Tíminn - 13.08.1959, Qupperneq 12
Negrahatarar í Little
Rock efndu til uppþota
Lögreglan gekk rösklega til verks og barfti
og hrakti ofbeldismenn á brott, en Faubus
hét Jjeim fulltingi sínu
Þurrkur
í gær var brakandi þurrkur á
ISuðurlandsundirlendinu, og má
íalja þetta nokkur tíðindi, því að
heyþurrkur hefur ekki komið á
þessu svæði um langan tíma. Lík-
lega er þetta fyrsti þurrkdagur-
inn á þremur vikum, sem eitthvað
kveður að. Norðaustan storm-
flæsa var á, og sólin skein glatt.
Búalið gladdist af hjarta við þessi
umskipti, enda horfði víða til
stórvandræða vegna óþurrkanna.
í gær mátti hvarvetna sjá fólk
namast við heyskapinn.
________________________J
Tveir nýir menn
á þingi
' Tveii’ nýir þingmenn haía nú
tekið sæti á Alþingi. Eru það þeir
Geir Gunnarsson og Stefán B.
Bjiirnsson. Mætir Geir fyrir Karl
Gúðj.ónsson, sem verður erlendis
á næstunni en Stefán fyrir Vil-
hjálm Hjálmarsson, sem varð að
hv.erfa af þingi vegna veikinda.
NTB—Little Rock, Arkansas.
í Little Rock, höfuðstaS Ark-
ansas-fylkis í Bandaríkjunum
eru þrír gagnfraeðaskólar og
voru þeir opnaðir í dag, Tveir
hafa eingöngu verið fyrir
hvíta nemendur, en sex svert
ingjar höfðu fengið leyfi til
að sækja skóla þessa og
mættu, er þeir voru opnaðir í
dag, þrjár stúlkur sækja ann-
an og þrír drengir hinn.
Svo sem menn rekur minni til
urðu mikil átök í Little Rock fyrir
tveim árum, er framfylgja átti
landslögum um samskóla hvítra
og svartra. Lögregla slaðarins fékk
ekki við neitt ráðið, endD studdi
Orval Faubus fylkisstjóri aðskiln
aðarmenn af kaiDpi. Lauk svo að
ríkisherlið var tilkvatt. Fylkisstjór
inn lét síðan loku skólunum og
reka sem einkastofnanir, en hefir
nú gefizt upp á því tiltæki. Svert
ingjahatarar hafa þó síður en
svo lagt árar í bát og til uppþots
og talsverðra átaka kom í dag'.
Faubus ávarpaði lýðinn
í gærkvöldi hcll Faubus' út-
(Framhald á 11. síðu)
Fer Friðrik án aðstoðar
manns á kandídatamótið?
Allar líkur benda til þess þar sem Larsen
hefur gerzt aðstoðarmaður Fischers
i Hinn sjötta septeniber næst
ikomandi hefst kandídadamót-
; ið í skák í Júgóslavíu og þar
Jverður Friðrik Ólaísson með-
al keppenda. Mót þetta sker
úr um hver teflir næsta ein-
ivígi um heimsmeistaratitilinn
| í skák við núverandi heims-
I méistara, Rússann Botvínnik.
\'---------------------------
Gluggarnir
| komnir
Með ms. Gulltossi hirin 30.
’t júlí s. 1. kom mikil gjöf til Skál-
■1 holtskirkju frá stórkaupmönn-
unum Edvanl Storr og Louis
Foght í Kaupmannahöfn. Er
gjöfin steindir gluggar í alla
j kirkjuna um 34 talsins. Sam-
‘ kvæmt ósk gefenda fór á sínum
[ tíma frain samkeppni meðal ís-
í lenzkra listamanna og vann
J. Gerður Helgadóttir þar fyrstu
J verðlaun að niati dómnefndar
í Jieirrar, er ráðuneylið skipaði.
[ .Samkvæmt ósk gefenda lagði
Gerður svo fram tillögur að
mótun glugganna, en þeir voru
húnir til undir hennar uinsjá
í verkstæðum dr. Oidtnianns í
Linnich í Vestur-Þýzkalandi.
í saniráði við gefendur hafa
gluggarnir nú verið settir í kirkj
una. Gjöf þessi er ein stórfelld-
asta listgjöf, er þjóðiiini hefur
borizt.
L-------------------------
Fram undan er því hjá Friðrik
þýðlngarmesta mót á skákferli
hans — mót, sem aðeins átta af
beztu skákmönnum heims takai þátt
í, en milljónir skákmanna . um
heim allan hafa tekið þátt í und
irbúningsmótum fyrir. Allir íslend
ingar óska þess, afí honum gangi
sem bezt í þessu. móti, því ekki
er að vila hvort Friðrik fær
nokkru sinni slífet., tækifæri aftur.
Virtist fastmælum bundið
Eins ;pg skýrt héfur vej'ið frá
hér í bláðinu lalaði Eriðrik við
Bent Larsen í vor á skákmótinu í
Sviss, og bað hann þá um að vera
aðstoðannanri sirT'rii mótiriu. Lar
sen tók þvr rajög vel, og virtist
það fastmæiifm bundið. Þegar
Friðrik konv heim rftur aí mótinu
t'ilkynnti hann Skáksambandinu
þetta, og bað stjórnairmenn þess,
að setja sig í samband við Larsen
og semja við hann um greiðslu og
annað honum til handa.
Heyrði ekkert frá
stjórninni
Síðan vissi Friðrik ekki meir
um málið fyrr en hann fékk bréf
frá Larsen, þar sem segir, að þar
sem hann hafi ekkert heyrt frá
■stjórn Skáksambaindsins, álíti
hann, að ekki hafi getað orðið úr
því aö hann gerðist aðstoðarmað
ur Friðriks vegna fjárhagsörðug
leika, eða arinars. Einnig sagðist
Larsen hafa fengið tilboð mjög
hagstætt um ag gerast aftstoðar
maður Bobby Fischer, undrabarns
ins ameríska, og hefði hann hug
á að taka því hoði.
Friðrik tilkynnti Skáksamhand
inu þetta, sem vaknaði nú upp við
vondan draum, og sendi Larsen
þegai,. hraðskcyti, og bað hann
aft aðstoða Friðrik á kandidalamót
inu. Larsen svaraði þeim skeytum
ekki, en nú hafa fengizt fréttir af
því, aið hann tók tilboði Fischers
og er nú ásamt honum á Ítalíu,
þar sem þeir áttu að æfa saman
mánuð fyrir mótið. Ólíkt búa
Bandaríkjamenn aið sínum manni,
því auk Larsens mun bandarísk
ur meistari einnig verða Fischer
til aðstoöar á mótinu.
Og þainnig .standa málin nú.
Þrjár vikur eru til mótsins og
Friðrik stendur uppi aðstoðar-
mannslaus, og það mál verður
ekki leysl í einum vettvangi, og
engar lííku,- til þess, að hægt'
verði á þessum skamma t'íma, að
fá heppilegan erlendan stórmeist
ara sem aðstoðarmann Friðriks.
Mun mörgum íslendingi renna í
skap, þegar þeir frólta hvernig
búið er að eftirlætis íþróltamanni
þjóð&rinnar og þegar vitað er að
allir aðrir keppendur á mótinu
munu hafa þetta tvo til þrjá að
stoðarmenn eða jafnvel fleiri.
Þannig verðlaunar íslenzkai skák
sambandið Friðrik fyrir að hafa
komizt i hóp beztu skákmanna
heims.
Umræður um
fyrirspurnir
í gær voru til umræðu í samein
uðu þingi fyrirsþurnir frá Björg
vini Jónssyni o. fl. Framsóknar
mönnum um tógarakaup og frá
Karli Kristjánssyni úm katip á
jíirðbor. Verður sagt frá umræð
unum í blaðinu á morgun.
Brælan gengin niður og
Útlit fyrir
ágæta veiði
Mikil síld suðausíur af Nordfjarðarhorni
og austur af Skrúð
í gærkveldi voru góðar
horfur á veiði fyrir Austur-
landi. Brælan, sem staðið hef-
ur síðustu dægur var gengin
niður og ágætisveður komið
á miðunum. Skip voru komin
í síld 15—30 sjómílur suðaust
ur af Norðfjarðarhorni og
höfðu mórg fengið ágæta
veiði þegai' snemma í gær-
kveldi. Mikil síld var einnig
um 30 sjómílur suðaustur af
suðri frá Skrúð og hafði Heim
ir SU fengið þar 650 mála
kast.
í gærmorgun héldu skipin úr
vari frá höfnum Austanlands og
voru skip kornin í ,síld, þegar laust
eftir hádegið í gær. Síldin sem
veiddist út af Noröfjarðarhorni
var stór og feit, en síldin út af
Skrúði er misjöfn.
Enn löndunarbið
Löndunairbið er enn á Austur
höfnum og horfir því illa um
Erlendar fréttir
Ferðalangar frá Búdapest segja orð-
róm uppi þar um brottför rúss-
neska setuliðsins frá Ungverja-
landi.
Eisenhower segist ekki muni grípa
inn í stálverkfallið, sem enn stend-
ur í Bandaríkjunum og talið er
stórhættulegt efnahagslífi lands-
ins.
löndun á þeirri síld, sem veiddist í
gær. Bræla var komin á Þistíl-
fjöi'ð í gærkveldi og því erfitt fyr
ir skipin að leggja leið sína til
Rafuarhafnar, auk þess sem sigl
ing þangaið er afar löng. í gær-
kveldi biðu skip enn löndunar á
Austurhöfnum frá því um helgi.
A Seyðisfirði biðu skip, sem
fengið höfðu afla á Reyðarfirði í
fyrradag. Þau voru Ásúlfur 200,
Ófeigur III. 380 og Gjafar VE.
400.
í gærkveldi setti Faxaborg í
síld 22 sjómílur aiustur af Kögri.
Var það ágætt kast.
Bræla var á Vestursvæðinu í
gærkveldi, en þar er ekkert skip,
flotinn allur kominn austur.
/----------------------------
Lagöur í
Ermarsund
Eyjólfur Jónsson, sundkappi,
lag'ði í Ermarsund klukkan hálf
þrjú í nótl. Hóf liann sundift
frá Calais á Frakklandsströnd
og mun reyna aff ná latuli á
Bretlandi í ná.munda viff Ðover.
Veður var ágætt á Erniar-
sundi í gærkvcldi og strauntar
hagstæðir til sundsins. Eyjólfur
liefur tvívegis áður reynt viff
sundið en mistekizt í ba‘ði
skiptin. Eyjólfur er nú í mjög
góðri þjálfun og er liraðsyntari
en nokkru sinni fyrr.
«--------------------------/
Ar breyttu um farvegi,
hrísgrjónaakrar hurfu
Líklegt aíS 1800 manns hafi farizt á Formósu
NTB—Taipeh, Formósu, 11.
ágúst. — í helztu hrísgrjóna-
héruðum Formósu er liótt um
að litast eftir hvirfilbyl og
stórrigningar seinustu daga.
Á stórum svæðum hafa hrís-
grjónaakrarnir sópazt burt —
jarðvegurinn líka — svo að
ekki verður unnt að rækta
þar neitt í náinni framtíð.
Þannig lýsti Roy James ástand-
inu, er hann kom úr flugferð yfir
þau héruð á eynni, sem verst
urðu úti í náttúruhamförunum.
James þessi er yfirmaður banda-
(Framhald á 2, síðu).
Frá flokksstarfinu
HÉRAÐSMÓT
í SKAGAFIRÐI
Héraðsmót skagfirzkra
Framsóknarmanna hefst að
Bifröst á Sauðárkróki kl 4,30
e. h., sunnudaginn 16. ágúst
n. k.
Dagskrá:
Alþingismennirnir Ólafur
Jóhannesson og Skúli Guð-
mundsson flytja ræður.
Gestur Þorgrímsson og
Haraldur Adólfsson f lytja
skemmtiþátt.
Karlakór Mývetninga syng-
ur undir stjórn sr. Arnar
Friðrikssonar frá Skútustöð*
um. Einsöngvari Þráinn Þór-
isson.
Dansleikur verður um
kvöldið.
Stjórnin
SUMARMOT í SNÆFELLS-
NESS- OG HNAPPADALSS.
Hið árlega héraðsmót Fram
sóknarmanna í Snæfellsness*
og Hnappadalssýslu verður að
þessu sinni haldið að Breiða-
bliki sunnudaginn 23. ágúst
n.k. Dagskrá auglyst síðar.
Stjórnin