Tíminn - 04.02.1959, Blaðsíða 7

Tíminn - 04.02.1959, Blaðsíða 7
r IM I N N, niiðvikudagiim 4. febrúar 1959. 2 ÞORMÓÐUR EYÓLFSSON í dag, 4. febr., er til moldar borinn Þormóður Eyólfsson á Siglufirði, fyrrum forseti bæjar- istjórnar þar og forystumaður Sigl- íirðinga á fjölmörgum sviðum. Með ihonum er t'il moldar hniginn enn einn af þeirri kynslóð, sem ■var í þann veginn að ná fullum þroík-a um aldamótin, en eftir þá 'kynslóð liggur meira umbótastarf, Jíeldur en nokkra' aðra, allt frá upphafi íslandsbyggðar til þessa dags. Var Þormóður sannur full- trúi 'Sinnar kynslóðar Þormóður Eyólfsson var fædd- ur 15. apríl 1882 að Mælifellsá í Skagafirði, sonur Eyjólfs Einars- sonar bónda og konu hans Mar- grétar Þormóðsdóttur. Ungur missti hann foreldra sína og flutt- ist þá að Undirfelli í Vatnsdal til séra Hjörleifs Einarssonar, en iseinni kona hans var náfrænka Þormóðs. Þormóður unni söng og var söngvinn. Mun hann þegar í æsku :hafa numið söng og hljóð- færaislátt. Hann gekk ungur í Gagnfræðaskólann í Flensborg og 3auk þaðan prófi vorið 1902, tví- lugur að aldri. Eftirtektarvert er það, að námsveturna i Flensborg- ai'skóla var hann jafnframt söng- ’kennari skólans. Mun slíkt sjald- gæft og má segja, að krókurinn bey.gðtst þar snemma að því sem verða átti, því mikið vann Þor- móður síðar á ævinni. fyrir söng- menntina og mörgum kenndi hann söng. Eftir gagnfræðanómið. settist Þormóður í kennarabekk Flens- borgars'kólans og tók kennai'apróf vorið 1904. Síðar gekk hann svo í Verzlunarskóia íslands og lagði þar gr«ndvöllinn að öðrum megin þættinum í lífsstarfi sínu, sem var viðskipti og ýmiss konar forganga í atvLnnumálum. Ártð 1911 giftist Þormóður Guð- i'únu Björnsdóttui' ’alþingismanns á Kornsá í Valnsdal, hinni ágæt- iistu konu, sem jafnan stóð við hlið háns og vair stoð hans og .styrkur i blíðu og ekki siður í stríðu og mi síða-st í langvinnum veikindum háns. Þessi ungu hjón Þormóöur og Guðrún reistu bú íitt á Siglufirði og þar var siðan stai'fssvið þeirra. Ég þekkti ekkert til Siglufjai'ðar á þeim árum,' en heyrði þó ýmis- legt þaðan. Sagt. var að þar væri hálf-norskt síldáxþörp og menning öll á fremur lágu stigi. Ég kom þar svo 13 ártim eftir að þau lijón setlust þar að og sá þá að þarna var 'myndai'legur bær og myndar- legir íbúar og menningarbragur á mörgu. Sjálfsagt hafa lýsixigar þær, sem ég áður heyrði af Siglufirði og lífinu þar, Verið ýktar, en víst er þó. að á næstu árum á undan höfðu orðið miklar framfarir, bæði i verktegum og menningarlegum efnum. Ekki nntmi þá aðrir hafa verið áhrifameiri í bæjarlífinu en þau hjón, hvort á sínu sviði, og er alveg víst að þau áttu sinn mikla þált í þeim framförum, sem orðið höfðu. Eftir þetta var ég um mörg ár nákunnugur. starfi Þormóðs, og þeirna <hjóna beggja, í þágu Siglu- fjarðai'kaupstaðar ag vegna þeirra kynna fullýrði ég, að bærinn á þeim rnikið að þakka, rneira en flestum öðrum. Á Siglufirði fékks Þormóður Eyólfsson við margs konar störf. Hann rak þar um tírna síldar- verkun og sölu þeirrar vöru, var .afgreiðslumaður Eimskipafélags fs- lands frá 1924 og umboðsmaður ýmissa tryggingarfélaga, norskur konsúll var hann éinnig. Opinber störf hlóðust og á hann, þannig var hann lengi í bæjarstjórn og forsétl hennar um tíma, átti sæti í ýmsum nefndum bæjarfélagsins o. s. frv. Tvennt er þó óíalið af störfum Þormóðs, sem voru hon- nm hjartans mál og tókii hug hans meira en flest annað. Annað var stárf hans i þágu Síldarverksmiðja ríkisins, hitt var söngurinn. Þegar Si'ldarverksmiðjur i-íkisins á Siglufirði tó'ku til starfa árið 1930, var Þormóður skipaður í stjórn þeii’ra og var lengi formað- ur hennar. Gckk rekstur þeirra vel undir hans stjórn, enda unni hann þessu fyrirtæki, senx bæði var .til hagsmuna og tryggingar síldveið- unum yfirleit't og lyftistöng þess bæjarfélags, sem hann var borg- ari í. Er það mitt álit, að hann hafi verið manna færastur til að hafa forustu verksntiðjanna á hendi á meðan kraftar hans entust. Skal svo ekki frekar um það rætt. Það mun alþjóð kunnugt að Þor- móður Eyólfsson var lengi söng- stjóx-i karlakórsins „Vísis" á Siglu- firði. Hann var í æsku söngkenn- ari í sarna skóla og hann samlímis stundaði nám i og söngnum unni hann alla tíð. Ef til vill hefði hann notið sín bezt í lífinti, ef hann hefð'i getað helgað sönglistinni allt líf sitt, svipað og yngri bróðir hans Sigurður Birkis, en slíks var tæplega kostur í hans æsku. Þormóður Eyólfsson var giæsi- legur maður, fríður sýnum, mikill vexli og karlmannlegur, sköruleg- ur í allri framgöngu. Skapmikill var liann, svo sem f’ítt er um mikil- hæfa menn, og þótti mótstöðu- mönnum hans hann harður í horn að taka, en vinur vina sinna var hann, tryggur vinur. Það get ég borið um af eigin reynd og um það veit ég lika önnur áþreifanleg dæmi. Eftir að ég varð þingmaður, var Siglufjörður í kjördæmi mínu í 19 ár. Ég átti þá off leið þangað og var þá jafnan gestur_ þeirra Þor- móðs og Guðrúnar. Ég naut þar ekki einasta gestrisni þeirra, held- ur einnig þeirrar alúðar og vin- áttu, senx ég aldrei gleymi. Nú kveð ég þig hinztu kveðju kæri vinur og þakka þér öll okkar kynni. Ekkju Þoi'móðs, frú Guðrúnu Björnsdóttur, votta cg mína inni- legustu samú'ð. BernlMi'8 Stefánsson. Við nemum staðar, þegar vinir okkar eru kvaddir hinzta sinni. Myndir og minningar streyma i hugann, mótaðar aí’ kynnum og persónuleika þess, sem kvaddur er. Um sjö <ára hil átti ég heima á Siglufirði. Frá þeim árum á ég mai'gar ánægjulegar minningai'. Engum var ég persónulega kunn- ugur þar, er ég fluttist þangað, þótt ég af afspurn kannaðist við helzlu forystiimenn Siglufjarðar og þá einkanlega Þormóð' Eyólfs- son konsúl, sem var þjóðkunnur ma'ður og hafði verið um margra ára bil. Á Siglufirði takast fljótt kynni með bæjarbúum. Ég kom þangað að hausti, og yfir vetrarmánuðina samlagast fólkið í þessum einangr- aða hæ og verður á mai'gan hátt sem ein fjölskylda. Þormóður mót- aði hæjarbraginn á margan hátt, og honurn kynntust flestir xneira eða minna. Mér eru einkum hug- stæðar þrjár myndir, þegar ég nú lít til baka. Ég minnist söngstjór- ans. Létiur, hress og glaður hélt Þormóður tvö kvöld i viku eða fleii'i til söngæfinga með karla- kór sinn, eins og til hvíldar, oft sð loknu margviílegu og erilsömu dagsverki. Ætið var hann mættur lil æf- inga á i'éttum tíma og æfði og stjói-naði þrjátíu til fjörutíu rnanna söngflokk sem félagi og vinur allra söngmanna, hvort sem þeir voru 17 ára ungmenni eða á sjötugs- aldri. Lagni Þormóðs, þolinmæði og þó um leið einbeitni, kom fram með svo elskulegum hætti, að seint gleymist þeim, er þekktu. Þonnóði var annl um Vísi, og VísiSmönnum þótti vænt um söng- stjóra sinn og sýndu það á minnis- vei'ðan hátt við merkisafmæli Þor- móðs, er hann var um það bil að hætta söngstjórn. Þormóður unni íslenzkum ljóð- um og lögum. Honum þótti vel fara á því að syngja jafnan, er opinberlega var komið fram, „Ég vil elska mitt land“ með lagi Bjarna Þorsteinssonar. Þá fór það saman, að haldið var uppi merki sigl'firzkrar tónmenntar á tvennan hátt og söngstjórinn gat tekið lagið með kór sínum, því að ættar- óður Ijóðsins var sem hans eigin rödd, er honum var eiginleg, ekki aðeins á söngpalli, heldur einnig í lífi og starfi. Ég sé hinn virðulega, fyrirmann- lega borgara og alháfnamann, sem ég álti margvísleg viðskipti við. Reglusemi og nákvæmni einkenndu lians dagfar. Þormóður var trún- aðarmaður ýmissa stórfyrirtækja, sem höfðu aðalstöðvar sínar fjarri Siglufirði. Hann þurfli því oft að leysa vanda, sem af því leiddi, og gæta um leið þess, að á hvojugan hallaði, þann, sem til hans íeitaði með vandamálið, og hinu, sem fjar- sladdur var. Þormóður var maður mikilla at- hafna. Saga Siglufjarðar frá því skömmu eftir aldamót er um lei'ð hans starfssaga. Hann var ýmist þátttakandi eða forystumaður. við uppbyggingarstarfið á Siglufirði fyrir og eftir 1930, en þá voru tímamót í atvinnuþróun bæjarfé- iagsins. Oft kom þá til harðra átaka, og var hann þá í fyJkingar- brjósti, enda skapi hans eðlilegast, ■en þeir tímar starf og þtaka voru að mestu hjá liðnir, þegar Jeiðir okkar lágu saman í Siglufirði. i Og að lokum minnist ég hús- bóndans og heimilisföðurins. I Þormóð og hans mætu konu, | Guðrúnu Björnsdóttur írá Kornsá, var gaman að heimsækja, og kvöld- in li'ðu fljótt í þeirra félagsskap. Umræðuefni þraut ekki, því að álmgamál húsbænda voru margvís- leg. Sama fjör og umbótaáhugi mótaði umræður, hvort sem þær hnigu að menningar- ’eða atvinnu- málum, bæjar- eða þjóðmálum. Þa'ð er hollt ungu fólki að kynnast slíku heimiii og verða fyrir vekj- andi áhrifum frá starfs- og' bar- áttumanni eins og Þormóði Eyólfs- syni. Og enda þótt minningarrífar um hann verði mér sérstaklega hugstæðar í dag', veit ég, ao þær munu oft síðar koma í hug minn. Slíkar minningar er gott að eiga og ljúft að þakka. Hjörtur Hjartar. í dag kveðja Siglfirðingar hinztú kveðju, 'einn sinn mætasta mann, Þormóð Eyólfsson ræðismann. Þegar ég var að alast upp á Siglufirði, voru þar ekki aðrir at- kvæðameiri í atvinnumálum og stjórnmálum, en Þormóður Eyólfs- son, enda var hann vel til forustu fallinn, framsýnn, stórhuga og fylg inn sér. Oft stóð styr um Þormóð Eyólfsson, en frá önnum og erjum dagsins átti hann sér öruggt at- livarf i faðmi sönglistarinnaf. Ilann var söngelskur mjög, og þótt ég hefði þá ánægju að vinna með ihonum á ýmsum sviðum, er það fyrst og fremst sern söngstjóra Karlakörsins Vísis sem ég minn- ist hans. Það vöru skemmtileg ár þegar Vísir var upþ á sitt bezta undir stjórn Þormóðs. Hann mun hafa verið að mestu sjálfmenntaður í tónlist, en meðfædd smekkvísi og ást hans á söng og tónlist geröi það að verkum að hann var sér- lega skemmtilegur söngstjóri.. Þor- móður gerði miklar kröfur, en aldrei meiri til annarra, en sjálfs sín. í starfi sínu fyrir Vísi naut hann löngurn aðstoðar bróður síns, Sigurðar Birkis, söngmálastjóra, og minnist ég þess hvílíkir dýrðar- dagar það voru, er Birkis var kom inn í bæinn til þess að leiðbeina, og svo var æft af keppi, undir hljómleika og söngför, en Þormóði var það mest yndi, að leggja land undir fót og halda hljómleika með kór sínum í öðrum byggðarlögum. Þormóður Eyólfsson var glæsi- menni og mikill höfðingi. Hann var kvæntur hinni ágætustu konu Guðrúnu Björnsdóttur frá Kornsá, er lifir mann sinn. Þau hjónin áttu á Siglufirði glæsilegt heimili, og aldrei voru þau ánægðari, en þeg- ar þau skemmtu þar gestum, enda voru þau bæði höfðingjar heim að sækja. Við Vísis-menn sendum frú Guð- rúnti og öðrum aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur, en geymum minninguna um dáðan söngstjóra, og góðán félaga. Þorsteinu Hannesson. Hestur eltur lengi á snjóbíl Frá frcttaritara Tjmans. S.l. laugardags'kvöld fór Skarp- héðinn Jónasson bílstjóri á Húsa- vík af stað við sjötta miann á stór- um vörubíl áleiðis til Mývatns- sveitar. Á palli höfðu þeir §njó- bíl. Eftir erfiða ferð upp í Mý- .vatnssveit lögðu þeir af stað á snjóbílnum aiistur á fjöll. Erind- ið var að leita útigangshests, sem þar hefir gengið í vetur og und- anfarin ár gengið illa að hand- sama. Er hann ótaminn og óhemja hin mesta, ættaður frá Grímsstöð- um og heldur sig því þarna eystra. Greiddist ferð þeirra á snjó- bílnum vel og fundu þeir hestinn nokkru vestan J'ökulsór og hófst nú eltingarleikur. Hjarn var, og bar hestinn vel ur.dan, en ekið var á eftir honum sem hægt var á snjóbílnum. Hélt eltingarleik- urinn þannig áfram norður heið- arnar allt norður undir Keldu- hverfi, en þar tókst loks að hand- sama hestinn skammt frá Meiða- völlum og koma honum í hús. Hafði ferðin öll þá staðið rúman sólarhring Á víðavangi Aukin sundrung vegna Dagiir ræðir um kjördæmamál i'ð í forustugrein 28. f.m. og segir m.a.: ,,í ræðu Karls Kristjánssonar alþingismanns, sem fjallað er um á öðrum* stað i blaðinu í dag, sagði hann efnislega á þessa leiíf um kjördæmamálið: Þær tillög- ur, seni boðaðar hafa verið af stjórnarflokkunum (Alþýðufl. og Sjálfstæðisfl.) fela í sér hættu- lega grúndvallarbyltingu á rétti landsfólksins til áhrifa á skipun Alþingis. Landlnu á að skipta í 8 kjiirdæmi og liafa í þeim hlut- fallskospingar. Eru með því lögY niður öll núverandi kjördæmi u an Reykjavíkur, en tekin upp 7 hlutfallskosningakjördæmi 5—7 þimgmanna. í Reykjavík á að kjósa 12—15 þingmenn.' Uppbót arþingmenn eiga að vera allt aS 11 og þinginönnun'i á að fjölga úr 52 í 60. Með hinu nýja fyrirkomulagi segist stjórnarliðið ætia að skapa festu í íslenzkum stjórnmálum. En hins vegar hefur réynzlan alls sta'ðar orðið sú, að hlutfalls kosuingar leiða til sundrungar og sniáflokkaþróimar. Er því öl ingt að farið. Enda mún Alþýðu l'lokkurinn bera fram þessar til lögur til að reyna að bjarga sér á því smáflokkastigi, sem liann er. Hann er nefnilega að því kominn að detta ofan um rist- ina. En Sjálfstæðisflokkurinn lmgsar sér að komast í meiri- hlujla með hlutfallskoúningum er leiða af sér það, að andstæð' ingarnir skiptast í smáhópa og. glundroði eykst þeim inegin." Árás á héruöin Þá segir Dagur enfremur: „Afnám uúverandi kjördæma er árás á sjálfstæði héraða og bæjarfélaiga utan Reykjávíkur og röskun á stiiðu þeirra í þjóð- félaginu, sem orðið hefur tií með sögulegri og félagslegri þró un á löngum tíma. Hér er því verið að slíta rætur, sem standa djúpt og bera mikið uppi. Allir hljóta að sjá, ef þeir hugsa um málið hleypidómalaust, hversu fráleitt er, að tveir stjórnmála- flokkar hlaupi allt í einu til vegna eigin liagsmuna að gera slíka breytingu. Verði breyting þessi : ‘ gerð missa héruðin hið nána samband við fulltrúa sína, sem þau hafa nú og val manna til fnnboðs lend ir í höndum flokksstjórna í liöf- uðstaðnum og þéttbýlustu hverf anna í hinum stóru kjördæmum. Hin nýja þróun verður sú, a® flokksvaldið færist í aukana og lýðræði í átt til múgræðis." „Reisn" foringjans í útvarpsumræðum er ' nauð- synlegt að fylgjast nákvæmlega með tímanum. Er því algeiiigt a® ræðtimenn fá upplýsingar til sín á smámiðum um það hvgð tíman uni Iíður. í síðustu mræðunni höfðu þeir Eysteinn Jónssón og Páll Þorsteinsson ákveðíð að skipta með sér fyrri ræðutíina flokksins og það verið -tilkýúnt. Atti E. J. að láta Pál vita þegar, 20 mín. voru biinar og gerði það> auðvitað. Lauk Páll ræðu. sinni nokkrum minútum síðar sem ráð gert var. Þegar hér var komið sögu var Bjarni Ben. tekinn nokkúð að umhverfast — enda byrjar máf sitt með því að leggja útaf þeirri ,,frekju“ E. J. að koma niönn um frá liljóðncmanmn með orð sendingum. Vissi Bjarni þó mætai vel, hvernig málið var vaxið, en rætnin sagði til sín (Jg bar skyn semina ofuríiði. Það sýnir svo andlegt ásland ritstjórans, aði hann endurtekur þetta bull i Reykjavíkurbréfinu síðast. Ekkert hefur frá því verið sagt í Mbl., að Páll Þorsteinsson rétti E. J. samskonar niið'a og' að E. J. hætti 5 mín. síðar! (Framhald á 8. si'öu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.