Tíminn - 02.04.1960, Side 6
1
TÍMINN, laugardaginn Z. aprfl 1960.
6
1 IVgBNNING:
Menningartengsl íslands og Ráðstjór'narríkianna
Kveðjutónleikar Sovétlistamanna
Mikhail Voskresenskí.
Aðgöngumiðar í Þjóðleikhúsinu laugardag, sunnudag og
mánudag frá kl. 13.15.
M. í. R.
í Þjóðleikhúsinu, mánudag-
inn 4. apríl 1960, kl 20.30.
Einleikur á píanó:
Mik'nael Voskresenskí
Einsöngur:
Nadezhda Kasantseva,
óperusöngkona
Undirleikari:
Taisía Merkúlova.
TILKYNNING
Nr 9/1960.
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið hámarks-
verð á eftirtöldum vörum sem hér segir:
Jón Björnsson
skipstjóri
1 dag verður til moldar bor-
inn einn af merkari skipstjór-
um frá skútuöldinni, Jón Björns
son, er um fjölda ára átti heim
ili að „Sólheimum" á Akureyri.
Jón Björnsson var Árnesingur,
fæddur 6. apríl 1882 og ólst þar
upp, en fluttist um tvítugsaldur
til Hafnarfjarðar og stundaði
þar sjómennsku um skeið á skút
um. Haustið 1906 fór hann í sjó
mannaskólann og lauk þaðan
prófi vorið 1907. Hélt hann þá
til Noregs og nam þar beykisiðn,
en kom svo heim og fór þá til
Akureyrar og gerðist þar beykir
fyrst, en réðist svo til sjó-
mennsku á ný, fyrst stýrimaður
kaffi, brennt og malað, frá
innlendum kaffibrennslum:
í heildsölu .................... kr. 38,85 pr. kg.
í smásölu með söluskatti .... — 46,00 — —
Kaffibætir:
í heildsölu .................... kr. 18,25 pr. kg.
í smásölu með söluskatti .... — 23,00 — —
Reykjavík, 31. marz 1960.
VerSlagsstjórinn
TILKYNNING
Nr. 11/1960.
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á benzíni og gasolíu og gildir verðið
hvar sem er á landinu:
1. Benzín, hver lítri ........... kr. 4,00
2. Gasolía: *
a. Heildsöluverð, hver smálest .. — 1335,00
b. Smásöluverð úr geymi, hver lítri — 1,30
Heimilt er áð reikna 5 aura á lítra af gasolíu fyrir
útkeyrslu.
Heimilt er einnig að reikna 16 aura á lítra í af-
greiðslugjald frá smásöludælu á bifreiðar.
Sé gasolía og benzín afhent í tunnum, má verðið
vera 2Vz eyri hærra hver olíulítri og 3 aurum
hærri hver benzínlítri.
Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 1. apríl
1960. — Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 31. marz 1960.
VerSlagsstjórinn
á fiskiskútu og síðar skipátjóri.
Hefur hann um langa ævi stýrt
fjölda fiskiskipa, vélskipa og
gufubáta, bæði til síld- og þorsk
veiða fyrir Norður- og Vestur-
landi, en síðast var hann lengi
skipstjóri á póstbátum við Norð
urland og eigandi þeirra báta
síðustu áratugina. Voru það
einkum bátar er gengu um Eyja
fjörð, til Grímseyjar og vestur
til Sauðárkróks, eins og Ester,
Drangey og loks Drangur. Mun
margur frá þeim dögum minnast
hins árvakra og áreiðanlega dugn
aðarmanns og ágæta sjómanns,
sem oft komst í hann krappann
í veðraham og vetrarmyrkri, en
jafnan skilaði öllu heilu í höfn.
Jón Björnsson skipstjóri, var
kvæntur svarfdælskri konu,
Kristínu Guðjónsdóttur, sem nú
er látin fyrir fáum árum. Var
hún hin mesta atorkukona, svo
sem hún átti kyn til, og afbragðs
móðir. Bjuggu þau hjón um tugi
ára uppi á brekkunni sunnan og
ofan við Akureyrarbæ, og nefndu
bæinn Sólheima. Voru þau þar
einskonar landnemar, þótt nú sé
byggð orðin þar allt um kring.
Höfðu þau lengi smábúskap, sem
húsfreyjan einkum annaðist af
miklum dug og forsjá, og voru
þau hjón og börn þeirra hinir
beztu nágrannar, er byggðin
færðist nær þeim.
Börn þeirra hjóna eru mörg
og mannvænleg. Eitt þeirra,
Steindór skipstjóri, er tók við
gamla Drang af föður sínum,
harðduglegur atgerfismaður, sem
nú er eigandi hins nýja Drangs,
er ösla mun um firði norðan-
lands næstu árin og flytja fólk
og vörur. Er Steinþór skipstjóri
hinn traustasti maður, sem hann
á kyn til.
Við, gamlir grannar og vinir
þeirra Sólheima-hjóna, kveðjum
þau með hlýrri þökk og biðjum
þeim blessunar guðs, jafnframt
því og við sendum ástvinum
þeirr einlæga samúðarkveðju.
Gamall granni.
Tilkynning
Nr. 8/1960.
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á smjörlíki.frái og með 1. apríl 1960.
f heildsölu ............................ kr. 12,00
í smásölu, með söluskatti .............. — 13,40
Reykjavík, 31. marz 1960.
Verðlagsstjórinn
TILKYNNING
Nr. 12/1960.
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á brauðum í smásölu:
Franskbrauð, 500 gr.................... kr. 4,30
Heilhveitibrauð, 500 gr.................. — 4,30
Vínarbrauð, pr. stk...................... — 1,15
Kringlur, pr. kg......................... — 12,80
Tvíbökur, pr. kg......................... — 19,20
Séu nefnd brauð böknð með annarri þyngd en að
ofan greinir, ski^ ,u verðlögð í hlutfalli við
ofangreint verð.
Heimilt er þó að selja sérbökuð 250 gr fransk-
brauð á kr. 2,20, ef 500 gr. brauð eru einnig á
boðstólum.
Á þeim stöðum, sem brauðgerðir eru ekki starf-
andi, má bæta sannanlegum flutningskostnaði við
hámarksverðið.
Reykjavík, 31. marz 1960.
VerSlagsstjórinn
Tilkynning
Nr. 10/1960.
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á fiski í smásölu og er söluskattur
innifalinn í verðinu.
Nýr þorskur, slægður:
með haus .................... kr. 2,20 pr. kg.
hausaður ....................... — 2,70 — —
Ný ýsa, slægð:
með haus ..................... kr. 2,90 pr. kg.
hausuð ......................... — 3,60 — —
Ekk imá selja fiskinn dýrari, þótt hann sé þver-
skorinn í stykki.
Nýr fiskur (þorskur og ýsa):
Flakaður án þunnilda........
Ný lúða:
Stórlúða ...................
— þeinlaus ..........
Smálúða, heil ..............
— sundurskorin ....
Saltfiskur (miðað við 1. flokks fullþurrkaðan fisk,
að frádreginni niðurgreiðslu ríkissjóðs):
Heildsöluverð ................ kr. 5.85 pr. kg.
Smásöluverð ................... — 7,80 — —
Verðið helzt óbreytt, þótt saltíiskurinn sé afvatn-
aður og sundurskorinn.
Fiskfars .................... kr. 10,00 pr. kg.
Reykjavík, 31. marz 1960.
VerSlagsstjórinn
kr. 6,20 pr. kg.
— 14,50 pr. kg.
_ 16,50---------
_ 9,40----------
— 11,40-------