Tíminn - 06.09.1960, Qupperneq 12

Tíminn - 06.09.1960, Qupperneq 12
12 T í MIN N, þriðjudagimi 6. september 1960, ítallnn Berutti slgrar t 200 m. hlauplnu, en jafnar heimsmetið 20.5 sek., sem einnig er nýtt Ólympíumet. Lengst til vinstrl er Carney, Bandaríkjunum, sem varð annar á 20.6 sék. Frakkinn Seye er þriðji á 20.7 sek. Pólverjinn Foik var fjórði á 20.8 sek. Johnston, Bandaríkjunum, fimmti á 20.8 sek. og Ray Norton, Bandaríkjunum, sjötti á 20.9 sek. Berutti var fagnað sem þjóö- hetju, er hann sigraði í 200 m. — og var bar metS fyrsti EvrópumatSurinn. sem sigratS hefur í 200 m hlaupi á Ólympíuleikum Tugþúsundir áhorfenda æptu sig hása á laugardaginn á Ólympíuleikvanginum í Róm, þegar ítalinn Berutti sigraSi í 200 m hlaupinu á heimsmettíma, 20,5 sek „Ber- utti, medaglia d'oro — Berutti gullverðlaunin". Og hinn granni ítali meS svörtu gler- augun sigraði svertingjana þrjá frá Bandaríkjunum Pól- verjann Foik og Frakkann Seye í mjög hörðu úrslita- hlaupi 200 metranna, þar sem bæði Berutti og Bandaríkja- maðurinn Carney duttu, þegar þeir höfðu hlaupið yfir mark- línuna. Tlmi Berutti í hlaupinu var 20.5 sek. nýtt Bvrópu- og Ólympíumet og jafnt heims metinu. Sigur hans í hlaup- inu eru ein óvæntustu úr- slit á Ólympíuleikunum hing að til og mjög fáir reiknuðu með sigri hans, en hins veg ar að annar' hvor Bandarikja mannanna Norton eða John ston færi með sigur af hólmi. Honum var fagnað ákaft á leikvanginum — og enginn ■sigurvegari hefur verið hyllt ur jafn mikið og innilega af áhorfendum, enda ítalir þar í miklum meirihluta. Komst ekki í úrslit Bandaríkin urðu fyrir öðru áfalli á laugardaginn, þegar heimsmethafinn í sleggjukasti, Harold Conolly komst ekki í sex manna úr- slit. Conolly sigraði i Mel- bourne 1956 og þess var fast lega vænzt að hann myndi sigra aftur í Róm — sérstak lega eftir að hann kastaði 70.33 metra nýlega, og er eini maðurinn í heiminum sem kastað hefur yfir 70 m. í sleggjukasti. En þó Conolly kastaði nú 40 sentimetrum lengra en í Melbourne dugði það honum ekki til að komast í úrslit. Aðeins sex menn af þeim 15, sem tóku þátt í aðalkeppn- inni á laugardaginn, fengu sex tilraunir. Conolly var lengi í sjötta sæti og hafði því von um útslitasæti, þeg- ar aðeins tveir menn áttu eftir að kasta, írinn Lawlor og Rússinn Samotsvetov. Al- ger þögn var á vellinum, þeg ar Lawlor sneri sér í hringn um og þeytti sleggjunni 64.09 metra — eða lengra en Cololly — og þar með var hann sleginn út i keppninni, en hann er sannur íþrótta- maður og fór strax til írans og óskaði honum til ham- ingju með árangitrinn. Og síðan kastaði Rússinn sleggj unni 63.60 m., einum senti- metra lengra en Conolly. Það hefði þó verið gremjulegra að komast ekki í úrslita- keppnina, aðeins á einum sentimetra. í forkeppninni setti Rúss inn Rudenkov nýtt ólympískt met, kastaði 67.03 metra — eða um fjórum metrum lengra en gamla Ólympíu- metið var, en það átti Con- olly. Rudenkov hlaut gull- verðlaunin, kastaði 67 10 í að alkeppninni. Þar var Ungverj inn og Evrópumethafinn Zsivisky í öðru sæti með 65.79 metra. Þriðji varð Pól verjinn Rut með 64.95 metra. Á laugardaginn var einnig keppt til úrslita í 3000 m. hindrunarhlaúpi — og sigur vegari þar var Pólverjinn Krzyszkowiak, hinn tvöfaldi Evrópumeistari 1958, en hann sigraði bæði í 5000 og 10000 metrum í Stokkhólmi. Keppni milli hans og Rússans Soko- lov var mjög hörð, en Pól- verjinn tók forustuna, þegar 300 metrar voru eftir og hélt henni til loka. Tími hans var nýtt Ólympíumet 8:34,0 mín. — eða aðeins lakara en heims met hans. Sokolov fékk tím- ann 8:36,4 mín. Þriðji varð Rzhitchin, Rússlandi á 8:42,2 mín. Tveir fyrstu menn náðu þvj betri tíma en Englend- ingurinn Brasher, sem sigr- aði í þessari grein í Mel- boume. Pjórði í hlaupinu var Roelants, Belgíu á 8:47,6 mín. Pimmti Tjörnebo Svíþjóð á 8:58,6 mín. og sjötti var Mull er, Þýzkalandi á 9:01,6. Þrir Bandaríkjamenn fyrstir í 110 m. grhl. Úrslitahlaupið i 110 m grindahlaupi var mjög spenn- andi og þurfti nokkurn tíma til að skera úr hvor hefði sigrað heimsmethafinn og ól- ympíumeistari 1956, Calhoun, Bandaríkjúnum, eða landi hans May. Calhoun var dæmd- ur sigur, en báðir fengu sama tíma, 13,8 sek. Baráttan um þriðja og fjórða sætið var ekki síður spennandi, en þar börðust Bandaríkjamaðurinn Jones og Lauer, Þýzkalandi, sem á heimsmetið, 13.2 sek. ásamt Cal- houn. Jones sigraði, var sjónar- mun á undan, en tíminn var hinn sami 14.0 sek. á báðum. Lauer, sem var bezti grinda- hlauparinn í fyrra og sigraði þá meðal annars Calhoun gekk ekki heill til skógar í vor og gat þá lítið stundað æfingar. 1. riðill: 1. Lee Calhoun, Banda- ríkin 14,1. 2. Okello, Uganda, 14,3 3. Berezuckiy, Sovét, 14,4. 4. Corn- acchia, ftalia, 14,5. 5. Hildreth, England. 14,6. 6. Schotes, Þýzka- land, 14,6. 2. riðill: 1. Lauer, Þýzkaland, 13,9. 2. Gardner, Antillaeyjar, 14,3. 3. Raziq, Pakistan, 14,4. 4. Roudnitska, Frakkland, 14,5. 5. Petrusic, Júgóslavía, 14,6. 6. Zam- boni, ítalía, 14,9. 3. riðill: 1. Willie May, Bandar., 13.8. 2. Mikbailov, Sovét, 13,9. 3. Lorger, Júgóslavía, 14,4. 4. Awori, Uganda, 14,8. 5. Gerbig, Þýzkal., 14.8. 6. Maíthews, England, 15,0. 4. riðiil: 1. Haves Jones, Banda- ríkin, 14,1. 2 Christiakov, Sovét, 14,3. 3. Svaia, ftalía, 14,4. 4. Muz- yk, Pólland 14,5. 5. Birrel, Eng- land, 14,6. 6. Duriez, Frakkland, 15,0. Landsliðið í frjálsum íþróttum fer utan í dag í dag fer íslenzka landsliðið í frjálsum iþróftum áleiðis til Austur-Þýzkalands, þar sem það mun heyja landskeppni við B-lið Austur-Þjóðverja. ís- lenzku frjálsiþróttamennirnir, sem tekið hafa þátt í Ólympíu leikunum í Róm munu koma til móts við aðra landsliðs- menn í Berlín. Austur-Þjóðverjar eiga mjög sterku liði á að skipa — og þótt þeir stilli aðeins upp B-liði gegn okkar mönnum, munu þeir sigra með miklum yfirburðum í keppn- inni. Allir Ölympíukeppendurnir munu koma beint heim að keppn- inni lokinni við Austur-Þjóðverja, en nokkrir aðrir frjálsíþróttamenn munu taka þátt í fleiri mótum ytra. Aðalfararstjóri með landsliðinu, Belgíumaðurinn Roger Moens féll alveg saman, þegar hann varð aðeins annar í 800 m. hlaupinu. Heimsmethafinn leii um öxl þegar nokkrir metrai voru eftir, en þá skauzt Ný-Sjálendingurinn Snell framúr honum og sigr- aði í hiaupinu. sem fer utan í dag, er Jóhannes j Sölvason, ritari Frj álsíþróttasam- > bands fsíands. Úrslitaleik- urinn 25. sept. Aðeins einn leikur er nú eftir f íslandsmótinu, 1. deild, og er það hreinn úrslitaleikur milli Akra ness og KR. Leikurinn verður ckki háður fyrr en 25. september vegna þess að landsliðið fer bráð- lega tii frlands og mun leika þar landsleik og tvo aðra leiki, eins og áður hefur verið skýrt frá í blaðinu. Staðan í deildinni fyrir þennan síðasta leik er þannig: 1. KR 9 6 1 2 41-14 13 2. Akranes 9 5 3 1 31-15 13 3. Fram 10 4 3 3 21-24 11 4. Valur 10 3 4 3 14-25 10 5 Ak.eyri 10 3 0 7 24-35 6 6. Keflav. 10 2 1 7 13-31 5 400 m hlaup: 1. Riðill: 1. Kaufmann, Þýzka- land, 46,5. 2. Singh, Indland, 46,5. 3. Spence, Antillaeyjar, 46,9. 4. Tobacco, Kanada, 47,5. 5. Davis, Suður-Afrika, 48,0. 2. riðili: 1. Yerman, Bandarík- in, 46,4. 2. Godser, Ástralía, 46,5. 3. Kinder, Þýzkaland 46,7. 4. Wedd erburn, Antillaeyjar. 47,0. 5. Gu- enard, Puerto Rico, 47,2. 3. riðill: i Young. Bandaríkin, 46,1. 2. Bngntwell, England, 46,2. 3 Day, Suður-Afríka, 46,3. 4. Reske, Þýzicaland, 47,3. 5. Swat- kowski, Póliand, 47,4. 4. riðili: 1. Davis, Bandaríkin, 45,9. 2. Spence, Suður-Afríka, 46,1, 3 Amu. Nigeria, 46,4 4. Kówalski, Pólland, 46,7. 5. Bommarito, ftal- ía, 47,5.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.