Tíminn - 21.09.1960, Side 2
2
T í MIN N, miðvikudaginn 21. september 1960.
Launþegar verða að vera á verði
um hagsmuni sína
Yfirlýsing frá stjórn „Framherja“, félags
Framsóknarmanna í launþegasamtökunum
Þar sem fulltrúakjör til Alþýðusambandsbings fer nú í hönd,
vlll stjórn „Framherja", félag Framsóknarmanna I launþegasamtök-
unum, taka þetta fram:
Ráðstafanir núverandi ríkisstjórnar hafa nú þegar leitt til stór-
versnandi lífskjara almennings í landlnu, en eiga þó eftir að hafa
meiri áhrif í þá átt en orðið er. Meðal annars vegna eftirfarandi:
1. Afturhaldsstefna ríkisstjórnarinnar hefur leitt til stöðvunar
þeirrar uppbyggingar í almanna þágu, sem átt hefur sér stað
á síðari tímum undir forystu Framsóknarflokksins, þeirrar upp-
byggingar, sem skapaði þróttmikið atvinnulíf og eðlilega og
stöðuga framleiðsluaukningu í landinu.
Þessi stefna ríkisstjórnarinnar leiðir af sér samdrátt í fram-
leiðslu og atvinnulífi þjóðarinnar almennt, samhliða ört minnk-
andi kaupgetu fólks.
2. Efnahagsráðstafanir stjórnarflokkanna hafa ekki enn lagxt á af
fullum þunga, þar sem vörur með verðlagi þvi, sem glltl, áður
en þær komu til framkvæmda hafa verlð á markaðinum og eru
jafnvel enn.
3. Atvlnnuöryggi er nú minna en nokkru sinni fyrr, meðal annars
vegna þess, að afkoma höfuðatvinnuveganna er nú verri vegna
ráðstafana stjórnarinnar en áður var.
4. Viljayfirlýsingar stéttafélaga hafa verið hafðar að engu og rétt-
Indi þeirra skert.
Af framansögðu er það Ijóst að fólk innan launþegasamtakanna
verður að vera á verði um hagsmuni sína og þjóðarlnnar. Stjórn
„Framherja" telur eðlilegt að Framsóknarfólk innan launþegasam-
takanna sé reiðubúið til samstarfs — án tillits til stjórnmálaskoð-
ana — vlð þá meðlimi í verkalýðshreyfingunni, sem eru andvígir
stefnu núverandi ríkisstjórnar, eins og hún kemur fram gagnvart
málefnum launastéttanna og að framan hefur verið lýst.'
STJÓRN FRAMHERJA
Glæsileg samkoma Fram
sóknarm. í Rangárþingi
Framsóknarmenn í Rangár-
þingi héldu héraðsmót í hinu
nýja og stórglæsilega féiags-
heimili aS Hvolsvelli síðast
liðinn laugardag.
Grétar Björnsson, Hvcnls-
velli, setti og stjómaði sam-
komunni. RæSumenn voru
Björn Börnsson alþ.m., Jón
Skaftason alþm., og Helgi
Bergs/ verkfræðingur. Var
máli ræðumanna mjög vel
tekið. — Þuríður Pálsdóttir
óperusöngkona söng einsöng
við undirleik Fritz Weishapp-
el, Hjálmar Gíslason skammti
með gamanvísum og eftir-
hermum. Echo-quintettinn
lék fyrir dansinum. — Um
500 manns sóttu samkomuna,
sem fór hið bezta fram i alla
Fjöldamorð
Framhald af 3. síðu.
svipað leyti og Lumumba og árétt-
aði þar, að hann hefði öll völd
í sínum höndum. Hann hefði sett
hermenn á vörð við alla mikil-
\æga staði m.a. væri flugvallarins
í Leopoldville vel gætt og ef
Lumumba reyndi að komast vest-
ur um haf yrði hann handtekinn
og leiddur fyrir rétt.
Mobutu sagðist einnig hafa skip-
að hermönnum þeim frá Lumumba
sem sótt hafa fram í Katanga og
rnunu hafa verið orðnir um 2000
að tölu, að snúa til Stanleyville
og hefðu þeir gert það. Svo virð-
ist þrátt fyrir völdin í hernum
eins og nú stendur, að Mobutu
ofursti eigi öfgafulla hatursmenn,
því honum hafa verið sýnd þrjú
banatilræði s.l. þrjá daga — hið
siðasta í eær.
staði. í lok skemmtunarinnar
var almennur söngur, sem
Óskar Jónsson fyrrum alþm.
í Vík, stjórnaði.
Jón Leifs kosinn
til formennsku
Á þingi Alþjóðasambands
höfunda, sem lauk með mót-
töku dómsmálaráðherra Sviss
lands í gær, var Jón Leifs
kjörinn förmaður tíu manna
nefndar til að undirbúa sam
eiginlegar aðgerðir vegna höf
undaréttarbrota Bandaríkja-
hers í löndum Atlantshafs-
bandalagsins og víðar. Einnig
var Jón Leifs kjörinn formað
ur nefndar til að ganga frá
stefnuskrá um sæmdarrétt
höfunda „DROIT MORAL“
fyrir alþjóðasambandið.
Engin rekneta-
•Cb*
veioi
Þrír bátar hafa verið á rek-
netaveiðum frá Akranesi und
i anfarið. Leituðu þeir víða og
lögðu, en afli þeirra hefur ver
ið lítill sem enginn. Bátarnir
eru nú hættir þessum veið-
um — a.m.k. { bili.
Ekki lítur vel út með rek-
netavertiðina hér sunnan-
lands í ár, en ekki er þó á-
stæða til að örvænta ennþá.
í fyrra veiddist svo til eng-
in síld fyrr en 12.—13. nóv.
Heigi Tómasson fær
ókeypis skólavist
Mun nema dans vi8 „School oí America'n Ballet“
HELGI TÓMASSON
Danska blaðið BT skýrir frá
því fyrir nokkru að Helgi Tóm
Gilfersmótið:
Friðrik og
Ingi efstir
Friðrik Ólafsson vann skák
sína vig Ingvar Ásmundsson
úr 3. umferð Gilfermótsins
og var því staða ef>tu manna
eftir fjórar umferðir þessi:
v.
1.—2. Friðrik og Ingi 3yz
3.—4. Arinbjöm og
Johannesen 3
5. Ingvar 2 bið
6. Benóný 2
Fimmta umferð var tefld
í gærkveldi en úrslit lágu ekki
fyrir er blaðið fór i pressuna.
Sjötta umferð verður tefld í
Sjómannaskólanum í kvöld
kl. 19.30 og eigast við: Friðrik
—Kári; Ólafur—Arinbjörn;
Ingvar—Benóný; Gunnar—
Johannesen; Jónas—Guðm.
Ágústsson; og Ingi—Guðm.
Lárusson. — Biðskákir eru á
fimmtudagskvöld en sjöunda
umferð á sama stað kl. 19,30
á föstudag og teflir þá Friðrik
með svörtu við Johannesen.
asson hafi fengið tilboð um ó-
keypis skólavist á balletskóla
í Bandaríkjunum og telur
blaðið þetta mikla virðingu
tyrir Helga sem vel er kunn-
ur hér heima frá því hann
dansaði í Þjóðleikhúsinu.
Segir blaðið að Helgi hafi dans
að fyrir Jerome Robbins er hann
kom með dansflobk sinn til Reykja
víkur, og nú liggi árangurinn fyr-
ir: Ókeypis skólavist á skóla, sem
stórir hópar vildu borga fyrir að
komast á.
Dvalizt í Höfn
Helgi hefur dvalizt á dansskóla
í Kaupmannahöfn síðustu misser-
in, en er nú hingað kominn á leið
sinni vestur um haf, þar sem hann
mun nema dans við hin kunna
skóla „Sohool of America Ballet“.
Er þetta mikil viðurkenning fyrir
Helga.
Auk námsins í Kaupmannahöfn
hefur Helgi dansað þar víða, svo
sem í Tívólí, en þar er Bisted ball-
ettmeistari. Hafa dönsk blöð farið
lofsamlegum orðum um dans
Helga.
Hljómplötugjöf
Fyrir nokkrum árum gaf
bandaríski fiðlusnillingurinn
Isaac Stern Háskóla íslands
vönduð hljómplötútæki, á-
samt góðum stofni að hljóm-
plötusafni. Siðan hefur safn-
ið aukizt með árlegum fjár-
framlögum háskólans og
rausnarlegum gjöfum ýmissa
aðila, svo sem Fálkans h.f. í
Reykjavík og nokkurra er-
lendra sendiráða. — Nýlega
hefur háskólanum borizt
mesta hljómplötugjöfin til
þessa, rúmlega 430 stórar
(16 þumlunga) hæggengis-
plötur með hinni margvísleg
ustu tónlist, ásamt spjald-
skrám og skýringum á tón-
verkunum. Kann Háskólinn
Upplýsingaþjónustu Banda-
rikjanna miklar þakkir fyrir
þessa veglegu og kærkomnu
gjöf.
Minnisvarði um
Jónas Kristjáns-
son, afhjúpaður
í Hveragerði
í gær var afhjúpaður við
heilsuhæli Náttúrulækninga-
félags íslands í Hveragerði
minnisvarði af Jónasi Sveins-
syni lækni. í gær voru liðin
90 ár frá fæðingu Jónasar,
en hann lézt á þessu ári eins
og kunnugt er.
Minnisrvarðann hefur Einar heit-
inn Jónsson myndhöggvari gert
fyiir 12 árum. Rannveig dóttir
Jónasar afhjúpaði varðann og hin
dóttirin Guðbjörg Birkis minntist
föður síns. Margar ræður voru
f.uttar m.a. flutti dr. phil. Sigurð-
ur Nor'dal fyrrum sendiherra
minningarræðu um Jónas Krist-
jánsson. Mikið fjölmenni var við
athöfnina'.
Frábærar við-
tökur
Gumundur Jónsson óperu-
söngvari hélt söngskemmtun
í Gamla Bíó í gærkvöldi fyr-
ir fullu húsi, og við fráhærar
viðtökur áheyrenda- Vegna
þess að færri komust i hús-
ið en vildu, endurtekur hann
söngskemmtunina á sama
stað annað kvöld, en aðeins
það eina sinn.
Hættir aft reykia
Haganesvík, 19. sept. - Seinni
partinn í sumar hefur verið
unnið með tveimur stórvirk
um ýtum í Strákavegi og hef
ur verkið sótzt sæmilega. —
Lítil.sjósókn hefur verið héð
an frá Haganesvík í sumar
og afli tregur. Lax og silungs
veiði hefur verið með ágæt
um. Bezt hefur veiðin verið
í Miklavatni og Flókadals-
vatni. Litið sem ekkert hef-
ur verið reykt af aflanum —
Honum komið ferskum á
markað.
H.R.T.
UTAU UR HEIMI K
Kúba mótmælir
Það gekk ekki átakalaust
að koma kúbanska forsætis-
ráðherranum, Fidel Castro
fyrir á hóteli i Bandaríkjun-
um. Sem kunnugt er hefur
Bandaríkjastjóm takmarkað
ferðafrelsi Castros við Man-
hattaneyju en Castro vildi
ekki sætta sig við það hótel
sem honum var ætlað og býr
nú í Harlem, sem er blökku-
mannahverfi á Manhattan.
Forseti Kúbu hélt ræðu í
dag, þar sem hann veittist
harðlega að Bandaríkjunum
vegna meðferðarinnar á
Castro og kvas hana ekki
mundi bæta sambúð ríkj-
anna. Sagði forsetinn, að 20
milljónir kúgaðra negra í
Bandaríkjitinum hefðu gert
málstað Kúbu að sínum með
afstöðu sinni við Castro.
AlIsherjarþingiS sett
14 ný ríki
Kl. 7 í gærkveldi eftir ís-
lenzkum tíma var allsherjar
þing Sameinuðu þjóðanna,
hið 15. í röðinni, sett í aðal-
stöðvum samtakanna í New
York. Ekki var vitað hvort
Krustjoff sat setningarfund-
inn eða hvort hann komi þá
fyrst til þingsins, er hann
flytur ræðu sína,
Fyrsta verk allsherjarþings
ins er að velja sér forseta.
Fleiri ríki en nokkru sinni
eru nú j tölu samtakanna og
hafa 14 ný bætzt við frá því
síðasta þing var haldið. Eru
það 13 ríki í Afríku, sem
fengið hafa sjálfstæði á þessu
ári svo og Kýpur.
Krústjoff hitti Castro
Nikita Krustjoff hefur kom
ið að máli við Fidel Castro
forsætisráðherra Kúbu en
þeir félagar dvelja nú báðir
vestan hafs á þingi s.Þ. Fór
Krustjoff til fundar við
Castro þar sem hann býr á
hóteli í blökkumannahvnrfi
í New York, og er þetta í
fyrsta sinn, sem þeir hittast.
Castro mun ávarpa allsherjar
þingið eins og Krustjoff og
er gert ráð fyrir að „ávarpið"
verði í Iengra lagi.
Tító Júgóslavíuforseti kom
til New York í gær og vorn
næstum jafn margir lögreglu
menn settir til að gæta hans
og Krustjoffs. Eru nú annir
miklar hjá bandarísku lög-
reglunni.