Tíminn - 07.02.1960, Síða 3
TÍM IN N, sunnudaginn 7. febrúar 1960.
3
Óspektir á
Akureyri
flnuntudagskvöldið í síð-
ustu viku urðu nokkrar ó-
spekktir í miðbænum á Akur-
eyrL Þar voru nokkrir
drukknir menn saman komn-
ir í veitingahúsi, og kastaðist
eitthvað í kekki milli þeirra,
svo lögreglan var kvödd á
staðnn til þess að skakka
leikinn. Gerðu hinir drukknu
þá aðsúg að lögregluþjónun-
um, sem voru aðeins tveir, og
varð af allhörð senna. Harki
þessu lyktaði svo, að lögregl-
unni tókst að handsama öl-
kerana alla og fanga utan
einn, sem barg sér á flótta,
en það mun verða honum
skammgóður vermir, því hann
þekktist og er hægt að ganga
að honum eftir hentugleik-
um. ED.
Ekki lausir
við ugg
(Framh. af 1. síðu).
Framsóknarflokksins svohljððandi
viðaukatillögu:
„Enda verði þá bæjarfélögum
ekki íþyngt frekar af hálfu Al-
þingis og rfkisstjórnarinnar með
nýjum Iögboðnum álögum í þágu
þess opinbera“.
Samþykktu
Forseti bæjarstjórnarinnar, sem
er Sjálfstaeðismaður, bar tillöguna
upp í tvénnu lagi. Var fyrri hlut-
inn samþykktur af Alþýðu- og
Sjálfstæðisflokksmönnum með 5 |
atkvæðum, en síðari hlutinn samþ. ■
af sömu aðilum auk flutnings-;
manns.
Eftir þessu að dæma virðist svo
sem fleiri en fulltrúar Framsókn-
arflokksins í bæjarstjórn Siglu-
fjarðar búi það í grun, að bögg-
ull kunni að fylgja skammrifi hjá
ríkisstjórninni, og sé því örugg-
ara, að setja undir þann leka í
tíma.
Segja má að yflrvöldin í astrup í Kaupmannahöfn vllji hafa vaðið fyrir
neðan sig. Þarna hafa þau sett upp sklltl sem bannar mönnum að tjalda.
Það er sennilega engin hætta á því að Danir leggist I útilegur meðan veðrið
er þannig að þörf er á loðkápu. En Danir hugsa sem svo að allur sé var-
inn góður.
Soustelle borubrattur
og aðvarar de Gaulle
Linkind viS kommúnista og ofbeldismenn, en
kúgun franskra man'na, stórhættuleg
NTB—París, 5. febr. Jaques
Soustelle sagði í dag, að brott
rekstur sinn úr ráðuneyti de
Gaulle hefði orðið þeim mönn
um til mestrar gleði, sem
aldrei fyrirgáfu honum þann
þátt er hann hefði átt í því
að koma de Gaulle til valda
og byggja upp fimmta lýð-
veldið.
SousteKLe gaf út skriflega yfii-
lýsingu til blaðamanna skömmu
eftir að opinberlega var tilkynnt
um brottviikningu hans úr sfjórn-
in-ni.
rr-?nskt Alsír
Soustelle segir, að æðsta yfir-
vald Frakklands ,de Gaulle fox-
seti, hafi orðið að viðurkenna, að
hann hafi ekki tekið þáltt í, né
ber ábyrgð á þeim songlegu at-
burðum, sem urðu fyrir skömmu
í Alsír. Brottrekstur sinn ætti
því eingön-gu rætur ag rekja til
hollustu sinnar við málefni hins
fra-nska Alsírs, en í því máli gæti
en-ginn fengið hann til að breyta
gegn samvizku sinni. Þá lét Sou-
stelle þess gatið, að sér hefði
verið vikið úr stjórn de Gaulle
nákvæmlega 19 árum, 7 mánuðum
og 8 dögum eftir að hann ákvað
að verða við skorun de Gaulle
hershöfðingja, hinn 18. júní 1940,
um að berjast áfram fyrir mál-
stað Frakklands.
Aðvörun Soustelle
Þá kvaðst Soustelle vilja end-
urtaka opinberlega þí aðvörun
sem hann hefði hvað eftir annað
lagt áherzlu á inman stjómarinn-
ar: Enginn árangur, sem okkurs
virði er, mun nást í Alsír meðan
lög lýðveldisins er-u ekki látin
ganga með fullil hörku yfir
kommúnista og serkneska upp-
reisnarforingja og hermdarverka
menn. Að þeir h-afa verið látnir
gamga lausir, hefur hrakið sak-
laus fórnarlömb ofbeldismanna á
harm orvæntingar, og þessi nið-
urlæging þeilrra hefur eyðilagt
baráttuvilja hersi-ns. Þar ag auki
tel ég sé-rhverja undirokun og
hefndaraðgerðir gegn frönskum
mönnum stórhættulega, jaflnvel
þeim, sem lent hafa á villigöt-
um, einkum þegar ofbeldismenn,
sem sekir eru urn hin hryllileg-
ustu hryðjuverk, eru látnir sleppa.
Frakkland á aðeins einn óvin í
Alsír og það eru serknesku upp-
reisnarmennirnir og gegn þessum
óvini á að sameina alia kraflta
ríkisns.
Sök Gyðinga: Þeir
krossfesta Krist
Tveir þýzkir nazistar dæmdir í Köln
NTB—Köln, 5. febr. Tveir
menn báðir 25 ára voru dæmd
ir í fangelsi í Köln í dag fyrir
að hafa vanhelgað bænahús
Gyðinga þar í horg, en á það
máluðu þeir ýmis svívirðing-
arorð um Gyðinga og haka-
krossa. Dómarmn taldi, að
ekki stæði að baki þeirra
skipulögð samtök.
Menn þessir hlutu 2 ára fang-
elsi og þrjá mánuði annar, en
hinn 1 árs og þrjá mánuði. Taldi
dómarinn það vera þeim til af-
sökunar, að þeir hefðu sennilega
verið undir áhrifum frá sér eldri
mönnum.
Þeir krossfestu Krist
Menn þessir heita Schöner og
Strunk. Sá síðannefndi sagði að
nazistinn Horst Wessel væri sín
mannsshúgsjón og fundust hjá
honum myndir bæði af honum og
Hitler. í tyrstu ætluðu þeir fé-
lagar aðeins að mála svívixðingar
um Gyðinga á bænahúsið, en síð
an gerðist Strunk svo æstur að
hann málaði líka hakakrossa. —
Báðir voru áður í þýzka ríkis
flokknum, en voru reknir þaðan
er upp komst um bænahússför
þeirra.
Strunk kvaðst ekki samþykkur
drápi nazista á Gyðingum, en ekk-
ert vit væri í þvi að láta þá
gegna ábyrgðarstöðum. Þá væri
sú hætta að þeir spilltu hinum
germanska kynstofni með blóð-
blöndun. Er hann var spurður
hvað hann hefði á móti Gyðingum
svaraði hann: Þeir eru hættulegir
fyrir Þýzkaland. í skólanum var
mér kennt, að þeir hefðu krott-
fest Krist.
Kína kveðst óbundið af
afvopnunarsamningum
NTB—Peking, 5. febr Kín-
j verska alþýðulýðveldið mun
^kki telja sig bundið af nein-
'im alþjóðlegum samningi um
’ -ifvopnun, þótt gerður verði,
'f ríkið er ekki beinn þátttak-
andi í þeirri samningagerð.
Þessa yfirlýsingu gaf fulltrúi
Kína á ráðstefnu Varsjár-
handalagsins.
Fréttastofa Nýja Kina birti
yfirlýsingu þessa áður en frá
henni var skýrt í Moskvu-
útvarpinu.
Fulltrúi Kína var Kang
Cheng. í ræðu sinni réðst
hann harkalega á Bandaríkin.
Kvað þar ríkjandi sömu yfir-
gangsstefnu og verið hefði.
Þar réðu heimsveldissinnar
öllu og þeir létu ekki af fyrir-
ætlunum sínum. Þeir tækju
nú líklegar í tilraunir Sovét-
rikjanna um friðsamlega
sambúð vegna þess, að þeir
hefðu ekki lengur bolmagn
til að fara með beinum hót-
unum og ofbeldi. Þá vildi hann
kenna Bandaríkjunum um
landamæradeiluna við Ind-
land. Kvað Japan vera í sömu
aðstöðu og V-Þýzkaland, bæði
væru leppríki Bandaríkjanna.
Stjornmála-
namskeioio
Næsti fundur stjórnmála-
námskeiSsins verður í Fram-
sóknarhúsinu n. k. þriðjudags
kvöld, kl, 8,30. Umræðuefni:
Samvinnumál. — Framsögu-
menn: Óskar Einarsson og
Jóakim Arason.
Álmennir stjórnmálafundir
Framsóknarmanna í dag
SELFOSS
Framsóknarmenn halda almennan stjórnmálafund
á Selfossi í dag og hefst hann kl. 4 þegar lokið er aðal-
fundi Framsóknarfélags Árnessýslu sem hefst kl. 2 e.h.
Á fundinum mæta alþingismennirnir Ágúst Þorvalds-
- son og Helgi Bergs og munu þeir ræða efnahagstillög-
ur ríkisstjórnarinnar.
KÓPAVOGUR
Fundurinn í Kópavogi verður í Félagsheimili Kópa-
vogs og hefst hann kl. 8,30 í kvöld.
Frummælendur verða alþingismennirnir Jón Skafta-
son, Björn Pálsson og Sigurvin Einarsson.
AKRANES
Fundurinn á Akranesi hefst í Templarahúsinu kl.
3 í dag.
Frummælendur verða alþm. Ásgeir Bj. og Halldór E.
Sigurðsson.