Tíminn - 09.05.1959, Blaðsíða 6

Tíminn - 09.05.1959, Blaðsíða 6
6 T í M I N N, laugardaginn 9. ínaí 1959. -WMmi- Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. • Afgreiðslan 12323 Prentsm. Edda hf. Sími eftir kL 18: 13948 Auka Bretar ofbeldið? ÞAÐ er bersynilegt á iTiörgu, að þeir brezkir tog- araeigendur, sem vilja beygja íslendinga til undanláts í tegaradeilunnj eru nú mjög teknir að óróast. Ástæðan er ekki sízt sú, að meðal brezkra togaraeigenda er sú skoðun óðum að vinna fylgi, að það sé bæði tilgangslaust og ó- hagstætt að halda deilunni áfram. Þessum mönnum er Ijóst, að íslendingar muni ekki láta undan og hinn ís- lenzki málstaður muni fyrr eða síðar vinna fullan sigur. Reynslan hefur jafnframt sannfært þá um, að veiðar innan íslenzku fiskveiðiland helginnar eru brezkum tog- urum ekki eins eftirsóknar- verðar og af hefur verið látið. Afkoma þeirra brezkra tog ara, sem hafa einkum lagt stund á veiðar undir her- skipavernd innan tólf mílna fiskveiðilandhelginnar, er yfirleitt mun lakari en hinna sem aðallega hafa stundað önnur miö, t.d. á Hvítahafi og við Noregsstrendur. Þýzk- ir og belgiskir togarar, sem hafa veitt á íslandsmiðum utan tólf milna landhelginn ar, hafa líka yfirleitt aflað mun betur en brezku veiði- þjófarnir. Þá hefur það komið glöggt á daginn, að mjög örðugt er að stirnda veiðar undir her- skipavernd, þegar það bæt- ist svo við, að togararnir vilja ekki leita íslenzkra hafna, þegar þörf krefur, af ótta við réttmætar refsingar fyrir brot sín. Vegna allra þessara á- stæðna, vex þeirri skoðun óðum fylgi meðal brezkra togaramanna, að landhelgis- deilan við íslendinga sé bæði tilgangslaus og óhagstæð fyr ir Breta. ÆSINGAMENNIRNIR í hópi brezkra togaramanna virð- ast hins vegar ekki vilja hlusta á rödd skynseminnar og réttlætisins í þessu máli. Þeim virðist meira í mun að reyna að kúga íslendinga til undanhalds frá 12 mílna fisk veiðilandhelginni, en að gera það sem er rétt og þeim sjálfum' fyrir beztu. Þess vegna reyna þeir nú hvert ör- þrifaráðið öðru óskynsam- legra til þess að kúga ís- lendinga til undanhalds. Eitt síðasta örþrifaráð þeirra hefur verið það, að senda íslenzku ríkisstjórn- inni þá furðulegu orðsend- ingu, að þeir skuli virða fjögurra milna landhelgi, ef islenzk stjórnarvöld lofi því að refsa ekkj fyrir brot, sem eru framin utan við fjögurra milna svæðið! Þetta þýðir það í raun og veru, að ís- lendingar fallist á fjögurra mílna fiskilandheigi í stað tólf mílna., eða-m.ö.o. gefist alveg upp í deilunni. Samkv. frásögn enskra blaða, hefur íslenzka ríkisstjórnin svarað því einu, sem hægt var að svara þessu fm-ðulega tilboði, þ.e. að hafna því, og halda ákveöið fram tólf mílna fisk- veiðilandhelginni. Eftir að þetta tiltæki æs- ingamannanna hafði mis- heppnazt, hafa þeir bersýni- lega róið í brezku stjórnina og fengið hana til að mót- mæla lögmætum athöfnum íslenzkra varðskipa innan tólf míina fiskveiðilandhelg innar. Mótmæli þessi hafa enn ekki verið birt hér á landi, en samkvæmt frásögn brezkra blaða virðast þau vera bæði harðorð og ögr- andi. Að sjálfsögðu verður að vænta þess, að íslenzka ríkis stjórnin svari þeim mjög ein beittlega og hnekki hinum ómaklegu árásum Breta á ís- lenzka varðskipsmenn. TALSVERÐAR líkur benda til þess, að æsingamennirnir í hópi brezku útgerðarmann anna reyni að fá brezk stjórn arvöld til að grípa til frekari ofbeldisaðgerða gegn íslend- ingum, ef það gæti orðið til þess að kúga íslendinga til frekara undanhalds. Brezk stjórnarvöld hafa hingað til verið svo leiðitöm við þessa ofstopamenn, að ekki er úti- lokað, að þeim geti orðið eitt hvað ágengt í þessum efnum. Ef niðurstaöan verður á þá leið, hlýtur áreiðanlega mörg um íslendingum að verða hugsaö á líkan veg og útgerö armönnum og sjómönnum á Akranesi á síðastl. hausti: Hvers virði er okkur vest- ræn samvinna og varnarher í sjálfu landinu, ef annað helzta stórveldið i vestræn- um varnarsamtökum, gerir sér óþarfan og ástæðulausan leik að því, að beita okkur ofbeldi? Hvað getum við þá annað gert en að prófa til fullnustu, hvort hin vest- rænu samtök og varnarliðið í landinu vilja ekki veita okk ur fulitingi til að brjóta of- beldi Breta á bak aftur? Ef til slíkra atburða kem- ur, þá duga ekki nein klögu- mál að hætti smábarna. Það eina, sem gildir, er að krefj- ast þess, að styrkleika varn- arsamtakanna verði beitt gegn ofbeldismönnunum ef þeir sjá ekki sitt óvænna og hætta yfirganginum. Verði þessum kröfum okkar hafn- að, höfum við fullnægjandi upplýsingar um, hver vernd er að hinu erlenda varnar- liði, sem dvelst i landinu. EITT skulu Bretar og aðr ar nágrannaþjóðir okkar gera sér ljóst: íslenzka þjóð- in mmi ekki láta bugast fyr- ir hinu brezka ofbeldi. ís- lenzka þjóðin mun ekki sætta sig við svipaða smán- arlausn og Danir hafa kúgað Færeyinga til að fallast á. ís lendingum er full ljóst, að þeir þurfa ekki annað en út hald og stillingu til að sigra í þessu máli. Meðal brezkra togaramanna eykst óðum skilningur á þessu. Aðeins nokkrir æsingamenn í hópi Leikfélag Reykjavíkur: Túskildingsóperan Höiundur: Bertolt Brecht — Leikstjóri: Gunnar Eyjólfsson Höfundur þessa leikhúsverks varð afar kunnur maður fyrir skáldskap sinn á lífdögum sínum og sumu af því sem hann hefir skrifað, er spáð sígildri frægð. ‘ Hér á íslandi er ekki mikil fyrir- ferð á verkum hans, en samt var hann bóklæsum mönnum kunnur áður en Túskildingsóperatn var frumsýnd i Iðnó nú fyrir skömmu. Laxness sneri kvæðinu Maria Farrar á íslenzku og hefir lengra mál oft orðið frumhöfundi að minni frægð, en það kvæði Brechts varð honum hingað komið á ver- aldarhjarann. Undirritaður er því miður ekki kunnugur öðru af verkum þessa höfundar en kvæðinu og óperunni. Þeir, sem hafa lesið mikið eftir hann, 'telja verk hans gjarnan upp i lexikonröð með nótum, sem út af fyrir sig eru athyglisverðar. Sjálfur finnst mér maðurinn mest einkennandi fyrir orðbragðið, bæði í kvæðinu og óperunni. Það er eitt- hvað óskaplega meiningarlaust við það, þegar hrúgað er upp miklum svíviirðingum sem hvorki eru látn- ar höfða til skynsemi eða tiifinn- inga, heldur eru bara sagðar, og eigi þær orsakir i því sem er að gerast; gerist allt með þeim ólík- indum, að skyldleikinn milli verkn aðar og orðs bjargar engu heldur. Svona gaphúslist getur samt sem áður verið skemmtileg og hún er afar vinsæl hjá þeim, sem skrifa um list. Það er nefuilega hægt að nota hana eins' og biblíuna; skrifa um hana endalaust; tala um hana endalaust, og leggja endalaust út af henni. Engum þaa-f að leiðast hún; til þess er hún of skemmti- leg vi'tleysa. Aðeins örfáum er endalaust sama um hana, en þeir eru bæði vilrir og hamingjusamir. Túskildingsóperan er stórkarla- legt, giróft og meinfyndið verk, fulLt af öfgum og stærilátum barnaskap, sem stundum einkenn- ir þá, sem tala mikið um þjóðfé- lagsglæpi. Samt er ekki í því neinn byltingarkenndur æsingur og heldur ekki hneykslun. Áhorf- andinn er látinn í frið: og þess verður tæplega vart, að .verið só að reyna að hneyksla hann. Hann hefir kannski hneykslazt fyrir þrjátíu árum. Nú eru hinar dag- legu svívirðingar aftur á móti orðn ar svo mergjaðair, að maður depl- sr ekki auga, þegar aðaipersónam Friðriksdóttir — Lucy Brown - chum — Baráltan sjálfum verðuir ekki haldið fram snurðulaust hvcirt eð er. Helzli paurinn er Makki hnífuir, leikinin og sunginn af Jóni Sigur- björnssyni. Jóni tekst vel í þesstu lilutverki. Það má kar.nski segja, að hann getri þennan flagara og margmorðingja heidur virðulegtan í fasi og ekki nógu fúlmannlegain í tandliti. Maður get.ur nefnilega látið sér detta í hug, að ekki íylgi því neitt sérlega drengilegt yfir- bragð að skera menn á háls. Um rödd Jóns þarf ekki að ræða. Sjálft blómið, hina óspjölluðu dóttur höfðingja betlaranna, ung- írú Pollý Peachum, síðar konu Makka hnífs'. leikur Sigríður Haga- iín. Hún feir stórvel með hlutverk- ið og b.iargast ágætlega frá söngn- im, þótt röddin sé ekki mikiil. Leikur henn.ar nær alveg nýrri stærð í þessu gervi, hvað öryggi og látleysi snertir Það var mjög gam/an að siá til hennar á köílum. Jónatan Peachum, faðir hennar, er leikinn af Brynjólfi Jóhan'nes- syni. Leikur hans er ekki sérlega eftirm:nnilegur. Hann gerir samt lalit siétt og vel, en það er eins og hann hafi aldrei komizt inn í - og Sigríður Hagalín — Polly Pea- um eignarréttinn. ferð henns'r. Hún er höfuðið, á skömminni en virðist sem slík ve-ra alltof ljúf. Manni datt helzt í hug þeíita ætti að ve.ra göinul og tan'nhvöss hóra. Lucý Brown er leikin af Þóru Friðriksdóttur. Lucý og Poiiý keppa um_ Makka hníf og verður það allsöguleg viðureigni. Þóra leikur hlutverk sitt af miktum skap hita og gerir skemmtilega fvílráð- an kvenmann úr þessari Browi’, án þess að fara yfir markið. Bófaílokkurinn er einvalalið Makka hnífs. Þar ber einna mest á Matthíasi Mvnt, leiknum afÁrna Tryggvasyni, enda staðgemgill hans í óprenthæfum málum, þeg- air hnífurinn er kominn í Old Bailey. Gerfi bófanna eru yfiirleitt góð, sérstaklega Baidurs Hólm- geirss'onar í hlutverki Jakobs krók fingurs, og allur þeytist fioickur- iim um sviðið eins og hópur hunda sem urra, þegar' húsbóndinn sér ekki en leggjas.t flatiir ef hann horfir á þá. Auk bófanna koma nokkrar skækj.ur við sögu, prestur, lög- regluþjónar og fimm betiarar ásamt fógetanum í London. Sést spyr: Hvað cr að ráða mainn hjá því að myðra mann. Þessu fylgi'r svo framúrskarandi hugnæm tón- list, samin af Kurt Weill. Loikfólag Reykjavíkur hefir ver ið skemmtilega stórhuga í því að velja Túskildingsóperuna tii sýn- ingar. Þetta verk þurfti og varð að sýna hér, vegna þess að það er mikill sögulegur póstur í leik- list tu'ttugustu aldar. Hins vegar hlýtur að vera ærnum erfiðleik- um buindið að sýna svona verk á leiksviðiniu í Iðinó, en. það var ekki að sjá, að leikstjóri eða leikara.r ættu í neinum erfiðleikum með að gera það, sem þurfti. Sýningiix var hröð og lifandi og víða mikið lif í henni. Leikstjórinn, Gunnar Eyj- ólfs'son, hefir að vísu frekar lagt áherziu á einstök atriði en að fá verkinu samfelldan heildarsvip. Geta verið skiptar skoðanir mn slíkt, einkum í verki eins og þessu, þar sem fólk þarf að fara með „aríur“ um ástamd sitt og mamnlifið yfirleitt, og leiknum Jóna'tan Peaebum, hvort sem þar •veldur hann sjálfur, leikstjórinn, eða höfundur rull.unn'ar. Kona hans er leikin af Nínu Sveinsd., sem býr til nokkuð snaggaraiega kellingu, er drífur kvennamáiin á bendur Makka hníf af miklum þrótti. Gerfi Steindórs Hjörleifssonar sem götusömgvara er gott. Manni væri fcrvitni á að sjá hvornig Steindór mundi plumma sig í stóru hlutverki hjá ströngum leik- stjóra, sem tæki vel í lurginn á honum. Steinunn Bjarnadóttir leikur Knæpu-Jcnný. Þetta er okkar bezta revíusöngkona. Knæpu-Jenný hefði mátt vera fyrirferðarmeiri í með- á þessari upptalningu, að Brecht hefir lei'tt persónur á sviðiö, sem hafa það ekki daglega undir fótUm á þessum tímum hinna kurteisu gamanleikja úr enskum teboðum. Þýðingu gerði Sigurður A. Magn ússon. Hún er mjög áheyriiag og víða skemmtilegir sprettir í licmvi. Það hefir verið mikil kúnst að þýða þetta verk, svo vel færi, þeg- ar það er haft í huga, a.ð mikið af því þairf að felLa að tónlist. Ég þóttist höggva eftir því að .notáð \ar ávarpsorðið hérra. í íslefnzku er þetta ávarpsorð ekki notað í daglegu tali nema um forseta landsins og biskupinn. Þegar ensk ir nota mr., þá höfum við alveg (Framhald á 10 síðu) þeirra reyna enn að Halda deilunni áfram og gera hana illvígari, í blóra vio varnar- samtök vestrænna þjóða. Það mun engu breyta afstöðu ís- lendinga, en getur hins veg- ar leitt í ljós, hvers virði þeim er dvöl varnarliðsins í landinu og þátttakan i varn- arsamtökum vestrænna þjóða. Bófafiokkurinn ásamt Polly og Makkí hníf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.