Tíminn - 01.10.1960, Qupperneq 8

Tíminn - 01.10.1960, Qupperneq 8
8 TÍMINN, laugardaginn 1. október 1960. Um leið og ferðamaður stíg- ur fæti sínum út úr lestinni í brautarstöðinni í Leopoldville kemur til hans sjálfskikkaður burðarmaður sem hrifsar far- angurinn og hverfur með hann á augabragði. Við gáfum leigubílstjóra merki um að við þyrftum á flutningi að halda en hinn æruverðugi burðar- maður hafði þá, því miður, troðið honum í annan bíl. Með fullum rétti förum við þess á leit að pjönkunum sé kippt yfir til bílstjórans sem við höfum rætt við, smá viðvik, sem ekki ætti að kosta mikið þref, en með þessu bárum við eld að nokkurs konar ihugarfarslegu sprengiefni því fer- legt rifrildi upphefst í sama bili og við komumst að því, að rótgróið ættar'hatur milli þessara burðar- manna hefur fengið kærkomið til- efni útrásar. Að lokum var stig- inn stríðsdans á brautarpallinum og við stórkostlegar formælingar og válega tilburði misstum við andlitin — og hundrað nýlendu- fr’anfca til hvors bílstjóra, og þótt- umst sleppa vel. Myrkrið skellur á nákvæmlega klukkan sex. Við erum staddir í uplpjómaðri stórborg mitt í hinni svörtu Afríku, borg úr stáli og steini og skýjakljúfar þar sem áður' var framskógur og haf neonljósa meðfram endalausum breiðgötum. Kaffisölurnar á gamgstéttunum eru með Parísarsniði, klæðnaður gestanna sá minnsti, sem hægt er að komast af með en mjög þokka- legur. Innfæddir þjónar svo færir og frjálsir að maður freistast til að halda að þeir hafi margra kyn- slóða starfsreynslu að baki, og það hafa þeir að vissu leyti sem undirtyllur hvíta mannsins. Árið 1948 var hér eitt einasta hús meira en einnar hæðar, hér hefur þró- unin farið fram með eldlegum hraða. En bakvið þetta skín í dökka mynd þjóðar, sem enn sem komið er, veit betri skil á mann- áti en lýðræði. Við göngum á markað innfæddra og troðumst um í þúsundföldum skara kaupenda og seljenda. Ein- stöku láta sig það varða að við erum þeir einu í mannfjöldanum, sem berum ljósan hörundslit, benda á okkur eins og þeim þætti klæðaburði okkar ábótavant, og aðrir senda okkur tóninn á mál- um, sem við skiljum ekki. LEOPOLDVILLE Lýsing og teikningar eftir Alex Secher Hér eru flestar hugsanlegar vörutegundir til sölu, en ekkert fast verð, því hér geldur heiður manns að selja og plata náungann eins og framast er unnt. Hér er þjarkað um rauðan pipar og svart- ar baunir og hvítt maíokmél og hér er prúttað um töfralyf. Bútar af klókódílaskinni, apaskottum og fuglaklóm eða tennur leóparda eru til sölu í miklu úrvali, töfralæknum til nota og afhendingar. Frum- skógarþroskinn er borinn á torg og seldur á þessum nýtízka risa- markaði, en kaupendur máttarins sem vörunni fylgir gegn hinum og þessum plágum og djöfulsins spilverki, eru líka vel tölufróðir bankamenn, innfæddir eða nýbak- aðir stúdentar. Dulmagnaðir helgi siðir og villimannlegar venjur blandast hinni svokölluðu menn- ingu og renna saman í slagæðum stórborgarinnar um skýjakljúfa, stræti og torg. Tjáningin í andli'tsdráttum þessa fólks er djúp en gefur sjaldan neitt til kynna, sem liggur' milli hinna tveggja skauta, ánægju og óánægju. Ef Afríkumenn brosa ekki, eru þeir reiðilegir á svip; líkt og þeir beri þjáningarfulla hrukku milli augabrúnanna, er svigna í myrkri ásjónanna. Bi'os þeirra er breitt og reiðin eldsum- brot, sem slítur allt helsi. Allt, sem þar er á milli, kemur fram í djúpum ennishrukkum, og það á sér sínar orsakir hér í Kongó. Akureyringar kjósa innan skanuns á milli þriggja presta Svo sem kunnugf er af frétt- um, hefur annaS prestsemb- ættið á Akureyri verið auglýst iaust til umsóknar. og rann umsóknarfrestur út 20. þ. m. Umsækjendur voru upphaf- lega fjórir, en einn umsækj- enda, Jón Hnefill Aðalsteins- son, cand. theol., dró umsókn sína til baka. Ekki er enn rá'ðið, hvenær prestskosning fer fram, og er beðig ákvörðunar biskpus um það. Sóknarnefnd Akureyrar vinnur ag kappi að undirbún ingi kosningarinnar, m.a. með samningu kjörskrár og prent un annarra kjörgagna. Umsækjendur um embættil sóknarprests á Akureyri eru allir tiltölulega ungir menn, en eiga þó að baki nokura ára starf hver í þjónnstu kirkjunnar. Elztur umsækjenda er sr. Sigurður Haukur Guðjónsson á Hálsi í Fnjóskadal. Sr Sig- urður er 33 ára gamall, sonur hins kunna garðyrkjubónda Guðjóns Sigurðssonar í Gufu dal og kov.u hans, Þórunnar Guðmundsdóttur. Hann tók gagnfræðapróf vig Mennta- skólann á Akureyri, en stúd- entsprófi lauk hann í Reykja vík vorið 1950. Að loknu stúd entsprófi gerðist hann bóndi í Gljúfurholti og bjó þar í eitt ár, þar til hann hóf nám í guðfræðideild háskólans. Sr. Sigurður Haukur GuSjónsson Hann lauk embættisprófi í janúar 1954, var síðan um eins árs skeið skrifstofumaður hjá SÍS í Reykjavík, en vígðist til Hálsprestakalls í Fnjóska Akureyrarbréf mmmmmmmmsmm 8 1 ( 1 Sr. Bjartmar Kristjánsson Bjartmar Kristjánsson á Mælifelli í Skagafirði, 45 ára að aldri. Sr. Bjartmar er bor inn og barnfæddur Eyfirðing ur, sonur hónanna Fanneyj ar Friðriksdóttur og Kristj- áns H. Benjaminssonar, hrepp stjóra á Ytri-Tjömum. Hann tók stúdentspróf við M.A. vor ið 1941 og lauk embættis- prófi í guðfræði árið 1946. Sama ár gerðist hann prest ur á Mælifelli og hefur þjón að þar samfleytt síðan, eða í 14 ár. Sr. Bjartmar er kvæntur Hrefnu Magnúsdótt ur, járnsmíðameistara á Ak- ureyri, Árnasonar. Eiga þau nokkur börn. Annar umsækjandi er sr. Sr. Birgir Snæbjörnsson dal vorið 1955 og hefur setið þar síðan. Kona hans er Krist ín Sigríður Gunnlaugsdóttir, og eiga þau nokkur börn. Yngsti umsækjandihn er sr. Birgir Snæbjörnsson í Lauf ási, 31 árs að aldri, fæddur á Akureyri 20. ágúst 1929, son ur hjónanna Jóhönnu Þor- valdsdóttur og Snæbjörns Þor leifssonar, bifreiðaeftirlits- manns. Sr. Birgir ólst upp með foreldrum sínum á Akur eyri, gekk þar í skóla op lauk stúdentsprófi við M.A. vorið 1949. í janúar 1953 lauk hann guðfræðiprófi og vígðist nokkr um vikum síðar til Æsustaða prestakalls í A-Hún., og þjón aði þar til 1959, er hann fékk veitingu fyrir T/vufási. Sr. Birgir er ókvæntur. I.G. 40—50 þúsund sekkir Þykkvabæ, 29. sept. — Lokið er nú að fullu við að taka upp kartöflur og hefur uppskeran verið mjög góð. Búizt við að uppskeran nemi milli 40 og 50 þúsund sekkjum, en um 5 þúsund sekkjum af útsæði var plantað í vor. Slátrun stend- nú yfir og mun verða slátrað um 10 þúsundum fjár. Dilkar eru í meðallagi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.