Tíminn - 09.12.1959, Page 3

Tíminn - 09.12.1959, Page 3
TÍMINN, miðvikudagiua 9. desember 1959.. Ástríðufullur vonbiðill Elti sama kvenmaimiim í 24 ár Francesco Ghizzoni M SóEbjartan ágústdag fyrir rúmum 24 árum varð ung- ur maður í Cremona, sem hét Francesco Ghizzoni, ástfanginn. Stúlkan var sextán ára Ijóshærð, blá- eygð og hláturmild. Franc- esco, sem var 25 ára gam- all og átti lítið kaffihús, íbúðarhús og dálitla landar eign, var fljótur að ákveða sig: „Þessi stúlka verður konan mín". Áhiaup Hann komst að því. að stúlk an hét Angela Mondini og að hún bjó i Cremona hinum meg- in Póárinnar. Francesco hóf þegar áhlaupið. Angela var kurteis' eins og góðri signor- inu sæmir. Þegar þau hittust, sagði hún kurteisfega „Buon giorno, signor Ghizzoni" en neitaði kuldalega að kalla hann Francesco. Hann bauð henni út, en Angela ne'.taði. Hann sendi henni gjafir, en Angela send, þær til baka. Francesco sneri sér til for- eldra htnnar og. frændfólks. ,,Ég er efnaður", sagði hann, „Angela verður hamingjusöm hjá mer.“ Daprir í bragði neyddust ættingjar Angelu til að segja honum, að stúlkan hefði lítinn áhuga á honum. Henni félli alls ekki við von- biðil sinn.“ Ástrííufullur En ástin er blind og Franc- esco hélt áfram tilraunum sín- um. Þegar hann mætti Angelu á götu var hann vanur að segja ástríðufullur: „Ég bíð enn eftir svari. Hvenær ætlarðu að giftast mér?“ í fyrstu anz- aði hún honum ekki, en seinna fór hún að kalla hann heimsk- ingja og aulabárð. Við vini sína sagð, hún: „Ég v'.ðurkenni að hann er myndarlegur, en hvers vegna reynir hann við mig, mér fellur alls ekki við manninn." í mörg ár stóð hann á hverju kvöldi undir glugga hennar og kallaði nafn hennar. Har.n stóð tímunum saman í kaffihúsi í nágrenninu og beið eftir að sjá hana. Hann elti hana í bíó og sat fyrir aftan hana. Vinir hans urðu áhyggju- fullir og tóku a^S óttast að Frances'eo myndi taka upp á einhverjum heimskupörum og sárbáðu Angelu að giftast hon- um. „Ég giftist þeim sem mér sýnist", sagði hún. Þegar brúin yfir Po var sprengd 1 loft upp á stríðsár- unum fékk Francesco sér bát og reri yfir ána. Einu sánni fyllti Angela veski sitt af grjóti og danglaði í höfuð von- b'ðils síns. Daginn eftir var Francesco kominn aftur og sár bað hana um fyrirgefningu. Angela sneri sér til lögregl- unnar. sem áminnti hinn ástríðufulla vonbiðil um að láta stúlkuna í friði. Árið 1947 fékk hann þriggja mánaða skilorðs'- bundinn dóm fyrir að raska al- mannafriði. Dómur Hann var handtekinn aftur ogsettur í sálfræðirannsókn, en læknar gátu ekki fundið neitt athugavert við heilsu hans, ann iað en ástsýkjna. Fnancesco hélt áfram ajð ásækja stúlk- una sína og kallaði á eftir henni: „Els'ku eiginkonan mín, ástin mín. Þegar Angela svar- aði: „Aulabárður" sagði hann áhyggjufullur: „Hef ég móðg- að þig. Það var ekki ætlunin.“ ítalska blaðið Oggi skrifaði um hinar árangurslausu biðils- farir Francesco í 24 ár. í síð- ustu viku skrifaði Francesco, sem nú er 49 ára, bréf til rit- stjórans og játaði uppgjöf sína. „Ég hef gefizt upp, af því að það er ekki hægt að sigra konur.“ Angela er nú fertug piparmey og henni liggur það -T " • ' '■ Angela Mondini í léttu rúmi hvorum megin hryggjar Francesco liggur. „Hann hafði engin áhrif á mig, þegar liann var yngri“ og ekki lízt mér betur á hann núna.“ Þegar hún frétti, að Francesco hefði gerl hana að erfingja sínum, sagði hún: Ég vil ekk- ert hafa með hann að gera, hvorki dauðan né lifandi.“ brot eru þar Herferð hafin gegn hinum 10 þúsund giæpa* Rssnnum Singapore-horgar m E3E KVIKMYNDIR 27c dagurinn 27. dagurinn. Bandarísk mynd. Aðalhlutverk: Gene Barry, Vali- erie French. Sýningarstaður: Stjörnubíó. SAGNIR u.’-n fljúgandi diska og ver- ur frá öðrum hnöttum, sem vilja •kássast upp á jarðarbúa, eru nú- tímaæfintýri, í sjálfu sér eikkert fjarskyldari raunveculeikanum og hugmyndaheimi nútímamanna en æfintýri Þúsund og einnar nætur voru á fyrri tið. KVIKMYND þessi er ein af mörgum svipaðs eðlis, sem hafa verið til sýnis í kviimyndahúsum hér und- anfarin ár. Þessar myndir eru sumar hverjar skemmtileg dægoa- stytting á að horfa. Hitt er svo annað mál, að þessi kvikmynda- framleiðsla hefur verið notuð í stórpólitízku áróðursskyni, og svo ,er um þá, sem nú er til sýnis í Stjörnubíói. FIMM persónur hafa verið numdar brott frá jörðinni í fljúgandi diski og þeim fengin vopn í hend- ur, sem geta tortímt mannlífi á stccum svæðum. Siðan er þeim aftur skilað til jarðarinnar í þeim tii'gangi að verða mannkyninu til tortímingar með þessum vopnum eða fá jarðarbúa til að fallast á flutning geimbúa til jarðarinnar, en þeir lif-a á örtkólnandi stjörnu. EITT þeirra fcemur sjálfsmorð, ann- að ksstar vopni sínu í hafið, þriðja c.: í felum með því sem þsnnig fór með vopnið, en fjórða þýzkur vísindamaður, tekur sér fari til Bandaríkjanna og lendir i bídslysi. I-Iann er lagður inn í sjúkrshús og honum hjúkrað. Sjálfur er vísindaijiaðurinn treg- ur til að opinbe.'a íeyndardóm vopnsins fyrir herstjórn Banda- ríkjanna af ótta við misbeitingu. RÚSSNESKUR hermaður er fimmti handhafi vopnsins. Hann er einn- ig tregur til að opinbera yfirboð- urum sínum leyndardóminn af sömu ástæðum og vísindamaður- inn þýzki, en meðan Þjóðverjinn liggur í rúrni sínu í Band'aríkj- um og etur búðing, ©r hermaður- inn pynd3ðut' t:l sagna austan járntjalds. „Ólíkt höfumst við að. Ég diíla barni þínu, en þú berð bónda minn.“ SÍÐAN gera bandarkki fiotinn og vísindamaðurinn tilraun með vopnið, og vísindamanninum tekst á að tortíma öll- i um ófriðarseggjunum á austur- helmingi jarðar í sama bili og auo.....,_'.ujaieim búast til að eyða öllu lífi 1 Nccður-Ameríku. Þar með er hægt að semja. yið geimbúana um friðsamlegan inn- flutning þeirra til jarðarinnar. Og þar bíta framleiðendur myndar- innar hcfuðið af skömminni með því að nota húsakynni Sameinuðu þjóðanna til friðmælingar-stefnu móts við geimbúana. B.Ó. Hin fimm mánaða gamla stjórn í Singapore hefur farið öfluga og árangursríka her- ferð gegn undirheimalýð borgarinanr, sem í sumum borgarhverfum hefur ráðið lögum og lofum. Fyrir mánuði síðan gaf lögreglan út tilkynn- ingu um eins mánaðar náðun- artíma fyrir þá afbrotamenn, sem gæfu sig fram og lofuðu bót og betrun. Þessi náðunar- tími er nú liðinn og aðeins 818 glæpamenn af hinum ótölu- lega grúa slíkra nóta í borg- inni gáfu sig fram. Kjarni neðanjarðarhreyfingar- innar er hinn svokallaði Triad- félagsskapur, sem í eru mörg kín- versk leynifélög, sem reka við- tæka glæoastarfsemi. Og stjórnin er þess' fuilviss að það mun kosta stranga og langa baráttu að upp- ræta þessi glæpafélög. Herfer^in Það var tekið til óspilltra Inál- anna strax og náðunarfresturinn var útrunninn. Sama kvöldið og fresturinn rann út, fór hin fjöl- menna lögregla borgarinnar í her- ferð um helztu aðsetursstaði glæpafélaganna. Samtímis setti herinn upp vegartálmanir á allar samgönguæðar frá borginni. Ár- angur: 40 glæpaforingjar og mörg hundruð grunsamlegir náungar voru handteknir. Triad-féiagsskapurinn hefur ver- ið við lýði meðal Kínverja í Singa- pore, síðan á miðöldum, er fyrstu Kínverjarnir settust að í Malaja. Nafnið Triad er dregið af hinum þremur öfium, er ráða heiminum: Himininn, jörðin og maðurinn. 10 {nisund glæpamenn Það munu alls vera um 380 leynifélög í Triad-félagsskapnum og í þeim eru um 10 þúsund fé- lagsmenn. Sum þexsara félaga standa á gömlum merg, geta rakið sögu sína allt til ársins 1674. Og þau fást við allar tegundir glæpa, allt fr átollheimtu af verzlunar- fólki til atvínnumorða. Það er framið minnst eitt morð á dag í Singapore, en hnífstung- urnar eru mun fleiri, þótt þær leiði ekki ætíð til dauöa fórnar- dýrsins. Rán og innbrot þykja ekki fréttir í þeirri borg. Stjórnskipuð nefnd, S'em vann að ^rannsókn þessarar mála komst að þeirri niðustöðu, að leynifélögin hefðu áhrif á atkvæðagreiðslur við kosningar — eða með öðrum orð- um: það er ekki til einn eihastj sæmilega stöndugur maður í Singapore, sem leynifélögin hafa ekki áhrif á á einn eða annan hátt. Japanir Kéldu þeim í skefjum Stundum slettist upp á vinskap- inn milli leynifélaganna og þá er barizt heiftarlega með öllum þeim vopnum, sem tiltæk eru allt frá hnífum og hjólkeðjum upp í hríð- skotariffla. I Það er næstum því óleysandi verkefni að uppræta að fullu þenn- j an urmul leynifélaga í Singapore. ^Japönum tokst þó að halda félög- unum niðri á meðan þeir hersátu borgina. Ei það heppnaðist aðeins, vegna þess að þeir notuðu aðferð- ir, sem engin ábyrg stjórnarvöld í nútíma lýöræðisþjóðfélagi geta leyft sér aó nota. Brezk skólabörn til íslands Brezka blaðlð „News Chron- icle“ og fyrirtækið „Nestle Prod- uets“ bjóða sex brezkum _ skóla- börnum í ókeypis ferð til íslands' til að heilsa upp á jólasveininn. „News Chronicle“ birtir langa gre'n um ferð þessa. Segir blaðið, að jólasveinninn muni taka á rnóti beim á flugvellinum í Reykja vík og ferðast með beim um iandið. Getur blaðið þess að_ í augum br”zkra skólabarna sé ís'- l.-nd heimkynni jólasveins'ns. Blaðið birtir ferðaáætlunina. Börnin nntnu koma hinn 17. sept- cmber með Viscountflugvél Flug- félagsins og dveijast hér til mánu dagsins 21. desember. Ferð þes'si verður hinum brezku skólabörnum úlgerlega að kostnaðarlausu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.