Tíminn - 23.09.1960, Blaðsíða 1
Áskriffarsíminn er
1 2 & 2 3
fc.
214. tbl. — 44. árgangur.
PHWWW..J. ,ii mpi
Vo»-cp->S tJJ
m- . * * ti% Ki
f. tUÍ & -4,
Föstudagur 23. september 1960.
Utvegsmenn mót-
mæla viðræðunum
„Almennur fundur útvegs-
manna á Austurlandi, haldinn
miðvikudaginn 7. sept mót-
mælir því, að teknir verði upp
samningar við Breta um fisk-
veiðilandhelgi íslands "
Þetta er upphaf ýtarlegrar sam-
þykktar útvegsmanna á Austur-
landi á fundi þeirra um landhelgis
og sjávarútvegsmál. Þarna kemur
fram hjá útgerðarmönnum sjónar-
mið þjóðarinnar allrar í þessu
rráli. Enn fremur segir í þessari
áiyktun að fundurinn telji að
samningar við einstakar þjóðir
komi ekki tii greina, og hafi sú
stefna verið fastmótuð áður. Einn-
íg að ekki komi til greina skerð-
ing á 12 mílna landhelgi um-
hverfis landið allt og þaðan af
Telja ein'nig, ati rekstrargrundvöllur útvegsins
hafi versnaÖ til mikilla muna og krefjast þegar
samninga um nýjan rekstrargrundvöll. Telja
aÖ stórfelld mistök hafi átt sér stacS
síður að stjórnin hafi nokkurn
létt til að veita útlendingum leyfi
til að veiða á tilteknum svæðum
innan fiskveiðilaindhelginnar.
Einnig er mótmælt togveiðum ís-
lenzkra skipa innan línunnar.
„Versnað til mikilla muna"
Ályktanir fundarins eru birtar í
lieild á 5. síðu blaðsins í dag, en
í þeim segir enn fremur, að fund-
urinn telji „að rekstrargrundvöll
ur bátaútvegsins sé orðinn óvið-
(Framhald á 2. síðu).
S.Þ. eina von
smáþjdöanna -
- sagði Eisenhower í ræðu sinni á Alls-
herjarþinginu í gær
I gær ávarpaSi Eisenhower
Bandaríkjaforseti allsherjar-
þing SameinuSu þjóðanna.
Hann hóf mál sitt með því að
bjóða hin nýju ríki velkomin
í tölu samtakanna en með til-
komu þeirra eru hér saman-
komin nær 100 ríki til þess
að finna leiðir til varanlegs
friðar í heiminum, sagði for-
setinn.
Forsetinn kvað aldrei hafa verið
i'ikari ástæðu en einmitt nú að
hefja öfluga baráttu gegn fátækt,
eymd og sjúkdómum. Öllu þessu
þyrfti að útrýma til þess að friður
gæti talizt tryggður. Þá benti for-
setinn á hinar miklu framfarir,
sem hefðu orðið á sviði tækninnar
og þá um leið knýjandi nauðsyn
þess að finna raunhæfar leiðir til
afvopnunar. Ég kem fram fyrir
yður, sagði forsetinn, vegna þess
að enn einu sinni er ótryggt á-
stand vor á meðal. Mikilvæg mál
i fcfni bíða úrlausnar.
1
roimMMirrnwrirowm
j Styðjum SÞ
Þá hóf Eisenhower að ræða um
hlutverk Sameinuðu þjóðanna og
sagði þar m.a.: Sameinuðu þjóð-
irnar eru einustu samtökin, sem
markað geta með starfi sínu leið-
in? til friðar. Með því að styðja
Sameinuðu þjóðirnar og stofnanir
á vegum þeirra náum við mestum
(Framhald á 2. síðu).
Hin nýja Þverárrétt
í fyrradag var réttað í fyrsta sinn í hinni nýju Þver-
árrétt í Borgarfirði. Þverárrétt mun vera með fjár-
flestu réttum landsins, að hinum ólöstuðum, og er nú
eftir endurreisnina einhver myndarlegasta og bezta
fjárrétt á landinu — einnig að hinum ólöstuðum. Hún
var áður elzta steinsteypta rétt landsins, þangað til nú
í sumar að hún var brotin niður og ný byggð í stað-
inn, byggð 1911. Nú hafa hins vegar þau umskipti
orðið, að Þverárrétt er nýjasta steinsteypta rétt á land-
inu, því sem sagt, hún var byggð 1960. — Grein um
Þverárrétt mun birtast á síðum blaðsins á morgun.
(Ljósm. Tíminn KM)
Stórbruni í Fljóts-
hlíð í fyrrinótt
í fyrrinótt varð stórbruni
að Kirkjulækjarkoti í Fljóts-
hlíð, er fjós, hlaða, hesthús,
fjárhús, tvær kýr og eitt svín
brunnu. Eldsupptök voru
sjálfsíkveikja í heyi, en því
tókst að bjarga að mestu ieyti,
utan hvað nokkrar skemmdir
urðu af vatni.
Fjórbýli er að Kirkjnbæjar
koti'. Þar býr Guðni Markús-
son og þrír synir hans, Guðni,
Magnús og Grétar. Bræðurn-
ir áttu eignir þær, er fórust
í þessum bruna.
Skepnurnar fórust
Þag var um þrjúleytið í
fyrrinótt, að eldsins varð
vart. Var þá þegar hringt í
slökkviliðið á Hvolsvelli, og
var það komið á vettvang kl.
fjögur. Austan kaldi var, er
þetta varð, og hið bezta veð-
ur. Var það lán í óláni, því
fyrir bragðið var auðvelt að
verja aðrar bygghigar, sem
eru miklar á Kirkjubæjar-
koti. Bræðurnir Guðni og
Magnús eiga þar yfirbygginga
verkstæði, Guðni faðir þeirra
smíðar eldhúsinnréttingar og
hurðir, en Grétar á steina-
steypu.
Eins og fram kemur af
þessu, er búskapur ekkl mikill
hjá feðgunum, og iðnaður sit
ur í fyrirrúmi. Þó eiga bræð-
urnir nokkrar skepnur, og
(Fraæhald á 2. síðu).
Hið fuilkomna slálohús á Kópaskeri — bls. 8 til 9