Tíminn - 17.12.1959, Blaðsíða 12
Hvass norðaustan,
úrkomulítið.
TogskipiS Bjarnarey við bryggju á Akureyri
igldi heim í stórsjó
Á mánudaginn var kom
hið nýja austurþýzka tog-
skip, Bjarnarey, til Akur-
eyrar, en þar átti að fara
fram athugun á stýrisvél
skipsins, en eins og kunn-
ugt er bilaði hún, er ofsa-
veður mikið skall á Bjarn-
arey í hafi á heimleið.
Hólmsteinn Helgason, odd-
viti Raufarhafnariirepps og
frainkvæmdastóri togskip-
anna tv-eigigja austur !þar, fór
utan með áhöfn skipsins, er
það var sótt, og kom með því
í jómfrúrför þess hingað til
lands. Fréttamaður Tímans á
Akureyri hitti Hólmstein að
máli, er Bjarnarey lagðist að
bryggju á Akureyri, og fókk
hjá honum eftirfarandi upp-
lýsingar:
Bjarnarey lagði af stað frá
Kaupmannahöfn föstudaginn
4. des. Um kl. 1.30 á sunnu-
deginum bilaði stýrisvélin,
en skipið var þá statt vestur
af Noregi, austarlega í Norð-
ursjó, með stefnu fyrir norð-
an Hebridseyjar. Veðrið var
hið 'versta, rok og stórsjór á
eftir. „Náðum við þá sam-
bandi við Bergen og báðum
um aðstoð,“ sagði Hólni-
steinn, „en þar var okkur
sagt, að enginn næ.gilega
stór bátur væri þar fyrir
hendi, er komið gæti til að-
stoðar í þessu veðri. Þá var
leitað til Ósióar með milli-
göngu frá Bergen, og mun
björgunarfélagið þar hafa
sent bát eða skip af stað. En
um þetta leyti náðu-m við sam-
bandi við Hvassafell, er var
á svipuðum slóðum, og það
veitti okkur aðstoð. Afturköll-
uðum við því beiðni okkar um
hjálp frá frændum okkar,
Norðmönnum."
HvaS'Safell kom á vetlvang
og dældi olíu í sjóinn, svo eigi
kom áfall á Bjarnarey eftir
það. Og á rneðan fór fram
aðgerð á stýrisvélinni. Þar lá
svo Hvassafell á mánudags-
nóttina og fytgdi í humátt á
eftir Bjarnarey, er lag var
kcmið á stýrisvélina, svo hægt
var að halda áfram til Fær-
eyja, þar sem betur var gert
að stýrisvélarbiluninni.
Á Bjarnarey eiga að vera
lagfærðir nokkrir galiar, sem
■fram hafa komið á þessum
togskipum. Kjalfestan var
gerð léttari og betur frá henni
gengið, borðstokkar hækkað-
ir og akkersspil tekið af bakk
anum. Skipstjóri á heimleið
var Bagnús Bjarnason, Jóns-
sonar frá Vogi, en stýrimaður
Stefán Stefánsson frá Dalvík.
Hann mun nú taka við skips-
stjórn, en Bjarnarey hefur
togveiðar eftir áramótin.
Frakkar munu sæta
gagnrýni á Natofundi
Hólmsteinn Helgason
Ben Gurion
myndar
nýja stjórn
NTB—Jerúsalem, 16. des.
Ben Gurion forsætisráðherra
ísrael myndaði nýja sam-
steypustjórn í dag.
Flökkur Ben Gurions, Verka-
mannaflokkurinn, vann talsvert á
í ný afstöðnum þingkosiiingum,
á líka níu af þeim sextán ráðherr-
am, sem eru í hinni nýju stjórn.
Alls oiga fimm flokkar aðild að
ibinni nýju rí'kisstjórn.
Rvík 0 st„ annast staðar
á. landinu 0 til — 7 st
Fimmtudagur 17. desember 1959
rezk börn í
eimsókn hér
Brezku börnin, sem ætla
sér að hitta „Jólasveininn á
íslandi1 koma til Reykjavíkur
með ,,Hrímfaxa“ Flugfélags
íslands í dag. Upphaflega var
ákveðið að sex börn yrðu í
ferðinni, en nú hefur það sjö-
unda bætzt við.
Þegar „HRÍMFAXI“ lendir á
Reykjavíkurflugvelli íkl. 16:10,
mun jólasv’einninn Kertasníkir
verða þar til þess að heilsa upp á
börnin.
Brezku börnin munu dvelja á
gistihúsi í Reykjavík ásamt fylgd-
arliði sínu. Þau fá tækifæri til
þess að hitta ísienzk skólabörn,
jafnaldra sína, við „litlu jól“' í ein-
um barnaskólanna í Reykjavík og
þau heimsækja sjúkrahús, þar
sem mörg börn dveljast veik yfir
jólin og færa þeim gjafir og jóla-
mat. Ennfremur munu þau fara í
nokkur heimboð, synda í Sundhöll
Reykjavíkur, og á iaugardaginn
fara þau ásamt jólasveininum
Rertasníki til Sauðárkróks í boði
Flugfélags íslands.
í sjónvarpi.
Með í ferðinni er m. a. ljós-
myndari, en ferðasagan verður
sýnd í sjónvarpi eflir 'heimkomuna
til Bret'lands.
Tekið á móti
gjöfum
NTB—París, 14. des. Frétta
ritarar í París telja, að ráð-
herrafundur Natos sem hefst
í fyrramálið, muni verða all-
sögulegur og einn sá mikil-
vægasti um langt skeið. At-
hyglin beinist fyrst og fremst
að þeirri gagnrýni, sem
Bandaríkjastjórn hefur uppi
gagnvart Frökkum, en hún tel
ur frönsku stiórnina ekki hafa
staðið við skuldbindingar
sínar.
Forseti á þessum ráðherrafundi
verður Halvard Lange utanríkis'-
ráðherra Noregs.
Frakkar taka óstinnt upp
Stjórnmálaviðræður og umleit-
anir eru þegar í algleymingi og
ná hámarki, er hefst fundur æðstu
manna fjórveldanna í vikulokin.
Þá koma þeir saman til funda
Eisenhower, Macmiilan, de Gaulle
og dr. Adenauer. í kvöld munu
utanríkis- og landvarnaráðherrar
allra 15 aðildarríkjanna hafa verið
mættir til funda.
Af Fraikka hálfu er gagnrýni
sú, sem fram er komin á hendur
þeim, tekin óstinnt upp. Telja
þeir sig ekki geta gengið að kröf-
um um algsran samruna herja
bandalagsrík.ianna undir einni her-
stjórn eins' og Bandaríkjamenn
krefjast vegna skuldbindinga við
nýlendur þeirra í Afríku. Þá hafa
Frakkar einnig neitað að eldflauga
stöðvar væru settar upp á fránskri
grund, en betta telja hershöfð-
mgjar bandalagsins óhjákvæmi-
legt.
Frá kl. 5 til 7 er veiltt móttaka
á fatagjöfum í söfnun til Frejus
í Frakklandi, í prestssetri Landa
kots.
Frú I'rma Jónsdóttir
Börnin, sem 'hingað koma, vom
valin úr miklum fjölda umsækj.
víðsvegar að úr Bretlandi. Þau eru
á aldrinum átta til tólf ára.
Þetta ævintýralega ferðalag á
fund Jólasveinsins, hefur vakið
umt.al og eftirtekt í Bretlandi, og
undanfarið hefur mikið verið skrif
að um hina væntanlegu íslands-
ferð barnanna í brezk blöð.
Lúcía í ÞjóSleik-
húskjallaranum
Lúcíuhátíð var haldin á vegum
íslenzk-sænska íélagsins í Þjóð-
’leikhúskjallaranum 13. des. og var
húsfyllir. Guðiaugur Rósinkranz
formaður bauð gesti velkomna.
Sigurbjörn Einarsson biskup
flu'tti ræðu, Árni Jónsson söng
einsöng og Bo Almquist sýndi
kvikmynd um Selmu Lagerlöf. —■
Lúcía var afj þessu sinni Anna
Geirsdóttir en systir hennar Sig-
ríður söng með hljómsveitinni.
Ensk messa
í Hallgríms-
kirkju
Eins og á undanförnum árum
mun ens'k guðsþjónusta verða
iflutt í H'allgrímskirkju og verður
hún að þessu sinni haldin sunnu
daginn 20. desember kl. 4 e.h. —•
Tve> prestar framkvæma messu
'gjörðina, þeir sr. Bragi Friðriks
son og sér. Lárus Halldór.sson. —•
Allir eru velkomnir.
Lífið í fílabeinshöll
agalíns í Kópavogi
Nýft bindi ævisögimnar komið út h|á Noröra
Bókaútgáfan Norðri hefur
sent frá sér nýtt bindi í sjálfs-
ævisögu Guðmundar G. Haga-
líns, og neínist það Fílabeins-
höllin — saga um hjónaband,
ritstörf og bræðralag dýra og
manna.
í bók þessari segir höfundur
írá því skeiöi ævi hinnar, er hann
eyddi fvrir nokkrum árum í Kópa-
vogi. Hann segir frá síðara hjóna-
bandi sínu, búskap í Voginum,
starfi sem bókafulltrúi ríkisins og
ýmislegu öðru, sem á daga drífur.
Þarna^koma við sögu ýmsir
menn og málefni sem enn eru
svo nærri, að flestir muna þau.
Bókin er alls'tór eða á fimmta
m sem
hvarf
Út er komin skáldsagan,
Myndin sem hvarf, eftir Jakob
Jónasson. Útgefandi er ísa-
fold. Bókin er 179 bls. að
stærð og smekklega gefin út.
Myndin sem hvarf er nútíðar-
saga, gerist í sveit og fjallar um
heimkomið skáld, ástir og baráttu
gamla og nýja tímans. Höfundi er
efnið sýnilega hugleikið og er
iiann kunnugur því til hlýtar.
Þetta ei þriðja bók höfundar, en
áður hafa komið út frá hans hendi,
Börn framtíðarinnar og Ógróin
spor, sem birt var undir dulnefni.
Báðar fyrri bækur höfundar fengu
góða dóma.
hundráð blaðsíður, og frásögnin
er öll með fyrra marki Hagalíns,
íjörleig, opinská og krydduð gam-
rnsögum. Bókin er rituð í skáld-
sögustíl, þar sem höfundur, köna
hans og ýmsir aðrir eru söguper-
sónur. í þes'sari bók sést t. d.
glöggt, hve Hagalín segir skemmti
lega frá dýrum — engu síður en
mönnum.
Bókin er hin vandaðasta og
smekklegasta í allri útgáfu og
búningi.