Tíminn - 25.01.1959, Qupperneq 6

Tíminn - 25.01.1959, Qupperneq 6
6 TÍMINN, sunnudacínn 25 .ianúar 1959. Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur f Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn; Auglýsingasfmi 19 523. - Afgreiðslan 1232S Prentsm. Edda hf. Síml eftir kl. 18: 13948 Einar og Bjarni UNDANFARNA daga hafa staöið' yfir í neðri deild Al- þSngís umræður um hið nýja vísitölufrumvarp ríkis stjórnarinnar. Eins og frá hefir verið skýrt hér i blað- inu, þá er meginefni þessa frv. það, að fella niður 10 vísitölustig' og skal greiða verðlagsuppbót á laun og all ar aðrar greiðslur, er fylgja kaupgreiösluvisitölu, samkv. vísitölu 175, frá 1. febrúar n.k. áð telja. Fróðleikur eigi alllítill er í því fóiginn fyrir menn, að fylgjast með þessum umræð- um. Þar fá þeir að kynnast viöhorfum stjórnmálaflokk- anna til úrbóta á því verð- bólguböli, sem þjakað hefur efnahagslíf þjóðarinnar í hartnær tvo áratugi. Þetta mái snertir hvert mannsbarn i landinu. Fyrir því ætti eng inn að láta undir höfuð leggj ast, að lesa og lesa vel ræður þeirra stjórnmálamanna, sem þarna leiða saamn hesta sína, en þær munu að megin efni birtast í blöðunum þessa daga. VART mun hjá því fara, að tvær ræður, sem fluttar hafa verið við þessar um xæður, vekji á visso-n hátt mesta athygli. Eru það ræður þeirra Einars Oigeirssonar og Bjarna Bene diktssonar, sem raunar hefir nú talaö oftar en einu sinni. Ekki eru þær þó öðrum ræð- um athyglisverðari fyrir þær sakir, að ræðumennirnir tali um vandamálin af tiltakan- legri víðsýni og skynsemi né að í þeim komi fram vitur- legri úrræði en hjá öðrum. Því er einmitt alveg öfugt farið. Ræða Einar var óralöng og jafnvel óvenjulega þunn. Það þarf líka meira en tungulip- urð til þess að verja þá af- stöðu, sem hann hefir tekið. Fyrrverandi ríkisstjórn var fagnað af öllum frjálslynd- um mönnum í landinu. Einar var henni öndverður þegar í upphafi. Og þessi sauð- tryggi þjónustumaður svart- asta íhaldsins I landinu lét ekki staðar numið um iðju sína fyrr en yfir lauk og rík- ásstjórn Hermanns Jónasson- ar hlaut að biðajst lausnar. MEGIN úrræði Einars Olgeirssonar tii lausnar á efnahagsvandainálunum, er að draga stórlega úr fram- lögum til verklegra fram- kvæmda einkum út um land. Látum það gott heita. Það er svo sem sjónarmið út af fyrir sig, þótt fáir fullvita menn láti sér til hugar koma að efnahagsmálin yrðu auð- leystari við það, að fólks- flóttinn utan af landsbyggð- inni og til Faxaflóasvæðis- ins og þá einkum til Reykja- víkur hæfist á nýjan leik, en einmitt stöðvun þess straums er ekki ómerkasta afrek fyrrverandi ríkisstjórn ar. Það er alls ekki einskis virði, að Einar skuli opin- | bera þetta viðhorf sitt en j hætt er við, að frambjóð- I endur kommúnista út um ; land við væntanlegar Alþing j iskosningar í vor, verði ekki ; alveg sammála Einari, ef að vanda lætur. Eftirtekt munu þau um- mæli Einars einnig vekja, að gjalda þurfi sérstakan var- huga við áframhaldandi framþróun landbúnaðarfram leiðslunnar. Þar gæti nú mjög geygvænlegrar offram- leiðslu. Þvílík kenning er fár ánleg. íslenzku þjóðinni fer ört fjölgandi. Engar líkur eru til annars en að tiltölulega lítill hluti þeirrar fjölgunar iiverfi að landbúnaðarstörf- um. Innan fárra ára getum við allt eins vel staðiö and- spænis þeim vanda, að land- búnaöarframleiðslan sé frem ur van en of. Skoðun Einars ber því bæði vott um skamm- sýni og þess konar hugarfar til framieiöslunnar, sem að ekki er til neinnar fyrirmynd ar. SVO AUM, sem frammi- staða Einars var, tók þó fyrst steininn úr þegar Bjarni Ben ediktsson fór að úthella sín- um visdómi. Enginn maður hefir, á undanförnum árum, gagnrýnt pólitíska andstæð- inga sína af meiri frekju, yfirlæti og óbilgirni en hann. Verður ekki annaö ráðið af ræðum og ritum þessa „prúö mennis“ en þeir séu yfirleitt upp til hópa htilfjörlegir svikahrappar og þjóðhættu- legir misindismenn. j Þegar Bjarni ræðir um fyrrverandi rikisstjórn þá hefir hann engar sveiflur á því en afgreiðir allar henn- ar aðgerðir stutt og laggott með einu orði: SVIK. Hún hafi lofað' öllu fögru en allar hennar aðgerðir hafi snúist til ills og bölvunar og reynst tóm svik. Látum það gott heita, að fyrrv. ríkisstjórn hafi mistekist sumt það, sem hún vildi gera. Tæplega mun sú ríkisstjórn nokkru sinni hafa verið til, sem tekist hef ir aö framkvæma allt, sem hún ætlaöi sér í upphafi og á þann eina hátt, sem hún helzt vildi. En hvert er pund Bjarna sjálfs í því sambandi? Jú, hann hefir álpað flokki sínum út í það ævintýri, að gerast illvigur kaupkröfu- flokkur í því skyni einu, að bregða fæti fyrir rikisstjórn, sem hann óttaðist og öfund- aði. Og Bjami kom sínu fram. Og af því hefir hann nú áhyggjur þungar. Honum er orðið ljóst, að með aðför- um sínum hefir hann gert Sjálfstæðisflokkinn að póli- tísku skrípi. Þegar Bjarni var búin að tefla flokki sín- um í þá aðstöðu, aö hann varð að birta einhver „úr- ræði“ þá fundust engin önn- ur en þau, að menn yrðu að borga til baka þá aura, sem Bjarni sagði mönnum að heimta í sumar. Allt þetta Er þrautskipuiagt, vísindalegt ein- ræði stjórnskipulag framtíðarinnar? Hinn kunni brezki rithöf- undur, Aidous Huxley, hefir gefið út nýja bók, Brave New World Revisited, sem er eins konar framhald hinn ar þekkíu framtíðarskáld- sögu hans frá 1932, Brave New World. í þessari bók staðhæfir Huxley, að margt það, er hann spáði 1932, sé nú orðið að veruleika og sé líklegt til að rætast i enn rík ari mæli í náinni framfíð. Hér verður sagt nokkru nán ar frá þessari nýiu bók hans. Tvær frægustu framtíðarskáld- sögur á síðasta aldarfjórðungi cru bækur Aldous Huxley, Bravc New World, og George Orwells, 1984. Að vísu vir'ðist mikið djúp stað- íest milli þeirra mvnda, er þessi verk draga upp af framtíðinni, — en það er aðeins á yfirborði. Bók Iluxleys er bæði fullgild háðssaga og útópía, hann hefir lýst framtíð- inni á grundvelli fordisma og kommúnisma samtíðarmnar. í hinu þægilega, vélvædda samfélagi hans árið 632 eftir fæðingu Fords koma börnin í þennan heim í flöskunt og örlög þeirra eru fyrir- fram ráðin, hvort þau verða alfa- plús leiðtogar, beta-verkfræðingar eða epsilon iyftustjórar, fólk eðlar sig af hjartans lvst og hættulaust, dauðinn hefir misst brodd sinn og nautnir eins og sóma og tilfinn- inga-kvikmyndahús standa öllum til boða. Framtíðarmynd Huxleys er mótmæli einstaklingshyggju- manns við samlíðinni, hinum „nýja, fagra heimi“ er lýst sem martröð. Framtíðarsýn Orwells er miklu uggvænlegri, bók hans er full af ógn, enda byggð á samtíð, þar sem stalínisminn stóð í blóma og fortíð þar sem nazisminn hafði ráðið ríkjum. Það er því engin furða, að framtíðarlýsing hans, byggð á þessum rökum, skyldi verða ógnvekjandi. En eitt megin- atriði eiga bækurnar sameiginlegt: þær lýsa báðar einræði, Huxley lýsir vísindalegu og tæknilegu einræði, Orwoll pólitískri ógnar- stjórn. Uggvænleg fólksfjölgun Hvor þeirra reynist hafa rétt fyrir sér? Enginn getur spáð um framtíðina með fullri vissu, og möguleikinn á kjarnorkustríði ger ir alla spádóma fáfengilega. En eigi að lala um nokkra framtið, hlýlur maður að gera ráð fyrir því að ekki komi til slíkrar styrj- aldar. Og það gerir Aldous Hux- ley í hinni nýju bók sinni Brave New World Revisited, bók um ástand mála í dag og þá útsýn, er opnast til framtíðarinnar. Það eru ekki bjartar horfur. Þróunin hefir orðið miklu örari en Iluxley gat séð fyrir, þegar hann skrifaði bók sína fyrir 27 ár- um. Spádómar hans hafa orðið að veruleika miklu fvrr en hann hugði. Sú martröð allsherjar skipu iagningar er hann gerði ráð fyrir á sjöundu öld eftir Ford blasir nú við okkur á næsta leiti. Skammur tími cr til stefnu þar til allt þetta verður að veruleika, ef ekkert er varð hann að viðurkenna í þeim umræðum sem staðið hafa yfir nú undanfarið. Ekki að furða þótt aðalrit- stjórinn væri framlágur orð inn á föstudagskvöldið. Kannski munar Bjarna ekkert um það að renna nið- ur tveimur og hálfum ár- gangi af Mbl. auk alls ann- ars. En er ekki athugandi fyr ir Sjálfstæðis.fl. hvort hann munar ekki óþægilega um það, að hlýta til lengdar svona leiðsögumanni? Áldous Huxley ví þróun heímsinála ALÐOUS HUXLEY — fagri, nýi heimur gert lil að vernda mannlegt frelsi. Ein s'ú hætta, er að steðjar, er sívaxandi íbúafjöldi jarðarinnar. Huxley sýnir með þurrum tölum fram á hve ör fólksfjölgunin hefir orðið á okkar dögum og verður næstu 50 árin. í upphafi tímatals okkar voru íbúar jarðar um 250 nulljónir, ekki helmingur af íbú- um Kjna í dag. 16 öldum síðar, þegar pílagrímafeðurnir lentu í Ameríku, var íbúatalan orðin Jið- lega 500 milljónir. Þegar sjálfstæð isyfirlýsing Bandaríkjanna var undirskrifuð, var hún orðin meira en 700 milljónir. 1931 voru íbúar jarðarinnar tæplega tveir milljarð- ar. Síðan hefir dánartalan enn lækkað, en erfitt er að koma í kring raunverulegum takmörkun- wn á fæðingum, einkum þó þar sem slíkra ráðstafana er mest þörf. Af þessu leiðir, að íbúum jarðar- innar fjölgar um á að gizka 43 rr.illjónir árlega og tala þeirra tvö- faldast á tæpumi 50 árum. Sömu- leiðis er fullvíst, að hin vanþró- uðu lönd, þar sem íólksfjöldi' er mestur, munu innan skamms kom ast undir einræðisstjórn, að öllum likindum stjórn kommúnisla. Þetta hlýtur að fá afleiðingar f.vr- ■lr Vesturveldin, sem komast ekki hjá að auka enn varnai'ráðstafan- ir sjnar. Og allir vita, að frelsið á ekki auðvelt uppdráttar í alher- væddu landi. Slíkt ástand leiðir af sér stöðugt eftirlit með öllu og öllum. Jafnframt hafa hinar mikiu tækniframfarir í för með sér sí- aukna fjöldaframleiðslu og fjölda- dreifingu, og efnahagsvaklið saín- ast því á hendur æ færri aðila. Afleiðing allrar þessarar skipu- lagningar verður aftur að hlut- verk einstaklingsins fcr minnk- andi. Trúnaður hans við vinnu- veitanda sinn verður meginatriði. „Fagri, nýi heimur“ Hitler sýndi fram á hvers megn- ugur áróðurinn er í einræðisríki. í einum kafla bókar sinnar gerir Huxley athyglisverðan samanburð á aðferðum einræðisherrans og nú tíma auglýsingatækni. Meginregl- ur auglýsingaáróðurs eru mjög einfaldar: Einhver sammannleg löngun eða ótti er fundinn, íundin aðferð til að tengja saman þessa löngun eða ótta og þá framleiðslu sem ætlunin er að selja, síðan byggð brú tákna sem viðskiplavin- urinn getur fetað sig eftir frá stað reyndum til óskhyggju og þaðan til þeirrar ímyndunar að varan sem auglýst er geti gert óskir hans að veruleik. Útvarp og sjón- varp eru orðin öflug vopn í aug- lýsingatækni. Áhrif þeirra eru einkum mikil á börn sem heyra rar viuS háskalegri öfug- í sííustu bók sinni hin síenduriéknu auglýsingaslag- orð dag eftir dag og bregðast að lokum við þeim eins og þjálfaðir hermenn við skipunum. Ekki eru hin pólitísku áhrif sjónvarps sjð- ur viðs.iárverð, t. d. við kosningar. Frambjóðendur eru auglýstir fyrir kjósendum e:ns og hver önnur vara, og áðar en langt um líður er orðið úíilokað að almenningur fái að vita s nnleikann um nokk- urn skapaðan hlut. En váleg'jst óg'nun við frelsi einstaklinganna eru þó hiriar nýju aðferðir og eínasambönd til að breyta og móta allan hugsunar- hátt og liísviðhorf mannanna. Heilaþvoltnr er staðreynd og hef- rr mjög verið iðkaður i Kína, bæði við slríðsfanga og við upp- eldi flokksíoringja, sem á þennan hátt eru gerð?r að ofstækisíullum velmennum. Töframeðalið soma, sem í Brave New V/orld veitti gleymsku oc hamingju án þess að nokkrir timburmenn fylgdu í kjöl- farið á hliðstiæður sínar í ly.fjum eins og reserpin, ineprobamate eða LSD-24. Þessi eíni geta orðið óhugnanlegt vopn ; höndum ein- ræðisstjórnar Önnur aðferð, sem getur orðið háskaleg, er hin svo- kallaða „subliminal projection": á sjónvarpsskermi eru sýnd orð eða ír.yndir svo hrat.t að auga eða eyru fylgja því ekki, en myndirnar hafa engu að síður áhrif á undirmeðvit undina, og geta þannig haft áhrif á hugsanir. tilfinningar og verk fólks. Þessi aðferð hefir þegar ver ið reynd i aiiglýsingatækni með góðum árangri. Það, sem Huxley kallai- hypno- daea í skáidsögunni, kennsla barna með því'að útvarpa yfir þau sofandi sömu setningunum og siagorðunum aftur og' aftur hefir sömuleiðis verið reynl mcð góðum árangri. Það er auðvelt að sjá hverjum árangri alrátt ríkisvald fær með þesstim hætti. Vísindaiegt eínræði Hvernig má ala æskuna upp til frelsis, hvernig verja sjálfstæði einstaklingsins fyrir þeim öflum er reyna að imdiroka það? Huxley hefur engin sérstök lausnarorð á reiðum höndiim, en hann harmar að hvergi í heimi sé börnum kennt á skiplegan hátt að greina á milli sannra og ioginna, skynsamlegra og fjarsíæðra fullyrðinga. Hann leggur til að þeim verði, innrætt gagnrýnt viohorf við áróðri þannig að þau festi ekki umsvifalaust trú á hreinum fjarstæðum. Auk þess verða þau að iæra að skilja gildi persónulegs frelsis, ástar og skyn semi, en án hennar er ást magn- iaus og freisi óhöndlanlegt. En ef fóiksíjölgunin og yfir- skipulagningin fær að halda ó- hindrað áfram er hætta á að lýð- ræðislönd eigi eftir að lifa þróun, öfuga við þá sem gerði Bretland að lýðræðisriki þólt öllum ytri ein kennum konungsveldis væri 'hald- ið. Það er þetta, sem er að gerast í alþýðulýðvehhinum. Öll ihin ytri form varðveitast, kosningar, þing hæstiréttur, öil hin gamalkunnu nöfn og slagorð verða óbreytt, ___ en aðeins sem gríma einræðis. Og að öðru leyti munu ríkjandi stjórn málamenn og þrautjijálfað lið þeirra, hermenn, lögregla, ihugs- anaframleiðendur og heilastjórar ráða því er þeim sýnist. Á síð ustu síðu bókar sinnar fullyrðir Huxley: „Engin ástæða virðist til þess að fullkomnu, vísindalegu einræði verði nokkru sinnisteypt.“ Óvinir frelsisins eru undirförul ir, erfitt að fá í'angstað á þeim og fieiri en menn halda. Huxley var ar röggsamlega við þessum fjehd- um í siðustu toók sinni.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.