Tíminn - 21.09.1960, Síða 16
SLÁTURTÍÐ
Á SKULAGÖTU
Þessa dagana má heyra sár-
an lambsiarm og skotdynki í
bækistöSvum Sláturfélags Suð
urlands við Skúlagötu. Þar
stendur yfir sauðf járslátrun
inni í miðri Reykjavík, og eru
um 500 dilkar afgreiddir inn
í eilífðina og á matborð Reyk-
víkinga á dag. Þar er líka
tekið við sláturafurðum af
öllu Suðurlandsundirlendinu,
en á því svæði öllu mun vera
slátrað á sjötta þúsund fjár á
dag þegar sláturtíð stendur
sem hæst.
Tínijnn skrapp í gær í örs'tutta
heimsókn á þennan vígvöll. Erind-
iö var að fá að fylgjas-t með för
sláturfjárins um húsið frá því það
kemur í fullu fjöri úr réttum og
af heiðum og þar til það er af-
greitt sem kræsingar í hendur hús-
mæðra og í veiílanir. Vigfús Tóm-
asson, yfirverkstjóri hjá Sláturfé-
laginu tók þessari málaleitan Ijúf-
mannlega, leiddi blaðamann og
Ijósmyndara um húsið og skýrði
það sem fyrír augu bar.
500 á dag
Sláturféð er flutt á bifreiðum
til Reykjavíkur og kemur þangað
yfirleitt síðla nætur eða snemma
morguns, og síðan er slátrað dag-
langt. Féð er tekið af bílunum
og geymt í stíum inni í húsinu —
uppi á annarri hæð — þar til kem-
ur að örlagastundinni. Þarna
n.átti líta margan prúðan gimbil í
gær þegar Timinn var þar á ferð-
inni, og kvað Vigfús fé vera ó-
venju vænt í ár, enda engin furða
cftir fíðarfarið í sumar.
— Dilkarnir lögðu sig að með-
a'tali á 13 kg við sumarslátrun-
ii.a, og væntanlega verður meðal-
þunginn eitthvað svipaður núna,
kannski 14—15 kg.
— Og hvað er mörgu fé slátrað
hér?
— Það er um 500 á dag. Sumar-
siátrun hófst hér 22. ágúsf, og var
s’átrað eitthvað um sex þúsund
fjár, en alls verður hér sennilega
slátrað 15—20 þúsundum. Hér
VIGFÚS TÓMASSON
- slátursalan að hefjast
slátrum við aðeins fé úr nærsveit-
i m Reykjavíkur, en á öllu félags-
svæðinu verður slátrað 130 þúsund
fjár. Langmestu er slátrað á Sel-
fossi, 1600—1700 á dag, en slátrun
er einnig mikil á Hellu, Djúpa-
dal, Vík og Klaustri. Og af öllu
þessu svæði berast sláturafurðirn-
ar hingað til vinnslu, það er slátr-
r.ð eitthvað á sjötta þúsund fjár
a dag þegar mest er umleikis.
Ný slátrunaraSferö
í þessum ieiðangri var þó ekki
a-tlunin að kvnna sér kjötiðnað
Siáturfélagsins, heldur einungis
fylgjast með slátruninni. Og innan
við innstu stíuna kveða við skot-
hvellir, þar er skotmaður að verki,
og grunlausir dilkarnir ljúka þar
því lífi sem staðið hefur sumar-
langt á afrétti. Þarna er gengið
fljótt og hreinlega til verks. Not-
uð er svonefnd rotunarbyssa, og
hefur það verkfæri gefið mun
betri i'aun en helgrímur og kúlu-
byssur, tjáir Vigfús okkur. Slysa-
hætta var ævinlega af þeim verk-
færum, en er nú að mestu úr sög-
unni. Hér er rekið sláturhús allt
árið og slátrað bæði nautgripum
og svínum auk sauðfjár. Sama
vopn er .notað á svínin og féð,
nema stærri og öflugri á svín og
fcrgamla hrúta en hin venjulega
Dilkarnir bíða þess grunlausir að skotmaöur finni þá í fjöru
SkotiS riSur af og sláturiambiS kippist tii í dauSateygjum
fjárbyssa. Spriklandi kindaskrokk
unum er raðað á rekka, en þar
fyrir innan eru fláningsmenn að
vierki og viitna margir saman
in-att og skipulega.
— Við höfum tekið upp nýja
aðferð, svonefnt félagsakkorð,
v.’ð fláninguna, segir Vigfús. Fimm
r.’enn vinna að- skepnunni sem
fer milli þeirra á færibandi, og
þarf hver maður aðeins að temja
sér nokkur föst hnífsbrögð. Þess
\egna verður meiri sérhæfing og
hraði við verkið en áður var, þeg-
ar einn maður fláði alla skepn-
una, og auk þess er miklu meira
hreinlæti við þessa aðferð. Það
var líka orðið erfitt að fá góða
fláningsmenn, og eru menn al-
mennt að taka upp þessa starfs-
hætti í sláturhúsunum.
Það leynir sér heldur ekki að
þessi vinnubrögð gefast vel. Ekki
lrður nema lítil stund frá því
skepnan var skotin og þar til að
henni hefur verið unnið, haus,
innmatur og gæra eru farin sína
le.ð, en skrokkurinn er kominn
upp í gálga þar sem ungur dreng-
ur veitir honum s'íðasta umbúnað
og fyrirbönd. Þaðan liggur svo
leiðin í vinnslusali, í frystingu, í
afgreiðslu, í verzlanir, í pottinn
og ofan í maga á háttvirtum kjós-
endum. Svo taldist til að átta
n snns ynnu að skepnunni, fyrstur
skotmaðurinn og siðastur drengur-
inn við gálgann.
Haus og innmatur
Á fyrstu hæð í húsi Sláturfé-
lagsins heimsóttum við þau
salarkynni þar sem unnið
er að sláturmat og sviðum.
Þrír menn stóðu við svíðingu í
iitlum klefa en við furðulítinn
reyk, enda sviðið í sérlega gerð-
um ofni við geysimikinn hita. Það
er mikil list að svíða kindarhaus
svo vel takist, en Vigfús kvað þá
Sláturfélagsmenn hafa verið
heppna með starfsmenn og hafa
haft sömu svíðingameistara áxum
saman, föður með tveimur sonum
sínum. Þeir feðgar kipptu sér ekki
upp við þessi tíðindi, en brugðu
kindarhausum i ofninn af sömu
(PYamhald á 15. síðu).
Regn
Suðaustan gola og siðan
kaldi, dálitil rigning með
kvöldinu. Hiti 6—9 stig.
Þannig er spáin i dag.
Gott er því að vera við öllu
búinn og gleyma ekki regn
hlífinni heima.
Fláningsmenn að verki með skjótum og skipulegum vinnubrögðum