Tíminn - 26.06.1959, Side 6

Tíminn - 26.06.1959, Side 6
6 T í M I N N, föstudaginn 26. júrn' 1959. Skrifstofur 1 Edduhúsinu y!5 LlndirgSt* Símar: 18 300, 18 301, 18 303, 18 38S, 18104. (skrifstofur, ritstjórnin og bUSunenm) Auglýsingasími 19 523. - AfgrelðiUa 13338 Frentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 18M8 Um jjetta er kosið Örlagadjag’ur héraðákjör’- dæmanna, kosningadagur- inn, nálgast, en þá mun þjóðin fella úrskurð sinn um það, hvort héraðakjördæmin skuli lögð niður og teknar upp hlutfallskosningar í sttlrum kjörd|æm’um,i :eða hvort sjálfstæði kaupstaða og héraða skuli óskert og þessar byggðir fá að kjósa ' sína eigin fulltrúa og senda á Alþing eins og verið hefir. Um þetta snúast kosning- arnar, og um annað er ekki unnt að láta þær snúast. Þær eru þjóðaratkvæöa- greiðsla um þetta mál, sem stjórnarskráin hefur skotið undir dóm þjóðaðrinnar. Aö kjósa um önnur mál, en gegn sannfæringu sinni í þessu máli, væri að bregðast þeirri skyldu, sem stjórnarskrá- in leggur kjósandanum á horðar og gera ákvæði henn ar að markleysu. Kosningarnar eru spurn- ing til kjósandans um það, hvort hann vill þessa stjórn- arskrárbreytingu, . .og at- kvœðaseðillinn er svar kjós- andans. Þetta eru stjórnar- skrárkosningar. Aðalatriðið er að sjálf- sögðu trygging lýðræðisins í landinu sjálfstæðistrygging héraðanna, réttur fólksins til áhrifa á þjóðþingið, hvar sem það býr á landinu, og ekki sízt trygging þess, að áhrif þess fólks, sem byggir ir og nýtir hin strjálbýlli hér- uð, verði ekki fyrir borð bor- in. Með því að svipta héruð- in því að vera sérstök kjör- dæmi, er fótum kippt að hálfu eöa meira undan sjálf stæði þeirra, og eftir það munu þau vart fá staðizt og héraðaskipulagið allt riða til falls. Þetta eru íhugunarverustu þættir þessa máls, og afstað an til þess hlýtur að þessu sinni að skipa þjóöinni í fylkingar við kjörborðin. Öðr um megin verða þeir sem vilja breytinguna og telja bezt að alræði flokksstjórna komi í stað hins jafna og dreifða valds og áhrifa allra byggða landsins á þjóðþing- ið. Það eru þeir, sem fylgja flokkastefnunni. í hinni fylkingunni hljóta þeir að verða, sem meta rétt og viðgang héraöanna, byggð anna, kaupstaða og sýslna meira en eflingu flokkavalds ins í landinu. Þar eru þeir, sem byggja vilja á traustum sögulegum grunni. Þar eru þeir, sem fylgja bæja- og byggðastefnunni í kjördæma málinu og vilja ekki leggja kjördæmin niður. Þeir hljóta að þessu sinni að kjósa þá sem fylgja bæja- og byggða stefnunni í kjördæmamál- inu og vilja ekki leggja kjör dæmin niður. Þeir hljóta aö þessu sinni að kjósa þá full- trúa til aukaþingsins, sem lýst hafa andstöðu við kjör- dæmabyltinguna, hvar í flokki, sem þeir standa ann- ars í viöhorfi til almennra þjóðmála. Þeir hljóta að þessu sinni að kjósa Fram- sóknarflokkinn Samdráttarstefnan í kjölfarinu En það er fleira en hin stjórnarfarslega hætta, sem vofir yfir með kjördæmabylt ingunni, og það ber einnig að hafa í huga. Einn megin- tilgangur þríflokkanna, ekki sízt Sjálfstæðisflokksins, með kjördæmabreytingunni er sá að losna við áhrif og aðhald sérfulltrúa hérað- anna, fulltrúanna, sem standa vörð um það, að ekk- ert hérað verði afskipt af þjóðartekjum og opinberum framlögum til framfara og uppbyggingar atvinnulifs. Ef kjördæmabyltingin gengur fram og núverandi stjórnarflokkar fá meirihluta i næstu kosningum á eftir, sem ekki er ólíkiegt, snúizt málin þannig í þessum kosn ingum, þá verður tekin hér upp alveg ný stefna í efna- hags- og fjárfestingarmál- um. Það myndi verða meginatr iði þeirrar stefnu að draga úr .fjárfestingunni og ná jafn- vægi í efnahagsmálum á þann hátt eins og þeir orða það. Á réttu máli þýðir það, að atvinna og framkvæmdir séu of miklar í landinu, og kaupgeta launþega ó- eðiilega mikil, en af því hljót ist verðbólga og önnur efna hagsleg óáran. Allur galdur inn sé að draga úr atvinn- unni og minnka kaupgetu al mennings. En þessari sam- dráttarstefnu telja þeir ekki unnt að koma fram fyrr en búið er að afnema vald hér- aðafulltrúanna. En þessi stefna hefur þeg- ar fengið sinn dóm í mörg um löndum og reynzt hald laus gegn verðbólgu. íhalds stjórnin í Bretlandi hefur reynt hana, og þar hefur hún beðið skipbrot síðustu missirin og afleiðingin orðið atvinnuleysi. íhaldsstjórnin í Bandaríkjunum hefur líka reynt hana með því að draga úr fjárfestingu, og áð ur en stjórnin vissi af var tala atvinnuleysingja komin 4—5 milljónir. Verðbólgan minnkaði í engu en verðlag hækkaði, og kröfur um kaup hækkun urðu eðlilega há- værari um leið. En þessa skipbrotsstefnu boða kjördæmaflokkarnir þó enn hér á landi, og hún er sá óskadraumur, sem afnám héraöakj ördæmanna á að gera að veruleika auðkónga og fjárplógsmanna íslenzka íhaldsins. Og fyrir þann vagn beita þeir nú bæði kommún- istum og Alþýðuflokksmönn um. Jón G. Jónsson frá Fellsenda: Skýlaus réttur Eins og alþjóð hlýtur að vita (þrátt fyrir feluleik þriílokk anna og tilraunir þeirra til að telja fólki trú um að kosið verði um allt milli himins og jarðar annað en kjördæmamálið) verð- ur aðeins kosið um eitt mál í næstu kosningum, — kjördæma frumvarpið. Ég tel, héraðakjör. dæmin hyrningarsteina þjóð skipulags okkar og menningar. Það er skýlaus réttur héraðanna, sem eru sjálfstæðar menningar- legar, fjárhagslegar og landfræði legar heildir, að eiga sinn sér- staka fulltrúa á löggjafarsam. komu þjóðarinnar. Ef breytingin nær fram að ganga, verður dregið úr livers konar fjárfestingu til sjávar og sveita og flótti fólksins hingað fil S-V liornszns, mun komast í algleyming. Stjórnmálaflokkun- um verður það ekki Iengur keppikefli að halda landinu í byggð, og þá mun skammt í það, að Iandið verði gert að einu kjördæmi. Eg vil livetja allt það fólk, sem ann íslenzkri menn- ingu, landi sínu og þjóð og skil- ur hve mikilvægt það er, að landið ekki smækki og auðæfi landsins verði nytjuð, landið um kring, að lirinda þessari ger-j ræðisfullu árá.s þríflokkanna á stjórnskipunina, landsbyggðina og rétt fólksins, sem þar býr. Egiil Bjarnason: Veitum þeim ráðningu! Fyrir fimmtán árum var stofnað lýðveldi í landi okkar. Skyldi því að sjálfsögðu sett ný stjórnarskrá, er liæfði hinu nýja stjórnskipulagi. Þennan langa tíma hafa verið til nefndir, skip- fíðar af Alþingi, og forystumað- ur þeirra einn helzti forvígismað ur stærsta flokks landsins, er ber nafnið Sjálfstæðisflokkur. — Þessi formaður stjórnarskrár- nefndar heitir Bjarni Benedikts- son, lögfróður maður vel, og tal- inn dugandi, enda falið starf aðal ritstjóra Morgunbl. er hann hrökklaðist úr ráðherrasæti. Þrátt fyrir þessa formennsku, hefur stjórnarskrárnefnd ekki lokið störfum enn. Ilins vegar bregður formaðurinn nú á leik, og beitir sér fyrir breytingu á einu atriði stjórnarskrárinnar, sem sé kjördæmabyltingu. Hitt allt má bíða í bili. Astæðan til þessa er sennilega livorki getuleysi né áhugaskort- ur. En þegar vinstri stjórnin var hrakin frá völdum, að miklu leyti fýrir áróður Sjálfstæðisfl. og brigð hægri arms Alþýðu- flokksins og Moskvulínumanna í Alþýðubandalaginu, sá Bjarni sér leik á borði. Alþýðuflokkurinn var dauða- dæmdur án utanaðkomandi hjálp ar. Bjarni Benediktssön baúðst til þess að gera á honum lífgun artilraunir, og studdi liann til stjórnarmyndunar. Sem björgun arlaun átti Alþýðuflokkurinn að styðja Sjálfstæðisflokkinn til þess að koma á kjördæmabreyt- ingu, er báðum gæti verið hag- kvæm um stundarsakir. Afiiema skyldi kjördæmin utan Reykja- víkur en búa til í þeirra stað fá en stór kjördæmi, en jafn- framt auka vald Reykjavíkur, sem er aðalvígi Sjálfstæðis- manna. Með hinni nýju kjör- dæmaskipan sá Alþýðuflokkur- inn hilla undir lífsmöguleika, og þeim, sem berst fyrir lífi sínu er sannarlega vorkunn. Breyting á kjördæmaskipan Iandsins er sjálfsögð, en aðeins í sambandi við heildarendurskoð un stjórnarskrárhmar, og án þess að gengið sé á rétt dreifbýlis- ins og kaupstaðanna úti á landi. Það, sem nú er verið að gera, er liandahófslegt kák, gert í hags munaskyni fyrir Sjálfstæðisflokk inn og Alþýðuflokkinn fyrst og fremst, þótt Alþýðubandalagið hafi gert sig þeim samsekt. Sjálfstæðisflokkurinn þykist sjá hilla undir meirihlutaaðstcðu í haustkosningum, ef þær verða. Hann heldur því lífinu í Alþýðu flokknum í þeirri von. En Al- þýðuflokkurinn má vera þess viss ,að það er hans dauðadómur. Þá mun sannast að skamma stund verður hönd höggi fegin. Framkoma þn'flokkanna í kjör dæmamálinu er þcim til skamni ar. Fyrst og fremst Sjálfstæöis- flokknum og formanni stjórnar- skrárilefndar. Hinum er ef til vill vorkunn. Þessir flokkar eru að vefa sér svikavef, sem ólík- Iegt er að meirihluti þjóðarinnar láti veiða sig í, í þessum kosn- ingum. Ef svo fer, mun það hafa örlagaríkar afleiðingar fyrir þjóðina alla, um langa framtíð. Þess vegna eiga kjósendur um land alZt að veita þessum flokk um þá ráðningu, sem þeir eiga skilið, og fella kjördæmabreyt- inguna í kosningunum á sunnu- daginn kemur. Flalldór Haíldórsson, verkamaður: r- fbúar höfuðstaðariíis muiiu veita dyggiSeg- an stuðning Þótt þríflokkarnir rembist nú sem rjúpan við staurinn að reyna að lelja þjóðinni trú um að kosið verði um. öll mál önnur en kjördæmamálið, þá mun þjóð- in ekki Iáta blindast af því moid- roki, sem nú er þyrlað upp og íFramhald h nftu). Valborg Bentsdóttir: Fjölgar nú farsælum hjónaböndum? | Fyrir aðeins einu ,ári voru lög á íslandi, <sem telja mátti, að mæltu svo fyrir, að refsa skyldi konum fyrir að ganga í hjóna- band, ef þær höfðu launuð störf. í skattalögunum voru þau ákvæði að leggja skyldi saman tekjur hjóna og skattleggja sem einn hefði aflað. Munurinn á þeim skatti, sem hjón eða -svokallað sambýlisfólk þurfti að greiða, gat , numið verulegum upphæðum, og var ekki óalgengt, að eyða þyrfti þá aukalega um 10—-20 þúsund krónum í fyrirtækið hjónaband. Kvenréttindafélag íslands hafði um tug ára barizt ötullega fyrir því' að fá þessari löggjöf breytt. 'En árangurinn virtist ekki meiri en hjá dropanum við að hola steininn. Þó kom að því í júní- mánuði 1957, að þáverandi fjár- málaráðherra, Eysteinn Jónsson, skipaði fimm manna nefnd til að ’ „athuga aðstöðu hjóna til skatt- greiðslu og gera tillögur um þau mál.“ Nefnd þessa skipuðu: Karl Kristjánsson, sem var formaður, | Adda Bára Sigfúsdóttir, Guðmund ur Þorláksson, Magnús Jónsson ' og Valborg Bentsdóttir. Nefndin skilaði áliti á útmánuðum 1958, ’ og voru tillögur þær, sem hún lagði fram, samþykktar á Alþingi á síðasta vori. Helzta nýmæli þessarar nýju breytinga,- á skattalögunum er, að vinni gift kona fyrir skatt- skyldum tekjum og telji þær fram ásamt með tekjum eiginmanns- ins, fær hún helming þeirra skatt frjálsan. Hins vegar er henni heimilt, ef hún óskar þess, að telja fram sérstaklega, og greiða ,þá hjónin skatt sem tveir ein- staklingar væru. Oftast nær er mjög svipað frá fjárhagslegu sjónarmiði, hvor leiðin er valin, ef um fullan vinudag er að ræða hjá báðum, en fyrri leiðin er tví- mælalaust hagstæðari, ef konan vinnur, t.d. hálfan dag eða minna. — Einstæðír framfærendur fá aukinn persónufrádrátt vegna ómaga og heimilisfrádrátt, ef þeir hafa heimili fyrir börn sín. Þetta nýmæli er mikil réttarbót fyrir einstæðar mæður. Auk þcss var persónufrádráttur allra hjóna hækkaður að nokkru, og er iiann nú samanlagt sem tveggja ein- staklinga, en var lægri áður. Ekki þótti nefndarmönnum fært að koma fram með öllu djarfari eða víðtækari tillögur á þessu stigi málsins, en töldu, að með þessari breytingu væri af- máður 1 jótasti hletturinn á skatta löggjöfinni. Og má nú taka undir þá ósk, sem fyrrverandi fjármála ráðherra har fram á síðastliðnii hausti í fjárlagaræðu sinni, aS vonandi „fjölgaði nú farsælum hjónböndum“. (Úr „19. júní“).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.