæðisfiokksins meðan liann var í stjórnarandstöðu. Aðeins til bráðabirgða Ekki fer hjá því, að menn vciti því athygli, að Mbl. keppist nú mjög við að stimpla «11, verk hinnar nýju ríkisstjórnar Sjálí stæðisflokksins og Alþýðuflokks ins senv bráðabirgðaráðstafanir. Eftir kosningar eigi að gcra allt aðrar og varaniegri ráðstafanir. Ilversvegna má ekki gera þessai varanlegu ráðstafanir xtrax? Hvaða ástæða er að draiga þær? Hvers vegna þarf að vcra að fara með þessi varanlegu úrræði eins og pukursmál? Og hversvégna þarf endilega að láta fara fram kosningar áður en þau crú gerí opinber? Það er vissulega ástæðá tii þess, að almenningur reýni affi kryfja allt þetta „bráðabirgða“ skraf Mbl. til mergjar. Leitað eftir harmonikuleikara Mönnum er það minnisstætt, að fyrir kosningarnar 1946 drógu Sjálfstæðismenn sýslumanninn í Suður-Þingeyjarsýslu til baka sem frambjóðanda sinn þar og buðu fram harmoníkuleikara í staðinn. Nú er sagt, að Sjáll’- stæðisfiokkurinn sé farinn affi. leita eftir harmoníkuleikara tii framboðs á Siglufirði í stað bæj- i arfógetans þar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.