Tíminn - 21.09.1960, Blaðsíða 1

Tíminn - 21.09.1960, Blaðsíða 1
Slippgjöld hækka um allt aö helmingi Þessa dagana stendur slátrun sem hæst hjá Sláturfélagi SuSur- lands. Timinn heimsótti slátur- hús og vinnslustöS félagsins við Skúlagötu í gær, og var þá þessi mynd tekin af fláningsmanni aS verki. Nánar er sagt frá heim- sókninni á ló. siðu blaðsins. (Ljós mynd, Tíminn, K.M.). Ein þeirra ráðstafana, sem í sumar hafa verið gerðar af hálfu stjórnarvalda, líklega til þess að létta undir með út- gerð fiski- og flutningaskipa, er að leyfa 40—50% hækkun á svonefndum slippgjöldum. Stærsti bleiklaxinn veiddist í Fnjóská Stærsti bleiklax sem veiðzt hefur hér á landi fékkst í Fnjóská síðast liðinn miðviku- dag. Vó hann 5 pund og var öO sm langur. Var hér um að ræða fullþroska hæng og veiddist hann á maðk. Nýtt skip í gær kom nýtt fiskiskip til Reyðarfjarðar, nefnist það Katrín. Katrín er 157 lesta stálskip, smíðað j Leirvík í Noregi. Skipið reyndist hið bezta á heimleið. Skipstjóri var Viktor Jakobsson. Skipið mun fara á veiðar innan tíð ar Smjörleysi fyrirsjá- anlegt eftir áramót Fiskur þessi var miklum mun stærri en fræðimenn telja venju- legt um fullorðna bleiklaxa. Veiðimaðurinn sem fékk þenn- ;.n metfisk á öngulinn, heitir Vig- íús Ólafsson frá Akureyri. Stofn- iiði hann til veizlu og var laxinn matreiddur á margan hátt, bæði soðinn og steiktur. Urðu margir til að bragða á honum og luku upp einum munni um að hann væri ljúffengur og bragðgóður. hótti hann ekki ósvipaður bleikju á bragðið. Að undanförnu hafa einnig veiðzt bleiklaxar í Ólafsfjarðar- vatni og Ilofsá í Vopnafirði. Blað- ið hefur og haft þær fregnir að tveir Kyrrahafslaxar hafi veiðzt við Hornafjörð. Ekki veit blaðið hvort þar er um bleiklax eða aðra Kyrrahafstegund að ræða, en þessi veiði við Hornafjörð virðist benda til þess að Kyrrahafslaxinn sé að taka sér bólfestu landið um kri-ng. Þessi hækkun er gerð með fullu samþykki verðlagsyfir- valda, þótt margsinnis hafi verið boðað, að vinna og þjón usta, sem ekki stafar bein- línis af hækkun erlendrar efnivöru, skyldi standa í stað. Óskiljanleg ráðstöfun Gjöld þau, sem hér um ræð ir, eru uppsátursgjöld og dag gjöld fyrir skip og báta í drátt arbrautum. Vinnulaun við þessa þjónustu hafa an sjálf- sögðu ekki hækkað, og þarf heldur ekki til erlent efni að neinu ráði. Þaö er mönnum því hulin ráðgáta, hvernig slík hækkun verður réttlætt af opinberri hálfu eða talin í samræmi við boðskap stjórn arvalda. Ekki mun þessi kostn aðarliður vera svo lítill eða léttbær, ag óhætt sé aö þyngja hann, og ekki hafa skipaviögerðir eða skipasmíð ar verið svo ódýrar hér á landi að bæta megi á. Hér er víst aðeins um að ræða eitt „bjargráða“ þeirra, sem ríkisstjórnin réttir íslenzkum útvegi og skiþaútgerð. Slys á Akureyri Drengur á skellinöðru rakst á jeppa og fótbrotnaði í gær varð það slys á Akureyri, að piltur á skellinöðru rakst á jeppabíl og brotnaði pilturinn á fæti. Var það opið beinbrot, en piltinum mun hafa liðið eftir at- vikum vel í gær. ED. — og ostalaust líka, uema veríhækkanir stjórn- arinnar valdi stórfelldum samdrætti í sölu osta Allt virðist nú benda til þess aS smjörlaust verSi í land inu í febrúarmánuSi n.k, en smjörbirgSir eru nú litlar í iandinu, um 280 tonn, en þaS svarar til innanlandsneyzlu í þrjá mánuSi eSa svo. Þá eru ostabirgSir miklu minni en í fyrra og má gera ráð fyrir skorti á þeirri vöru þegar kem ur fram á veturinn, nema verð hækkanir ríkisstjórnarinnar vérSi til þess að minna seljist af ostum en verið hefur til þessa. Blaðiö átti í gær tal við! Gunnar Jónsson, verkstjóraí í Mjólkurbúi Flóamanna, um þetta mál. Skýrði Gunnar svo frá að 1. sept. s.l. hefðu smjörbirgðir búsins verið 125 tonn. Ostabirgðir nú eru 120 tonn en á sama tíma í fyrra námu þær 206 tonnum. SmjöriS seldist jafnharðan Skýringuna á þessum sam- drætti smjörbirgðanna kvað Gunnar vera þá að á s.l. vori hefði smjörlaust orðið í land (Framh. á bls. 15.) „Reykjavíkurf lug- völlur Danmerkur^ Kaupmannahöfn. EINKASKEYTI tll TÍMANS — Hávaði í flugvélum á Kastrupflugvelli í Danmörku eyðileggur næturfrið 800 fjölskyldna, sem búa í nánd við flugvöllinn. Mörgum liggur við sturlun vegna þess arna og síðustu daga hafa íbúarnir safnazt saman á hverju kvöldi fii þess að mótmæla þessum hávaða. Kvartanir hafa verið sendar flugmálaráðherranum danska og flug- málastjórninni. Spyrjast íbúarnir við Kastrupflugvöli fyrir um, hvort ekki eigi að gera eitthvað tii þess að bjarga þeim frá þessum ósköpum. íbúarnir krefjast þess, að rikið kaupi af þeim húsin og þeir leggja fram með kröfum sínum skýrslur frá læknum þar sem sagt er, að hávaðinn frá flugvélunum geti valdið alvarlegum taugasjúk- dómum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.