Tíminn - 21.04.1959, Síða 1

Tíminn - 21.04.1959, Síða 1
Hluttausar tþjóSir, bls. 6 43. 'árgangur. Reykjavík, þriðjudaginn 21. apríl 1959. íþróttir, bls. 4. Þjóðrækni og landeyðing. bls. 7 88. blað. Meðferð stj órnarffokkanna á efnahagsmálunum mun reisa síórfeffda verðhólguöldu næsta haust Þær ráðstafanir, sem nú eru gerðar, geta aðeins skapað svikalogn um stutta stund í gær hófst önnur umræða um fjárlagafrumvarpið fyrir 1959. Fjárveitinganefnd hafði þríklofnað, fulltrúar stjórn-| arflokkanna voru sér, fuiltrúar Framsóknarflokksins sér og fulltrúi kommúnista sér. Fulltrúar Framsóknarflokksins skiluðu mjög ýfarlegu nefndaráliti, þar sem m.a. svonefndar' sparnaðartiiíögúr stjórnarflokkanna eru ýtarlega raktar. Áiit fuiitrúa Framsóknarmanna fer hér á eftir: Sólin blikar á gáróltum fleti hafnarinnar. Hrörlegur bryggjusporSurinn, sem eflaust man sinn fífil feqri, bíður enn eftir heimsókn kríunnar, en nú líöur senn aö þeim tíma, að fjör taki aö færast í fuglalifið við höfnina. Þrír rúsneskir stórmeistarar urðu efstir á skákmótinu í Moskvu Síðasta umferð á skákmótinu í Moskvu var tefld á sunnudag. Friðrik Ólafsson tefldi þá við Smyslov, fvrrum heimsmeistara. Skákin fór í bið og hafði Friðrik þá lakari stöðu. en honum tókst samt sem áður að ná jafntefli. Úr- slit í mótinu urðu þau. að rússnesku stórmeistararnir Smvsl- ov, Bronstein og Soassky skiptu með sér fyrstu verðlaun- um, hlutu sjö vinninga hver. \ hnekkja kynfíáiíaofstæki NTB—PRETORIU, 21. apríl. — Dómstóll í Pretóríu hefir sýknað 61 'svci'tingja af ákæru liins opin- bera um lándráð. Dójnstóllinn kvað ákæruna ekki vera nægilega vel rökstudda og hefði hún aldrei átt fram að koina. Fyiúr skömmu neitaði annar dóm- s-tóll að fjalla um landráðaákæru á svertingja og bar fyrir sö.mu á- stæðu. Það er nú á valdi land- sljþrans í Suður-Afn'kusamband- inú, hvórt ákæran skuli tekin fyrir að nýju. í næstu sætum komu dr. Filip og Portisch með sex vinninga. í sjötta sæti er Vasjukoff með fimm vinninga og biðskák við Simagin. Friðrik og Milev hlutu 5 vinninga, Aronin 4'/2 vinn. og biðskák. Si- magin hefir 4 vinninga og á tvær biðskákir, auk Vasjukoffs við Ar- onin. Larsen hlaut 4 vinninga, og Lutikcff rak lestina mcð 'i'/> vinn- ing. Það hcfir wikið talsverða at- hygli að áliti skákfróðra nianna, að Friðrik hcfir ekki beitt þeim byrjumun, sem reynzt liafa bon- um bezt á inótuni undanfarið. Byggist það án efa á því, aö liann ’var einasli kandidatinn, auk Smy slovs, í mótinu, og hefir því ekki viljað gefa um of upp þær byrj- anir, sem hann mun beita á kandidatsmótinu í Júgóslavíu. Með tilliti til þess vérður að líta (Framhald á 2. síðu) Fyrrverandi fjármálará&herra, Eysteinn Jónsson, lagði svo sem venja hans jafnan var. frumvarp til fjárlaga fram á Alþingi fyrstá dag þingsins. Fjárveitinganefnd hóf yfirlestur frumvarpsins og fylgiskjalá þess lillu síðar. Jafnframt ræddi hún við ýmsa forstjóra ríkisfyrirtækja, eins cg venjulegt er, og kynn-ti sér íjármál fyrirtækjanna, tók á móti erindum og átti viðtöl við sendinefndir víðs vegar að af land inu og einstaka menn. se n leituðu á fund hennar með málaleitanir er snerta fjárJagaafgreiðslu. En þar sem ekki varð samkomu lag m'.lli þeirra stjórnmálaflokka, er að fyrrverandi ríkisstjórn stó'ðu, um nauðsynlegar iramhaldsaðgerð- ir í efnahagsmálunum. skorti f.iár- veitinganefnd grundvöll til þess að byggja afgreiðslu fjárlaga á. Stóð svo fram til 4. desember, að ríkisstjórnin baðst lausnar. Að sjálfsögðu var ekki heldur við þvi að búast, að' nefndin gæti hafizt handa, á meðan tilraunirnar íil nýrrar stjórnarmyndunar stóðu yfir. Langur aídragandi Hin nýja ríkisstjórn, sem settist að völdum rétt fyrir jólin, — stjórn Alþýðuflokksins undir vernd Sjálfstæðisflokksins, — var að vísu bjartsýn og trúuð á sjálfa sig, og hélt, að hún ætti ráð undir hverju rifi, svo sem heyra mátti af ávarpi hennar, þegar hún kynnti sig þjóðinni fyrst og ,,fagnaðar- erindi'" sitt, sem fólsf í því að létfa bvrðar almennings án til- kostnaðar. Þó nð ríkisstjórnin í veraldleg- um jólafögnuði sínum hefði uppi tal um, að hún myndi verða fljót að ganga frá málunum, var ekki nema eðlilegt, að hún bað fjár- veitinganefnd að doka enn litla stund, þar til henni gæfist ráðrúm til þess að leggja fyrir nefndina tillögur sínar um afgreiðslu fjár- laganna. Samhliða veitti Alþingi, eftir beiðni ríkisstjórnarinnar heimild til greiðslna úr ríkissjóði til 1. febr.., samkv. fyrra árs fjárlög- um. Lengri frest til að kippa i lið- inn taldi ríkisstjórnin sig þá ekki þurfa. Svo leið janúarmánuður og ekki bólaði á Barða. Hins vegar fór ríkisstjórnin und ir mánaðarlokin fram á það við þingið, að greiðsluh&imildin yrði framlengd tii 1. marz. Eri þegar góðviljaður og gamansamur mað- ur úr stjórnarandstöðunni bauðst lil að heita sér fyrir því. að heim- ildin yrði framlengd til 1. apríl, þá þáði stjórnin það með þökk- um. Raunveruleikinn var að renna upp. I Nú liður febrúar, og' síðan dreg- ur að lokum marzmána&ar. Og fjár veitinganefnd situr auðum hönd- um og bíður tillagna ríkisstjórn- arinnar. Þá leggur ríkisstjórnin enn fyrir Alþingi ósk um framlengingu greiðsluheimildarinnar til 1. maí. Urn annað var ekki að gera fyrir Aiþingi en veita þá heimild í þriðja sinn. Stjórnin varð víst síður en svo með réttu ásökuð. því að það frétt- ist eftir dagblaði hennar, að hún hefði meira að segja um hverja helgi stritað við að hugsa um mál- efni sín. Það var síðan ekki fvrr en fvrir nokkrum dögum ,að tillögur ríkis stjórnarinnar lágu þannig fyrir i stórum dráttum. að fjárveitinga- nefnd gæti íarið að laka sína af- stöðu til þeirra og i'lestra annarra alriða, sem verulegu máli skipta. Fjárveitinganefnd þríklofin Nefndin leggur fram sameigin- legar tillögur á þingskj. 391. Um margar þeirra komu að visu fram skiptar skoðanir og breytingartil- lögur innan nefndarinnar við þær — eins og gengur — en fallizt vár á a'ð láta við svo húið standa, og stendur því öll nefndin að þessum tillöugm, eins og þær liggja fyrir, og mælum við með samþykkt þeirra. Að öðru leyti varð ekki sam- komulag í nefndnini um hreyting- artillögur við frumvarpið, — og klofnaði nefndin í þrjá hluta, sem skila sínu álitinu hver. Allir eru þessir hlutar minni hlutar, en Alþýðuflokksmaðurinn og Sjálf-, stæðismennirnir þrír laka afstöðu se:n stuðningsmenn ríkisstjórnar- innar, og verður að skoða tillögur þeirra í því ljósi sem nokkurs konar meirihlutatillögur — og til lögur hennar í áSalatriðum. | Við Framsóknarflokksmenn nefndarinnar, sem skipum 3. minnihluta, getum ails ekki fall- izt á tillögurn stjórnarliSsins um óraunhæfa hækkun áætlunar á tekjum ríkissjóSs — og útflutn- ingssjóSs — né niSurskurS þann á útgjöldaliSum fjárlaga, sem ýmist er óraunhæfur og kemur því strax í bakseglin sem skökk áætlun eSa skerðir þá uppbyggingu atvinnu- lífsins í landinu, sem hafin hefur verið og er þjóðinni Hfsnaúðsyn. Skal nú vikið að meginþáttum þessara mála. Kaup- og tekjulækkun Síðan núverandi ríkisstjórn tók við, hefur kaupgiald í landinu verið lækkað með lögum og niður greiðsluráðstöfunum samtals um 13,4%. Tekjur bænda hafa þó — svo sem kunnugt er — verið lækk aðar tillölulega meira vegna til.hög unar á niðurgreiðslum og mis- róttis í löggjölinni um niðurfærslu kaupgjalds og verðlags. Stjórnarflokkarnir gerðu samn inga við framleiðendur — án sam ráðs við Alþingi eða fjárveitinga- nefnd — og er áætlað ,að þeir samningar auki útgjöld útflutn- ingssjóðs um 82,3 millj. kr. Niðurgreiðslur: á vöruverði hækka um 116,7 8millj. kr. Hafa útgjöld útflutningssjóðs þannig verið aukin samkv. áætlún fyrir þetta ár um a.m.k. 199 millj. kr. Líklegt má telja, — svo að ekki sé meira sagt, — að þessi áætlun útgjaldaaukningar verði of lág, þegar til kastanna kemur. Ekki er t.d. sjáanlegt, að stætt geti orðið á því að greiða ekki meiri uppbætur á síldarafurðir en ráð- gert er í áætluninni. Hér við bætist svo áætlaður halli útflulningssjóðs að óbreytt- um tekjum og útgjöidum, 20 millj. kr., og er þá miöað við tekju- áætlun, sem byggð er á innflutn- ingsáætlun ríkisstjórnarinnar, en samkvæmt henni eru hátollavörur stórlega auknar, og eru engar lík- ur til, að sú áætlun standist (auk þess sem innflútningur slikra vara i fyrirrúmi er háskalegur). HaU- inn mun því verða meiri. Þá þarf að taka á fjárlögin hækkanir vegna grunnlaunaupp- bóta og aukins kostnaðar við tryggingar. og loks eru svo hækk- unartillögur við fjárlögin, sem fjárveitinganefnd er sammála um eða stuðningsmcnn stjórnarinnar í nefdinni standa að og þess vegna (Framhald a 2. siðu). Y.-Eyfellingar æskja raflínu frá Sogi Á aðalfundi Búnaðarfélags Merkurbæja í Vestur-Eyjáfjaiía- hreppi, sem haldinn var þann 4. apríl s.L, var samþykkt eftirfar- andi áskorun til þingmanna kjör- riæmisins: „Fjölinennur fundnr blænda í Vestur-Eyjafjallahreppi, haldinn á Heimalandi 4. apríl 1959, skor- ar á þingmenn kjördæmisins að beita sér fyrir því við raforku- málastjórn, að nú þegar á þessu ári verði hafizt handa um að lcggja rafmagnslínu frá Sogsvirkj uninni austur yfir Markarfljót og verði öllum býlum í Vestur-Eyjn- fjallahreppi, sem óska þess, gef- inn kostur á að fá rafmagn. Jafnfranat hlutis't þingmennirnir til um við ríkisstjórn og Alþingi, sem nú situr, að nægilegt fjár- magn verði tryggt á fjárlögum þessa árs til framkvæmdanna. Eru hlutaðeigandi bændur reiðubúnir íö leggja fram helming heimtauga gjaldsins um leið og verkið er hafið.“ Þá var alimikið rætt um síma- þ.jónustu og í bvi sambandi skor- að á sýslunefnd Rangárvallasýslu að beita sér fyrir því, að nætur- þjónustu verði komið á við sím- stöðina á Hvolsvelli svo fliótt sem auið er og leggja fram nægilegt ft úr sýslusjóði til þeirrar þjón- ustu.“ Fund þennan sálu flestallir hændur hreppsins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.