Tíminn - 13.08.1959, Blaðsíða 1
hvernig Björn Pálsson
lítur á kjördæmabyltinguna,
bls. 7.
43. árgangur.
Reykjavík, fimmtudaginn 13. ágúst 1959.
Ólympíuleikarnir i Róm, bls. 7.
Vettvangur æskunnar, bls. 5
Walter Lippmann ritar um alþjó'Sa*
mál, bls. 6
íþróttir, bls. 10
170. blað.
ÓSafur Thors fæsf ekki til að fordæma
málskof stóreignaskattseigenda til
mannréttindanefndar
Pessi mynd var tekin skömmu eftir að bílnum hafði verið ekið
gegnum hússtafninn á Siglufiröi Engin alvarleg meiðsli urðu á fólki.
Frétt um þetta var í blaðinu í gær,
Hið nána samband stórgróðamanna
og Sjálfstæðisflokksins afhjúpað
í ræðum, sem þeir Ólafur Thors og Björn Ólafsson
héldu í sameinuðu þingi í gær í tilefni af fyrirspurn írá
Ólafi Jóhannessyni um innheimtu stóreignaskatts, vikusf
þeir alveg undan að svara því, hvort þeir fordæmdu það
athæfi stóreignaskattsgreiðenda að kæra Alþingi og Ræsta-
rétt fyrir mannréttindanefnd Evrópu. Var þó gengið eftir
því, að þeir gæfu skýlaus svör um afstöðuna til mátskots-
ins. Á svarleysi þeirra Ólafs Thors og Björns Ólafssonar
sést bezt hið nána samband Sjálfstæðisflokksins og stór-
gróðamannanna, þar sem Sjálfstæðisfloíckurinn þorir ekki
að áfellast hinn svívirðilega verknað þeirra.
Aðalvinmngurínn fokheld
tveggja herhergja íbúð
Glæsilegt happdrætti Framsóknarflokksins
Vinningar tíu að verðmæti um
200 þúsund krónur
Framsóknarflokkurinn hef-
ur hleypt af stokkunum happ-
drætti til styrktar húsbvgg-
ingunni að Fríkirkjuvegi 7 í
Reykjavík. Miðar hafa verið
sendii' til fjölmargra um-
boðsmanna um land aiit og
er sala þen'ra í þann veginn
að hefjast Dregið verður á
-Þorláksmessu hinn 23. des.
n.k.
. .’Vinningar eru 10 taLsins og aill
ir. mjög eftirsóknarverðir. Aðal
Vinningurinn, sem er tveggja her
bergja íbúð, fokheld, er í glæsi-
legu 13 hæða húsi á einum feg
ursta stað Reykjavíkur, Laugar
ásnum, Af öðrum vinninaum er
sóestök ástæða að vekja athygli á
12 manna matar- kaffi- og mokka
stelli. Er það 13'2 stykki og mun
óhætt að fullyrða, að það sé eitt
dýraislíJ og vandaðasta sinnar teg
unar, sem tit er hér á landi. Verð
mæti vinninganna er um 200 þús
und krónur.
Nöfn umboðsmanna
birt síðar
Aðalskrifstofa happdrættisins er
|í Fi'amsó'J.iarhúsiinu, Fírí^irk jm
vegi 7 og er þar jafnfn>mt um
boð fyrir Reykjavík og Kópavog
en í öðrum kaupstöðum svo og
öllum hreppum eru sérstakir um
boðsmenn og verða nöfn þeirra
birt isíðar hér í blaðinu. Sími skrif
stofunnar i Framsóknorhúsinu er
2 4 9 14.
Eins og að framan segir verður
ágóðanum af happdrættinu varið
tii að standa strnum af kostnaði
við byggingu Framsóknarhússins.
Ekki þarf að efa, að Framsóknar
menn um land ollt nmnu taka
höndum saman og gera árngurinn
af þessu happdrætti flokksins sem
alira mestan.
Vinningar:
1. Tveggja herbergja íbúð, fok-
held, Austurbrún 4 í Rvk.
2. Mótórhjól (tékkneskt)
(Fiamhald á 2. síðu).
Fyrirspurn Ólafs Jóhannesson-
eí’ um stóreignaskatt var til um-
ræðu í sameinuðu þingi í gær.
Fyrirspyrjandi mælti á þessa leið:
Stóreignaskattslöggjöfin er
byggð á þeirri hugsun, að sann-
gjarnt sé, að þeir, sem einkum
hafa grætt á verðbólguástandi
undanfarinna ára — milljónamær-
ingar — láti nokkuð af mórkum
af verðbólgugróða sínum til opin-
berra þaría og þá einkum til að
bæta úr fyrir þeim, sem verð-
bólgan hefur leikið sérstaklega
grátt — húsbyggjenda og þeirra,
sem jarðir þurfa að kaupa.
Því er svo fyrir mælt í stór-
eignaskattslögunum að skatturinn
skuli að % renna til veðdeildar
Búnaðarbankans og % til Bygg-
ingarsjóðs ríkisins.
Hvað líður innheimtu?
Báðar þessar lánastofnanir eru
1 mikilli fjárþörf. Skiptir því mjög
miklu að Innheimta skattsihs
gangi greiðlega og eftir áætlun,
cg að innborgað fé renni jafnóð-
um til nefndra stofnana. Því er
í fvrsta lagi spurt, hvað innheimtu
skattsins liði, en samkv. 6. gr. lag-
anna átti skatturinn að greiðast í
síðasta lagi 6 mánuðum eftir að
.-kattupphæð var tilkynnt gjald-
anda, þó svo að ef skattur nenuir
10 þús. þá er gjaldanda heimilt
að greiða allt að 90% af því sem
þar er fram vfir með skuldabréf-
um, svo sem nánar segir í til-
vitnaðri gr. laganna.
Hefur verið kært?
í annan stað er að því spurt,
hvorl ríkisSt.iórninni sé um það
kunnugt, að stóreignaskattsgreið-
endur hafi kært skattlagninguna
til mannróttindanefndar Evrópu
og þá væntanlega í því skyni, að
l.era málið. síðar undir mannrétt
indadómstólinn — og ef svo er,
hverjar róðstáfanir ríkisstjórnin
hafi gert af því tilefni.
Fyrirspurn þessi er borin
fram að gefnu tilefni. Frá þvl
liefur verið skýrt í blöðuin, áð
slík kæra standi til effa hafi átt
sér staff og rninnir mig jafnvel,
aff fyrirsvarsmenn íélagsskapai’
skattgreiðenda liafi veriff fyrir
því bornir. Þá hefur þaff ektai
fariff dult manna á nvilli. aff a.
ni. k. tveir af fyrirsvarsmiimmm
þessa félagsskapar skattgreið-
enda hafi veriff fyrir því bornir.
Þá lvefur það ekki fariff dult
manna á milli .aff a.m.k. tveir
af fyrirsvarsmönnnni þessa fé-
lagsskapar, hafi gert för sína til
Strassborg — ekki einu sinni —
heldur tvisvar sinnum — í því
skyni aff taliff hefur veriff, að
koma þvílíku málskoti á fram-
færi.
Frá geðveiku fólki
Nú er það að vísu svo, að marg-
ar kærur b-erast mannréttind-a-
nefndinni og er auðvitað langsam-
lega flestum hafnað, enda margar
hverjar frá hálfgeðveikú fólki, svo
(Framhald á 2. sííjny.
Á þögnin að grafa atvikið?
Yfirstjórn varnarliðsins og ut-
anríkiséáðherra hafa verið næsta
hljóðir um atvikið við varðskýlið
á Keflavíkurvelli. Blaðinu hefur
ekki borizt annað frá utanríkis-
ráðuneytinu en fréttatilkynning
þess efnis, að ráðherra hefði tekið
málið upp við bandaríska sendi-
herrann hér. Þá hefur yfirforingi
varnarliðsins talað i útvarp og
minnt undirmenn sína á að fara
eftir islenzkum lögum.
Svo virðist sem við þettá eigi
að sitja, og þar meö sé bættur
skaöinn vegna atviksins við varð-
skýlið, þar sem vopnuð herlög-
regla kom i veg fyrlr framkvæmd
íslenzkra laga. Þögn stjórnarvalda
um þetta mál er að verða óhugn-
anleg, þegar þess er gætt hve
þarna var um alvarlegan atburð
að ræða.
Tíminn heldúr enn fast við
fyrri kröfur sinar, sem sagt þær,
að yfirmaður varnarliðsins biðji
afsökunar, þeim sem ábyrgðina
ber verði vísað úr landl og gefin
verði skýlaus yfirlýsing um, að
annað eins komi aidrei fyrir aft-
ur.