Tíminn - 22.08.1959, Page 8
; » ttfin
Norðaustan kaldi, úrkomulaust..
Reykjavík 15 st„ Akureyri 11 st.
London 21 st.
Laugardagur 22. ágúst 1959.
Nelson Rockefeller
kominn til Noregs
Hjónavígslan fer fram í dag
Erlent ferðaskrif-
stofufólk í heimsókn
í fyrrakvöld koin hingað til
lands hópur ferðaskrifstofu-
fólks frá Frakklandi, Hollandi
og Belgíu. Þetta er annar hóp
urinn af þrem, sem Flugfélag
íslands býður hingað til lands.
1 Þótt ekki sé dvalið hér á landi
nema fjóra daga, gefst gestun
um samt færi á að sjá Gullfoss
og Geysi, Þingvelli, Akureyri,
Mývatn og Reykjavík og ná-
grenni. Fararstjóri þessa lióps
er Jóhann Sigurðsson fulltrúi
Flugfélags íslands í London.
Ljósm.: Sv. Sæm.
Erhardt heimsækir
Grikki
ÍNTB.—Aþenu 21. ágúst. Ludwig
Erhardt efnahagsmálaráðherra
V-Þýzklands fer í opinbera heim
sókn til Grikklands í dag. Vestur
Þjóðverjar hafa veitt Grikkjum
imikla efnahagsaðstoð á síðasta ári
og er búizt við að Grikkir vilji
freista að fá enn ríflegri aðstoð
frá Þjóðverjum til að reisa gisti
hús, því Grikkir vilja auka ferða
anannastraumihn til landsins og
gera tekjur af ferðamönnum að
helzta tekjustofni þjóðarinnar.
Stalhjóli ogskrúf
aði sundur
í gær var skýrt frá því í blað-
inu, að skellinöðru hefði verið stol
io við húsvegg á Ægissíðu. í fyrra
dag sá lögregluþjónn mann á
númerslausri skellinöðru, stöðv-
jaði hann og flutti nöðruna á lög
reglustöðina. Sama dag kom eig
andi stolnu skellinöðrunar á lög
reglustöðina og þekkti þá ýmsa
thluti úr sinni í þeirri, sem tekin
■var úr umferð. í gærmorgun fann
[hann nöðru sína ofaní fjöru við
fsörlaskjól og vantaði í hana þau
;,stykki, sem •sáust á hinni. Sá sem
iók númerslaust hefur nú viður-
Ifeennt að hafa stolið gripnum und
' húsveggnum, farið með hann
.ofaní fjöruna og skrúfað sundur.
-Sjálfur átti hann ógangfæra nöðru
jog skorti varahluti. Hjólið komst
\í gang með þessum umbótum, en
] inú er það í höndum lögreglunnar.
3- 3 ‘
Hafnarbætur á
; Djúpavogi
Á Djúpavogi stendur nú yfir
smíði nýrrar bryggju. Hafa þeg
ar verið reknir niður staurar fyrir
' ollri bryggjunni en hún verðu 30
aneta löng og bryggjuhaus 25
melra langur. Er ætlunin. að þessi
nýja bryggja verði aðalbátabryggja
slaðarins í framtíðinni, en gamla
frryggjan verður hér eftir aðallega
ætluð skipum. Um 10 manns vinna
víð þessar framkvæmdir. og verð
ur þeim væntanlega lokið i næsta
mánuði. ÞS
Þrjár flugstöðva-
hyggingar í smíðum
Flugráí hefur starfaí í
urinn haldinn 17. þ.m.
tólf ár — 500. fund-
Hinn 17 þ.m. var 500. fund
ur Flugráðs haldinn. I 'til-
efni af því fer hér á eftir stutt
yfirlit yfir skipan þess og
helztu verkefni, sem það hef-
ur haft m?ð höndum.
Flugráð var stofnað með lögum
nr. 65 frá 31. maí 1947. Er það
skipað fimm aðalmönnum og fimm
til vara. Þrír þeirra eru kosniy
hlutfallskosningu í sameinuðu A1
þingi til fjöguri'a ára, en tvo -skip
ar ráðherra, annan til átla ára.og'
hinn til fjögurra ára, og skulu
þeir hafa sérþekkingu á flugmál
um. Sá sem skipaður er íil átta
ára skal vera formaður ráðsins.
Flugráð skipa nú eftirtaldir menn:
Agnar Kofoed-Hansen, formaður,
Guðmuíidur í. Guðmundsson, Berg
ur G. Gíslason, Þórður Björnsson
og Alfred Eliasson. Varamenn eru
þeir Gunnar Sigurðsson, varafor
maður, Örn Ó. Johnson, Jón Axel
Pétursson, Kristinn Jónsson og
Guðbrandur Magnússon. Aðalmenn
hafa áður verið þeir Örn Ó. John
son og Hjálmar Finnsson en vara
menn þeirra Baldvin Jónsson, Frið
jón Sigurðsson og Jóhannes Snorra
son sem varaíormaður.
260 starfsmenn
Undir yfirstjórn ráðherra og
Flugráðs starfar flugmálastjóri.
Ilann annast rekstur og viðhald
flugvalla ríkisins og öll önnur
slörf sem flugið varða, svo sem
nýbyggingu flugvalla, loftferðaeft
Fjórir sækja um póst
meistarastöðu
Fjórar umsóknir hafa borizt um
stöðu póstmeistara í stað Magnús
ar Jochumssonar, sem lætur af
því starfi nú fyrir aldurs sakir.
Umsóknarfresturinn rann út
að kvöldi 10. ágúst s. 1. Þessir
sóttu um stöðuna: Helgi Björgvin
Björnsson, deildarstjóri á böggla
póststofunni í Rvík, Matthías Guð
mundsson deildarstjóri á lollpóst
stofunni í Rvk., Sveinn G. Björns
son deildarstjóri á bréfapóslstof
unni í Rvík og Þórður E. Hall
(Fiamhald á 2. síðu).
NTB—Kristiansand 21. ág.
Stephen Ruekefeller og Anna
María Rasmussen verða gefin
saman nú um helgina í sveita-
kirkju 1 Sogni í Noregi. Þetta
brúðkaup hefur verið gífur-
legt efni allra erlendra frétta
síðustu dagana, því að ekki
eiga smáir hlut að.
Faðir brúðgumans, Nelson
Rockefeller ríkisst jóri í New
York, kom í dag til Noregs ásamt
dætrum sínum tveimur til að vera
við hjónavígsluna, og þegar hann
kom á flugvöllinn i Kjevik. voru
hjónaleysin þar til þess að taka
á móti honum. Einnig voru helztu
fyrirmenn sfaðarins har mættir á
ílugvellinum til að taka virðu-
lega á móti Rockefeller.
Engar bla'ðamyntlir.
Það hefur verið mikið áhyggju-
efni, hvað eigi áð gera við alla
þá blaðamenn, sem vitað er að
koma munu til vígslunnar, en
kirkjan er lítil og myndi.ekki gera
hetur en rúma þann hóp. Brúð-
guminn hélt í dag fund með blaðar
mönnum við kirkiuna til að út-
skýra fyrir þeim þessi vandræði,
og einnig til að tjá þeim, að
ekki yrði hægt að leyfa neinuin
Ijósmyndurum að vera viðstödd-
um. Kirkjan væri helgur staður,
cg það, sem ætti að gerast á morg-
un (í dag), væri einnig helg at-
höfn. Kvisazt hefur út um eina
hrúðargjöfina, en hún er máíverk
rf kirkjunni. gefin af samsóknar-
fólki Önnu Maríu og keypi fyrif
samskotafé þess.
Myndhcggvarinn
Ebstein látinn
NTB.—London 21. ágúst. Hinn
heimsfrægi enski myndhöggvari
sir Epstein lézt á heimili sínu
í London á miðvikudagskvöld.
Epstein sem var af gyðingaælt
um var fæddur 1880 og var því 79
ára að aldri er hann lézt. Epstein
hefur haft imjög ,sterk áhrif á
yngri myndhöggvara og greitt
götu nýrra liststefna.
tið og sof ið und
ir fölsku flaggi
„Skipstjóri, stýrimaður og véistjóri á Víði 11“
hótelgestir á Akureyri
S.l. mánudag komu þrír
kumpánar inn á Hótel Varð-
berg á Akureyri og kvnntu
sig sem skipstjóra, stýrimann
og vélstjóra á Víði II Skrif-
uðu þeir nöfn sín í gestabók-
ina og' fengu herbergi hjá gam
alli lconu á Holtsgötu 9, þar
sem ekki var rúm fyrir þá í
hótelinu.
Þar héldu þeir sig vel í mat og
drykk í tvo daga og létu skrifa veit
ingarnar á herbergin. Þá voru þeir
Stór beinhákari ónáðaði
kaf ara við starf í Ólafsfirði
Sanddæluskip hefur dýpkað þar höfnina -
Töluvert unnið við Múlaveginn
Ólafsfirð? í gærkvelai. —
Þessa dagana hefur kaiari
verið að athuga botn hatnar-
innar hér eftir að dæluskipið
Sansu hafð! unnið að dýpkuil
í 10 daga. f gær bar svo við.
að gríðarstór beinhákarl kom
hér inn í höfnina, og varð kaí
arinn að hætta störfum suium
um sinn, unz „stóri gi’áni1'
var farinn brott
Sanddæluskipið Sansu dældi
sandi úr höfninni hér í tíu daga,
fjarlægði um 50 þús. teningsmetra
af sandi og flutti út fyrir Múla.
Gekk verkið vel, og er nú yfir-
leilt tíu metra dýpi við hafnar-
garðinn, þar sem skipið vann.
Síðan var kafari fenginn til að
athuga botninn eíns og fyrr segir
og bar þá svo við, að beinhákarl
heimsótfi hann og varð hann að
hælta störfuin nokkra klukkutíma.
Þetta var geysistór skepna sögðu
þeir, sem sáu, en ekki var gerð
tilraun til að veiða hann, en eftir
nokkurt hringsól í höfninni hafði
hann sig brott.
Unnið í Múlave^i
Byrjað er að vinna í Múlaveg-
inum undir stjórn Friðgeirs Árna-
sonar og gengur verkið vonum
betur. Er ýta búin að ryðja' veg-
!,rstæði út að Ófærugjá, og verð-
ur nú undinn bugur að því að
fcra þann veg vel færan. Einnig
mun ætlunin að hefja sprenging-
ar við gjána, en það er mikið
verk.
Óþurrkatíð
Segja má, að látlausir óþurrkar
fcafi verið allan ágstmánuð og
lítið náðst af heyjum, þótt komið
hafi einn og einn flæsudagur. Út-
engi og tún er vel sprottið, en þó
horfir þunglega með heyfenginn,
ef ekki bregður til þurrka.
Engin síld
Engin síld hefur borizt hingað
siðan um mánaðamót og er því
dauflegra . yfir atvinnulíí'i bæjar-
ins. Búið er að salta 7300 tunnur,
en voru saltaðar um 12 þús. í
íyrra.
Afli færabáta hefur verið tregur
vegna ógæfta.
BS
kumpánar örir á þjórfé og gáfu
ca. 100 krónur á þjónuslustúlku,
ef þeir sáu henni bregða fyrir.
Væri einhver tregða að taka við
peningunum, endurtóku þeir það
sem fyrr getur um stöður sínar
og töldu sig ekki raga um smá
muni.
Góð trygging
Þegar þeir íóru, báðu þeir um,
að reikningurinn væri sendur á út.
gerðina og þar sem Víðir annar
þótli góð trygging mun þetta hafa
verið tekið gilt, a. m. k. fyrst um
sinn. Þó mun gamla konan liafa
•séð það af hyggjuyiti sinu, að Víð
ir II. væri að veiðum fyrir Austur
landi og beðið Akureyrarlögregl
una að svipast um eftir „skipstjór
anum“ og félögum hans.
Reikningsskilin
Þeir kumpánar höfðu bíl með
ferðis og mjin fólk í næstu húsum
hafa séð þar skrásetningarmerki
Skagafjarðarsýslu. Aköreyrarlög-
reglan hafði samband við Sýslu
mann Skagfirðinga, en þar fund
ust kumpánarnir skömmu síðar.
Einn þeirra er Sauðkræklingur, cn
hinir úr .sveitum Skagafjarðar.
Réttarhald hefur nú staðið á Sauð
árkróki i máli þeirra og reiknings
•skilin eru á leið til Akureyrar.
Hverfisstjórar
Fundur verður lialdinn í Frani
sóknarhúsinu (uppi) þriðjudag
25. þ. ni. klukkan 8.30 e. h. Áríð
andi mál á dagskrá.
Frá flokksstarfinu
Framsóknarmenn í Reykjavík!
MuníS, aíJ daglega er veitt móttaka í kosninga-
sjóSinn frá kl. 9,30 f.h. til 6 e.h. í Framsókn-
arhúsinu.
Fulltrúaráí