Tíminn - 02.04.1960, Page 1

Tíminn - 02.04.1960, Page 1
TÍAWNN flytor daglega j n»elra af innlendum frétt- vm en önnur b!ö3. Fylglzf meS og kaupiS TÍMANN. BMÍÉMIÍÚiÉjÉíijÉiÉiAÍÉNÍijÉjÉÍijáííÍÍÍÍÍÍÉÉÉÍÉÍIÍÉÉÍÉÉjÉjÉðÍÉÍÍIÍÍÉÍÍÍÉÍfeÍH 44. árgangnr — 76. tbl. Laugardagur 2. apríl 1960. f tekjuskattsfrumvarpi rikisstjórnarinnar eru ákvæSi um a3 afnema skattfrelsi á yfirvinnu í þágu útflutnings- framleiSslunnar, nú rétt á8ur en skattfrelsl þetta á a3 koma til framkvæmda í fyrsta sinn. — Myndin sýnir starfsmenn í frystihúsi vera a3 stafla frystum fiski á bíl, sem aka mun honum að skipshlið. ÍVILNA ÞEIM MINNST, SEM HARÐAST VERÐA ÚTI VEGNA DÝRTÍÐARINNAR í framsöguræðu sinni fyrir tekjuskatts- frumvarpinu sagði Gunnar Thoroddsen m. a., að nauðsynlegt væri að breyta skattalög- unum vegna þess að öllum almenningi þættu þau orðin svo ranglát, að flestum þætti eðlilegt að draga undan tekjur í skattaframtölum. Einnig væri innheimtan svo dýr. — Þannig mælti „söluskattsmeist- arinn“ þegar hann mælti fyrir frumvarpinu um „afnám tekjuskatts af almennum launa- tekjum“. En það er ekki fólkið með almennar launatekjur, sem svikið hefur undan skatti, því að hver króna, sem það innVinnur er gefin upp til skatts. — Það eru hálauna- mennirnir, sem hafa svikið undan skatti og þeir munu halda áfram að gera það og frum- varpið þætir á engan hátt þar úr, þótt per- sónufrádráttur sé aukinn. Varðandi kostnaðinn við innheimtuna er það að segja, að allt innheimtukerfið stend- ur óhaggað og mun áreiðanlega stóraukast vegna söluskattsins, sem nú er tekinn upp í staðinn fyrir tekjuskattslækkunina, en sölu- skatturinn var einmitt lagður niður á sínum tíma vegna þess hve hann var erfiður í framkvæmd. Forystumenn Alþýðuflokksins hafa lýst því manna bezt, hve söluskattur er ranglátur nefskattur og hafa fram á síðustu ár talið beina skatta æskilegra form skattheimtu; beinir skattar væru lagðir á eftir burðarþoli, en neyzluskattar legðust með jafn miklum þunga á þá ríku og fátæku. í frumvarpinu er fyrst og fremst tekið til- lit til hinna efnameiri í þjóðfélaginu og mönnum ívilnað því meir, sem þeir eru tekjuhærri. — Það er boðskapur stóru fyrir- sagnanna um að „afnema eigi tekjuskatt af almennum launatekjum“ sem nú er verið að framkvæma. — Þannig á hún að verða þessi lækkun á tekjuskattinum, sem dregin hefur verið frá sérhverjum þætti álaganna, sem lögfestur hefur verið. Dagsbrúnarverkamaður, sem hefur rúma klst. í eftirvinnu á dag hefur 60 þúsund króna árslaun. Hann fær 1232 kr. lækkun á tekjuskatti hafi hann konu og tvö börn á framfæri. Hann fær ekki meiri ívilnun til að mæta söluskattshækkuninni að öllu hinu ógleymdu. — En maður, sem hefur 150 þús- und króna árslaun og hefur jafn stórri f jöl- skyldu fyrir að sjá og Dagsbrúnarmaðurinn, hann fær hvorki meira né minna en 15 þús- und króna lækkun á tekjuskatti. Hann fær 13 þúsundum meiri ívilnun til að mæta tekjuskattshækkuninni — Þannig er þetta í pottinn búið eins og allt annað athæfi stjórnarflokkanna. Útsvarsf rumvarpið: FARGANID UC- FEST OG AUKIÐ! Stjórnin ætlar a<S Iáta þessar álögur ná til félags- mannaviðskipta samvinínufélaga og hella þar me'ð nýju flóÖi veltuútsvara yfir almenning Stjórnarliðið ætlar að lögfesta veltuútsvarafarganið allt að 3% á umsetningu og veltuútsvarið getur komið marg oft á sömu vöruna á hinum ýmsu stigum viðskipta og framleiðslu, jafnvel 5 til 6 sinnum. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að lögfestir verði nokkrir útsvarsstigar fyrir bæjar- og sveitarfélög, en með fyrirvörum og eftir vali. í frumvarpinu er þó hrapað mjög að þessum málum og niðujöfnunarnefndir hafa gott olnbogarúm til að hnika frá útsvarsstiga t. d. er niðurjefnunarnefndum veitt heimild til að lækka útsvör, „óhöpp skerða gjaldgetu þeirra (þ. e. gjaldenda) verulega“, eins og í frumvarpinu segir. Niðurjöfnunarnefndum er ekki gert skylt að birta þær reglur, sem hún fer eftir, þegar meta skal „óhöpp“ og álagn- ingarhneyksli eins og hér í Reykjavík í vor geta því vel endur- tekið sig. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að heimilaður verði frá- dráttur á útsvari ársins 1959 fá nettótekjum við álagningu útsvara 1960 og þessi heimild mun fyrst og fremst lækka út- svör hátekjumanna þ. e. þeirra, sem greitr hafa hæst útsvörin. Þannig mun maður, sem hefur 60 þús. kr. árstekjur og konu og barn á framfæri, fá aðeins 1200 kr. lækkun, en maður, sem hefur 160 þus. kr. árslaun og jafnstóra fjölskyldu, fær 10.000 þús. kr. lækkun. VERÐHÆKKANIR Nú er af nógu að taka með verðhækkanirnar. Benzín hefur nú hækkað í annað sinn, og er nú komið i kr. 4.00 hver benzínlítri á bíl. Eins og menn rekur minni til, hækkaði benzínið í vetur úr kr. 3.02 hver lítri ( kr. 3.36, og enn var það hækkað um 64 aura. Alls nemur því hækkunin kr. 0,98, eða hér um bil einni krónu á lítr- ann. Hráolía hækkaði einnig, en sú hækkun var í einu lagi. Sú hækkun nemur 17 aurum á iítrann, sem hækk- ar úr kr. 1.18 í kr. 1.35. Haframjöl (Davre) hefur hækkað úr kr. 6.00 pr. kg. í kr. 8.35, með söluskatti. Svo mætti lengi telja allar haékkanir vegna söluskatts, svo sem tannkrem, úr 15.25 í 15.75, ávaxtasafi í flöskum úr kr. 22.90 í 23.60 og þannig mætti lengi telja.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.