Tíminn - 17.12.1959, Blaðsíða 1
Indverjar gætu
framleitt
kjamasprengju
NTB—Nýju Dehli, 16. des.
Iiidverjar geta framleitt
kjarnasprengju en munu ekki
gera það.
Yfirmaður kjarnorkurannsókna
á Indlandi skýrði frá því í gær,
itð Indverjar gætu af eigin ramm-
leik framleitt kjarnorkusprengju.
Þetta vakti nokkra athygli og gaf
Indlafidsstjórn út tiflkynningu í
dag, þar sem þessi ummæli eru
frekar skýrð. Segir þar, að rétt
sé að Indverjar geti af eigin efn-
um og án aðstoðar erlendra vís-
indamanna framleitt sína kjarn-
orkusprengju. Þetta sé þó alls
ekki ætlunin, enda í algerri mót-
sögn við yfirlýsta stefnu stjórnar-
innar.
Drapgur komst
ekki iuu
Ólafsfirði, 15. des. — Nú er
komin norðaustnátt með mi'killi
snjókomu, og eru vegir sem óðast
að fyllast. Lágheiðin var fær alveg
til skamims tíma, en tpptist nú í
fyrrakvöld. Svo mikill sjór fylgir
veðrinu, að Drangur varð að fara
hér framhjá og komst ekki inn, í
áæílunarferð sinni i dag. BS
Hér er hún komin litla stúlkan,
sem heyrSist gráta í útvarpiS á
laugardagskvöldið. Pabbi hennar
er Jón Múli útvarpsþulur, og
hann hafSi lofað henni að koma
með sér þegar hann las fréttirn-
ar. Litla stúlkan varð fyrir smá-
slysi frammi á fréttastofu og fór
að hágráta. Hendrik Ottósson
reyndi að hugga hana, en það
kom fyrir ekki og gráturinn
barst inn í þularherbergið, gegn-
um vegg, sem á að heita hljóð-
Grænlenzkir full
trúarvorusendir
vonsviknir heim
Leituðu samninga um hækkun fiskverðs
við Grænlandsnefnd danska þingsins.
Síðan hefur danska stjórnin tekið upp
fréttaeinokun frá Grænlandi
Danska blaðið Information
skýrir nýlegá frá því, að græn-
ienzka landsráðið hafi fyrir
skömmu sent framkvæmda-
nefnd sína til Kanpmanna-
hafnar til þess að leita samn-
inga við Grænlandsnefnd
danska þingsins um hækkun
á fiskverði.
Þetta á einkum vig á þeim stöð
um, þar sem mest berst að af
fiski, og kostnaðurinn við mót-
töku, verkun og útflutning fisks-
ins er lægstur, svo og um ýmis-
legt varðandi uppbyggingu a't-
vinnuveganna í Grænlandi, sem
nú er hafin og ætla mætti: að
staðkunnugir menn á Grænlandi
væru dómbærari um en d-anskir
skrifstofumenn í Kaupmannahöfn.
Vill ekki semja.
En Grænlandsnefndin danska
hefur hingað til ekki verið fáan-
leg 'til þess að semja, O'g það
reyndist heldur ekki unnt nú. Að
Framhald á 2. síðu.
nn þriðji skólans
tekinn í notkun
Dansi dtlkkan mín
einangroður. Og þannig vildi til
að tlestir landsbúar heyrðu litiu
stúlkuna gráta.
Daginn eftir fór Tíminn heldur
ómaklegum orðum um hljóðin í
telpunni , en pabbi hennar skrif-
aði blaðinu og gerði grein fyrir
öllu saman. Svo Tíminn reyndi
að bæta fyrir umyrði sín og
sendi litlu stúlkunni brúðu í jóla-
gjöf.
Þessi mynd er tekin þegar
Ragnheiður Gyða fékk brúðuna
sína, og hún varð harla glöð cins
og sjá má. Þetta er mesta mynd-
arbrúða, sem getur opnað augun
og lolcað þeim á víxl, Ragnheiður
Gyða gaf henni nafnið Stína.
Ragnheiður Gyða er falleg og
tápmiki! stúlka, tveggja ára að
aldri. Tíminn óskar henni og for-
eldrum hennar gleðilegra jóia og
vonar að hún megi lengi njóta
brúðunnar sinnar.
Smmingshraði jarðar
hefir lengst nokkuð
NTB—París, 16. des. Snún-
ingshraði jarðar hefur minnk
að lítið eitt síðustu mánuð-
ina. Afleiðing þess er sú, að
hver sólarhringur hefur lengst
sem svarar 1/1000 úr sek-
nndu. Forstöðilmaður stjörnu
athugunarstöðvarinnar í Par-
ís skýrði frá þessu í dag á
fundi í frönsku vísindaaka-
demíunni.
Prófessor Danjon, en svo heit
iir forstöðumaðurinn, uppgötvaði
þessa breytingu meg því að bera
saman snúningstíma jarðar við
tímamælinigu tveggja kjarnaknú-
inna klukkna, sem eru isvo ná-
kvæmar, að ekki kemur fram
meiri skekkja í gangl þeirra en
sem svarar einni sekundu á 100
árum.
Prófessorinn varð fyrst var við
þessa seinkun í snúningshraða
jarðar á tímabilinu 15. júlí til 1.
sept. Seinkun þessi heldur enn
áfram og hefur prófessorinn ekki
getað fundið neina skýringu á
þessu fyrirbæri'. Hugsanlegt er þó
aö seinkunin stafi frá sprenging-
um í sólinni.
á íerð og
fhigi hjá F.í.
Miklar annir eru nú hjá Flug-
félagi ís'lands, bæði í innanlands
og utanlandsf'lugi. Sölfaxi kom
frá Thule í 'gærmorgun fullskip-
aður farþegum. Höfðu þeir klukku
stundar viðdvöl hér og héldu síð-
an 'til Kaupmannahafnar með Gull
faxa. Klukku'stundu síðar fór
Hrímfaxi fulls'kipaður farþegum
í áætulnarflug til Glasgow og
Kaupmannahafnar og litlu tíðar
lagði Sólfaxi upp að nýju til Meist
aravíkur. Hann kom aftur til
Rvkjavíkur í gærkveldi og hél't
síðan eftír ö.rstutta viðdvöl til
Kaupmannahafnar.
Akranesi, 12. des. — S. 1.
íöstudag var tekinn í notkun
hluti af nýju gagnfræðaskóla-
húsi hér á staðnum. Gamla
gagnfræðaskólahúsið, sem var
byggt sem barnaskóli 1912,
verður nú nýtt undir Iðnskól-
ann.
Það er þrlð.ii hluti hinnar nýju
þyggingar, sem þarna var tekinn
í notkun, en áætlað er. að bygg-
ingin verði fuilgerð árið 1961, en
næsti hluti rkal verða fullger á
næsta ári. Húsið á samkvæmt á-
ætlun að kosta alls 6 milljónir
króna.
Skrúðganga
Nemendur eru 240 í 11 bekkjar-
deildum, og gengu þeir í skrúð-
göngu frá gamla gagnfræðaskóla-
húsinu til hins nýja, undir s'tjórn
kennara og skólastjórans, Ólafs
Hauks Árnaronar. Þar voru fyrir
nokkrir gestir. Ræður fluttu
Sveinn Guðmundsson, kfstj. for-
maður fræðsluráðs', Hálfdán
Sveinsson, kennari, forseti bæjar-
stjórnar, Daníel Ágústínusson, bæj
arstjóri, sr. Jón Guðjónsson og
skólastjórinn Ólafur Haukur Árna
son. Af hálfu nemenda talaði
Bragi Torfason, umsjónarmaður.
Síðan var almennur söngur undir
stjórn Geirlaugs Árnasonar.
A I
Gjafir
Tvær gjafir bárust skólanum á
þessum degi. Var önnur forkunn-
ar vönduð klukka frá Helga Júlíus
syni, kaupmanni og hitt eftirprent
un á einu verka Kjarvals, frá
Kaupfélaginu. Mikill fögnuður er
meðal nemenda yfir þessum nýja
áfanga, enda aðbúnaður orðinn
slæmur í gamla skólanum.
GB
*
A skotspónum
★ ★ ★ Bæjarráð hefur sam-
þykkt staðsetningu nýs og stórs
gistihúss í Aldamótagörðunum,
en lóðarstærð ákvðin síðar.
★ ★ ★ í janúar verður hald-
ið á vegum Evrópuráðsins
þing sveitiarstjóirnarmanna í
Strassborg, og sækja það
nokkrir fslendingar, m. a.
ritari.
orstad vili að Nato verði
„fjorða kjamorloistórveldið’:9
NTB—París, 16. des. Nor-
stad yfirhershöfðingi A-banda
lagsins sagði á ráðherrafund-
inum í dag, að hann teldi
heppilegt, að Nato yrði
„fjórða kjarnorkustórveldið",
þannig að yfirherstjórn þess
réði sjálf yfir eigin birgðum
af kjarnavopnum og gæti not-
að þau fyrirvaralaust, ef um
skyndiárás yrði að ræða. Ó-
hjákvæmilegt væri, að setja
flugher allra ríkjanna undir
eina yfirstjórn.
Hershöfðinginn lagði mikla á-
herzlu á eina yfirherstjórn fyrir
flugher allra bandalagsríkjanna,
að öðrum kosti væri ómögulegt
að verja V-Evrópu að nokkru
gagni, eins og nú væri háttað her
styrk Sovétrikjanna. Einnig sé
Framhald á 2. síðu.