Tíminn - 09.04.1959, Blaðsíða 7

Tíminn - 09.04.1959, Blaðsíða 7
F1 MI N N, fimmtudaginn 9. apríl 1959. 2 „Maður getur átt á hættu að mæta 10 löndum á sömu klukkustundinni" Sennilega hafa lesendur Tímans veitt því athygli, að undir fréttum þeim, sem birfast í blaðinu frá Dan- mörku, stendur stutt og lag- gott nafnið „Aðils". Hér er um að ræða fréftaritara Tímans í Kaupmannahöfn, fuilu nafni Geir Aðils, en hann hefir starfað ötullega að fréttamennsku fyrir blað- ið nú í nokkur ár. Blaða- menn frá Tímanum litu inn til Geirs laugardaginn fyrir páska, og ræddu lítið eitt við hann um starf hans og fieira. Geir hefir um skeið rekið fyrir tækið Islands—Export í Kaup- mannffihöfn, jafnhliða frétta- jnennskunni, og er skrifstofa hans til húsa í Mikkels Bryggersgade 2. rétt við Ráðhústorgið, eins og niörgum íslendingum, sem til hans faafa leitað ýmissa erinda fyrr og síðar, er kunnugt. 35 ár í Kaupmannahöfn ,.Þau munu nú vera orðin 35 . irin setn ég hefi dvalizt hér í Kaupmannahöfn, segir Geir okk- xir. — Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík, og eftir nám í M enntaskóianum hélt ég síðan út að litast um í heiminum. Ég nam húsagerðarlist í nokkur ár við Kunstakademiet hér í Höfn, og dvaldist liér því nær samfellt allt til slríðsloka. 1945 kom ég aftur heirn, og gaf þá meðal annars út handbókina Hvar, - hver, hvað ásanft Vilhjálmi S. Vilhjálmssyni xithöfundi. Bókin kom út í 3 ár samfellt og gekk vel, en síðan xirðum við að hætta við frekari xitgáfu á henni vegna pappírsleys- ás, sem á þessum tíma stóð allri hókaútgáfu fyrir þrifum, eins og kunnugt er. Ám árunum 1945—’49 var ég eiginlega með annan fótinn heima, hafði ximboð fyrir mörg dönsk þókaforlög og var raunar fyrsti maðurinn sem kom með danskar bækur heim eftir stríð, en þá geis- aði hér pappírsskoríur, líkt og heima, og gekk jafnvel svo langt að bækur voru skammtaðar hér í Danmörku. Starfað fyrir Tímann — Iívenær tókstu fyrst til við ’ að senda fréttir héðan heim til Íslands? — Ég man ekki nákvæmlega hvaða ár það var, en á sínum tíma var ég fréttaritari ríkisút- varpsins hér í samfleytt þrjú ár en þá varð ég að leggja það starf á hilluna vegna veikinda. Það num hins vegar hafa verið um jólaleytið 1955, að Haukur. heitinn Snorrason, ritstjóri Tím-' ,ans, kom að máli við mig, og jniiti mig eftir því hvort ég vildi ekki taka að mér að gerast frétta xtari Tímans hér í Höfn. Ég tók vel í þessa málaleitun og mun hafa sent fyrstu fréttirnar heinx i febrúarbyrjun 1956, um þær niundir er Tíminn var stækkaður. Ég man að fyrstu fréttirnar fjöll xiðu um útvarpsstöð eina, sem Danir hugðust koma upp í Græn- landi. Þetta var nokkuð góð frétt, stöðin átti að heyrast um allar þyggðir Grænlands, svo og til ís- lands og kosta nálega 5 milljónir danskra króna. Önnur fréttin fjall aði um að Norræna félagið í Fær eyjunx hefði ákveðið að hefja baráltu fyrir því að Færeyjar fengju aðild að Norðurlandaráð- iriu. Það má minnast á það í þessu sambandi, að Færeyjar og Græn- land hafa einmitt oft og tíðum verið favað bezta frétfaefnið, sem ég hefi náð í hér. „Frá borginni við sundið" Lesendur Tímans kannast við greinarnar „Frá borginni við Spjaliað vi(S Geir AtJils, fréttaritara Tímans í Kaupmannahöfn um íslendinga þar o. fl. GEIR AÐILS — (Ljósm.: Tíminn J.H.M.) sundið“, sem birtast oft í blaðinu, og við biðjum Geir að segja lítið eitt unx þá hlið fréttamennsku hans. — Þessar greinar eru eiginlega fréttapistlar, sein ég sendi heim. Þær fjalla um állt milli himins og jarðar, dægurmól hér í Kaup- mannahöfn, fundi stúdenta og fleira þess háttar. Ég hefi rekið mig á að fólk heima hefir gaman af því að fylgjast rneð því sem hér gerist frá degi til dags. Margir hafa dvalið hér langdvöl- unx eða eiga hér skyldmenni, og hafa því gaman af því að fylgjast með hlutunum. — llvernig eru Danir viður- eignar, þegar þú þarft að leita til þeirra vegna frétta? — Þeir eru mjög liprir og greið viknir. Ég er hér í félagi erlendra blaðanxanna, og var í stjórn þess umi eins árs skeið. Félagið er meðlimur danskra blaðamanna- samtaka, og sku-teini frá því veita mönnum talsverð réttindi. Ef eitthvað sérstakt er á ferðinni, senx ég álít þess virði að skrifa um, t.d. leiklnis eða listsýningar, fer ég beint til leikhússtjórans eða hlutaðeigandi ráðámanns, og fæ fréttirnar strax. i Um Islendinga í Höfn — Annars' vil ég skjóta því hér inn, segir Geir, að mér hefir lík- að sérle^a vul að vinna fyxir Tímann hér. Fréttamennskan er auðvitað aukastarf og ég á það að mestu eiginkonu minni, Else, að þakka, að cg gel lagt svo niikla stund á þetta. En hún hjálpar nxér með skrifstofustörf- in. — Hvað er að segja um ís- lendinga hér í Kaupmannahöfn? — Ja, eins og ’ allir vita, er Höfn mesta ,,íslendingaborg“ í heimi. Maður getur átt á faættu að mæta 10 löndum á sanxa klukkutímanum, ef gengið er um miðbæinn og ég held ég nxegi segja að íslendingar venji komur sinar stöðugt meira hingað. Ef menn fara til Evrópúlandanna, koma þeir oftast við hér í annarri hvorri leiðinni. Margir leggja leið sína hingað á. skrifstofuna til mín, til þess að íá aðstoð varð- andi innkaup og vöruval og ég reyni að aðstoða þetta iolk eftir föngum. Fjör í Stúdentafélaginu — Félagslíf íslendinga hér í Höfn hefir jafnan verið mikið, leldur Geir áfram. — Stundum Jr rnikið fiör í íslendingaféiaginu, ?n deyfð í Stúdentaféíaginu og ifugt eins og gengur. Annars íefir mikið verið unx að vera í itúdentafélaginu um alllangt keið. Margir nxerkir íslendingar íafa iagt ieið sína á fundi hjá félaginu, svo sem Kiljan, Þótr- bergur Þórðarson o. fl., að ó- gíeymdum Jóni Heigasyni, eins og nxenn hafa lesið um í frétt- um. Stefán Jóhann Stefánsson sendiherra hefir og komið á þessa "—Ji og stundum tckið þar til máls. _ Listamenn í Höfn — Eitt af því, sem ég hefi fylgzt vel nxeð, eru heimsóknir ísienzkra listamanna himiað, segir Geir og dregur um leið fram Exlra Bladet frá deginum, og sýn (Framhald a 8. síðu). siotur bók um ísland gefin út í Danmörku Fyrir nokkrum árum var hér á ferð danskur rithöfundur Knud 1-Iansen að nafni. Dvaldi hann hér um sunxartíma og ferðaðist mikið um landið. Fyrir nokkru kom út í Danmörku lítil, en einkar snot- ur bók um ísland eftir þennan gest og er mikill hiýhugur til lands og þjóðar á blöðum þessar- ar bókar. Bókin er gefin út í Óðinsvéum á Fjóni, en þar er höfundurinn búsettur á ævintýraslóðum Hans C. Andersens. Bókina nefnir liann ,.Den rygende vig“. Segir þar frá ferðalögum höfundar víðs vegar um ísland, en hann kannaði landið víða og skoðaði landið með augunx gestsins og gleymír hvergi vinsemdinni, eins og óður er sagt. Hann bvrjar ferðasöguna með frásögn aí Flugferð til ís- lands. Bregður s'iðan upp svip- myndum frá Revkjavík. lýsir fólk- inu. sem á vegi hans verður, hygg ingarstíl höfuðborgaiúnnar og mörgu fleiru. Leið hans liggur austur á land og hann kynnist Paradísarlundum Hallormsstaða- skógar, þó að ekkert bendi til þess að hann hafi þar noíið unaðs- semda Pai’adísar, enda beykiskóg- ar Danagrunda honum bernsku- kærir. Bókarhöfundur lýsir enn fremur flugferð til Vestfjarða, þar sem honum þykir náttúrutöfrar hrika- legir og heillandi. Hann skoðar hvalvciðar og lýkur bókinni með Teikning eftir Knud Hansen frá Vestmannaeyjum. skemmtilegri lýsingu á Vest- mælis'. í bókinni eru nxargar bráð- inannaeyjum. skemmtilegar teikningar, sem höf- íslandi er oft borin misjöfn saga undur hefir sjálfur gert. af útlendingum og er því vert að geta þess, sem gert er þannig, að Hér í Reykjavík fæst þessi bók land og þjóð er látið njóta sann- I Bókabúð Braga Brynjólfssonar. Á víðavangi Hættumerkið í Víðavangspistlum Tínians í íyrradag var nokkuð nxinnzt á þá ,,afreka“-skrá ílialdsins, scm Ólafur Thors, af þjóðkunnri hóg- værð sinni og lítillæti, birti þegn um sínum á landsfundi Sjálfstæu isnxanna á dögunum. Hér konia nokkur fleiri sýnishorn af hinni samvizkusamlegu og hlutlausu fræðslu, sem fram fór á þessum pólitíska kabaretti. Ólafur segir: „— flokkurinn, sem á faldi frclsisöldunnar ný- skapaði allt atvinnulíf þjóðarinn- ar-----“. Ilér mun átt við „ný- sköpunarstjórnina“, Sem af ýms- um var raunar nefnd ósköpunar- stjórn og ekki út í hláinn. Um hana hefir verið fremur hljótt á síðari árum, enda mun flestum farið að skiljast, nema Ólafi, aö þetta afkvæmi hans var að ýhisu leyti einhver hin mesta vánd- ræðastjórn, senx verið hefir viff völd á landi hér síðan íslending- ar fóru að eiga með sig sjálfir. Aldrei hefir nokkurt fyrirtæki, sem ldaupið hefir af stokkunum á Islandi, verið auglýst méð öðru eins skrurni og fyrirgangi og þessi ólánsstjórn ihaldsins og kommúnista. Var helzt svo að* skilja, að hingað væru stigip nið- ur á hólmann einhvers konar himnesk ináttarvöld, sem búa myndu íslendingum Paradísar- sælu um alla framtíð. Stjórn þessi hafði óhemju fjármuni handa á milli. Inneignir þjóðar- innar erlendis námu mörgum milljónahundruðum, er hún tók við. Allar framleiðsluvörur . okk- ar seldust á stríðsverði iiieðau hún sat. En ekkert lirökk til Þegar hún veltisl úr valdastólun um, var allt etið upp og mikill hluti þessara gífurlegu fjárniuna hafði liorfið í hreina og bcina eyðslu og sukk. Dýrtíðin hafði magnazt um allan helming. Flest- ir þeir erfiðleikar, sem íslenzka þjóðin á við að etja í dag,' eiga rætur sínar að rekja til þessarar stjórnar Ólafs. Gildi hennar cr áðeins fólgið í því að vera hættu- merki á viðsjálum vegi þjóðmála starfseminnar. Hún er æpandi aðvörun urn það, hver háski er búinn þjoðinni allri, þegar skammsýnt og eigingjarnt íhalds- lið og ofstækisfullir Moskvu- pótentátar taka höndum saman og ná lyklavöldunum að stjórnar ráðinu. Skrum eða veruleiki Þá kenuir þessi klausa: ., --- flokkurinn, sem mestan þáttinu átti í hinum nýja íslenzka iðnaði, allri uppbyggingu fiski- og katip- skipaflotans og flugfIotans • ■— “. Ójá, ekki verður nú sagt, að sinátt sé smjörið skamintað. Eng inn veit til þess að íhaldið hafi liaft öðrum fremur forgöngu urn nokkurn iðnað í þessu landi nema ef vera skyldi það, sem kallað er rógsiðja. Það hnoðaðist gegn framkvæindum í raforku- málum á meðan það þorði og gat. í Sogsvirkjunina fékkst í upphafi ekki ráðizt fyrr en þess eiginn flokksmaður hótaði að svipta það meirililutaaðstöðu í bæjar- stjórn Reykjavíkur. Sementsverk- smiðjan og Sogsvirkjunin nýja voru strandaðar vegna ljárskorts, þegar því var steypt úr ráðherra- stólunum sumarið 1956. Og þeg- ar það óttaðist að öðrum tækist að levsa þau aðkallandi verkefni, sem manndómi þess og vilja reyndist ofvaxið, þá gerði þaö allt, sem í þess valdi stóð, til áð spilla fyrir því. Skirrðist jafnvel ekki við að breiða út á erlendum vettvangi óhróðurs- og lygasögui um samlanda sína og mun það drengskaparleysi lengi uppi. Fljótfærni Ólafs hefir lengi verið viðbrugðið og fcr ekki þverrandi, sesn á því má marka, að hann skuli minnast á fiskiskip. Sjálfur átti liann að heita sjávar- útvegsmálaráðherra á árununi 1950—1956. Hvað leið þá upp byggingu fiskiskipaflotans? Hvar eru skipin, sem Ólafur stöð fyrii Framhald á 11. síðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.