Tíminn - 30.05.1959, Side 5

Tíminn - 30.05.1959, Side 5
r í M IN N, laugardaginn 30. maí 195í» 5 < Reykjavík sigraði Akranes 4 Er bæjarkeppnin í knatt- spyrnu milli Reykjavíkur og Akraness hófst kl, 20,30 s. 1. fimmtudag, var völiurinn orðinn mjög blautur og höfðu poilar myndazt, eink- um við austurjaðar vallarins, enda hafði rignt svo til sleitu laust frá hádegi. Þrátt fyrir hinar slæmu aðstæð- ur höfðu ca 3000 manns heiðrað leikmenn og dómara með komu sinni, og létu ekki á sig fá þó enn rigndi drjúgt. ÚrvalsZeikur — AfmæZisIeikur. Leikur þessi var auk þss.s að 'SíWi! Óvenjwlega skemmtilegur vorleskur — Guðión Jónsson skoraíi }>rjú mörk Reykjavíkur GuSjón Einarsson hefir verið knattspyrnudómari í 30 ár og var þess afmælis minnzt í leiknum Akranes—Reykjavík. Gúð- jón er eini íslenzki alþjóðadómarinn. vera úrvalsleikur jafnframt afmæl isleikur, þar sem hinn snjalli og gamalkunni knattspyrnudómari, Guðjón Einarsson hélt upp á þrjátíu ára dómaraafmæli sitt og Halldór Halldórsson lék í þetta sinn íinn 25. leik í úrvalsliði Reykjavíkur. Grétar Norðfjörð, form. knattspyrnudómarafélags Ueykjavíkur afhenti Guðjóni Ein arssyni fagran blómvönd við mik- ihn fögnuð áhorfenda, er hylltu athöfnina með dynjandi lófa- klappi. Er liðin rö'ouSu sér upp til leiks, sást að sú breyting hafði orðið á uppstiilingu ttcykjavíkurúrvalsins að Sveinn Jónsson KR lék ekki með, en í hans stað kom Grétar Sigurðsson, Fram. Fyrri hálfleikur 2 :1 fyrir Reykjavík. Rcykjaví'kurúrvalið sýndi strax á fyrstu fimm mínútum leiksins að leiknir, léttir og leikglaðir menn skipuðu megin hluta iiðsins. A þessum mínútum skapaði Reykjavíkurúrvalið sér tvö góð inarktækifæri með léttu, hörðu og ituttu skiftispili, þar sem öll fram .ínan var meira og minlia að /erki, mest áberandi þó Guðjón jg Þórólfur. Skagamenn láta þetta ekki á ,ig fá hið minnsta því á 6. mín. gera þeir snökkt upphlaup og Heigi Björgvinsson á skot yfir stöng. Næstu mínútur sýna áhorfend- rm að von er á góðum, hi'öðum* og „ vel leiknum leik. Á 12. mín. fær Þórólfur send- ngu fram völlinn frá Rúnari. Þór ólfur tekur vel við sendingunni g undirbýr sig til að skjóta, en arnarleikmaður Skagamanna ækir að honum og Þórólfur renn ar til á blaut'um vellinum og dett ur. Á 15. mín. gera Skagamenn aratt upphlaup. Helgi Björgvins- son er kominn í dauðafæri Rún- ar 'kemur aðsvífandi og hrinti á bak Helga, svo hann féll við. Víta ;pyrna er dæmd, sem Sveinn Teitsson hagnýtir vel og skorar með snöggu skoti upp í efra horn. Leikur er hafinn f,rá miðju og Reykjavíkurúrvalið sækir að marki S'kagamanna. Fá horn- spyrnu ,sem nýtist þó ekki, þó vel sé tekin. Á 17. mín. eni Skagamenn í ein um af sínum leiftursnöggu upp- hlaupum. Ríkarður er með knött- inn innan vítateigs Reykjavíkur- marksins, fyrir opnu marki. Rík- arður sendir fast skot að mark- inu, — en Hreiðar kemur eins og byssukúla og nær að hreinsa frá markinu, með skalla frá mark línu. Vel af sér vikið, óvænt' og snjallt. Reykvíkingarnir herða nú sókn- ina og á 20. mín. er Þórólfur með knöttinn. Hann sendir til Arnar Steinsen, sem leikur inn að marki Skagamanna og sendir ná- kvæma, vel hugsaða sendingu inn fyrn- varnarvegg Skagamanna, sem skapar Guðjóni tækifæri til að fylgja eftir og skora auðveld- lega. Markat’alan 1 : 1. Næstu 10. mínútur skiptast lið in á sóknarlotum, en hættum er hi'undið með góðum varnarleik, Á 25. mín. á Rikarður góðan skallabolta er fer yfir stöng. Sið- ustu fimmtán mínúturnar af hálf leiknum er Rej'kjavík í meiri sókn og á 32. mín. er Þórólfur með knöttinn og leikur í boga inn að marki Skagamanna, og inn í vítateignum gefur hann knöttinn til Guðjóns, sem skorar. Leikurinn 2 : 1 fyrir Reykjavík. Þegar hér er komið leik er völl- urinn farinn að há leikmönnum mjög. Síðari hálfleikur. Þrátt fyrir aur á búningum og bleytu vallarins, eru leikmenn léttir í skapi er þeir koma út á völlinn eftir hléið. Er leikur hefst kemur í ljós að drunginn er færst' hafði yfir leikmenn á síðustu anín útum fyrri helmings leiksins er horfinn og aftur tekið til við hrað an og kappsaman leik. Á 49. mín. fær Þórólfur send- ingu inn á vítateig S'kagamanna. Hann losar ,sig vel við hann og sendir fast skot að marki, sem verður úr horn. Hornspyrna er tekin en hættunni bægt.frá. Skagamenn eru nú í meiri sókn og eftir harða sóknarhríð að marki Reykjavíkur, fær Ríkarður knött- inn á vítateig. Áhorfendur voru sumir byrjaðir að klappa, en kapp inn hitti ekki knöttinn, og þar með var það tækifæri horfið út í sandinn. Á 62. mín fær Guðjón sendingu út á kantinn, sem hann sendir þegar áfram upp kantinn til Þór- ólfs. Þórólfur heldur áfram með knöttinn upp að endamörkum, þó færandi sig inn að markinu, það- an gefur hann vel fyrir og Ellert grípur vel inn í leikinn, með því að skjótast milli varnarmanna Skagamanna og skora léttilega. Og þar með stendua- leikurinn3:l fyrir Reykjavík. Skagamenn missa þó ekki kjark inn frekar en endranær. Næstu mínútur eru þeir í hörku sókn og (FramhaM á 8. síðu) Ellert Schram á miðri myndinni skorar þriðja mark Reykvikinga í leiknum. Hvernig reynist Herter senr eftirmaður Dulles? Hann mun fjJgja svipaðri stefnu en er líklegrí til aft sýna meiri sveigju Þegar Christian Hertei* haltrar inn í Þjóðhöllina í Genf á stáT stöfum sinum, virðist mönnum hann of veikhyggður í íhina erf- iðu og hatrömmu baráttu á ut- •anríkisráðherrafundmum, sem nú hefir staðið í fullan hálfan mán uð. Það liggur við, að þú voi'kenn ir honum, þessum manni, isem hef ur tekið hið þunga ok John Fost cr Dulles á herðai*. Mönnum verð ur ósjálfrátt á að hugsa: Hlýtur hann ekki að kikna undan byrði sinni? í yfirbragði hefur hann iítið af mikilleik og stórlæti fyrirenn ara síns. Hann hefur þreklausan svip og rödd (hans er veik og mjúk. Framkoma hans er mild og töfrandi — fyrir einkaaatara af Veikara kyninu. Menn spyrja sjáifa sig: Getur þessi maður tam ið þess böldnu og harðskeyttu Rússa? Vinnur trausf Þeirri skoðun vex nú fylgi, að Herter sé ekki lamhið að leika sér við. Á fyrsta fundinum, sem hann mætti Gromyko auglitis til auglttis, vann hann sér strax virð ingu og traust utanrikisráðherra hinna Vesturveldanna. Tvisvar hefur hann slengt því framan í Rússana, að Bandaríkja menn hefðu ekki tekið þátt í þessari rá&stefnu til þess að láta ti'oða á sér! Einu sinni sagði hann við G-romylko, að ef Riissar minntust einu sinni — aðeins einu sinni — en á úrslitakosti, þá myndu Banda ríkin ekki taka þátt í ráðstefnu æðstu manna. í annað skipti er hann aðvaraði Gromyko, sagði hann, að ef Rússai* hættu ckki hvassyrtum ásökunum sínum um hernaðaranda NATO og aðdróttun um um árásai'hyggju þess, þá myndi þessi ráðstefna fara út um þúfur. ^ Tók forustuna í þessum orðræðum sínum hef ur hann haldið hinum auðráða Breta og hinum stáflynda Frakka að baki sér eins og tveimur ux um, sem spenntir hafa verið við sama eykið. Herter hefur nú greinilega tekið forustuna á Genfarfundinum og leiðir viðræð urnar inn á brautir raunhæfra samninga. Starfsdagur Herters í Genf hefst kh 9 f. h. með því að hann ekur frá íbúðarhúsi sínu við vatnið til aðalstöðva bandaríska sendiráðs- ins í borginni. KI. 9.30 kallar hann ráðgjafa sína saman á fund og ræða þeir þá um það, hvaða leiðir skulu famar á ráðherrafundinum seinná um daginn. Tíðum taka svo fundir tanríkisráðherra Vesturveldanna við og standa fram undir hádegi. Þá er snæddur hádegisverður og velur Hertér þá afskekta veitinga- staði, þar sem framreiddur er góð- ur franskur matur og andrúms- loftið er ekJd þvingandi. Stuttar ræSur Síðdegis hefjast svo ráðherra- fundirnir. Herter heldur mun styttri ræður en Dulles gerði viö svipuð tækifæri. Lengsta ræða hans tiT þessa hefur staðið í tæp ar 30 minútur. Meðan hinir tala púar hann síga rethir í sífeiiu. DuUes var bindismaður á tó- bak. Fundirnir standa frá hálf fjög ur til um það bil hálf sjö. Þá snýr Hertei* heim til bústaðar síns til að boi'ða kvöldverð og til þess að ganga frá opinberum símskeyt um. Hann fer í rúmið kl. ellefu og les sig i svefn með glæparcyfur- um. I Þetta er erfið dagskrá og Hert er k\rartar góðlátlega um, að hann Herter hafi aldrei tíma til að spila bridge, en Herter er slyngur bridge-spil ai'i. Margþætfur starfsferill Þrátt fyrir hið veiklulega út- lit sitt, hefur Herter ætíð vérið maður, sem hefur vaxið við erfið leika og áreynslu. — Hann hefur verið blaðamaður, diplómat, há- skólakennari, setið á löggjafar þingi Massachusetts, þingmaður í Washington, og ríkisstjóri í Massachusetts. Engin þessara starfa hans hafa fænst honum auðlegð. Hann erfði heldur engin auðæfi eftir föður sinn, sem var listamaður. Herter má þó teljast í sæmilegum efnum. Hann á búgarð í SuðurKarólínu og ágætt safn málverka. — Hann er þó mjög háður ráðherralaunum sínum — 25,000 dollurum' á' mán- uði. Sveigjanlegri stefna? Það er enn of snemmt að kveða upp fullnaðardóm yfir þessum renglulega og þreklitla manni, sem tekið hcfu rað sér að gegna einhverri þýðingarmestu stöðu í heiminum. Sumir búast við breyttum starfs aðfei'ðum i ut'anríkisþjónustu ÍBandaríkjanna. Ef til vill verð ur farið með meiri gætni, og ekki eins oft teflt á tæpasta vaðið. Ef til vill verður stefnan sveigjan legri. En höfuðdrættirnir í stefnu Dullesar munu vafalaust halda sér. (Þýtt úr Daily Express). Fyrsta ársþing íslenzkra ungtemplara Fyrsta ársþing íslenzra ung- templara verður haldið í Hafnar- firði dagana 30. og 31. maí. Þingið verður sett í Góðtemplarahúsinu í Hafnaríirði á laugardag kl. 2. Um kvöldið verður almenn semmtun ungtemplara í Gt-húsinu i Hafnarfirði. Mun ungmennastúk an Gefn sjá um skemmtunina. í sambandi við- ársþingið verður æskulýðsguðsþjónusta í Fríkirkj- unni í ITafnarfirði á sunudag kl. 2. Séra Árelíus Níelsson prédikar. Ki, 4 sama dag verður þingstörf- um haldið áfram. Á sunnudags- kvöld veröur kvöldvaka með dansi í Gt-húsinu í Hafnarfirðið. Þar j munu koma fram ýmis skemmti- atriði úr ungmennastúkunum í * Reykjavík og Hafnarfirði.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.