Tíminn - 02.04.1960, Side 2

Tíminn - 02.04.1960, Side 2
2 T í MI N N, laugardaginn 2. apríl 1960. Vistheimili Bláa bandsins í Víðinesi. ForstöSumaSur þess er Steinar GuSmundsson. 1000 drykkjusjúkl- ingar á fimm árum Fjáröflunardagur Á morgun er fjáröflunar- dagur Bláa bandsins og er þaS í fyrsta sinn sem samtökin efna til fjársöfnunar opinber- lega. Seld verða merki til ágóða fynr starfsemina, er það biá svala, næla úr plastí. Enn iremur verður árbók samtak- anna seld. FLmm ár eru liðin frá því síarf- semi Bláa bandsins hófst og hafa samtökin stöðugt fært út kvíarnar og starf þeirra gefið Bóða raun. 1000 einstaklingar Blaðamenn ræddu við stjórn Bláa bandsins fyrir skesnmstu og skýrði Jónas Guðmundsson formað ur svo frá, að á fimm árum hefðu samtökin liðsinnt 1000 einstakling- um til að sigrast á drykkjuskap. Jónas sagði, að á Bláa bandinu væri einungis reynt að lækna þá, sem sjálfir vildu lækningu. Hann sagði reynsla sú, sem fengizt hefði af starfsemi Bláa bandsins hér kæmi heim og saman við niðurstöð ur á rannsókn, sem Alþjóðaheil- brigðisstofnunin hefur látið fram- kvæma víða erlendis. Þrír hópar Sagði hann, að þriðjungur þeirra sem leituðu til Bláa bandsins, fengju fullan bata, hættu algerlega drykkjuskap eða drykkju ef til vill einu sinni á ári, einn til tvo daga. Annar þriðjungur fengi verulega bót, kæmi aftur og aftur á hæli stofnunarinnar í 1—2 ár og yrðu sumir að nýtum þjóðfélagsþegnum þegar frá liði. I síðasta hópnum eru þeir, sem engan bata fá, þrátt fyrir endurtekna dvöl á hressing- arhælum Bláa bandsins. Væri von- laust að ætla sér að lækna ,þá menn með þeim aðferðum, sem kunnar eru. Dvalarheimili í Víðinesi Bláa bandið rekur sjúkrastöð á Flókagötu 29 og fá drykkjumenn Bláa bandsins er á morgun þar líkamlega og andlega aðhlynn ingu í nokkrar vikur. Verða þeir að hlýða þeim réglum, sem stofn unin setur. Jónas kvað erfitt að eiga við tvo hópa drykkjumanna, þá, sem hvergi eiga athvarf né heimili og þá, sem þurfa langan tíma til að ná sér upp. Fyrir þá fyrrnefndu er rekið dvalarheimili á Flókagötu 31, fá þeir þar fæði og húsnæði en stunda atvinnu sína út í bæ. Þar er hægt að veita viðtöku 15 mönnum og er þar alltaf hvert sæti skipað. Þeir síðastnefndu dvelja í Víði- nesi á Kjalarnesi og stunda þar ymis störf. Eru þeir undir eftir- liti og njóta læknishjálpar. Þar geta verið 8 vistmenn eins og sak ir standa. Þess er að vænta, að Reykvík- ingar bregðist vel við og hlaupi undir bagga með Bláa bandinu á morgun. Samtökin eru í fjárþröng, þrátt fyrir óeigingjarnt framlag félagsmanna og styrk frá ríkinu. Stjórn Bláa bandsins skipa þess- ir menn: Jónas Guðmundsson, Guð mundur Jóhannsson, Jónas Thor- oddsen og Vilhjálmur Heiðdal. Ný gerS flökunar- véla Frétzt hefur, að bráðlega muni koma á markaðinn ný, norsk flök- unarvél, sem geti valdið hreinni byltingu fyrir frystihúsin. Vél þessi er sögð vera jafngóð og Baad- er vélarnai. en mun ekki kosta nema brot af verði þeirra. Ef þetta reynist ré;t, gæti hér verið komin fiökunarvé'.in, sem smærri frysti- húsin þurfa á að halda og ráða við að kaupa. Nanari fregna hefur ekki tekizt að afia af þessari vél. ASalfundur Framsóknarfélags Kjósarsýslu Aðalfundur félagsins verður haldinn að Hlégarði I Mos- fellsveit sunnudaginn 3. apríl kl. 1.30 e. m. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Frumvarp að lögum fyrir félagið. 3. Venjuleg aðalfundarstört 4. Önnur mál. Jón Skaftason alþingismaður mætir á fundinum. STJÓRNIN Verkfaianu a togurum aflýst: Aðeins um bráðabirgða- samkomulag að ræða Þegar samkomulagið var undir-: bátaverð, sem verið hefur heldur ritað, hafði verkfallið staðið rúm- hærra en verð til togarasjómanna, lega hálfan sólarhring. j greitt til togaraháseta, en nú fyrst fá yfirmenn hliðstæða hækkun. í fyrramorgun leystist deil- an milli yfirmanna á togurum og togaraeigenda. Heildar- samningum um kjör togara- sjómanna hefur þó enn verið slegið á frest, en fiskverð sam- ræmt við þann hlut, sem há- setar fengu áður fyrr. 40% hækkun Hækkumn á fiskverðinu nemur um 40 af hundraði. Verð á karfa hækkar úr kr. 1.01 í 1,40, hækkar um 38,61%. sú hækkun er 7 aurum hærri en bátaverðið. Þorskverð hefur verið 1.17 en verður 1.66 kr. Hækkunin er 41.88%. í vetur var Einstökatriði Útgerðarr.ienn féllus't á að greiða yfirmönnum uppbót á laun þeirra fyrir síðast liðið ár, 8,4%. Greitt verður dagkaup þegar skip eru ekki við veiðar, heldur einhver önnur störf, og þegar togarar sigla á erlendan markað fá þeir verðlaun af öllu aflaverðmæti, svo hinn nýji 5% útflutmngsskattur kemur ekki til frádráttar. I l-ausir samningar Samkvæmt þessu bráðabirgðasam- komulagi, sem er uppsegjanlegt bvenær sem er með 7 daga fyrir- vara, fá yfirmenn nokkra breyt- ingu á s'kiptaverði, sem mun þýða sama og nokkur kauphækkun. Yfirmen.n á togurum eru því enn með lausa samninga. 15 myndir á sýningu Jón Sigurðsson flóð- lýstur I „Ijósaviku" Ljóstæknifélag Islands gengst fyrir „ljósviku“ dagana 3.—9. apríl og ver'ður þá stytta Jóns Sigurðssonar og byggingar við Austurvöll flóð- lýstar Ársfunaur Ljóstækftifélags íslands verður haldinn þriðju- , daginn 5. apríl n. k. Mjög er til fundarins vandað, m. a. kemur hingað formaður sænska ljóstæknifélagsins, Ivar Folcker, en hann er jafn- framt nýkjörinn forseti al- þjóðaljóstæknisambandsins C. I. E. (Commission Internation- ale de I'Eclairage). Folcker mun flytja aðalerindi fundar- ins og sýnir hann Ljóstækni- félaginu mikinn heiður með þessari heimsókn. Auk erindis hins sænska fyrir jlesara munu verða flutt fjögur styttri erindi, íslenzk, síðar um daginn. Flytjendur eru Jón Á. Bjamason, rafmagnsverkfræð- ingur, Jón Sætran, raffræðingur, Skúli Norðdahl, arkitekt, og Þórð ur Rúnólfsson, öryggismálastjóri. Gert er ráð fyrir umræðum um hvert erindi. Þá verða farnar ýmsar skoðun arferðir.Skoðað verður lýsing inn anhúss, kennslustofa í lýsingar- tækni, framleiðsla lampabúnað- ar og ýmis útilýsing. Sýnd verð ur kvikmynd um lýsingu. Fund- urinn fer fram í Leikhúskjall- aranum og lýkur honum þar með hófi um kvöldið. Ljósvika Auk ársfundarins beitir Ljós- tæknifélagið sér fyrir eins kon ar „ljósviku" vikuna 3.—9. apríl. Er það ætlunin með henni að örva sem flesta til átaka á sviði bættrar lýsingar og aukinnar fræðslu um fyrirkomulag og með ferð lampa. Félagið beitir sér fyrir flóðlýs- ingu nokkurra bygginga, einkum við Austurvöll. Einnig verður stytta Jóns Sigurðssonar lýst með bráðabirgðaljóskösturum, en j vonandi verður unnt að lýsa I hana varanlega síðar. Rafmagns veita Reykjavíkur sér um fram kvæmdir. Þá væntir félagið þess, að eig endur verzlana í miðbænum vandi gluggalýsingu sína sérstak lega þessa viku, og hyggst það veita verðlaun fyrir bezt lýsta gluggann. Kennslustofa 1 lok ijósvikunnar, þ.e. laugar daginn 9. apríl, verður kennslu- stofa í lýsingartækni, sem Ljós tæknifélagið og rafmagnsdeild Vélskólans starfrækja, opin al- menningi kl. 14—17. Þar eru sýn ishorn alls konar lampa og verða þar veittar ýmsar upplýsingar um ljós og lýsingu. Kennslustofa þessi er í húsnæði Vélskólans í Sjómannaskólanum. Almennur áróður fyrir bættri lýsingu verður hertur þessa viku, m.a. með sérstakri skreytingu í sýningarglugga Málarans við Bankastræti. Stofnað 1954 Ljóstæknifélag Islands var stofnað haustið 1954. Félagar eru nú milli 150 og 160, þar af all- margar stofnanir og ýmis fyrir- tæki. Flestir meðlima eru raf- virkjar, rafmagnsverkfræðingar og raffræðingar, nokkrir arki- tektar, læknar, kennarar o.fl. — Félagið beitir sér fyrir aukinni þekkingu á öllu því er ljós varð- ar, s.s. starfsemi augans, áhrif- um ljóss og lita, notkun allra tegunda lampa, fyrirkomulagi lýsingar innanhúss og utan. Það stendur í sambandi við erlend ljóstæknifélög og fylgist með nýj ungum á sviði ljóstækninnar. sem er ört vaxandi tæknigrein og mjög yfirgripsmikil. Félagið væntir stuðnings allra landsmanna i þeirri viðleitni sinni að bæta lýsingu hér á landi til verndar sjóninni, aukins ör- yggis, bættra vinnuafkasta, auk- ins hreinlætis, meiri fegurðar í híbýlum og á vinnustöðum. Kjörorðið er: Meira Ijós — betra ljós! Um þessar mundir heldur Jó- hannes Jóhannpsson, listmálari, mál verkasýningu að Týsgötu 1, í mál- verkaverzlun Guðmundar Árnason- ar. Á sýningunni eru 15 vatnslita- myndir allar nýjar. Jóhannes, sem er fylgjandi óhlutbundinnar llstar, hefur ekki haldið sýningu hér síðast liðin þrjú ár, en kemur nú á ný fram á sjónarsviðið með athyglis- verð verk. Sýningin er opin á venju- legum verzlunartíma. r

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.