Tíminn - 06.11.1960, Qupperneq 1
t-
Pij-'L -3 r u
|HBíæ$y
■
Prófessorar bera kistuna frá Háskólanum.
Útgerðin segir
upp samningum
Undirbúningur að samningum útvegs-
manna við ríkisstjórnina
Landsamband ísl. útvegs-
manna hefur sagt upp öllum
kjarasamningum við sjóm.-
félögin og falla samningarnir
úr gildi um áramótin. Flest
sjómannafélög í landinu hafa
þegar sagt upp samningum.
Útgerðarmannafélög víðs
vegar um landið hafa tekið
ákvörðun um þetta og falið
LÍÚ að tilkynna þeim sjó-
mannafélögum, sem ekki
höfðu sagt upp kjarasamning
um. Meðal þeirra félaga, sem
ekki höfðu sagt upp kjara-
samningum voru sjómannafé-
lögin í Reykjavík og Hafnar-
firði.
Samningar við ríkisstjórnina
Ástæðan fyrir þvi að út-
gerðarmenn segja upp samn-
ingum mun vera sú, að fyrir
dyrum eru samningar útgerð
arinnar við ríkisstjórnina, en
eins og kunnugt er hefur út-
gerðin komizt á heljarþröm
vegna efnahagsaðgerða ríkis-
stjórnarinnar. Virðast útgerð
(Framhald á 2. síðu).
Mikið fjölmenni við útför
dr. Þorkels Jóhannessonar
frá Neskirkju í gær
Úfför dr. Þorkels Jóhannes-
sonar háskólarektors var gerð
Algert lönd-
unarbann
Samband fiskkaupmanna í
Hull hefur nú ákveðið að
hætta að kaupa íslenzkan
fisk þar til náðst hefur sam-
komulag í fiskveiðideilu Breta
og íslendinga, segir brezka
blaðið Fishing News sl. föstu-
dag.
(Framhald á 2. síðu).
frá Neskirkju í Reykjavík í
gær að viðstöddu mikíu fjöl-
menni. Klukkan hálftíu hófst
kveðjuathöfn í anddyri Há-
skólans, en útförin í kirkjunni
kl. 11 árd.
Líkfylgdin hafði viðkomu í
háskólanum á leið til kirkj-
unnar. Var kistan borin inn 1
anddyrið; þar sem stúdentar
og prófessorar voru saman
komnir. Karlakór stúdenta
söng sálm. Ólafur Björnsson
prófessor, vararektor mælti
kveðjuorð og ræddi um starf
dr. Þorkels í þágu háskólans.
Inn í háskólann báru stúdent-
ar kistuna en kennarar heim-
spekideildar út.
Stúdentar gengu í farar-,
broddi undir fána og merki|
Stúdentafélags Reykjavíkur á-
leiðis til kirkju.
Inn í kirkjuna bar háskóla-
iáð, menntamálaráðherra og
ráðuneytisstjóri menntamála-
ráðuneytisins kistuna.
Séra Jón Thorarensen flutti
minningarræðuna í kirkjunni
og jarðsöng. Úr kirkju báru
nokkrir vinir og samherjar
dr. Þorkels kistuna. Forseta-
hjónin voru viðstödd athöfn-
ina í háskólanum og kirkjunni.
Hin stóra Neskirkja var þétt-
skipuð fólki
Stúdentar standa heiðursvörð í anddyri Háskólans.
Fisksölumálin
bls. 3
IOÍ>IÍIMSBaÉÉiÉMÍÍtÍtÍtÉÍÍÉÍ^tfÍÚÍÍÍÍÍl!ÍÉrtiÍ(ÍáÉÍ^^'ÍÍMLrjgie^aáBBMMáÉÍÍÍÍMfcaiÉUgÍ
/