Tíminn - 02.04.1960, Side 11
T1M IN N, laugardaglnn 2. apríl 1960.
11
Upp í sveit meö DISKÖ í R-5584
DISKÓ-kvintettinn er ný hljóm
sveit, sem nýtur mikilla vin-
sælda um þessar mundir, — og
, ekki að ástæðulausu, því hljóm-
sveitin er ljómandi góð. Okkur
lék hugur á að kynnast henni og
leik hennar svolítið, og tókum
við okkur því far með strákunum
austur að Laugarvatni um sein-
.ustu heígi. í hópinn slógust svo
nokkrar ungar stúlkur, en rúm
• var nóg, þar sem heill langferða-
bíll var annars vegar, R-5584,
gömul en góð „kerra“.
Mikið var raulað á leiðinni,
og allir kátir og fjörugir, eins
og vera ber í svona ferðalögum.
■ Að vísu var rigning, og þar að
auki mjög tekið að dimma, en
. það var kannski bara skemmti-
legra, að minnsta kosti lét eng-
inn það neitt á sig fá.
Ætlunin var að Diskó-kvintett-
inn spilaði á árshátíð Héraðs-
skólans á Laugarvatni, en eins
og nafnið bendir til, er hún
haldin árlega, og er þá mikið um
dýrðir, ýmis skemmtiatriði, .svo
sem gítarsöngur og fleira, en síð-
an dansað fram á rauða nótt.
Nokkuð var liðið á kvöldið, er við
. ókum í hlað. Skólastjórinn tók á
- móti okkur, og við ræddum við
hann stundarkorn. Hann heitir
Benedikt Sigvaldason, og er
þetta fyrsti veturinn hans sem
skólastjóri þarna. Hann var
ánægður með skemmtunina, og
kvað ágóðann af henni renna í
ferðasjóð þrðja bekkjar skólans.
Skemmtiatriðunum var nú lok-
ið, og Diskó-kvintettinn byrjaði
að spila af fullum krafti. Salur-
inn, sem er frekar stór og rúm-
góður, var þétt skipaður ungu
fólki, sem þegar dreif sig í dans-
inn, og klappaði hljómsveitinni
óspart lof í lófa, sérstaklega
söngvurUnum, Haraldi G. Har-
alds og Bertnam Möller, sem
■sungu öll nýjustu lögin, sérlega
skemmtilega útsett og áheyrileg.
Og tíminn leið óðfluga hjá,
fyrr en varði var klukkan orðin
fjögur, annars eru böll yfirleitt
ekki höffj svo lengi, nema við
sérstök tækifæri eins og t. d. í
þetta sinn. Ekki bar þó mikið á
þreytu hjá krökkunum, en ein-
staka ungmey sást þó geispa svo
lítið bæri á. Greinilegt var samt,
að flestir hefðu viljað dansa
miklu lengur, en nú var ekki
lengur til setunnar boðið, og
hljómsveitin fór að taka sarnan
föggur sínar.
Texti vlkunnar
BANJÓ - DRENGURINN
(Lag: Banjo boy — textíi Völundur)
Ég veit að þið þekkið öll þennan banjó-dreng,
banjó-dreng, banjó-dreng.
Því hann leikur svo vel á sinn litla streng,
litla banjó-streng.
Og allir kraklíar eru hrifnir,
og þeir hlusta kátir á,
þegar hljómar líða banjóinu frá.
Ég veit að þið elskið öll þennan banjó-dreng,
banjó-dreng, banjó-dreng.
Því hann leikur svo vel á sinn litla streng,
litla banjó-streng.
Við vorum ánægéir með kynni
okkar af Diskó-kvintettinum,
hann hefur greinilega æft mikið,
og þótt hann sé nýr, og hljóm-
sveitarmenn séu enn í skóla,
próflestri og öðru slíku, er hann
vafalaust í flokki beztu hljóm-
sveita bæjarins, og söngvararnir
báðir fyrsta flokks, fjörugir og
skemmtilegir á sviði.
Við notuðum tímann á heim-
leiðinni til að, rabba svolítð við
aðalsöngvara hljómsveitarinnar,
Harald G. Haralds:
— Hvenær byrjaðir þú að
syngja opinberlega, Harald?
— Ég söng fyrst með hljóm-
sveit fyrir tveimur árum, var þá
14 ára, og seinna í Gúttó með
Skafta Ólafssyni. Síðar um vorið
var ég með Gunnari Ormslev á
hljómleikum í Austurbæjarbíói.
Eftir það gerði ég hlé á söngnum,
þar til nú eftir seinustu jól, að
ég byrjaði með Diskó.
— Hvaða lög syngurðu helzt
þessa dagana?
— Lonely blueboy, Danny boy,
Lucky devil, Way down younder
og mörg fleiri vinsæl lög, sem
mikið eru leikin í Ríkisútvarpinu
og í Keflavík.
— Uppáhaldssöngvarar?
— Af þeim íslenzku held ég
einna mest upp á Ellý Vilhjálms
S Ö N G-V A R l'N-N-
B
O
B
B
Y
D
A
R
I
N
er stundum ósnyrtilegur
Haraldur G. Haralds.
og Ragnar Bjarnason. En af
amerísku söngvurunum finnst
mér skemmtilegastir þeir: Elvis
Presley, Lloyd Price, Conway
Twitly og Fats Domino, — og
jazz-söngkonan Ella Fitzgerald.
— Fellur þér betur að syngja
íslenzka eða ameríska texta?
— Það er nú misjafnt, en mér
finnst amerískir textar yfirleitt
vera betur sniðnir eftir lögun-
um, og svo eru þeir líka þekktari.
Þá má segja að lítið fyrirfinnist
af nýjum, íslenzkum textum við
vinsælustu lögin.
— Ert þú ekki í skóla?
— Jú. ég er í landsprófinu, og
fellur það alveg ngætlega. .
Við vonum að Harald standi
sig ems vel : prófunum eins og
hann gerir á sviðinu, og þökk-
um Diskó-kvintettinum fyrir
skemmtilega ferð — og hljómlist.
sem ætti að vera frambærileg
hvar sem er. B.
Margir hafa beðið okkur að segja
svolítið frá Bobby Darin. Hann er
um tvítugt, 177 ém á hæð og veg-
ur 70 kg. Hann reykir, en er á
móti áfengi. Hvað mataræði
snertir er hann mjög nægjusam-
ur og er nokkurn veginn sama
um hvað hann lætur oní sig.
Grænt ku vera uppáhaldslitur
hans. Honum geðjast vel bæði að
jazz og „æðri“ tónlist og leikur
hvort tveggja jöfnum höndum á
píanóið sitt. Bobby hefur gert
samning við Paramount um leik
í kvikmyndum á vegum félgasins,
og segist fremur vilja leika en
syngja. Af kvikmyndastjörnum
dáir hann mest Sinátra, Brando,
Joan Crawford og Anna Mang-
ani, en af söngvurum þau Frank
Sinaxtra og Peggi Lee. Boby seg-
ist hafa sungið alveg síðan hann
man fyrst eftir sér, og alltaf hafa
haft mikla ánægju af að syngja.
Hann segir að ánægjulegasta at-
vikið í lífi sinu hafi verið þegar
Sammy Davis jr. hringdi til hans
eftir sýningu og þakkaði honum
innilega fyrir góða skemmtun, en
sorglegasti atburðurinn í lífi
Bobbys var þegar móðir hans dó.
Bobby Darin er ekki hið rétta
nafn hans: skírnarnafnið er Wal-
don Robert Cassotto. Bobby, eins
og við munum þó eftir sem áður
kalla hann, segir að sú gjöf, sem
mest hafi glatt sig um dagana,
sé taktstokkur, sem hann fékk í
jólagjöf fyrir nokkrum árum.
Hann segist elska Hollywood, og
vilja dvelja þar langdvölum, en
geðjast einnig að New York, en
hingað til hefur hann aðallega
búið í Cast Bronx og Manhattan
Þá hefur Bobby einnig látið það
uppi, að hann sé stundum ósnyrti
lega til fara, en kveðst reyna að
vera það ekki Uppáhalds tóm-
stundaiðkanir hans eru golf,
sund, siglingar og veiðar. Hann
kann að búa til mat, og segir þnð
stundum koma í góðar
Geta má þess, að hann á bíl; þó
aðeins einn. Hann segist vel geta
hugsað sér að fara út með aðdá-
endum sínum, ef það séu stúlkur
að hans smekk, og er hrifnastur,
'a. m. k. yfirleitt, af jafnöldrum
sínum. Hann fær mörg þúsund
bréf á viku, og reynir að svara
eins mörgum þeirra og hann get-
ur, og að lokum skulum við
klykkja út með því að hann yrði
ábyggilega glaður, ef hann fengi
bréf frá íslenzkum aðdáendum
sínum.
Heimilisfang hans er:
Bobby Darin,
101 West 55th Street,
New York 19 NY
Tíu vinsælustu
lögin á íslandi
1. Einu sinni á ágústkveldi.
2. Við gefumst aldrei upp.
3. Komdu niður.
4. Oft er fjör í Eeyjum.
5. Einsi kaldi úr Eyjunum.
1. Running bear.
2. Turn mee loose.
3. Be my guest.
4. Banjo boy.
5. Summerset.
FIMM VINSÆLUSTU LÖGIN
f BANDARÍKJUNUM:
1. Teen angel.
2. Handy man.
3. Summerset.
4. Where or when.
5. Theme from a summer
place.