Tíminn - 21.06.1959, Side 10
10
T f MIN N, sunnuuagum 21. júní 1959,
Landsliðið
heppið aö
sigra pressu-
iiðið 2 -1
Þó aS landsliðið sigraði
pressuliðið í leiknum á Laug-
ardalsvellinum í fyrrakvöld
með oddamarkinu af þrem-
ur, var það þó meira heppni,
sem :því réði en yfirburðir í
leiknum. Leikurinn í heild
var fremur daufui, þó að
skemmtilegum ieikköflum
brigði fyrir hjá báðum liðum
af og til. Greinilegt var, að
leikmenn forðuðust að taka
á sig áhættu eða leika hörku-
lega gegn öðrum og var það
rétt athugað, því að aðeins
vika er til landsleiksins við
Dani. Hins vegar var mjög
í síðari hálfleik komst Ríkarður Jónsson frír að markinu en lék einum of innarlega, þannig, að Gunnlaugur Hjálmarsson gat lokað markinu.
Myndin greinir þetta atriði vel og sést, er Gunlaugur hefir náð knettinum af Ríkarði. Árni Njálsson stendur tilbúinn í markinu, en aðrir á
myndinni eru Einar Sigiirðsson (nr. 3), Guðmundúr Guðmundsson og Ellert Schram. (Ljósmyndir: Guðjón Einai'sson.)
þá laglega upp kantinn, og síðan
var gefið fyrir. Ellert stökk yfir
knöttinn, enda Ríkarður betur
staðsettur bak við hann. f stað
þess að skjóta strax ætlaði Rík.
arður að leika nær, en það varð
til þess, að varnarleikmenn kom.
Helgi Jónsson og Ríkarður Jónsson
og tókst Helga ágætlega upp gegn
ánægjulegt eins og fram
kom í leiknum, að íakast
skyldi að finna 11 leikmenn,
sem gáfu þeim leikmönnum,
sem koma til með að skipa
landsliðið að langmestu leyti,
ekkert — eða Htið sem ekk-
ert — eftir. Pressuliðið kom
hiklaust á óvart, og náði,
einkum fyrst, betri samleik
en landsliðið, en leikmenn
voru ekki eins heppnir með
skotin, því að mörg hörku-
skot strukust rétt fram hjá
landsliðsmarkinu, ,og einnig
hristist marksiáin
Hér verður ekki gerð tilraun til
ag rekja gang leiksins svo nokkru
nemi, en aðeins brugðið upp nokkr
um svipmyndum. Strax í byrjun
leiksins komst Ellert Schram, v.
'innherji iandsliðsins, frír inn fyr-
ir vörnina, en Gunnlaugur mark.
vörður, bjargaði snilldarlega með
útinaupi. Þó pressuliðið væri
meira í sókn fram'an af var það þó
lan- sliðið, sem fékk fyrstu opnu
•tækifærin, eins og það ,sem að
framan er lýst, og aðeins síðar
fi Ríkarður knöltinn frír á
markteig, en spyrnti yfir. — Síð-
ar aíti pressuliðið góð upphlaup.
í cinu þeirra gaf Gunnar Guð.
m; i usson knöttinn í sæmilegu
færi, en spyrnli framhjá. Þannig
geki, leikurinn fram og aftur, en
mark var ekki skorað fyrr en síð.
ast í hálfleiknum.
Örn Steinsen og Þórólfur léku
háðu mörg einvígi í pressuleiknum
hinum fræga mótherja sínum. —
ust á milli. Og þá var landsliðið
lieppið, því knötturinn hrökk af
varnarleikmanni beint fyrir fæt-
ur Þórðar Jónssonar, sem stóð ó.
valdaður á markteig, og tókst
honum að skora. 1—0.
Síðari hálfleikur
Fyrstu mín. síðara hálfleiks
voru nokkuð fálmkenndar hjá
pressuliðinu. Strax á fyrstu mín.
Varð Einari Sigurðssyni bakverði
á í messunni. Hann ætlaði að
spyrna til markvarðar, en Ellert
komst á milli. Árni Njálsson var
hins vegar vel á verði og bjarg-
aði á marklínu í horn. Aftur var
gert horn, og Örn gaf vel fyrir.
Gunnlaugur hugðist slá knöttinn
frá en hitti illa og á vítateig náði
Rikarður knettinum og tókst að
spyrna í mark, gegnum hóp varn.
arleikm'anna pressunnar. Þessu
marki hefði Gunnlaugur átt að
komast hjá, en það voru líka einu
mistök hans í leiknum, og hann
er hiklaust eitt mesta markmanns.
efni, sem hér hefir komið fram,
gripin stórkostleg, útspyrnur ,svo
ekki sé talað um útköst út fyrir
miðju — góðar, og staðsetningar
yfirleitt góðar. En hann á talsvert
ólært ennþá í stöðunni, sem skilj.
anlegt er.
í þessum hálfleik átti Ríkarð.
ur einnig skot, sem Gunnlaugur
varði vel, og Ríkarður komst líka
alveg frír að markinu, en lék ein.
um of innarlega, og Gunnlaugi
tókst að loka markinu á skemmti-
legan hátt. Fékk mikið lof áhorf.
enda fyrir.
En langbeztu tilraunir til að
skora í leiknum átti Guðjón Jóns.
son, sem lék í s. li. vinstri inn.
herja í pressuliðinu. Um miðjan
hálfleikinn fékk hann knöttinn á
vítateigslínu, og spyrnti viðstöðu-
laust frábærri spyrnu á markið,
sem sleikti þverslá. Fallegt hcfði
verið að sjá þann knött hafna í
netinu. Þá átti Guðjón og hörku.
skalla á mark rétt innan vítateigs
sem skall í þverslá svo allt mark-
ið hristist. Já, Guðjón var sannar.
lega óheppinn að skora ekki í
þessum leik, og liann hefði vissu.
lega verðskuldað það vegna ó.
venju góðra tilrauna.
Gunnar Gunnarsson skoraði
mark pressuliðsins síðast í leikn-
um eftir mikil mistök hjá Hreið.
ari bakverði.
Beztir í liSunum
Ef fella ætti dóm um hverjir
hefðu sýnt í þessum leik mesta
getu í hinum einstöku stöðum yrð
hanri eitthvað á þessa leið. Mark-
verðirnir, Gunnlaugur og Heimii
Guðjónsson, báðir góðir. Bezt
varnarleikmaður, Hörður Felixsoi
miðframvörður landsliðsins. Bezt
ur bakvarða, Árni Njálsson, hægr
bakvörður pressuliðsins. Bezt
framvörður Helgi Jónsson, vinstr
framvörður pressunnar, sem fékl
tvíþætt hlutverk, þar sem í hans
hlut féll að gæta hættulegasta
framherja landsliðsins, Ríkarðar,
og fékk auk þess tima til að byggja
upp. Beztu innherjar, Ríkarður og
Guðjón Jónsson. Bestur útherjal
Gunnar Gunnarsson, hægri útherji
pressuliðsins. Af þessu sést einnigl
að landsliðið hefir verið jafnara,
en einstakir menn pressuliðsin.9
komið á óvart.
Yfirleitt var landsliðsvörnin
v’ramhald á 11 síðu.
Kristleifur Guðbjörnsson,
tekst honum að sigra erlendu
gestina á 3000 m. hlaupi.
Tveir af beztu langhlaupurum Norðurlanda keppa
við Kristleif og Svavar í 3000 m. annað kvöld
Aímælismóf KR í frjálsum íþróttum fer fram á
Melavellinum á mánudags- og þriðjudagskvöld
í tilefni af 60 ára afmæli
Knattspyrnufélgas Reykja-
víkur efnir frjálsíþróttadeild
þess til afmælismóts í frjáls
um íþróttum annað kvöld og
þriðjudagskvöld á Melavellin
um. Meðal keppenda eru fjór
ir kunnir íþróttamenn frá
Svíþjóð og Danmörku, tveir
langhlauparar, hástökkvari cg
sleggjukastari. Keppnin hefst
kl. 8.30 bæði kvöldin.
Erlendu gestirnir á mótinu
eru:
★ Thyge Tögersen, Danmörku
bezti langhlaupari Ðana. Hef
ir náð mjög góðum árangri í
10 km. hlaupi, en bezti tími í
3000 m. hlaupi er 8:16.0 mín.
★ Poul Cederquist, Danmörku
danskur methafi í sleggju-
kasti, 56.42 metrar. Þórður B.
Sigurðsson, íslenzki methaf-
inn í greinmni, hefir oftsinn
is keppt við Cederquist og
tvívegis borið sigur úr býtum.
Cederquist er 42 ára að aldri.
Bertil Kállevág, einn betzi
langhlaupari Svía. Bezti ár-
angur 8:09.8 mín í 3000 m.
hlaupi, og 14:15.0 í 5000 m.
lilaupi. í' fyrra hljóp hann
3000 m. á 8:19.8 min.
ic Stig Anderson, Svíþjóð,
einn bezti af hinum mörgu
góðu hástökkvurum Svía. Hef
ir stokkið hæst 2.05 metra, en
í fyrra stökk hann hæst 2 m.
Fyrri dagur.
Aöalkeppnin fyrri daginn verð
ur 3000 m. hlaupið, og það eitt
þess virði að horft sé á keppn
ina. Þar mætast Kallevágh, Tög
ersen, Kristleifur Guðbjörnsson,
islenzki methafinn í greininni.
Auk þess keppa einnig Svavar
Markússon, Kristján Jóhannsson
og ef til vill Haukur Engilberts
son, Borgarfirði. Má búast við
mjög skemmtilegri keppni, og
engan veginn vist, að hinir er-
lendu gestir fari með sigur af
hólmi.
í sleggjukastinu mætast Ced-
erquist og Þórður, og auk þess
keppa Friðrik Guðmundsson og
Þorsteinn Löve. í hástökki mæt
ir Islandsmethafinn innanhúss,
Jón Pétursson (1.97) Anderson,
og gæti það orðið tvísýn viður-
eign því Jón er í stöðugri fram
för. í þessum greinum verður
keppt báða dagana.
Aðrar greinar fyrri daginn eru
100 m. hlaup m. a. keppenda
Hilmar Þorbjörnsson, Valbjörn
Þorláksson og Guðjón Guð-
mundsson. 400 m. hlaup, Hörður
Haraldsson og Þórir Þorsteins-
son. Kringlukast, en þar keppir
Cederquist, auk Þorsteins Löve
og Friðriks Guðmundssonar. Þá
verður einnig langstökk, 110 m.
grindahlaup, 1500 m. hlaup ung
linga og 4x100 m. boðhlaup.
Síðari dagur.
Síðari daginn, þriðjudag, verð
ur hápunkturinn 5000 m. hlaup
ið en þar verða sömu keppend
ur og i 3000 m. hlaupinu daginn.
áður, að þvi undanskildu, aö
Svavar keppir ekki, en í hans
stað keppir Hafsteinn Sveins-
son. Þá verður eins og áður er
sagt aftur keppt í sleggjukasti
og hástökki, og einnig í 200 m.
hlaupi, 400 m. grindalilaupi,
kúluvarpi, stangarstökki, þrí-
stökki og 1000 m. boðhlaupi.
Þátttaka í mótinu verður mik
il, enda er þetta síðasta frjáls
íþróttamótið fyrir bæjarkeppn-
ina riiiUi Reykjavíkur og Malmö,
sem fram fer 3. og 4. júlí og því
nokkurs konar úrtökumót fyrir
þá keppni.
Leikstjóri á mótinu verður
Sveinn Björnsson, varaformaður
KR, en yfirdómari Brynjólfur
Ingólfsson, formaður Frjáls-
íþrottasambands íslands.