Tíminn - 07.02.1960, Page 2

Tíminn - 07.02.1960, Page 2
2 T f M I N N, sunmidaginn 7. febrúar 1960. „HafiS þér komizt að raun um hverslags fita þetta er, læknir?" „Ég er anzl hræddur um að það sé verðbólgan, herra minn." Fréttir frá landsbyggðinni SKYNDISALA Seljum enn í nokkra daga lítilsháttar gallaSar lífstvkkjavörur. NÝJAR GERÐIR — MIKIL VERÐLÆKKUN Oíympto Vatnsstíg, sími 15186 ÚTSALA SKÍÐ A-ANÓRAKAR unglinga og kvenna. — Stórkostleg verðlækkun. Póstsendum. .... IBFiaJ (Smásala). — Laugavegi 81. HLUTAVELTA STÆRSTA HLUTAVELTA ÁRSINS hefst í Skátaheimilinu kl. 2 í dag. Þúsundir góðra muna. — Engin núll. Skátafélag Reykjavíkur JÖRÐ TIL SÖLU Tveir bátar á sjó Dalvák, 1. febr. — Veðurblíða mikil er hér um slóðir, snjólítið og allir vegir færir, en nokkuð svellrunnir. — Tveir þilfarsbátar róa héðan síðan um áramót og hafa fengið reitingsafla. Togbátur inn Björgvin, sem hætti róðrum um miðjan desember fyrr afla- leysi, fór út 23. jan. og kom inn eftir 5 sólarhringa útivist með sæmilegan afla. Er nú farinn út á ný. — Sigurður Bjamason frá Akureyri landaði hér nýlega 10 tonnum af ýsu. Var það raunar fyrir tilviljun eina, því hann legg ur annars ekki upp hér, heldur í Hrísey, en kom hingag með veik an mann og losaði sig þá við ýs- una um leið. P.J. Grímuball og þorrablót Dalvíkl.febr. — Grímudansleikur var haldmn á Dalvík 16. jam., hin fyrsta samkoma þeiirar tegundar hér í manna minnum. Kvenfélag ið Vaka stóð fyrir dansleiknum. Þótti þetta góð nýbreytni og skemmtu menn sér hið bezta. Þá hélt verkalýðsfélagið sitt árlega þorrablót 23. jan. Þar var snædd ur þorramatur, leikið, lesig upp og sungið. Loks er nýafsitaðið þorrablót í þinghúsimi á Grund, á vegum ungmennafélagsins, svo heita má að hér séu hátíðahöld um hverja helgi. Fjórar fjölskyldur, eða um 20 manns, fluttu héðan burtu í haust. Fólki fækkar þó ekki í þorpinu, heldur fremur hið gagn stæða, því nýir borgarar bætast vig í stað þeirra er fara. P.J. FjaríarheitJi ófær Egilsstöðum, 2. febr, — Einmuna veðurbl'íða hefur veríð lengst af í vetur. Nú má heita snjólaust og það litla föl, sem var, er að hverfa, enda þíðviðri í dag og rigndi í nótt. Annars hefur verið haglítið hér undanfarið vegna þess hve jörð hefur verið svell- runnin. Fjarðarheiði er- ófær venjuleg um bílum og er farin á snjóbíl, en annars eru vegir ágætir og er bflfært héðan til Reyðaifjarðar, fáskrúðsfjarðar og Eskifjarðar. E.S. Margir á vertíð Grenivík 2. febr. — Veðnr er gott í dag. Hefur svo raunar lengst af verið síðan áhlaupið gerði snemma í nóvember. Bezta færi á vegum í allar áttir. Lítið er róið héðan á þessum tíma árs. Gengur héð- an einn bátur og aflar sæmilega. Tveir bátar héðan eru gerðir út frá Grindavík í vetur. — Margt ma,nna fór buitu á vertið, sjálf- sagt á mllh 60 og 70 manns, en það kemur vonandi aÆtur með vor dögunum, enda er hér fjögugra aitvinniiiíf yfir siumarmánuðina. — Fétlaigsdíf er furðu blómlegt hjá okkur sem heima si'tjum. Ung menoiafélagið starfar eftir vonum og mánaðarlega er spiluð Fram- sóknarvist. S.G. Ekkert róitS Hofsósi 2. febr. — Héðan er nú enginn bátur gerður út og er dauft yfir atvinnulífinu. Allir fara burtu í atvinnuleit, sem að heirnan komast. Snjólétt er hér og allir vegir færir. Mjólkurbíll inn gengur út í Sléttuhlíð og hef ur gert í allan vetur. Telst það til sjaldgæfra tíðinda. —Svo bar til fyrir nokkru hjá Ingólfi Jóns syni bónda á Nýlendi að 20 kind ur drápust af votheyseitrun. — Munu þær hafa komizt í votheys rekjur og etið sér til óbóta. ÓJÞ Nýr bátur Vopnafirði, 23. jan. — Hingað eig um vig nú bráðlega von á nýjur Austur-þýzkum báti, Bjarnarey, og er hans vænzt um næstu mán aðamót, þótt koma hans geti að vísu dregist eitthvað lengur, en hann hefur verið til lagfæringar á Akureyri. Mun báturinn leggja upp afla á höfnunum frá Borgar- firði til Raufarhfanar ,en hann ei eign sveitarfélaganna á þessu svæði. Heiimahöfn bátsins verður hér á Vopnafirði. Hér hefur ekki veiið aðstaða til fiskmótttöku en verið er nú í óða önn að bæta úr því. Annar bátur, Jón Trausti, er gerður út af sömu aðilum og Bjarnarey og leggur upp á sömu stöðum. Heimahöfn hans er Rauf arhöfn. Atvinna er hér næg yfir sumarmánuðina og fram til ára- móta en takmörkuð yfir hávetur- inn. Úr því ætti ag verða bætt þegar bátarnir taka að leggja hér upp. Fólki fjölgar hér alltaf heldur í plássinu og er mikið byggt af íbúðarhúsum. Til dæmis voru 10 hús hér í byggingu árið eem leið. K.B. Stækkun á heilsuhæli N. L. F. Hveragerði, 28. jan. — Hér er dálítið kaldara í dag en verið hefur undanfarið. Hellisheiði er ófær og fara þvi flutningar fram um Krísuvíkurleiðina. En hita- veitan hjá okkur Hvergerðingum er í himnalagi og huggum við okk ur við það þó að eitthvað kólni í veðri. Dauður timi er nú hjá garð- yrkjubændum eins og vant er um þetta leyti árs,- Sæmileg sala mun hafa verið hjá þeim fyrir jólin. Töluverðar byggingarfram- kvæmdir hafa verið hér og eru það bæði íbúðarhús og viðbætur við gróðurhús. í sumar var lokið við stækkun á heilsuhæli Náttúru lækningafélagsins og nú er verið a? rei.ci har byggingu yfir starfs- Þ.K. Vel hýst lítil jörS á skemmtilegum staS í Árnes- sýslu, er til sölu. — Eignaskipti g^etu komiö til greina. ■— Þeir, sem sinna vildu, sendi nöfn sín til auglýs- ingaskrifstofu Tímans merkt „Á—45“ Jörð á Suðurnesjum Til leigu er jörðin Norðurkot í Miðneshreppi nú þegar, eða á vori komandi. Jörðin er 2 km frá Sandgerði. Rafmagn og sími. Upplýsingar í s(ma 1375, Keflavík. Lokað þriðjudaginn 9. febrúar vegna jarðarfarar Helga S. Hannessonar. Blikksmiðjan Sörli V.V.V»V«V»V.V»V»V.V.V.V»V‘V.V.V.V.V.V.V*V*V.V.VV*V»V»V»^ AÐALFUNDUR Kvennadeildar Slysavarnafélagsins í Reykjavík verður haldinn mánudag 8. febr. kl. 8.30 í Sjálfstæðishúsinu. Venjuleg aðalfundarstörf. Til skemmtunar: Upplestur: Dr. Símon Jóhann Ágústsson Gamanþáttur: Baldur Hólmgeirsson Listdans: Edda Scheving og Jón Valgeirs. Dans Félagskonur eru vinsamlegast beðnar að sýna skírteini, eða taka þau á fundinum. Stjórnin

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.