Tíminn - 13.02.1959, Qupperneq 7

Tíminn - 13.02.1959, Qupperneq 7
T í MI N N, föstudaginn 13. febrúar 1959. 3 Með betri nýtingu síMarafians er hægt að gera hann miklu verðmætari og auka atvinnu í landinu 1 fyrradag var til 1. um- ræðu í sameinuðu þingi tiHaga Framsóknarmanna um athugun á betri hagnýt- Framsöguræða Karls Kristjánssonar fyrir tillögu Framsóknar- manna um athugun á betri nýtingu síldaraflans ingu síldaráflans. Karl Kristjánsson mælti fyrir tillögunni og fer ræðaj hans hér á eftir. Að lok-^ inni ræðu Karls var tillög- unni vísað til allsherjar- nefndar. Tillaga þessi á þskj. 167 er um að feka ríkisstjórninni að láta at- huga tii hlítar hvernig þjóðin geti gert sem verðmestan síldarafla sinn. I»ó tillagan sé raunar nægilega jökstudd með greinargerð þing- skjalsins, vil ég fylgja henni úr hlaði með nokkrum orðum. Síld er talin vera einn þeirra r.vtjafiska, scm gera megi fjöl- breylilegastar vörutegundir úr til manneidis. Sérstaklega þykir hún öðru fiskmeti hæfari til niðurlagn ingar og niðursuðu. Bezta matarsíldin Sildiu, sem veiðist á íslandsmið nm, er álitin allra síldartegunda bezt til matargerðar. Sagt er, að hvarvetna erlendis þvki það mesta) og bezta auglýsingin á síldaraf- urðura, ef hægt er að kenna þær við íslandssild. Hefrr Íslandssíldin áiíka merk- ingu í auglýsingum erlendra mat- vöruverzlana og Hólsfjallahangi- kjöt, Vestfjarðariklingur og Skaga hákarl ó fslandi. En írfandssíldin kemur ekki frá íslandi sem útflutningsvara þann- ig tilreidd, sem hún er eftirsóttust — og verðmest. Við Islendingar flytjum hana aðallega út sem saltað liráefni i tunnum eða breytum: henni í mjöl til ske^nufóðurs og lýsi til iðnað- Íslandssíldin er bezta matarsíld í henni. Það eru Norðmenn og Svíar og Danir, sem mest gera að því að breyta Íslandssíldinni í margvís- lega dósavöru. Sjálfir veiða Norðmenn og Sví- ar íslandssild. En auk þess kaupa þeir hana héðan sem saltsíld og vinna úr henni lostæti í verksmiðj- um sínum — til þess að auka verð hennar atvinnulífi sínu til ávinn- ings'. Verk, sem íslendingar eiga að vinna sjálfir Það er sannarlega orðið tíma- bært, að við fslendingar förum að athuga með mciri alvöru en hing- að til hvar við stöndum í þessum efnum og gera gangskör að því, að hagnýta síldaraflann á þann hátt, að hann geti orðið okkur sem \erömestur. Hvers vegna eigum við að láta aðrar þjóðir hafa atvinnu og gróða af því að vinna margbreytilegar og \erðháar vörur úr síldinni, sem sjómenn okkar veiða? Við eigum auðvitað sjálfir að gera þetta. Undanfarin 14 ár hefir súldarafl- inn verið miklu minni en hann fyrrum var, sérstaklega þegar lit- ið er á hve veiðitæknin er orðin miklu meiri en hún áður var. Samt var síldaraflinn upp úr sjó 1956 miðað við tonn 22,6% og 1957 26,9% af öllum fiskafla lands inanna eins og hann er talinn á skýrsLum. liérumbil helmingur af síldar- aflanum þessi tvö ár fór í bræðslu, nálægt % í salt og Va í frystingu. Mestur faluti frvstu síldarinnar var notaður innan lands í beitu og alimikiö síldarmjöl í fóður handa búpeiiingi. Útflutningsverðmæti sílciar nam um 300 millj. kr. sam- tals hæði árin eftir skráðu gengi, en síldarvörur hagnýttar innan lands námu um 60—70 millj. kr. Hér er því — þrátt fyrir afla- tregðuna — um mjög stórar fjár- hæðir að ræða. Og ef hægt væri að margfalda nokkurn hluta þeirra meö betri hágnýtingu síldarinnar og vinnslu í verðmeiri vörur til útflutnings, þá skipti það . miklu máli fyrir gjaldeyrisöflun þjóðar- innar. Vetrarvinna, sem kæmi sér vel Síldin, sem söltuð er niður í tunnur á sumarveiðitímanum, þyrfti að vetrinum að taka upp, leggja í dósir, reykja,. sjóða niður eða tilreiða á annan hátt fyrir mat borðin, eins og áðurnefndar þjóðir gera. Auka með því útflutnings- verðmætin og fjölbreytni síldaraf- urða til neyzlu innsn lands. Með því skapaðist vetraratvinna í síld- arverstöðvunum. Mundi það koma sér mijög vel norðan og auslan lands. Niðursuða á nýrri síld er tíma- bundnari og- krefst meiri véltækni og hraðvirkni. Niðursuðan á senni lega bezt við hér við Faxaflóa, þó bún geti vitanlega komið líka til greina annars staðar. Nýlega var sagt-frá því í dag- blaði, að Fiskiðjuver ríkisins hefir hafið niðursuðu síldarflaka. Hefir blaðið eftir forstjóra Fiskiðjuvers- ins, að um mikla sölu geti verið að ræða á þeirri vöru, ef framleið- andi kynni sér vel smekk neytenda á hverjum sölustað og vandi vör- una. Samkeppnina segir hann harða. Þarna er minnzt á undirstöðu- atriði, sem gæta þarf við þennan iðnað. — Ef farið er rasandi ráði án þess að þekkja smekk væntan- legra kaupenda og án þess að hafa lært vel til verkanna, — þá þýðir lítið að ætla að keppa með vörurn- ar, þó að hráefnið hafi verið gott. Góður undirbúnirtgur nauðsynlegur í septemberhefti Ægis f. ár skrifar Sigurðúr Pétursson gerla- fræðingur hvatningargrein um þessi efni. Ég tel ástæðu til að lesa hér kafla úr greininni: ,,Ö11 byrjun er erfið. Það var við marga byrjunarörðugleika að stríða, þegar hafin var hér hrað- frysting á fiski, og fjársterka sjóði þurfti tií að taka á sig tjón þau, er fyrstu tilraunirnar höfðu í för. með sér. Nú er hraðfrysting á fiski orðin mestur stóriðnaður á íslandi. Svipaða þróun á niðursuðuiðnaður inn hér vafalaust i vændum. En þar sem aðalhráefni þessa iðnaðar hlýtur að vera síld, þá stöndum vér þar verr að vígi en með þorskinn og ýsuna, því að síld kunnum vér ekki enn að matreiða. Hér sem ann ars staðar verður að byrja á upp- hafinu. Það er hrapalegur misskiln ingur, að hægt sé að reka stóra, nýtízku niðursuðuverksmiðju, þar sem engin kann til verkanna, nema ef til vill forstjórinn. Ef hafin er stórframleiðsla án kunnáttu og þjálfunar meiri hluta starfsfólks- ins, verður varan óseljanleg vegna alls konar ágalla og fyrirlækið verður gjaldþrota. ■Hjá íslendingum rekur maður sig oft á óheppilegt sambland af kunnáttuleysi og stórhug. Það er vel hægt að hugsa sér íslending, sem fangið hefir gómsæta síld með snapsinum hjá einhverjum kunn- ingju sinum erlendis, og strengir þess heit með sama, að svona síld skuli hann framleiða. Þegar hann kemur heim, fer hann beint upp í gjaldeyrisnefnd og biður um inn- flutningslevfi fyrir vélum, upphæð 2 milljónir. Síðan fer hann í bank ann og biður um lán, upphæð 5 milljónir. Hann kemur við Stjórnarráðinu og segist geta bjargað heilu sjávarþorpi frá at- vinnuleysi og basli, ef hann byggi nógu stóra niðursuðuverksmiðju þorpinu. Stjórnmálaflokkarnir keppast hver við annan um að styðja fyrirtækið í von um atkvæði þorpsbúa. Verksmiðjan er sett upp hráefni keypt og byrjað að vinna. En þá kemur bara í 1 jós, að kunn- átta til verkanna er engin fyrir hendi. Eitthvað er samt sett í dós- irnar og vörunni er gefið nýtt heiti' því að svona vara hefir ekki sézt fyrr. Þá. er farið að leita að mark- aði, en hann er þá alls ekki til. Þar með er draumurinn búinn.“ Stórhug verSur a6 byggja á þekkingu og kunnáttu Við, s'em flytjum þessa tillögu, gerum það vegna þess að við telj- um tímabært og nauðsynlegt að hefja sterka sókn í því að breyta síldinni í svo verðmætar vörur, sem frekast er kostur á, og hætta sem mest að flvtja hana óunna úr landi. En hins vegar er okkur vel ljóst, að stórhugur i þeim efnum.verð- iir að byggjast á þekkingu og kunnáttu. Frumhlaup geta valdið miklu tjóni og afturkippum. Við teljúm, að heppilegast sé að ríkisvaldið hafi þar hönd í bagga og annist að færustu menn skipuleggi framkvæmdir, láti rann- saka markaðinn og gera tilraunir með framleiðslu og sölu. Vel mætti gera þetta á vegum síldarútvegsnefndar og Fiskimála- sjóðs, sem hefir meðal annars það hlutverk að leggja fram fé til tilrauna með verkun og vinnslu ,,sjávarafurðð og til markaðsleita fyrir sjávarafurðir", eins og segir i lögum sjóðsins.. En þetta verður að gera með fullri'gát og fyrirhyggju. Það verð ur að afla til þess þekkingar og kunnáttu erlendis frá. Það má alls' ekki draga meira en orðið er, að leggja áherzlu á athafnir í þessunv efnum. Ríkið verður að láta gera þetta — og bera ábyrgð á tilraunum. Sjá um, að engin hroðvirkni eða fljótfærni eigi sér stað við tilraun irnar, því svo mikið er í húfi, að vel sé af stað farið og ekki stofn- að til tjóns fyrir kunnáttuleysi. Ég leyfi mér, herra forseti, að óska þess að umræðunni verði frestað og málinu verði vísað til iháttv. allsherjarnefndar. r • A víðavangi Takmarkið er að qera landicí* að einu kjördæmi Blaðið Austri ræðir nýlega um kjördæmamálið og segir þar m.a.: „Sú kjördæmaskipan, sem við búum við er orðin gömul og flest ar breytingar sem á henni liafa verið gerðar liafa sízi verið til hóta. í fyrstu var við það miðað, að hvert kjördæmi tæki yfir hin fornu uinboðs- og* stjórnarsvæði, sem þá í upphafi voru mjög miu stór og mis fólksmörg'. Voru því fámennari sýslur gerðar að ein- menningskjördæmum, en liinar stærri ,að tvímenningskjÖrdæni- um, og hvarvetna viðhafðar é- hlutbundnar kosningar. Meö vexti kaupstaðanna á síðari ái- um hafa þeir stærstu smátt og smátt verið greindir frá sýslum og gerðir ,að sérstökum kjördæm- um, og þá einvörðungu einmenn- ingskjördæmum, að Réykjavík einni undantekinni. Nú ráðgerir íhaldið og með- reiðarsveinar þess róttækar breyi: ingar á kjördæmaskipuninni. Hiu fornu kjördæmi skulu liverfa, en í þeirra stað koma stór kjördæmi með hlutfallskosningum og jafn- frarnt er látið í það skína, að þessi „betrumbót'* sé aðeins- á- fangi að hinu endanlega tak- marki: Að g'era landið allt a&‘ eiuu kjördæmi.“ . Áhrif minni byggðarlaga þurrkuð út Austri segir enn fremur: „Me& breytingum þeim, sem nú eru fyrirhngaðar á kjördæmaskipun- inni er fullkomlega vikið frá hinni upprunalegu stefnu, a& skipa landinu í cinstök kjördæmi, sem væru stjórnarfarslegar heild ir, líkar að atvinnuháttum og samstæð landfræðileg svæði ea í þess stað reknir samau heilir fjórðungar, stórir kaupstaðir teknir í kjördænii með fáménn- um sveitum og á þann hátt þurrk ttð út áhrif sveita og fáinennari laiulsvæða, aukin völd lögð í hendur þéttbýlisins og miðað aö enn vaxandi jafnvægisleysi i byg'gð landsins, eflt stórlega á- hrifavald Faxaflóasvæðisins, sem þegar hefir náð undir sig miklu valdi í fjármála- og efnaliagslífí þjóðarinnar." Þá segir Austri: „Frá upphafí hafa menn haft þá trú, að fá- mennari og fjarlægari sveitir þurfi að Iiafa forsvarsmenn á lög gjafarsamkundu þjóðafinnar Með þeirri skipan sem nú er stefnt að, er sá réttur að veru legu leyti af þeim tekin og vald kaupstaða og þéttbýlissvæða auk- in að sama skapi. Hlýtur þetta að leiða til þess, að stjórnmála- flokkarnir sveigi stefnu sína sem. mest að hagsmunamálum þéttbýL isins. Fólksfjöldi, á takmörkuðu svæði, kallar á margvíslega fyrii greiðslu rikisvaldsins, sem eðli legt er, strjálbýlissvæðin, þóti oft séu engu þýðingarminni. fyr- ir þjóðarbúið í lieild, gleymast." Kosningar í verkalýðs- félögum Aústri víkur að kosningafyrir- komulaginu í verkalýðsfélögun- um og segir: „Það er að vísu rétt að noklaið má jafna kjóseiidatöli! bak við hvern þingmann með lilutfallskosningum í stórum kjör dæmiim, en slíkt er varla nokkurt: úrslitaatriði uni lýðræðislega stjórnarliætti og starfshæfni Al- þingis. Það lætur a. m. k. all-lilá lega í eyrurn að heyra slík rök frá Alþýðuflokksmönnum og kommúnistum. í þeim félagssam tökum, sem þessir flokkar haf skipulagt, verkalýðssamtökunum, er réttiu' minnihlutans enginn um skipun stjórnar og trúnaðar- maiina. Þótt valdir séu f jölmarg ir fulltrúar á saina félagssvæði er þeirri skipan haldið, að meiri hlutinn fær alla kjörna, minni lilutinn engan .Virðist þar þó gott tækifæri til að sýna í frani kvæmcl ág'æti lilutfallskosning;: og lýðræðislegrar félagsskipun- ar.“

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.